Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1990, Síða 28
36
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990.
MiCHAEL. CHHÍS1QPHI& USA
IRONS5DE PLUMMCR LANGIÖIS
Shirley Valentine
Left Foot
XlÉJJiWétítöJ
A LEIGUNUM
Mindfield
Afrnæli
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guöbjörg Guðmundsdóttir húsmóð-
ir, Brekkuhúsi 5, Sólgarði á Hjalt-
eyri við Akureyri, er fimmtug í dag.
Guðbjörg fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hún flutti frá
Vestmannaeyjum vorið 1965 og átti
þá heima í eitt ár hjá tengdaforeld-
rum sínum. Hún flutti síðan í Kálfs-
staði í Hjaltadal í Skagafirði þar sem
hún og maður hennar stunduðu
búskap í tuttugu og fjögur ár en þau
brugðu búi vorið 1989 og fóru þá til
Hjalteyrar þar sem þau hafa búið
síðan.
Guðbjörg giftist 16.10.1965 Agh
IngvaRagnarssyni, f. 13.4.1939 en
hann er sonur Ragnars Bjömsson-
ar, b. að Garðakoti í Hjaltadal, og
Oddnýjar Egilsdóttur, konu hans.
Guðbjörg verður að heiman á af-
mæhsdaginn en tekur á móti gest-
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
um í Sóknarsalnum við Skipholt í
Reykjavík laugardaginn 27.10. nk.
mfili klukkan 15 og 19.
Tilkyimingar
Lögfræðiaðstoð Orators
Laganemar veita ókeypis lögfræðiaðstoð
fyrir almenning yfir vetrarmánuðina,
eins og undanfarin ár. Aðstoðin fer þann-
ig fram að eitt kvöld í viku veita laganem-
ar á síðasta námsári lögfræðilega ráðgjöf
í gegnum síma. Markmið þessarar þjón-
ustu er að almenningur eigi þess kost að
geta á skjótan og ódýran hátt fengið upp-
lýsingar um réttarstöðu sína. Fólk fær
einnig upplýsingar um hvert það getur
snúið sér tÚ að fá úrlausn sinna mála.
Laganemar hafa hins vegar ekki heimild
til málflutnings og geta því ekki fylgt
málum eftir í dómskerfinu. Lögfræðiað-
stoðin er eins og áður sagði opin eitt
kvöld í viku, á fimmtudagskvöldum kl.
19.30-22, og símanúmerið er 91-11012.
Aðstoðin er einungis veitt í formi símar-
áðgjafar.
Náttúruverndarþing
Sjöunda Náttúruvemdarþing verður
haldið dagana 26.-28. október 1990 á Hót-
el Loftleiðum. Þingið verður sett fostu-
daginn 26. október kl. 16 af formanni
Náttúruvemdarráðs, Eyþóri Einarssyni,
en áður en almenn þingstörf heijast mim
umhverfisráðherra, Július Sólnes, flytja
ávarp og tilkynna um skipan formanns
og varaformanns Náttúruverndarráðs
næstu 3 starfstímabil. Meginumræðuefni
þingsins verða ferðamál og gefur Nátt-
úravemdarráð af því tilefni út fjölrit er
fjallar um það efni og lýsir stefnu ráðsins
í ferðamálum. Framsöguerindi flytja Jón
Gauti Jónsson, fulltrúi í Náttúravemdar-
ráði, um framtíðarstefnu Náttúravemd-
arráðs í ferðamálum og Kristín Halldórs-
dóttir, formaður Ferðamálaráðs, um
feröamál.
Haustskemmtun
Ítalíufélagsins
Föstudagskvöldið 26. október kl. 19 verð-
ur haustskemmtun ítaliufélagsins haldin
í Suður-ameríska veitingastaðnum að
Hverfisgötu 56 (við hliðina á Regnbogan-
um, kvikmyndahúsi). Fjölbreytt
skemmtiatriöi og margréttað hlaðborð
með ítölskum gæðaréttum. Dans aö
loknu borðhaldi. Verðinu er stillt í hóf
eða kr. 1.200 á mann. Áríðandi að menn
tilkynni strax þátttöku í síma 20160,
verslunin Pelsinn, milli kl. 13-18 eða í
síma 11097 hjá Jöhönnu Möller, einnig
símsvari.
Verkstæðið V flutt
í Ingólfsstræti
Verkstæðið V er flutt í Ingólfsstræti 8. A
verkstæðinu vinna 6 konur, þær Elísabet
Þorsteinsdóttir, Ema Guðmarsdóttir,
Guðrún J. Kolbeins, Herdis Tómasdóttir,
Jóna S. Jónsdóttir og Þuríður Dan Jóns-
dóttir. Þar era unnin textílverk af ýmsu
tagi, ofin, þrykkt og máluð, t.d. mynd-
verk, sjöl, púðar, silkislæður, dreglar og
fl. Verkstáeðið tekur að sér að vinna verk
inn 1 ákveðið rými og tengja textíl og
arkitektúr. Verkstæðið verður opið alla
virka daga frá kl. 13-18 og á laugardögum
kl. 10-16.
Almanak Hins íslenska
þjóðvinafélags 1991
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvina-
félagsins hefur gefið út Almanak um árið
1991 sem dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjamfræðingur hjá Raunvísindastofnun
Háskólans, hefur reiknað og búiö til
prentunar. Annað efni Þjóðvinafélag-
salmanaksins að þessu sinni er Árbók
íslands 1989 sem Heimir Þorleifsson
menntaskólakennari tók saman. Þetta er
117. árgangur Þjóðvinafélagsalmanaks-
ins sem er 180 bls., prentað í Odda. Um-
sjónarmaður þess er Jóhannes Halldórs-
son cand. mag., forseti Þjóðvinafélagsins.
Forstöðumenn Þjóðvinafélagsins auk Jó-
hannesar (kosnir á Alþingi 9. maí 1988)
era: dr. Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Stofnunar Áma Magnússonar,
varaforseti: dr. Guðrún Kvaran orðabók-
arritari, Heimir Þorleifsson mennta-
skólakennari og Ólafur Ásgeirsson þjóð-
skjalavörður.
Nýtthús vígtfyrir
heimilisfólk Sólheima
í tilefni af 60 ára afmæh Sólheima á þessu
ári verður vígð ný heimiliseining á Sól-
heimum kl. 15 sunnudaginn 21. október.
Margrét Heinreksdóttir, formaður
stjómar Hjálparstofnunar kirkjunnar,
vígir húsið og sr. Tómas Guðmundsson,
prófastur í Ámessýslu, flytur húsbless-
un. Um er að ræða 212 fm hús, teiknað
af Áma Friðrikssyni arkitekt. Hr. Ólafur
Skúlason biskup tók fyrstu skóflustungu
Andlát
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sólheim-
um 25, lést þriðjudaginn 23. október.
Jarðarfarir
Ingunn Böðvarsdóttir, Mel við Ný-
býlaveg, Kópavogi, sem lést 19. okt-
óber í hjúkrunarheimfiinu Sunnu-
hhð, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 26. október kl. 15.
Jón Egilsson, vélstjóri frá ísafirði,
verður jarðsunginn frá ísafjarð-
arkapellu laugardaginn 27. október
kl. 14.
Lilja Sigurðardóttir, Ásvegi 17, Ak-
ureyri, sem lést 19. október, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 26. október kl. 13.30.
Oddbjörg Guðjónsdóttir, Hátúni 10,
verður jarðsungin föstudaginn 26.
október kl. 13.30 frá Fossvogskapellu.
Erla Eyjólfsdóttir, Engjaseli 84, verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26. október kl. 10.30.
Magnús Arnar Sigtryggsson lést 15.
október. Hann fæddist á Kleif í
Breiðdal 17. mai 1948, sonur hjón-
anna Sigtryggs Runnólfssonar og
Guðbjargar Sigtryggsdóttur. Magnús
hóf ungur störf við útkeyrslu hjá
Silla og Valda. Síðan starfaði hann
um nokkurn tima hjá Guðbergi í Gos
og víðar. Um 1980 fékk hann leyfi til
leigubílaaksturs og starfaði að mestu
eftir það við akstur hjá Bæjarleiðum.
Eftirhfandi eiginkona hans er Louise
Biering. Þau eignuðust fjögur börn.
Útför Magnúsar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Sr. Bergur Björnsson lést 16. októb-
er. Hann fæddist í Miklabæ í Blöndu-
hhð í Skagafiröi 9. maí árið 1905.
Foreldrar hans voru hjónin sr. Björn
Jónsson og Guðfinna Jensdóttir.
Bergur lauk kandídatsprófi í guð-
22. júli 1989 og hófust framkvæmdir sl.
haust. í húsinu era 6 einstaklingsher-
bergi auk starfsmannaíbúðar. Fram-
kvæmd þessi er fjármögnuð með stuðn-
ingi einstaklinga, liknarsamtaka og fyrir-
tækja og hafa þegar safnast rúmar níu
milljónir en áætlaður byggingarkostnað-
ur er um ellefu og hálf milljón. Fjársöfn-
un verður haldið áfram á næstu vikum
og mánuðum uns settu marki varðandi
fjármögnun byggingarinnar hefur verið
náð.
fræði 1931 og var sama ár vígður til
prestsstarfa að Breiðabólsstað á
Skógarströnd. Þar þjónaöi hann um
5 ára skeið. Árið 1937 var hann svo
kjörinn og skipaður sóknarprestur í
Stafholti. Þar þjónaði hann samfleytt
til ársins 1961 er hann hvarf úr þjón-
ustu kirkjunnar. Haustið 1961 var
hann skipaður fulltrúi við dóms- og
kirkjumálaráðuneytið í Reykjavík.
Gegndi hann því starfi næstu 10 árin.
1970 hóf hann stundakennslu í Vél-
skóla íslands. Kenndi hann þar sam-
fleytt tfi ársins 1979. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Guðbjörg Sigríður
Pálsdóttir. Þau eignuðust tvo syni.
Útför Bergs verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Ráðstefnur
Haustráðstefna og sýning
EDI-félagsins
Curt Danielsson, forseti NORPRO of
DANPRO nefndanna og varaforseti WP4
nefndar Sameinuðu þjóðanna, verður
meðal fyrirlesara á ráðstefnu EDI-félags-
ins á íslandi og Skrifstofu viðskiptalifsins
um pappírslaus viðskipti og aukna fram-
legð í viðskiptum. Danielsson mun ræða
um pappírslaus viðskipti í dag og fram-
tíðarhorfur en hann er talinn einn af
fremstu sérfræðingum Norðurlanda á
þessu sviði. Ráðstefnan verður haldin á
Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 25. okt-
óber nk. kl. 13.15. Strax að lokinni ráð-
stefnunni opnar Vilhjálmur Egilsson
framkvæmdastjóri sýningu EDI-félags-
ins. Þar verður til sýnis EDI-hugbúnaöur
IBM á íslandi og alþjóðanet þess. Skýr
og ísnet sýnir hugbúnað fyrir EDI og
Póstur og síjni mun sýna gagnahólfa
þjónustu sína fyrir pappírslaus viðskipti.
Tollstjóraembættið mun kynna upplýs-
ingalínu sína, ICEPRO nefndin mun
kynna Tedis áætlun EFTA og Eb og ýmis-
legt fleira verður til sýnis.
Fundir
Félag frímerkjasafnara
Almennur félagsfundur verður haldinn í
kvöld, fimmtudaginn 25. október, að
Síðumúla 17. Fundurinn hefst kl. 20.30
og era félagsmenn hvattir til að fjöl-
menna.
OA föstudagsdeild
Fundir verða framvegis í safnaðarheimili
Árbæjarkirkju og hefjast eins og fyrr kl.
21.
Tapað fundið
Galsi er týndur
Hann er 11 mánaða fressköttur, svartur
og hvitur. Helmingur andlitsins er svart-
ur og hinn hvítur og svartur blettur á
nefi. Hann var með appelsínugula ól með
svörtum hjörtum og hvarf frá heimili
sínu að Víkurási 4 10. október sl. Allar
upplýsingar era vel þegnar í síma 674393.
Ullarkápa tapaðist
á Glaumbar
Svört ullarkápa með svörtum loðkraga
var tekin í misgripum úr fatahenginu á
Glaumbar sl. föstudagskvöld, 19. október.
í vasa kápunnar vora svartir leður-
hanskar. Finnandi vinsamlegast hringi í
hs. 678236 eða vs. 27022, Elva.
Köttur í óskilum
Þrílit læða, brún, svört og hvit fannst í
Armúla. Upplýsingar hjá Kattavinafélag-
inu í s. 672909.
Fjölmiðlar
Miðlar í miðlum
Það hefur vart farið fram hjá fólki
að alls kyns dulhyggja tröllríður
öllu hér og sést það ekki síst á dag-
skrám Jjósvakamiðlanna. Á báðum
sjónvarpsstöövum hefur þetta mál
verið tekið fyrir í nokkurra þátta
röðum. Þeir sem aldrei hafa séö
miöil að störfum geta nú vitnaö í
íslenska miðla sem miðlað hafaaf
islu sinni í fjölmiölurn.
Jtvarpsstöðvamar hafa líka verið
iðnar við að gera þessu eftfi skil og
í gærkvöldi vora þættir á tveimur
útvarpsstöðvum sem snertu þessi
mál, og ýmist var talað um fyrra líf
eða það næsta, minnst um það sem
lifaö er nú. Inger Anna Aikman á
Aðalstöðinni var með ungan mann
í viðtali og ræddu jiau mikiðum
endurholdganir og fyrri tilverustig.
Ungi maðurinn var greinilega svo-
lítiö stressaður en kom þó skoðun-
um sinum ágætlega fram. Inger
Anna hefur verið æði dugleg við að
koma þessu áhugamáli sínu á fram-
færi þetta ár sem Aðalstöðin hefur
starfaö
Á Bylgjunni ér einn þessara miðla,
Þórhallur Guðmundsson, kominn
með eigín þátt á miðvikudagsk völd-
mn. í gærkvöldi bauð hann fólki að
hringjaog segja sína skoðun á sjálfs-
morðum og greinilegt var að sitt
sýndist hverjum en allir töluðu í
einlægni. Einn taldi AA-samtökin
geta bjargað nfiklu og amiar taldi
hið opinbera bera mesta ábyrgð. Svo
var rætt um trúna á Mammon og
Guð og líf eftir þetta líf.
Þórhallur hefur áheyrilega rödd í
útvarpi en talar alveg óskaplega vit-
laust og hefur slæma framsögn. Þór-
hallur sigldi milli skers og báru í
umræðunni og gerðí það með ágæt-
um. Þegar leið að lokum þáttarins
hafði engin niöurstaða komið fram
enda vart viö því aö búast í jafn-
viðkvæmumáli.
Jóhanna Á. H. Jóhannsdóttir