Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Page 13
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990. 13 Lesendur Af dansleik 1 Dalabúð: Þiðsem kærðuð... „Breikkun Reykjanesbrautar (Keflavíkurvegar) er í allra þágu,“ segir Sigrún m.a. í bréfinu. Breikkun Reykjanesbrautar Guðni Hannes Guðmundsson trommuleikari skrifar: Hinn 27. okt. sl. áttum við í hljóm- sveitinni „Stuttur fyrirvari" kost á að leika á dansleik frá kl. 01-02 í Dalabúð. Aldurstakmarkið er 16 ár. Einn okkar var 15 ára. Sá sem tengd- ist dansstaðnum Dalabúð setti hon- um þær reglur að hann mætti vera uppi á sviðinu á meðan við lékjum en væri bannað að fara út á dans- gólfið. Þetta virti hann. Eftir að við höfðum leikið fimm lög við góðar undirtektir komu dyra- verðir upp á svið og tóku umræddan hljómsveitarmám með sér. Viö gát- um ekki leikið áfram þrír og héldum því á fund lögreglu til að reyna að fá einhverju breytt. Kom þá í ljós aö sá er leyflð gaf harðneitaði að hafa gefið það. Við fengum engu breytt, vorum taldir réttlausir í málinu. í þespu tilviki fór fram á sviðinu tónlistarflutningur en ekki dansleik- ur auk þess sem við vorum hluti af prógramminu. - Og þið sem kærðuð; þið eyðilögðuð fyrir okkur mikla vinnu og undirbúning fyrir þetta ball. Hefðum við verið eina hljóm- sveitin þetta kvöld hefðuð þið eyði- lagt kvöldið fyrir 200 manns. Sem betur fer var ekki ein hljómsveit til staðar. - Mér finnst skömm aö þessu athæfi og er viss um að tónhstar- manni er ekki hent út á öðrum stöð- um þótt hann sé undir lögaldri. - Að lokum vill hljómsveitin Stuttur fyrir- vari þakka þeim sem sýndi henni stuðning umrætt kvöld. Sigrún Ólafsdóttir, Keflavík, skrif- ar. Nú er komið að því að breikkun Reykjanesbrautarinnar þolir nánast enga bið. Nú á að taka máhn fostum tökum og hlusta ekki á að fara að eyða í einhverjar óverulegar bráða- birgðaframkvæmdir við núverandi veg, þegar fyrir hggur að breikka allan Keflavíkurveginn hvort eð er. - Það er í allra þágu að leggja strax upp með framkvæmdir á breikkun þessa fjölfarna vegar, en bíða ekki. Ef fjármagn er ekki fyrir hendi, og ég reikna ekki með að þeir séu það fremur venju, þá hefur þjóðin nú tek- ið annað eins að láni erlendis. Og sú upphæð_ sem þarna er um að ræða verður ekki lengi að borga sig. Virðisauka- skattur og ís- lenskirtón- listarmenn Konráð Friðfinnsson skrifar: Nýlega minntu íslenskir tónlistar- menn á sig með eftirminnilegum hætti á rás 2. Þeir vöktu landsfeður vora og ámálguðu um leið að inn- lenda hljómplatan er enn skattlögð þótt búið sé að afnema skatt af bók- um. En hvers vegna fékk ekki skífan sömu meðhöndlun og bókin ertnálin voru skoðuð og gerð upp? Hvers vegna gekk löggjafmn ekki hreint til verks? - Lögin eru hrein hrákasmíð á meðan einn angi listarinar er hafð- ur útundan. - Hver græðir á því? Ég skora á alla alþingismenn að gefa tónunum nu byr undir báða vængi og fella niður tollana til að hægt sé að sigla farsællega í höfn hvað varðar útgáfustarfsemi tónlist- ar. - Ég vil samt gera skýran mun á því sem ég hef hér reifað og útisam- komuhaldi í hvaða mynd sem er. Þar verða að vera hreinar línur á milli. íslensk augu í Finnlandi! Erla Sigurðardóttir skrifar: Ég get ekki annað en furðað mig á því að jafnstór hópur íslendinga skuli hafa verið í Finnlandi í tilefni af þeim atburði að forseti okkar var gerður að heiðursdoktor við háskóla einn þar í landi. - Þarna var stödd Sinfónuhljómsveit íslands, þjóð- dansaflokkur, hestamenn, fimm rit- höfundar, matreiðslumenn og við- skiptafulltrúar auk ráðherra og for- setans og fylgdarliðs þeirra sem var íjölmennt að vanda. Hvaða gagn varð að þessum fjöl- menna íslenska hópi þarna í Finn- landi? Ég get ekki séð að sá kostnað- ur sem íslenskir skattgreiðendur bera af þessu verði nokkrum að hði hér noröur á íslandi. Þetta hefur lík- lega ekki þjónað öðrum og meiri til- gangi en þeim að leyfa nokkur hundruð íslenskum augum að stað- næmast við fegurð finnskrar bygg- ingarlistar og náttúru. - Ég vil að þetta fjármáladæmi verði gert upp nú þegar þetta allt er afstaðið og við fáum að sjá hve miklu þarna var eytt af erlendum gjaldeyri. Aktu eins og þú vilt aðaðriraki! mÍUMFEPÐAR Okum eins og menn' V RÁD ÞAÐ BOGGLAST EKKERT FYRIR OKKUR FLATEYRI þri., fim.. fös., sun. BÍLDUDALUR alla daga STYKKISHÓLMUR\ mið.. fös.*, sun.* \ RIF mið., fim.. fös., sun.‘ SÍCLUFJOBOU, alla daga nema laugard. BLÖNDUÓS þri.*. fös.. sun. ^ ■ VESTMANNAEYJAR alla daga Stórir eöa litlir bögglar, ferkantaðir, sívalir eða kringlóttir - ekkert mál! Við flytjum allt fyrir þig, hvort sem það er hundur eða köttur sem þarf að komast í sveitina eða til læknis, varahluti í bílinn, bátinn, sjónvarpið og hvaðeina annað sem þú þarft að koma til skila eða fá til þín. Við hringjum svo í þig og látum þig vita þegar böggullinn kemur. ATH. Stjarnan *, merkir millilendingu. ARNARFLUG INNANLANDS hí. ^ IV 101 JŒYKIAVlK Sími 91-29577.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.