Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR :li:'ÁQÚST 1990. Veiðivon____________________________________________________dv Laxá í Aðaldal: Eldisófögnuðuiinn er mættur á staðinn „Þaö hafa veiðst yfir tuttugu eldis- laxar í Laxá í Aöaldal," sagði Þóröur Pétursson fyrir fáum dögum og bætti viö: „Hann er mættur hérna eins og víðar í veiðiárnar. Það fer enginn fögnuður um okkur að fá þetta í árn- ar, öðru nær,“ sagði Þórður enn- fremur. Eldislaxinn er mættur í ótrúlega margar veiðiár. Símon Sigurmonsson á Görðum sá eitt svona kvikindi fyrir nokkru og sagði að þetta minnti sig á geddu. „Þetta var forljótt helvíti,“ sagði Símon og sagðist vona að ekki myndu fleiri slík mæta á svæðið. I Elliðaárnar, Korpu og Leirvogsá hafa þeir líka mætt í nokkrum mæli líka. „Ég fékk eldisfisk á í Elliðaán- um fyrir fáum dögum, fiskurinn var ljótur og ég hristi hann af,“ sagði veiðimaður sem setti í eldislax í ánni og bætti við: „Þetta var ljótur fiskur, minnti mig á loðsilung í sveitinni forðum.“ • Það getur skipt miklu máli að velja rétta flugu þegar kastað er fyrir laxinn og silunginn. • Ekki eru það allt eldislaxar sem veiðast í Elliðaánum sem betur fer en þeir eru farnir að sækja á. • Skyldi laxinn vera að taka? Reynt við laxa í Laxá í Kjós með góðri aðstoð. DV-myndir G.Bender og Bessi Veiðimenn hafa nóg að lesa fyrir næstu jól Þó ennþá sé töluvert eftir af veiði- tímanum eru bókaforlögin farin að skipuleggja hvaö eigi að koma út fyr- ir næstu jól. Fyrir veiðimenn verður boðið upp á margt spennandi. Krist- ján Gíslason verður með sína fyrstu bók með veiðisögum og ýmsu skemmtilegu í bland. Verður spenn- andi að sjá þessa fyrstu bók hjá hon- um. En hann hefur skrifaö fjölda greina um veiði í blöð og tímarit. Guðmundur Guðjónsson er að leggja síðustu hönd á bók um Laxá í Kjós og verður hún litskrúöug mjög. Ólaf- ur E. Jóhannesson, fréttamaður á Sjónvarpinu, verður með stariga- veiðihandbók fyrir veiðimenn. Verð- ur þar rætt við maðk- og fluguveiði- menn um allt land. Stangaveiðiár- bókin kemur út í þriðja sinn en Fróði gefur hana út, bókina um Laxá í Kjós og bók Ólafs. Bók Kristjáns gefur Forlagið út. Veiðimenn hafa því nóg að lesa um jólin. Stangaveiðifélagið Fengsællveiðirlítið Þeir eru margir veiðihóparnir sem renna saman fyrir lax og silung í ám og vötnum landsins. Þessir hópar hafa skemmtileg nöfn eins og Veiðifé- lagið að heiman, Veiðifélagið í felum og Stangaveiðifélagið fengsæll svo fá séu talin. En Stangaveiðifélagið feng- sæll er víst ekki réttnefni því félag- amir veiða lítið sem ekkert. Kannski ætti félagið að heita allt öðra nafni. Núllfélagið eins og einhverjir stofn- uðu fyrir nokkrum dögum. Ekki meiraumþaðfélagíbili. -G.Bender Vond lykt Kona nokkur var sífellt að biðja marrn sinn um aö hætta að reykja sökum þess að þaö væri svo mik- il tóbakslykt út úr honum. Það var ekki fyrr en frúin hitti á eftir- farandi setninguað hann sá loks- ins sá að sér og hætti: „Gunnar, að kyssa þennan ógeðslega tóbakskjaft á þér er eins og að sleikja öskubakka." Frelsi að lokum Fyrirsögn í Morgunblaðinu 15. sept. 1989 „Fjói'ir látnir lausir eftir krufir- ingu. Presta-mynd Eftir prestastefnu á ísafirði stóð til að taka mynd af prestum þeim er stefnuna höföu sótt. Til þess var fengirm danskur Ijósmynd- ari. Er prestarnir höföu stillt sér upp og sá danski var kominn á bak við vélina, heyrðist hann segja: „Yður lengst til vinstri stendur ekki rétt.“ Messu-fall Gömul kona í Skagafirði frétti eitt sinn að messufall yrði á sunnudaginn. „Þá verð ég sko aö fara tii kirkju því að ég hef aldrei séð slíkt,“ sagði sú gamia. Frí-kirkian Er deilumar stóðu sem hæst á milli séra Gunnars Björnssonar, fyrrverandi Fríkirkjuprests, og safnaðarstjórnarinnar voru öll dagblöð hérlendis, svo og aðrir gölmiðlar uppfullir af fréttum af þeim. Þótti mörgum prestinum nóg um og komst einn þeirra svo að orði: „Maður ætti nú skilið að fara aö fá FRÍ frá þessari kirkju." Finnur þú fimm breytingar? 67 Eg á eitthvað svo erfitt með að beygja handleggina, læknir... Nafn:......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1) Hitateppi fyrir bak og hnakka, kr. 3.900,- 2) Svissneska heilsupannan, kr. 2.990,- Vinningamir koma frá Póst- versluninni Príma, Hafnar- ftrði. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 67 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir sextug- ustu og fimmtu getraun reyndust vera: 1. Brynjólfur Magnússon, Vesturbergi 78,111 Reykjavík. 2. Erna Tonsberg, Háaleitisbraut 17,108 Reykjavík. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.