Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Page 12
12
Spumingin
Leikur þú á hljóðfæri?
Björk Melax skrifstofumaður: Nei,
ég hef aldrei lært á hljóðfæri.
Unnur Jónsdóttir nemi: Ekki núna
en ég lærði á sínum tíma á básúnu.
Þórný Sigmundsdóttir skrifstofu-
maður: Nei, það geri ég ekki.
Guðmundur Ingi Gunnarsson sendill:
Ég er nýbyrjaður að læra á raf-
magnsgítar.
Styrmir Sævarsson nemi: Ég hef
aldrei lært á hljóðfæri.
Atli Sævarsson, 5 ára: Ég vil læra á
stórt píanó eins og er heima.
Lesendur
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER.1990.
DV
„Líklega er hæfilegur þingmannafjöldi hér 35-40,“ segir m.a. í bréfinu.
Hér eru alltof
margir þingmenn
Ingimundur Guðmundsson skrif-
ar:
Það er nú loks fariö aí ■ ;ydda á
þeirri umræðu opinberlega að
fækka eigi þingmönnum þjóðar-
innar frá því sem nú er. - Þeirra á
meðal sem hafa rætt þetta í alvöru
eru líka þingmenn, t.d. bæði for-
maður Sjálfstæðisflokksins og einn
hinna verðandi þingmanna, Björn
Bjamason. Þetta þýðir að þessi
umræða hefur ekki verið útilokuð
af þingmönnum sjálfum, a.m.k.
ekki þeim sem hafa víðsýni til að
sjá út fyrir ramma eiginhagsmun-
anna.
Það hefur verið bent á að hér í
höfuðborginni lagði núverandi
borgarstjóri til að borgarfulltrúum
væri fækkað úr 21 í 15. Engin vand-
kvæði urðu á þeirri framkvæmd
og allt gengur þar mun betur en
þegar fulltrúamir voru 21. - Það
er ekki að ástæðulausu að fólk er
því fylgjandi að þingmenn séu ekki
svona margir. Þingstörf ganga
fremur hægt fyrir sig hér og þing
í tveimur deildum er úrelt fyrir-
komulag sem þarf að breyta sam-
hliða þeirri framkvæmd að fækka
þingmönnum. - Líklega er hæfileg-
ur þingmannaljöldi hér 35 til 40.
Hvergi annars staðar eru þing-
menn jafnmargir og hér ef tekið er
mið af höföatölu landsmanna. -
Mig langar til að taka sem dæmi
tvö lönd til að sýna hversu fárán-
legt þaö er að hafa hér 63 þingmenn
fyrir þjóð sem ekki er nema um 260
þúsund íbúa.
Þingmenn í Nýja-Sjálandi eru
samtals 96. íbúafjöldi landsins er
um 3 milljónir þannig að þar eru
um 30 þingmenn fyrir hverja millj-
ón íbúa í landinu, á móti 63 þing-
mönnum hér fyrir 260 þúsund! -
Ef eitthvert samræmi væri í þessu,
þá ættu þingmenn Nýja-Sjálands
að vera 756, miðað við það sem hér
er. - Og þingmenn hér á íslandi því
um 8 talsins (miðað við Nýja-Sjá-
land).
í Noregi eru 165 þingmenn. Norð-
menn eru í kringum 4 milljónir og
er því 41 þingmaður á hverja millj-
ón íbúa þar. - Ef þeir ættu að vera
með sama hlutfall og við, væru
þingmenn þeirra 252 á hverja millj-
ón íbúa, eða alls 1008 þingmenn.
Miðað við Norðmenn ættum við því
að vera með 10 þingmenn eða ein-
um færri en ráðherrar eru nú!. -
Ennþá verr færum við út úr sam-
anburðinum ef við bærum okkur
saman við þjóð eins og Bandaríkin
þá yrði útkoman svo sem 'A úr
þingmanni fyrir okkur!
Er nema von að þessi tilhögun
hjá okkur sé að sliga landsmenn
og þjóðarbúiö? Er ekki löngu kom-
inn tími til að taka í spottann, áður
en allt fer í kalda kol?
I
\t......
:——
Er þarna ekki göngugata lengur?
Gongugata orðin að bflastæði?
Baldur hringdi:
Ég er einn þeirra sem oft leggja
leið sína í miðbæinn og líta gjaman
inn á Hressó í kaffisopa. Það er orðið
hvimleitt að horfa upp á að göngugat-
an þama skuli vera tekin fyrir eins
konar bílastæði.
Samkvæmt reglum á ekki að leyfa
þama bílastæði. Lögreglan gerir
hvað hún getur og stjakar frá þeim
bílum sem hún sér þarna, en það er
ekki á færi hennar að koma fyllilega
í veg fyrir þetta uppátæki. Ég hefi
séð menn leggja þarna bíl til þess
eins að bera inn einn lítinn pakka til
einhverrar verslunarinnar, og það
löngu eftir þann tíma sem tilskilinn
er fyrir vörusendingar á þetta svæði.
Eftir kl. 11 fyrir hádegi á þarna
ekki að sjást bíll í neinum erinda-
gjörðum samkvæmt reglunum. - Nú
skora ég á borgaryfirvöld að fylgja
þessu eftir með ströngu aðhaldi og
láta fjarlægja bíla sem þarna eru sett-
ir til leiðinda fyrir alla aðra sem
þarna em á ferð.
Hólmfríður Jónsdóttir skrifar;
Ég hlustaði á Þórhildi Þorleifs-
dóttur, eina af þingkonum
Kvennalistans, á rás 2 30. okt. þar
sem hún svaraði hlustendum
ýmsum spurningum sem þeir
lögðu fyrir hana. Svör hennar
voru allskilmerkileg en engu að
síður skein í gegn að Kvennalist-
inn hefði svo sem engu fengið
áorkað.
Konur stæðu enn í sömu spor-
um hvað launamismun áhrærði
og margt annað sagöi þingkonan
aö enn biði úrlausnar. - Mér
fmnst satt að segja að Kvennalist-
inn hafi ekki komið því fram sem
konumar ætluðu honum að gera.
Og eitt að lokum: Mér finnst
Kvennalistinn hafa rýrt gildi sitt
með því að taka ekki á vandamál-
unum með öðrum flokkum. -
Stjómmálaflokkur verður að
vera tilbúinn að fara í ríkisstjórn
til að vinna að framgangi mála. -
Ef Kvennalistinn heldur áfram á
sömu braut með því að vera
ávallt utan stjórnar er hann þar
með úr sögunni.
„Styðjum einbeittan mann til
allra góðra verka“, segir m.a. í
bréfinu.
Árna Ragn*
ar á þing!
Suðumesjamaður skrifar:
Ég varð stórhrifmn eftir lestur
greinar í Mbl. eftir einn fram-
bjóöandann í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna hér á Reykjanesi, Árna
Ragnar Ámason, formann at-
vinnumálanefndar Keflavíkur. -
Greinín hét „Frjáls samkeppni
eöa einokun - frelsi eða kúgun".
í greininni fjallaði Árni um
flugrekstur og þá staðreynd að
með hruni Arnarflugs er horfm
af vettvangi öll innlend sam-
keppni við Flugleiöir í utanlands-
flugi. - Þetta er auðvitað hárrétt
því nú hafa Flugleiðír hf. ýmist
hætt að fljúga til þeirra staöa sem
Arnarflug flaug áður til eða
fækkað ferðum verulega.
Ef við ættum marga menn sem
hugsa og skrifa eins og Árni
Ragnar Ámason þyrftum viö
ekki að kvíða framtíðinni i at-
vinnumálum og samkeppni í sem
flestum greinum, öllum lands-
mönnum til góðs. - Ég segi því,
og veit að svo er um fjöldann all-
an af fólki hér á Suðumesjura:
Styðjum þennan einbeitta mann
til góðra verka. Á þing meö Árna
Ragnar!