Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990. - Hulda Gunnarsdóttir ein af fyrstu konunum með bílpróf á íslandi „Þelr uröu stundum dðlltlö súrlr strókarnir frá hlnum smjörllklsgerðunum þegar kaupmennlrnlr keyptu smjörllkl af mór en ekkl þelm," seglr Hulda Gunnarsdóttlr sem ó órunum upp úr 1930 keyrði út smjörllki fyrir smjörllklsgerölna Svan. DV-mynd JAK Ég sé hana fyrir mér hossast á litla bílnum á misgóöum malarvegum borgarinnar meö Svansmerkiö aftan á og bílinn fullan af smjörlíki. í leður- jakka meö kaskeitið á höíöinu; ákveöna; blikkandi strákana í búð- unum sem alltaf keyptu af henni. Hulda Gunnarsdóttir er ein af allra fyrstu konum sem tóku bílpróf hér á landi. Óstjórnlega bíladellu segist hún hafa fengið áriö 1929, þá 17 ára gömul. „Faöir minn, Gunnar Ólafsson, var bílstjóri og kenndi á bíl frá því að ég man eftir mér. Eitt sinn var fjölskyld- an á leiö austur aö Hæli í Hreppum. Mér fannst þetta alveg óralangur vegur og þegar við vorum komin í Kambana fannst mér sem hann hlyti aö vera orðinn afskaplega þreyttur. Þá sagöi ég viö föður minn: „Mikiö vildi ég að ég kynni að keyra því þá gæti ég hvílt þig.“ Á leiðinni fór ég aö hugsa um þaö hvað það hlyti að vera gaman að kunna aö keyra. Ég talaöi um þetta nokkrum sinnum þaö sem eftir var feröarinnar og var þar meö komin með bíladellu. Faðir minn segir þá: „Ég skal kenna þér að keyra ef þú manst í fyrramálið nokkur orð.“ Það var kúpling, bremsa, fyrsti og annar gir og bensíngjöfm. Þegar hann svo kallaði á mig næsta morgun er ég vaknaði kallaði ég á móti þessi orð og þá fór hann aö hlæja og sagðist víst veröa- að kenna mér. Og úr varö.“ Hulda segir aö sín fyrstu skref sem bílstjóri hafi verið aö keyra fram og til baka í trööum upp að húsi. Segir hún þær ekki hafa verið bílbreidd og var grindverk sitt hvorum megin viö. „Það mátti engu muna en ég hafði það aftur og bak og áfram. Fólk tók þessu eins og hveiju ööru gríni og bjóst við aö áhugi minn á bílum væri bara bóla sem myndi strax falla um sjálfa sig. En bíladellan hefur ekkert hjaðnað." Ráðskonustarf heillaði ekki Svo kom að því að Hulda gerðist „alvörubílstjóri" er hún réö sig í vinnu hjá smjörlíkisgerðinni Svanin- um og hóf að keyra út smjörlíki í verslanir. „Á þessum tíma, kringum 1930, var eins og að vinna hæsta vinning í happdrætti að fá vinnu. Var yflrleitt ekkert annað að fá fyrir konur en að gerast ráðskonur. Það var eitt- hvað sem mig langaði ekki í. Því tal- aði ég við forstjóra Svansins, H.J. Hólmjárn, sem var giftur inn í Qöl- skylduna, og spuröi hvort hann gæti útvegaö mér vinnu. Skömmu síðar hefur hann samband viö mig og seg- ir aö önnur starfsstúlka sín hafi slas- ast og því þurfi hann mig i hennar staö til aö vinna við pökkun. Eftir að hafa unniö i nokkra mánuði viö pökkun kemur forstjórinn tll min og segist vera aö fá lítinn bíl. Hann spyr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.