Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Síða 7
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990. 7 Fréttir Kjördæmaskiptingin og ójafn atkvæðaréttur landsmanna: Munurinn á pólitískum áhrif um allt að þrefaldur - sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu kreflast endurskoðunar á stjómarskrá og kosningalögum Endurskoöun ákvæða stjómar- skrárinnar og laga um Alþingiskosn- ingar var meðal þess sem nýafstað- inn aðalfundur Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)1 ályktaði um. I ályktun samtakanna er skorað á þingmenn að beita sér fyrir þessari endurskoðun með það fyrir augum að misvægi atkvæða verði leiðrétt þannig að atkvæðisréttur lands- manna verði sem jafnastur. Einnig segir að hér sé um grundvallarmann- réttindi að ræða. Þá er stjórn SSH falið að koma á fundi meðal sveitar- stjórnarmanna og þingmanna í Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæm- um að ræða þessi mál. Sá fundur verður væntanlega eftir áramót. Samkvæmt greinargerð sem fylgdi ályktuninni þarf vægi atkvæða í Reykjavík og á Reykjanesi að aukast um minnst þriðjung sé tekið mið af' núverandi íbúaijölda á bak við hvern þingmann. Þingmenn þessara tveggja kjördæma eru nú 29 en ættu að vera 39 ef atkvæöavægi lands- manna væru jöfn. í öðrum kjördæm- um landsins er atkvæðavægið of hátt, mest á Vestfjörðum en minnst á Norðurlandi eystra. Að sögn Jónasar Egilssonar, fram- kvæmdastjóra SSH, er helsta ástæða þessa misvægis á atkvæðum lands- manna miklir fólksflutningar frá dreifbýli til höfuðborgarsvæðisins á undanfomum 30 ámm. Hann segir aö tilefni þessarar ályktunar sé ekki að hefja einhvern sandkassaleik við sveitarstjórnir úti á landi heldur hitt að varpa þessu fram til að fá málefna- lega umræðu. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands hafa ríflega 36 þúsund landsbyggðarmenn flutt til Reykja- víkur og Reykjaness á árunum 1986 til 1989, sem jafngildir rúmlega helm- ingi samanlagðs íbúafjölda annarra kjördæma (l.des. 1988). Á sama tíma hafa einungis 22 þúsund flutt frá suð- vesturhorninu til annarra kjör- dæma. Á síðastliðnum 30 árum hafa um 20 þúsund fleiri flutt til Reykja- víkur og Reykjaness heldur en flutt hafa þaðan til annarra kjördæma. Þess má geta í þessu sambandi að árlega flytja um 7% þjóðarinnar bú- ferlaflutningum. Að sögn Jónasar Egilssonar má orða misréttið, sem nú er fyrir hendi, á þann veg að þeir sem flytji úr dreif- býli til höfuðborgarsvæðisins séu þar með að auka atkvæðavægi í gömlu heimabyggðinni en jafnframt draga úr því á suðvesturhorninu. Með öðr- um orðum, pólitískt vægi fólks minnkar við flutningana, þó mismik- ið eftir því hvaðan er flutt. Sé flutt til Reykjavíkur frá Vest- fjörðum minnkar það um 68%, frá Vesturlandi um 54%, frá Norður- landi vestra um 60%, frá Austurlandi um 51%, frá Suðurlandi um 37% og frá Norðurlandi eystra um 29%. Flytji fólk hinsvegar til Reykjanes- kjördæmis minnkar pólitískt vægi þess enn frekar, þar er það ríflega 4% minna en í Reykjavík. Á undanfömum árum og áratugum hafa miklar umræður og pólitískar deilur staðið um úrbætur á kjör- dæmaskiptingunni og um jöfnun at- kvæðisréttar. Síðast voru gerðar breytingar á lögum og stjórnar- skránni vegna þessa árið 1987. Þá var þingmönnum fjölgað úr 60 í 63. Landskjörnum þingmönnum var fækkað úr 11 í 9 og þingmönnum Reykjaness og Reykjavíkur var fjölg- að um 2 í hvoru kjördæmi. Að auki var komið á svokölluðum flakkara. -kaa KJORDÆMASKIPTING og jöfnun atkvœðisréttar V C\ \ Vestfitpii \ 4/% | "V ^ lllb jy DV: JRJ Gunnar G. Schram prófessor: „Það er raannréttindahugsun sem liggur að baki því að atkvæði eigi að vega sem jafnast. Víðast hvar i heiminum er sjálfvirk leið- rétting á kjördæmaskipan. 1 Baudaríkjunum og Svíþjóð er þetta endurskoðað á þriggja ára fresti og í Bretlandi reglulega. Og mjög víða eru ákvæði í lögum um að mörk kjördæma skuli endurskoða eftir íbúaíjölda," sagði Gunnar G. Schram þegar DV spurði hann hvort núverandi misvægi atkvæða á íslandi væri spurning um mann- réttindabrot. Gunnar segir að í Bandaríkjun- um hafi fallið frægur dómur sem kvað á um að það væru ekki bithag- ar og skógar sem hefðu atkvæðis- rétt heldur fólk, og að allir skyldu hafa eitt atkvæði. „Reiknislega er þó aldrei hægt að ná algjörum jöfn- uði en það ætti að stefna að sem mestum. Leiðréttingin sem gerð var hér á landi 1987 var skref i þá átt en misræmið er þó enn mjög mikið. Þannig hafa Vestfiröingar til dæmis um þrefalt vægi á við Reyk- víkinga." -kaa Guðrún Helgadóttir: Þingið of stutt til breytinga - segir þingmenn Reykjavikur litla kjördæmapotara „Ég held að það sé lítil von til þess að hægt verði að jafna atkvæðavægi landsmanna á þessu þingi, til þess er það of stutt. Það fór mikill tími í breytinguna 1987 þar sem misvægið var að hluta leiðrétt en óneitanlega er það enn fyrir hendi,“ sagði Guð- rún Helgadóttir, forseti sameinaðs Alþings, þegar DV spurðist fyrir um hvort vænta mætti breytinga á lög- um og ákvæðum stjórnarskrár um kosningar. Guðrún segir það sína skoðun að það sé tómt mál að tala um algjöra jöfnun í atkvæðavægi hér á landi. Vegna hagsmuna fámennra byggðar- laga sé nauðsynlegt að gefa atkvæð- um þeirra aukið vægi til aðgefa þeim færi á að eiga sér fulltrúa á þingi sem skilur sjónarmið íbúanna og hags- muni. „Þó þingmenn Reykjavíkur séu upp til hópa mjög litlir kjördæmapot- arar þá held ég að það væri.nijög óæskilegt ef of stór hluti þingmánna væri frá Reykjavíkursvæðinu. Óhjá- kvæmilega yrðu sjónarmið lands- byggðarfólks þá út undan og til lengdar þýddi það enn meiri flótta úrdreifbýlinu." -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.