Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Page 37
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. 49 Lífsstni y # h GÚRKUR Bónus m 245 127 VINBER §■ 4 11 399 335 KARTOFLUR ce 3 C 'O 0Q 136 87.50 DV kannar grænmetismarkaðinn: Verð á íslensku græn fer lækkandi meti Islenska grænmetíð, sem var mjög dýrt þegar það kom á markaðinn, fer nú óðum lækkandi þótt ekki sé það orðið ódýrt. Innlendar kartöflur fást nú einnig í nær öllum verslunum en þær eru litlar enn sem komið er. Gulrætur fást ekki alls staðar þar sem innflutningur hefur verið stöðv- aður en innlend framleiðsla annar ekki eftírspurn. Helstu breytingar, sem orðið hafa á verðlagningu frá því í síöustu viku, eru þær að sveppa- verð hefur lækkað nokkuð en búist er við að það sé tímabundið og að það fari hækkandi aftur. Kílóverð á tómötmn er lægst hjá versluninni Fjarðarkaupi í Hafnar- firði og kostar það 165 krónur. Bónus selur kílóið á 175 krónur, Mikligarð- ur á 228 krónur, blómaverslunin Blómaval á 245 krónur og hæsta verð er hjá Hagkaupi en þar kostar kílóið 255 krónur. Er 55% munur milli hæsta og lægsta verðs. Meðaíverð þessa viku er rúmar 213 krónur en var 206 krónur í síðustu viku. Munur á hæsta og lægsta verði á gúrkum er 93% sem er þónokkuð ef það á að spara við sig í innkaupum. Er meðalverð nú 204 krónur. Lægsta verð var að finna í versluninni Bónus við Faxafen en þar kostaði kílóið 127 krónur. Hæsta verð er 245 krónur hjá versluninni Blómavali. Mikh- garður selur gúrkurnar á 215 krón- ur, Fjarðarkaup kemur rétt á eftir og kosta þær þar 216 krónur. Hag- kaup var ekki miklu hærri en þar kostar kílóið 219 krónur. Sveppir hafa lækkað nokkuð og eru á tilboði á nokkrum stöðum. Gæðin virðast ekki vera lakari en áður og hefur ágætt framboð af vörunni leitt til lægra verðs að sögn verslunar- manna. Bónus er með lægsta verðið, eða 236 krónur kílóið. Fjarðarkaup er með kílóið á 275 krónur, Mikli- garður á 288 krónur, Hagkaup á 299 krónur og Blómaval rekur lestina með 420 krónur. 78% munur er á hæsta og lægsta verði og er meðal- verð 303 krónur. Lægsta verð á grænum vínberjum er 335 krónur og er það að finna hjá Hagkaupi. Hæsta verðið er aftur á mótí hjá Miklagarði sem selur þau á 399 krónur. Verslunin Fjarðarkaup Nú fer íslenska grænmetið að verða alls ráðandi á markaðnum og hefur innflutningur verið stöðvaður að mestu. DV-mynd GVA selur kílóið á 336 krónur en ekki eru græn vínber fáanleg hjá Bónus og Blómavali. Von var á þeim hjá síðar- nefndu versluninni þó þau hefðu ekki fengist í bili. Meðalverð er tæpar 357 krónur. Hæsta verð á grænni papriku var að finna hjá versluninni Hagkaupi og kostar kílóið þar 449 krónur. Það lægsta er hjá Bónus, eða 261 króna. Munurinn er töluverður á hæsta og lægsta verði, eða 72%. Mikligarður selur kílóið á 438 krónur og er Fjarö- arkaup meö mjög svipað verð en þar er kílóið á 439 krónur. Græna paprik- an fékkst ekki hjá Blómavali en þar var þó að finna gular paprikur. Nú liggja erlendar kartöflur við hlið þeirra íslensku og sýnir grafið hér á síðunni verð á þeim útlensku. Verðmunur er ennþá verulegur en búið er að stöðva innflutning á kart- öflum frá öðrum löndum þar sem þær íslensku standa nú víðast hvar til boða. Innflutningur á erlendu grænmetí er einungis leyft þegar það íslenska er ekki til staðar eða annar ekki eftirspurn eins og margir kann- ast við. Meðalverð erlendu kartaflnanna er 105 krónur og er lægsta verðið að finna í Bónus en þar fæst kílóið á 87 krónur og 50 aura. Áfram er sama verð hjá verslununum Hagkaupi og Miklagarði en þar kostar kílóið 99 krónur og 50 aura. Fíarðarkaup selur kflóið á 104 krónur og 50 aura en Blómaval er með hæsta verðið og kosta kartöflurnar þar 135 krónur og 50 aura. 55% munur er á hæsta og lægsta verði. íslensku kartöflurnar eru mun dýrari, eins og áður sagði, og er með- alverð a þeim 145 krónur. Lægsta verð er hjá Bónus og kostar kílóið 106 krónur. Eru það rauðar kartöfl- ur. Næst lægsta verðið er hjá Fjarð- arkaupi þar sem þær kosta 128 krón- ur, í Miklagarði er kílóverðið 129 krónur, 169 krónur í Hagkaupi en 193 krónur hjá Blómavali. Nú fæst eingöngu íslenskt blómkál í verslunum og er það ódýrast hjá Fjarðarkaupi á 240 krónur. Blómaval kemur þar rétt á eftir og kostar kfló- ið þar 242 krónur. í Miklagarði er kílóið á 248 krónur og kostar þaö 259 í Hagkaupi. Bónus selur ekki blóm- kál. Von var á nýju grænmeti í nær allar verslanirnar og var viðbúið að verðmyndibreytasteitthvað. -tlt Sértilboð og afsláttur: Gosdrykkir og aftur gosdrykkir Alls staðar eru gosdrykkir á góðu verði þessa vikuna. Er ástæðuna sennilega að finna í því að það hefur sýnt sig að margan íslendinginn þyrstir mjög um verslunarmanna- helgina. Fjölmargir bregða sér út á land í sumarbústað eða útflegu og er þá gott að hafa svaladrykk með í ferðina. Ýmissa annarra grasa gætir þó einnig í tilboðum vikunnar en greinilegt er að verslunareigendur taka mið af þörfum viðskiptavina sinna þessa mestu ferðahelgi ársins. Hjá versluninni Fjarðarkaupi er til alls kyns kex á tflboðsverði og einnig eru gosdrykkir þar á hagstæðu verði. Þar fást lítil handklæði sem getur verið gott að hafa við höndina og kostar stykkið af þeim 95 krónur. Svokallaðir „póló“ bolir fást þar á 426 krónur, svona ef það skyldi viðra vel. 50 burðar- og ruslapokar í pakka kosta 150 krónur og eru þeir merktir verslunixmi. Handhægt getur verið að hafa þá með í ferðalagið. Fleira og fleira var þar að finna á tilboðs- verði. Hjá versluninni Hagkaupi eru vikutflboð í gangi og eru Papco eld- húsrúllur þar á meðal á 169 krónur. Gos var á sérstöku verði og kostar til að mynda kippa af Coke í 'A lítra umbúðum 360 krónur, l'Á lítri af ís- cola er á 107 krónur, sama magn af RC Cola á 11F krónur og Sinalco á 110 krónur. Þykkvabæjarnasl er á 159 krónur pokinn og inniheldur hann um það bil 140 grömm. Pylsur, salat og maískorh eru einnig á vikut- ilboðsverði. Útsalan er enn í fullum gangi hjá versluninni og fást þar föt á alla fjölskylduna á niðursettu verði. Hjá Blómavali er ekki að finna vör- ur á tilboðsverði enda verslunin af allt öðrum toga. Þar sem grænmetis- torgið er má hins vegar finna vöru- tegundir sem ekki fást í stærri versl- Kannið tilboðin hverju sinni. I þess- ari viku eru það gosdrykkir sem eru á góðu verði á flestum stöðum. unum. Má þar nefna framandi krydd ýmiss konar og olíur til matargerðar. Heflsufæði er þar ráðandi í hillunum og má þar á meðal finna heilhveiti, spaghetti og kínverskar núðlur. Jurtate er einnig til í ágætu úrvali og annað sem telst til heflsusamlegra fæðutegunda. Verslunin Bónus býður gott verð að vanda. Þar kostar pokinn af Þykkvabæjarnasli 159 krónur en það er sama verð og Hagkaup býður. Flögur frá Maruud eru á 134 krónur hver poki og inniheldur hver þeirra 100 grömm. Gosdrykkir í 2 lítra um- búðum er að finna í hillum verslun- arinnar og kostar kókflaskan 132 krónur. í Hafnarfirði, þar sem Bónus hefur opnað nýja verslun, er opnun- artilboð á þessari sömu vöru og kost- ar 2 lítra kókflaska 99 krónur. 6 stykki af HI-C kosta 91 krónu. Ef grflla skal um helgina er hægt að kaupa kol í versluninni fyrir 269 krónur (4'/2 kíló). Mikligarður er einnig með gos- drykki á hagstæðu verði og eru kart- öfluflögur frá Maruud þar á tilboði. Kostar pokinn af því 144 krónur. Kjúkhngar eru á tflboðsverði og kostar kílóið af þeim 498 krónur. Grillpylsur eru á 599 krónur kílóið og hamborgarar eru á 59 krónur með brauði. Kflóverð á banönum er áfram 98krónur. -tlt Paprika Verð í krónum J«n. F»b. Mar* Aprl Mal Júnl Jóll Agi*!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.