Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990. 15 Heimskreppa frá Hussein Á undanförnum vikum og mán- uðum hefur friðartónninn hljóm- að. Kommúnistar hafa misst tök sín á Austur-Evrópu, Þýskaland er að sameinast, Evrópa að ganga í eina sæng. Ekki hefur gengið hníf- urinn á milli Bandaríkjamanna og Sovétmanna og stórveldin semja svo hratt um afvopnun að menn hafa ekki undan. Gorbatsjov hefur verið boðið að senda fulltrúa sinn á fundina hjá Atlantshafsbandalag- inu og raunar á það bandalag við tilveruvanda að stríða. Til hvers Nató þegar friðurinn er tryggður? Til hvers hernaðarbandalög þegar óvinurinn er genginn til liðs við bandamenn? Bush Bandaríkjafor- seti bauð Gorba í sumarhöllina sína til að stappa í hann stálinu og styrkja hann í sessi. Og þeir voru um það bil að lyfta glasi, Baker og Sévardnadze, í einkavillu þess síð- amefnda þegar fréttirnar bárust af árás íraka á Kuwait. Það var lán í óláni. Þeir gátu fyr- ir vikið gefið út sameiginlega yflr- lýsingu, Rússarnir og Kanarnir, og fordæmt hernaðaraðgerðir Sadd- ams Hussein og íraska hersins. Þeir gátu sameinast, hinir fornu féndur, í ákalli til umheimsins um að einangra íraka með viðskipta- banni og útskúfun. í fyrsta skipti í sögunni náðist samstaða í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna og nú sigla bæði rússnesk skip og amer- ísk á Persaflóa, írökum til viðvör- unar. Þessir atburðir segja mikla sögu. Þeir kenna okkur að friðurinn verður aldrei tryggður um alla ei- lífð. Hvarvetna í heiminum rísa litlir hitlerar til valda sem eiga sína stórveldadrauma. Öxull heimsins er orðinn lengri en frá Washington til Moskvu. Vopnaátök framtíðar- innar brjótast ekki út í heimsstyrj- öldum heldur svæðisbundnum átökum og yfirgangi. Vígvellirnir færast til. Böðullinnfrá Bagdad Saddam Hussein hlýtur að hafa hiksta þessa dagana. Hann er nídd- ur niður af gervallri heimspress- unni. Honum eru valin hin verstu uppnefni: einræðisseggur, hryðju- verkamaður, valdasjúkur og hrottafenginn böðull. Slátrarinn frá Bagdad, segja menn, og hrollur- inn hríslast um þá. Og víst er ferill hans blóði drifinn. Ungur gekk hann til liðs við hryðjuverkasam- tök og upreisnarmenn í sínu eigin landi. Hann gerði aöfór að þáver- andi forseta landsins úr launsátri og þótt sú tilraun misheppnaðist lágu bílstjóri og lífvörður forsetans eftir í valnum. Hann braust til valda og lét skjóta tuttugu helstu andstæðinga sína á einu bretti skömmu síðar. Vildi vera öruggur um sig. Saddam Hussein hefur ver- ið miskunnarlaus við sína eigin landsmenn. Kúrdarnir hafa verið murkaðir niður með efnavopnum. Stjórnarandstaðan strádrepin. Limirnir á þjófum og nauðgurum eru afskornir og nýlega vakti Sadd- am Hussein á sér alþjóða athygli þegar hann lét hengja breskan blaðamann á almannafæri fyrir meintar njósnir. í ríki einræðisherrans er þjóðin heilaþvegin. í barnaskólum læra börnin að tilbiðja foringjann, í há- skólum verða stúdentar að votta honum virðingu sína og líf íraka hefur þann eina tilgang að fórna sér í þágu hans. Blóðfórnir eru heilagar og hver sá er réttdræpur sem svo mikið sem hallmælir hans hátign. í landinu eru reistar styttur af forsetanum, hallir honum til heiðurs og Saddam Hussein hefur í rauninni komið fólki sínu og þjóð til að trúa því að hann sé heilagri en allir heilagir. Sjálfur er hann búinn að finna það út að hann sé kominn í beinan karllegg af Ne- búkadnesar Babýloníukonungi sem var uppi fyrir tvö þúsund og fimm hundruð árum og ríkti yfir Arabíu allri. Hans er mátturinn og dýrðin. Sjálfumglaðir milljónarar Allt er það meira og minna satt og rétt sem sagt er um þennan skúrk. Hann er Hitler okkar tíma. Hann er sjálfur Hrollur lifandi kominn. En Saddam Hussein er meira en þetta. Hann er kænn og sæmilega viti borinn. Hann er praktískur í valdasýkinni. Til að skilja að árás íraks á Kuwait er meira en vitskert athöfn blóðþyrsts manns þurfa menn að átta sig á að hér eru miklir hagsmunir í húfi. Kuwait er aðeins peð í flóknu' valdatafli. Hin sögulegu rök árás- arinnar eru þau að Arabía eigi sér engin landamæri. Skipting álfunn- ar í fjölmörg þjóðlönd er verk gömlu nýlenduveldanna. Á hinum mismunandi landsvæðum hafa ríkt hinir ýmsu höfðingjar og ættbálkar araba en það er fleira sem samein- ar þá en aðskilur. Arabía er eitt ríki í huga Saddams Hussein og það krefst einnar stjórnar og einnar forystu. Enginn vafi leikur á því í huga íraksforseta hver eigi að gegna því hlutverki. Saddam Hussein heldur því fram að það sé lítið réttlæti í því aö smá- ríkið Kuwait ráði yfir auðugasta olíusvæðinu. Hvers vegna eiga Kuwaitbúar að velta sér upp úr auðæfunum og vita ekki aura sinna tal meðan aðrar arabaþjóðir búa viö fátækt og fábreytni? Þessum og viðlíka spurningum otar Saddam Hussein að fólki sínu og kyndir undir öfund og ásælni. Þar að auki hefur írak viljað hækka olíuverðið og sakar Saudi- Araba og Kuwaitbúa um að halda Laugardags- pistill Ellert B. Schram verðinu niðri og dæla of mikilli olíu inn á heimsmarkaðinn sem skaði hagsmuni araba. Skömmu fyrir átökin, sem nú standa yfir, hafði Saddam Hussein krafist verulegrar verðhækkunar en ekki fengið þeim kröfum framgengt að öllu leyti. Viðbrögð hans eru meðal annars hefnd og aðför að þessum meintu andstæðingum sínum sem hafa þannig af írökum réttmætan hagn- að og réttmæta stjórn á olíusöl- unni. Þetta eru rök Saddams Huss- ein. Kuwaitar eru leikbrúður í höndum Vesturlanda, sjálfumglað- ir milljónarar sem eiga að taka þátt í framfarasókn araba í stað þess að ráðstafa sínum auðæfum í Savoy-hótel, stórbyggingar og inn- stæður í svissneskúm bönkum. Saddam Hussein er arabískur þjóðernissinni, talsmaður alþýð- unnar og svarinn andstæðingur Ísraelsríkis sem ógnar yfirráðum araba á sínu eigin landi. Það er ekki út í hött að ísraelsmenn búa sig nú undir átök við íraka og yfir- vofandi árás þeirra. Stríð við ísrael getur snúið samúð arabaheimsins til liðs við Saddam Hussein einmitt á þeim tíma sem hann þarf á lið- veislu hans að halda. Engin araba- þjóð getur snúist gegn bræðrum sínum í írak ef þeir lenda í styrjöld við ísrael. Það er eitt örþrifaráðið sem Saddam getur gripið til í nauð- vörn sinni. Heimsfriðuríhættu Við hér á Vesturlöndum höfum lítinn skilning á hugsanagangi Saddams Hussein og þeim tilfinn- ingum og hagsmunum sem takast á í arabalöndunum. Við sjáum hins vegar hættuna sem þessum átök- um fylgir og allir gera sér grein fyrir þeirri heimskreppu sem kann að fylgja olíuskorti og verðspreng- ingu. Við eigum erfitt með að sætta okkur við að einn brjálæðingur geti valdið slíkum usla. Ogþað ein- mitt á þeim tíma sem friður og frelsi virðist í nánd. Til hvers eru afvopnunarviðræður, afnám kommúnisma og einræðis, Banda- ríki Evrópu og sjálfar Sameinuðu þjóðimar ef einn maður velur þann kostinn að senda hersveitir sínar út í eyðimörkina og allt fer í bál og brand? Sú spurning vaknar jafn- vel hvort auðlindir í iðrum jarðar séu ekki sameign mannkyns, alveg eins og himinhvolfið er okkar allra. Er ekki umhverfið samofin alls- herjareign sem annaðhvort lög eða alþjóðaréttur eiga að verja fyrir braski, valdafikn eða auðlegð ein- stakra þjóða? Hvað er unniö við skálaræður Gorbatsjovs og Bush og hvers virði eru vopnayfirburöir stórveldanna þegar lítið ríki í Aust- urlöndum getur stofnað heims- friðnum i hættu? Menn segja að átökin við Persa-. flóa verði ekki einsdæmi í sögu framtíðarinnar. Aftur og aftur verði hætta á stríðsátökum og skelfingu hér og hvar í heiminum. Alls staðar séu púðurtunnur og þurfi ekki olíu til að kveikja þá elda. í Afríku er þjóðunum að vaxa fiskur um hrygg. í Austurlöndum flær er einræði og ofstjórn regla frekar en undantekning. Og þeir eru margir, einræðisherrarnir og litlu hitlerarnir, sem eiga eftir að rísa upp, eignast kjarnorku- sprengjur og gereyðingarvppn og geta auðveldlega endurtekið leiki Saddams Hussein. Sáttahendur Bandarikjamanna og Sovétmanna eru traustar og vel þegnar en það er ekki allt fengið með því bræðralagi. Það kemur og í ljós að liðveisla Bandaríkjamanna í Saudi-Arabíu er takmörkuð og engan veginn trygg ef og þegar til þess að kemur þar mætist stálin stinn. Fjarlægðin gerir Bandaríkja- mönnum erfitt fyrir og þeir hafa þá bitru reynslu úr Víetnam-stríð- inu að smáþjóðir geta reynst ofur- efli á heimavelli. Friðurinner fallvaltur Afvopnun er ekki einhlít og hefð- bundin vopn eru ekki allt. Það sannast kannski í yfirstandandi styrjaldarástandi að beittustu vopnin eru í formi auðlinda, við- skipta, verðlags og ógnunar. Víg- vellirnir eru verðbréfamarkaðirn- ir, verslanirnar og bensínstöðvarn- ar þar sem lífskjörin ráðast og kreppan kemur í ljós. Heimurinn er háður lifibrauði sínu. í heims- styrjöldum drepast menn. í heims- kreppum þjást menn. Bjarta hliðin á ástandinu í augna- blikinu er sú samstaða sem náöst hefur meðal þjóða heims. Sú stór- kostlega hreyting hefur orðið til batnaðar að nú taka stórveldin og austur og vestur ekki sjálfkrafa afstöðu með og á móti hvort öðru. írak hefði einhvern tímann notið fulltingis Sovétmanna þegar Bandaríkjamenn taka jafn-afger- andi forystu gegn innrás íraka. Nú standa stórveldin saman og jafnvel Sameinuðu þjóðirnar sýna óvænt- an mátt sinn og megin. írak er einangrað og í þeirri ein- angrun liggur vonin um skjóta og farsæla lausn. Ekkert land hefur úthald eða þrek til að standa eitt gegn öllum. Ekki til lengdar. Að þessu leyti hefur heimurinn breyst. En áfram og enn einu sinni eru það Bandaríkjamenn sem ganga fram fyrir skjöldu. Hvar værum við stödd og hvaða ógagn og óhæfu gæti Saddam Hussein ekki framið ef friðurinn og afvopnunin væri komin svo langt á veg að vopnin og flugvélarnar væru ekki fyrir hendi til að veita viðnám? Saddam Hussein hefur sýnt okk- ur fram á að friðurinn er fallvaltur og að vopn eru ekki síður til varn- ar. Hann hefur þjappað stórveldun- um saman og aðgerðir hans hafa undirstrikað þá staðreynd að smá- ríki geta verið stórveldi og stór- veldin orðið að smáríkjum ef þau gleyma sér í skálaræðunum. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.