Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990.
37
Knattspy ma unglinga
Norðurlandamótið í Finnlandi:
Drengjalandslið Norðurland-
anna nokkuð jöfn að styrkleika
- segir Þórður Lárusson landsliðsþjálfari
Drengjalandsliðið sýnir stöðugar 'framfarir. Hvað gera þeir gegn Wales i Evrópukeppninni i haust? Þjálfarar iiðs-
ins eru þeir Þórður Lárusson og Kristinn Björnsson. DV-myndir Hson
íslenska drengjalandsliðið undir
16 ára varð í 4. sæti á Norðurlanda-
mótinu sem fór fram í Finnlandi 28.
júlí tO 3. ágúst sl. Strákarnir unnu
Norðmenn og Dani sem er frábært
því að Danir urðu Norðurlanda-
meistarar. Leikurinn gegn Dönum
var að áliti flestra sá besti í keppn-
inni. Danmörk varð í efsta sæti með
7 stig, England 6, Svíþjóð 5, Noregur
4, ísland 4 og Finnland 4 stig.
Bjartsýnn á framhaldið
Þórður Lárusson, annar þjálfara
liðsins, kvaðst mjög bjartsýnn á leik-
ina í Evrópukeppninni i haust en þá
mætir íslenska liðið Wales.
Guðmundur Benediktsson, Þór, hef-
ur skorað alls 10 mörk með drengja-
landsliðinu og jafnað markamet
Rúnars Kristinssonar, KR.
„Drengjalandsliðið er skipað mjög
jafngóðum strákum sem bæta sig í
hverjum leik. Tapið gegn Englandi
var alltof stórt, 3-2 eða 4-3 fyrir Eng-
lendinga hefði verið nær sanni - en
England var gestalið í mótinu. í raun
má segja hið sama í leiknum gegn
Noregi því við áttum að vinna mun
stærra. Mér fannst enska liðið best
en lið Norðurlandanna nokkuð jöfn
að styrkleika. Allir leikmenn ís-
lenska liðsins spiluðu 5 leiki, nema
markverðirnir sem spiluðu samtals
3 hvor,“ sagði Þórður.
Guðmundur Benediktsson skoraði
4 mörk í ferðinni og hefur því jafnað
markamet Rúnars Kristinssonar,
KR, með drengjalandsliðinu en það
eru 10 mörk.
Úrslit leikjanna
Ísland-England................Ú4
í sland-Finnland.............1-2
(Mark íslands gerði Pálmi Haralds-
son úr vítaspyrnu.)
Ísland-Danmörk...............3-2
(Mörk íslands: Guðmundur Bene-
diktsson 2, Einar Baldvin Árnason 1
mark.)
í sland-S víþj óð............1-3
(Mark íslands: Pálmi Haraldsson,
beint úr aukaspyrnu af um 30 metra
færi).
í sland-Noregur..............2-1
(Guðmundur Benediktsson gerði
bæði mörk íslands.)
Guðmundur þreyttur?
Guðmundur Benediktsson, Þór, A.,
var markahæstur okkar manna og
gerði 4 mörk í keppninni. í samtali
við Þórð Lárusson, þjálfara liðsins,
kom fram að Guðmundur hafði sýnt
þreytumerki um miðbik mótsins.
Unglingasíðan benti einmitt á það
fyrir Norðurlandamótið hvort vitur-
legt væri að láta Guðmund leika í
þrem liðum í íslandsmótinu, þ.e. 3.
flokki, 2. flokki og meistaraflokki -
og síðan bætast við æfingar og leikir
með unglinga- og drengjalandsliðinu.
Hér verða menn að staldra við og
athuga sinn gang. Það er létt verk
að eyðileggja góð efni með of miklu
álagi. Tjónið getur orðiö óbætanlegt.
í sömu viku og Norðurlandamótið
hófst lék Guðmundur til að mynda 2
leiki með 2. flokki og 1 með 3. flokki.
Slíkt álag er að mati unglingasíðunn-
ar alveg fráleitt. Spyrja má einnig
hvort rétt sé að láta drenginn leika
í báðum unglingalandsliðunum, þó
svo að landsliðin eigi að margra
mati að hafa forgang.
Þjálfarar drengjalandsliðsins eru
þeir Þórður Lárusson og Kristinn
Björnsson. -Hson
Drengjalandsliðið:
Markverðir:
Árni Gautur Arason, Akranesi
Egill Þórisson, Víkingi
Aðrir leikmenn:
Alfreð Karlsson, Akranesi
Brynjólfur Sveinsson, KA
Einar Árnason, KR
Guðmundur Benediktsson, Þór, Ak.
Gunnlaugur Jónsson, Akranesi
Helgi Sigurösson, Víkingi
Hrafnkell Kristinsson, FH
Jóhann Steinarsson, Keflavík
Jón Gunnar Gunnarsson, FH
Lúðvík Jónasson, Stjörnunni
Orri Þórðarson, FH -
Pálmi Haraldsson, Akranesi
Sigurbjörn Hreiðarsson, Dalvík
Viðar Erlendsson, Stjörnunni
Landsbankamót 5. flokks á Akranesi:
Grótta og Akranes best
- Fanta-Skagamótið um miðjan ágúst
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Hið árlega Landsbankamót ÍA í
knattspyrnu í 5. flokki fór fram
helgina 28.-29. júlí sl. í keppni utan-
húss var það Grótta sem sigraði
Akranes í úrslitaleik í keppni A-
hða, 3-1, en Skagamenn unnu
Gróttu í úrslitaleik B-liða keppn-
innar, 1-0.
í keppni innanhúss sigraði Grótta
bæði í A- og B-liði. Mótiö tókst mjög
vel í alla staði og keppendum sem
öðrum til mikils sóma.
Einstaklingsverðlaun
í mótslok voru bestu leikmönn-
um afhent verðlaun fyrir góða
frammistöðu:
Besti markvörður A-liða: Bjarni
Guðjónsson, ÍA.
Besti markvörður B-liða: Konráð
Guðmundsson, Gróttu.
Besti varnarmaöur A-liða: Jón Þór
Hauksson, ÍA.
Besti varnarmaður B-liða: Janus
Bragi Jakobsson, Gróttu.
Besti sóknarmaður A-liða: Magnús
Guðmundsson, Gróttu.
Besti sóknarmaður B-liða: Guð-
mundur Emilsson, ÍA.
Þá voru piltarnir í Fjölni kjörnir
prúðasta liðið.
Úrslit leikja
A-lið: .
Fjölnir-Grótta..............l^
Bolungarvík-ÍA.............0-5
Týr, V.-Njarðvík...........1-1
Týr, V.-Grótta.............2-4
Bolungarvík-Fjölnir........1-0
Njarðvík-ÍA..................0-5
Bolungarvík-Týr, V...........2-1
Njarðvík-Grótta..............1-6
Fjölnir-ÍA...................0-5
Bolungarvík-Njarðvík.........3-5
Fjölnir-Týr, V...............1-0
Grótta-ÍA....................0-3
Fj ölnir-Nj arðvík...........0-1
Bolungarvík-Grótta...........1-7
Týr, V.-ÍA...................0-1
Undanúrslit:
í A-Bolungarvík..............5-1
Grótta-Nj arðvík............13-1
Keppni um sæti:
1.-2. sæti: ÍA-Grótta........1-3
3.^4. sæti: Bolungarvík-Njarðvík
5.-6. sæti: Fjölnir-Týr, V...0-1
Umsjón
Halldór Halldórsson
B-lið:
Fjölnir-ÍA(3).................0-1
Týr, V.-ÍA (2)................1-3
Njarðvík-Grótta..............l'-4
Njarðvík-ÍA(2)................0-1
Týr, V.-ÍA (3)................2-3
Bolungarvík-Fjölnir...........1-2
Bolungarvík-Týr, V............0-3
Njarðvík-ÍA (3)...............1-0
Grótta-Í A (2)................0-0
Grótta-Í A (3)............... 2-0
Bolungarvík-Njarðvík..........0-5
Fjölnir-Týr, V................6-3
Fjölnir-Njarðvík..............2-5
Bolungarvík-Grótta............1-7
ÍA (2)-ÍA (3).................2-0
Bolungarvík-ÍA (2)............1-3
Fj ölnir-Grótta...............2-4
Týr, V.-Njarðvík.............1-5
Tyr, V.-Grótta Fjölnir—ÍA (2) ....l^ ....1-5
Bolungarvík-Í A (3) ....0-2
Keppni um 5.-7. sæti:
Týr, V.-Bolungarvík ....8-1
Týr, V.-Fjölnir ....5-0
Fiölnir-Bolungarvík ....1-6
Undanúrslit:
Grótta-ÍA(3) ....3-0
ÍA (2)-Njarðvík ....5-4
(V ítaspy rnukeppni)
3.-4. sæti: IA (3)-Njarðvík ....1-0
1.-2. sæti: ÍA (2)-Grótta ....1-0
Röð liða í innanhússmótinu:
A-lið: 1. Grótta, 2. Njarðvík, 3. ÍA,
4. Týr, V., 5. Bolungarvik, 6. Fjölnir.
B-lið: 1. Grótta, 2. Fjölnir, 3. Njarð-
vík, 4. ÍA, 5.-6. Týr, V. og Bolungar-
vík.
Fanta-Skagamótið
17.-19. ágúst
Hið árlega Fanta-Skagamót ÍA í
6. aldursflokki verður haldið dag-
ana 17.-19. ágúst nk. Góð þátttaka
er að vanda og þann 31. júlí sl. var
dregið í riðla. i utanhússknatt-
spyrnunni er riðlaskipting þannig
í A- og B-liðum. A:riðill: BI, Skalla-
grímur, Týr, V., ÍR, ÍA. - B-riðill:
Víkingur, Fjölnir, Leiknir, FH,
Fylkir. C-riðill: ÍBK, Grótta, Stjarn-
an, Þór, V., Afturelding.
Riðlaskipting A- og B-liða í innan-
hússmótinu er þannig. A-riðill:
Leiknir, ÍR, Týr, V., Afturelding,
FH. - B-riðill: ÍA, Grótta, BÍ, Vík-
ingur,
Fiölnir. C-riðill: Fylkir, ÍBK, Þór,
V., Skallagrímur, Stjarnan.
A-lið 5. flokks Gróttu sigraði á Landsbankamótinu á Akranesi. Þjálfari
strákanna er Grétar Lárusson. Aðrir á myndinni eru starfsmenn frá
Landsbankanum ásamt Guðmundi Vilhjálmssyni bankastjóra.
Strákarnir í B-liði ÍA gerðu það gott því þeir sigruðu á Landabankamót-
inu á Akranesi á dögunum.