Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1990, Síða 27
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990.
35
Starfsemi íslensku óperunriar ógnað:
Meiming
Ef ekki fæst lausn á fjárhagsvand-
anum verður engin sýning í vetur
- segir Garðar Cortes framkvæmdastjóri
„Viö höfum loforð frá mennta-
málaráðherra um 20-25 milljóna
króna fjárveitingu í vetur, en það er
því miður ekki nóg. Ef við færum á
stað með þá fjárveitingu þá myndum
við lenda í sama skuldahalanum og
við höfum orðið að búa við undanfar-
in ár og maður er í raun búinn að
fá nóg af að starfa við slík skilyrði
sagði Garðar Cortes framkvæmda-
stjóri íslensku óperunnar þegar
hann var spurður að því hvemig
staða íslensku óperunnar væri í dag.
„Við þurfum 15 milljónir í viðbót
til að geta farið út í næsta stórverk-
efni sem er óperan Ludcia di
Lammeoore eftir Donozetti, en
tíminn er að renna frá okkur og við
þurfum að fá svar sem fyrst. Ég
treysti því að Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra standi við þau
orð sín að það komi aldrei til að ís-
lenska óperan verði að leggja starf-
semi sína niður.“
Nú um helgina verður haldin hátíð
á Hótel íslandi til styrktar íslensku
óperunni. Þar mun kór og einsöngv-
arar íslensku óperunnar syngja
valda kafla úr verkefnaskrá óper-
unnar, svo og þekkt atriði úr óper-
um, óperettum og söngleikjum. Allir
sem nálægt þessari hátíð koma
munu gefa sitt framlag og á það einn-
ig við um það sem að Hótel íslandi
snýr.
„Auðvitað náum við engum
fimmtán milljónum inn á þessari
hátíð, en hver sem upphæðin verður
þá er hjálp að öllu fjármagni sem til
okkar kemur,“ sagði Garðar Cortes ^
aðlokum. -HK
Bubbi, Megas og
íslensk rokksaga
íslenskir rokkunnendur ættu að
fá sinn skammt í jólabókaflóðinu í
ár. Það verða allavega þrjár bækur
sem ættu að gleðja hjörtu þeirra,
bækur sem beðið er eftir með nok-
kurri eftirvæntingu. Fyrst ber að
nefna bók Gests Guðmundssonar,
Rokksaga íslands 1955-90. Þar er
stiklað á öllu því helsta sem gerst
hefur á þessum árum í rokkinu,
aUt frá Sigga Johnnie til Sykurmol-
anna. Forlagið gefur bókina út.
Forlagið gefur einnig út bókina
Megas - Sól í Norðurmýrinni, sem
skrifuð er af Þórunni Valdemars-
dóttur. Þar er sögð saga Magnúsar
Þórs Jónssonar sem þekktari er
imdir nafninu Megas. Síðast en
ekki síst er það Bókin um Bubba
eftir Silju Aðalsteinsdóttur sem
Mál og menning gefur út.
-HK
Heiti Potturinn
f lytur í Púlsinn
Djassklúbburinn Heiti potturinn
hefur ekki verið starfræktur síðan
um miðjan september. Ástæðan
var flutningur klúbbsins úr Duus-
húsi í Púlsinn, en þar hefur honum
verið búinn nýr samverustaður.
Formlega verður fyrsta kvöldið í
Heita pottinum miðvikudaginn 31.
október. Sérstakur gestur þá og
næstu tvö kvöld á eftir verður einn
þekktasti djassleikari okkar ís-
lendinga, Pétur Östlund. Pétur hef-
ur búið í Svíþjóð síðan 1969 og hef-
ur leikið með flestöllum þekktustu
djassleikiu-um Norðurlanda ásamt
því að hafa leikið með heimsþekkt-
um mönnum á borð við Red Mitc-
hell, Lee Konitz, Art Farmer og
Toots Thielemans. Pétur Östlund
lék hér síðast á tónleikum í Norr-
æna húsinu fyrir rúmu ári. Með
honum nú leika Tómas R. Einars-
son, Sigurður Flosason og Eyþór
Gunnarsson. Á efnisskránni verða
bæði íslensk og erlend lög.
Þjóðleikhúsið:
Þrjú verk í æf ingu
fyrir stóra sviðið
Fljótlega eftir áramót verður að-
alsalur Þjóðleikhússins tilbúinn
fyrir sýningar. Þar með er ekki
sagt að öll vinna sé búin, langt er
í land að húsið sé tilbúið eftir við-
gerðina. Nú standa yfir æfingar á
þremur ólíkum leikverkum sem öll
verða sýnd á stóra sviðinu. Fyrsta
leikritið, sem sýnt verður, er Pétur
Gautur eftir Henrik Ibsen. Þetta
stórvirki leikbókmenntanna hefur
áður verið sýnt í Þjóðleikhúsinu
og lék Gunnar Eyjólfsson þá Pétur
Gaut. Nú munu tveir leikarar fara
með hlutverkið, Ingvar E. Sigurðs-
son og Amar Jónsson. Einnig er
verið að æfa söngleikinn Sound of
Music eftir Richard Rogers og Os-
car Hammerstein. Með aðalhlut-
verkið fer Margrét Pétursdóttir.
Þriðja verkið, sem verið er að æfa,
er bamaleikritið Búkolla eftir Álf
Ólafsson sem er dulnefni. Höfund-
ur mun vera Sveinn Einarsson.
Jón Múli kynnir
blús á Borginni
Það verður sannkölluð blú-
sveisla á Hótel Borg í kvöld. Ættu
flestir blússælkerar að geta fúndið
eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem
koma fram em: Ellen Kristjáns-
dóttir söngkona, Kristján Kristj-
ánsson söngur og gítar, Reynir
Jónasson harmóníka, Kristján Frí-
mann skáld, Sigurður Flosason
saxófónn, Magnús Eiríksson gítar,
Bubbi Morthens söngur, Megas
söngur, Björgvin Gíslason söngur,
Ásgeir Óskarsson trommur, Eyþór
Gunnarsson hljómborð og Þorleif-
ur Guðjónsson bassi. Þessir lista-
menn leika bæði saman og sundur
í ýmsum útgáfum sem of langt mál
yrði upp að telja. Kynnir á tónleik-
unum, sem hefjast hlukkan 22.00,
verður enginn annar en Jón Múli
Ámason.
Pétur Tryggvi heldur hér á hálsmeni sem hann hefur hannað og smíðað.
DV-mynd: GVA.
Vravirki, steinsteypa,
demantar og eðalmálmar
„Með því að nota víravirki í skart-
gripi höfða ég meðal annars til skart-
gripa sem notaðir vom með þjóð-
búningnum á ámm áður, þess utan
finnst mér mikilvægt að aðferðin
sem notuð er við víravirki falli ekki
í gleymsku. Ég reyni að samræma
skartgripina nútímanum," segir Pét-
ur Tryggvi skartgripahönnuður, sem
heldur um þessar mundir sýningu á
skartgripum hönnuðum af honum í
versluninni Epal.
Fyrir utan sérlega fallega skart-
gripi og frumlega þá vekur umgjörð
sýningarinnar ekki síður athygli, en
hún er hönnuð af Pálmari Krist-
mundssyni arkitekt. Uppistaðan er
áltumar sem ná upp til lofts í versl-
uninni sem hefur mikla lofthæð. A
turnunum em svo göt neðarlega þar
sem skartgripunum er komið fyrir.
Pétur Tryggvi býr í Kaupmanna-
höfn en þar var hann í framhalds-
námi í gullsmíði. Hann starfaði þó
heima áður en hann flutti út. í Kaup-
mannahöfn hefur hann komið sér
upp verkstæði og selur mest til
Þýskalands. „Ástæðan fyrir því að
ég flutti til Danmerkur er að mig
langaði eingöngu til að starfa við
sköpun á skartgripum. Hér heima er
ekki hægt að lifa á því. Mestur hluti
starfsdagsins hér fer í viðgerðir og
annað sem snýr að verslun."
Sérstaða Péturs sem skatgripa-
hönnuðar felst meðal annars í notk-
un hans á steinsteypu og víravirki.
„Steinsteypan er mjög vandmeðfarin
og það þarf oft að smíða sama hlutinn
aftur og aftur til hann nái að vera
fallegur. Það er mjög stutt á milli
þeirra gripa sem eru ljótir og þeirra
sem heppnast og eru fallegir þegar
steinsteypan á í hlut.“
Það er ekki bara á Norðurlöndum
og í Þýskalandi sem skartgripir Pét-
urs vekja athygli. í undirbúningi er
sýning á skartgripum hans í Los ~
Angeles. Það var maður sem sá sýn-
ingu á verkum hans í Kaupmanna-
höfn sem bauð honum að sýna í
Bandaríkjunum. -HK
þeir sem greiöa
smáauglýsingar út í
hönd með beinhörðum xf
peningum. Það eina sem
í 'v>..''ÍSL'
hringja og%máaugf|
verður fæfð.á Mörtið
Það er gamla sagan
Þú hringir,
•x , • M Íl H
við birtum oq
það ber árangur!
SunnuÖaga kl.18.C
Athugifl: ^***t*s^_y
Auglýsing I helgarfalað*bv þarf að
berast fyrir kl. 17.00 á föstudag.