Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Page 3
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990.
3
l
Fréttir
Þrjár óvenjumiklar jarðskjálftahrinur á Reykjaneshrygg:
„Mesta sem við höf
um séð í áratugi“
- tengist líklega hraunkviku, segir Ragnar Stefánsson
„Þetta er þaö mesta sem við höfum
séö í áratugi," sagði Ragnar Stefáns-
son, forstöðumaður jarðeðlisfræði-
deildar Veðurstofu íslands, við DV,
aðspurður um hina kröftugu og sam-
felldu jarðskjálftahrinu sem mældist
í um það bil sólarhring skammt suð-
vestur af íslandi í vikunni.
Þrjár óvenjumiklar jarðskjálfta-
hrinur hafa mælst á Reykjaneshrygg
suðvestur af íslandi síðan í fyrra-
sumar. Síðasta hrinan átti sér stað
um 160 kílómetra suðvestur af
Reykjanestá rétt fyrir hádegi á
þriðjudag. Nær samfelldir skjálftar
mældust þar til á miðvikudagsmorg-
un en þá fór að draga úr þeim. Þeir
mældust allt að 4,8 stig á Richters-
kvarða. Sjávardýpi á þessum slóðum
er um 400 metrar.
„Það ruggar allt undir fótunum á
okkur,“ sagði Guðmundur Sigvalda-
son hjá Norrænu eldfjallastöðinni í
samtali við DV. „Það er hamagangur
á mælunum þó við finnum það ekki
hér í landi. Jarðskorpan hefur verið
á hreyfingu," sagði hann.
Ragnar segir að ekki sé vitað hvort
þarna hafi verið um eldgos að ræða
eða að skorpan á hafsbotni hafi rifn-
að. „Þaö er ekki hægt að segja til um
slíkt, enda sæist það ekki frá yfir-
borði sjávar. Þetta er á miklu dýpi.
Hins vegar er líklegt að þessir skjálft-
ar tengist hraunkviku. Það er þó
ekki sannað. Slíkt verður að skoða
frá skipi,“ sagði Ragnar við DV.
Grænlands-
sund
GRÆNLA NDSHA F
Hvarf
30. okt.1990
Jan Mayen
NORÐUR-ÍSHAF
ÍSLANDSHAF
S%
Færeyjar *
Shetland
í maí 1989
SKO'
Rockall
Veðurstofa íslands hefur tilkynnt að aðilar þaðan hefðu áhuga á að
bandarískri jarðeðlisfræðistofnun senda skip og kanna hvort um eldgos
um þessa óvenjumiklu skjálftavirkni hafi verið að ræða á hafsbotni.
á Reykjaneshryggnum ef vera skyldi
-ÓTT
8.-9. sept. 1990 NORÐUR-ATLANTSHAF
DVJRJ
JO
J Veitingastaður
í miðbae Kópavogs V'v ..
Önnur óvenjulega kröftug jarð-
skjálftahringa á Reykjaneshryggn-
um stóð yfir dagana 8. og 9. septemb-
er síðastliðinn. Þeir áttu upptök sín
um 1.000 kílómetra suðvestur af
Reykjanestá. Þar er sjávardýpi um
einn kílómetri. Sterkustu kippirnir
mældust frá 5,5-6 stig. I
Svipað gerðist í maí 1989 á stað á*
milli hinna tveggja framangreindu
eða á 900-1000 metra dýpi um 500
kílómetra frá íslandi. Þá mældust
kippir sem voru 5 stig á Richter.
Þessar þrjár óvenjukröftugu jarð-
skjálftahrinur hafa því mælst í
beinni línu suðvestur af landinu á
rúmlega 800 kílómetra belti út frá
Reykjanesskaga. o
3ŒS
3E
k
Ekki fjarri lagi að
600 störf haf i tapast
- segir Sigríöur Stefánsdóttir, forseti bæjarstjómar Akureyrar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Ég hef sagt að hér í bænum hafi
á sl. áratug tapast mörg hundruð
atvinnutækifæri. Hvort þau eru 600
talsins veit ég ekki en sennilega er
sú tala ekki fjarri lagi,“ segir Sigríð-
ur Stefánsdóttir, forseti bæjarstjórn-
ar Akureyrar.
„Þessi störf, sem tapast hafa, eru
aðallega á verksmiðjunum, hjá Slipp-
stöðinni og í fleiri greinum iðnaðar
og því miður er óvissa ríkjandi. Auð-
vitað vona ég að þau störf sem eru
eftir, t.d. hjá Álafossi og Slippstöð-
inni, haldist og það er auðvitað ekk-
ert minna mál að verja þau störf sem
eftir eru en að skapa ný.
Það vita hins vegar allir hversu
óviss staðan er á verksmiðjunum hjá
Álafossi og eins er varðandi skipa-
smíðarnar. Þótt við sjáum ekki fram
á miklar nýsmíðar á næstu árum
vonum við auðvitað að hægt verði
að viðhalda þessari verkhefð í
landinu. Þessi barátta er hins vegar
mjög tvísýn, því rniður."
- Og það er ekki einu sinni hægt að
selja skipið sem Slippstöðin á full-
byggt.
„Nei, en það er verið að ræða það
mál og m.a. komin fram sú hugmynd
að eignaraðilar, m.a. ríkið, taki á sig
þann vaxtakostnað sem hefur hlaöist
á skipið. Mér skilst að stjórnendur
fyrirtækisins hafi verið beðnir um
ákveðnar upplýsingar og málið sé í
gangi. Það er auðvitað hrikalegt aö
skipið hlaði svona á sig vaxtakostn-
aði og ekki verður þaö auðseljan-
legra við það,“ sagði Sigríður.
2S
Tilboö vikunnar
Rjómalöguð rœkjusúpa
Léttreykí lambalœri
með sérrísveppasósu,
frönskum baunum og
bakaðri kartöflu
Kaffi
Kr. 980,-
Saltkjöt og baunir
alla fimmtudaga
Opið frá kl. 11.30 til 23.30
Hamraborg 11 -sími 42166
I
4
si
Mikll rækja í Húnaflóa:
Togin stytt til að
sprengja ekki trollin
Þórhallur Ásmundsson, DV, Norðurl. vestra:
„Ef þeir fyrir vestan geta gengið
yfir Djúpið á bomsum þá ættu þeir
við Miðfjörðinn ekki að þurfa nema
töfílur yfir fjörðinn. Þar er svo mikið
af rauða guÚinu núna að við styttum
togin, - vorum hræddir við að
sprengja trollið. Við fengum yfir fjög-
ur tonn á 40 mínútum i einu togi, 350
kassa í fimm hollum yfir daginn,"
sagði Ragnar Hermannsson á Dröfn,
rannsóknarskipi Hafrannsókna-
stofnunar, sem var nýlega á Húna-
flóanum.
Mjög vel lítur út með veiði á inn-
fjarðarrækju þar í vetur. Leyffer nú
að veiða þar 2000 ionn en 1300 í fyrra.
Þá var rækjan smá, er núna þokka-
lega stór og í miklu magni inni á
fjörðunum. Nær einnig lengra út og
dýpra en venjulega en er þar í minna
magni. Árgangur rækjunnar 1987 er
gífurlegá sterkur og verður megin-
uppistaðan í veiðinni í vetur.
HÖSGÖGN
FYRIR
UNGT
FÓLK
Glæsilegt
úrval
Verðdæmi: Þessi samstæða kr. 23.500,-
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
TM • HUSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
Opið laugardag til kl. 17 - sunnudag 14-17.