Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Qupperneq 26
34
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990.
Afmæli
DV
Helga lilja Þórðardóttir
Helga Lilja Þóröardóttir, starfsmaö-
ur í Mjólkurbúi Flóamanna, Birki-
völlum 8, Selfossi, er sjötug í dag.
Helga er fædd á Bjarnastöðum í
Ölfusi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hún gekk í barnaskólann á
Hjalla og var tvo vetur í Laugar-
vatnsskóla 1938-1940.
Fjölskylda
Helga giftist 11. maí 1940 Gunnari
Jónssyni, f. 10. desember 1916,
mjólkurfræðingi og fyrrv. yfirverk-
stjóra í Mjólkurbúi Flóamanna. Þau
bjuggu í Borgarnesi 1942-1955 en
fluttu þá á Selfoss þar sem þau hafa
búið síðan.
Helga og Gunnar eignuðust átta
börn. Elst er Eygló Jóna, f. 26. mars
1941, verslunarmaður á Selfossi, gift
Ingvari D. Eiríkssyni bílstjóra, f. 13.
ágúst 1938, og eiga þau þrjú börn,
Eirík Ágúst, f. 6. janúar 1959, Jón
Helga, f. 27. mars 1963, og Lísu Björg,
f. 26. júní 1969. Eiríkur Ágúst er
mjólkurfræðingur á Selfossi en
kona hans er Ingibjörg Eva Arnar-
dóttir, f. 24. september 1963, og eiga
þau tvö börn, Arndísi Ey, f. 15. okt-
óber 1983, og Ingvar Örn, f. 30. okt-
óber 1988. Jón Helgi er verslunar-
maður á Selfossi, kvæntur Ásthildi
Sigþórsdóttur, f. 11. nóvember 1964,
og eiga þau þrjá syni, Daða Má, f.
25. september 1984, Atla Þór, f. 5.
september 1986, og Jón Steinar, f.
15. maí 1988. Lísa Björg er búsett á
Selfossi, gift Ævari Österby hár-
skera en sonur þeirra er ívar Öst-
erby, f. 2. márs 1988.
Ásta María, f. 22. maí 1942, hár-
skerameistari í Hveragerði, gift
Sveini Aöalbergssyni, f. 2. septemb-
er 1936, trésmíðameistara og eiga
þau ijögur börn, Sigríði Helgu, f. 11.
nóvember 1963, Viktor Heiðdai, f. 7.
maí 1965, Aðalberg, f. 12. apríl 1973,
og Iðunni Brynju, f. 21. nóvember
1974. Sigríður Helga er búsett í
Hveragerði, gift Guðbrandi Sigurðs-
syni og eiga þau þrjú börn, Ástu
Maríu, f. 17. apríl 1980, Auði, f. 22.
febrúar 1983, og Þórð Jóhann, f. 24.
október 1989.
Oddrún Svala, f. 16. mars 1944,
verslunarmaður í Reykjavík, gift
Stefáni Jónssyni, f. 13. nóvember
1942, söngvaraogverslunarmanni
og eiga þau tvö börn, Svandísi Ósk,
f. 28. október 1962, bankastarfs-
mann, og Gunnar Bergmann, f. 25.
ágúst 1964, háskólanema í Banda-
ríkjunum.
Símon Ingi, f. 21. desember 1946,
mjólkurfræðingur á Akureyri,
kvæntur Kolfmnu Sigtryggsdóttur,
f. 11. ágústl950,ogeigaþaufjögur '
börn, Sigtrygg, f. 11. október 1975,
Oddrúnu Helgu, f. 24. janúar 1978,
Gunnar, f. 8. mars 1981, og Símon,
f. 1. október 1987.
Þórður Jóhann, f. 31. október 1948,
d. 30. ágúst 1989, íþróttakennari í
Kaupmannahöfn; GunnarÓðinn, f.
2. október 1952, prentari á Selfossi,
kvæntur Gyðu Steindórsdóttur, f.
29. apríl 1958, og eiga þau fjögur
börn, Grétar Pál, f. 4.ágúst 1979,
Helgu Dóru, f. 26. október 1982, Ara
Má, f. 4. ágúst 1985, og Margréti El-
ísu, f. 9. september 1988. •
Erla Bára, f. 4. júní 1956, búsett í
Garðabæ, gift Magnúsi Þorsteins-
syni skipstjóra, f. 18. október 1950,
og eiga þau þrjú börn, Hólmfríði
Söndru, f. 21. mars 1976, Ægi Rafn,
f. 25. janúar 1980, og Guðlaugu
Helgu, f. 27. nóverpber 1987.
Trausti Viðar, f. 24. apríl 1960, raf-
magnstæknifræðingur í Þýska-
landi, kvæntur Margréti Maríu
Gunnarsdóttur, f. 3. júní 1961, og
eiga þau einn son, Jón Michael, f.
10. febrúar 1989.
Systkini Helgu eru Unnur, f. 15.
apríl 1922,, gift Ólafi Steinssyni
garðyrkjumanni í Hveragerði og
eiga þau fjögur börn; Klara, f. 1.
apríl 1923,húsmóðir í Hafnarfirði,
var gift Karli Magnússyni og eiga
þau fimm syni; Soffia, f. 20. október
1924, húsmóðir í Reykjavík, gift Þor-
katli Magnússyni og eiga þau íjögur
börn; Hjalti, f. 18. apríl 1927, b. á
Bjarnastöðum, kvæntur Eineyju
Þórarinsdóttur og eiga þau fimm
börn; Pétur, f. 2. maí 1929, bílstjóri
í Hveragerði, kvæntur Öldu Andr-
ésdóttur og eiga þau þrj ú börn; Ax-
el, f. 13. október 1930, bílstjóri á Sel-
fossi, var kvæntur Sigurlaugu Guð-
jónsdóttur en þau skildu og á hann
fjögurbörn.
Ætt
Foreldrar Helgu: Þórður Jóhann
Símonarson, f. 6. júlí 1891, d. 12.
apríl 1980, b. á Bjarnastöðum, og
kona hans, Ásta María Einarsdóttir,
f. 11. júlí 1900, d. 28. maí 1981. Þórð-
ur var sonur Símonar, b. á Bjarna-
stöðum, Símonarsonar, b. á Bjarna-
stöðum, Jónssonar, b. á Bjarnastöð-
um, Jónssonar. Ásta er dóttir Ein-
ars, b. á Grímslæk, Eyjólfssonar, b.
á Grímslæk, Eyjólfssonar, b. á
Grímslæk, Guðmundssonar. Móðir
Eyjólfs Eyjólfsonar var Eydís Þor-
leifsdóttir, b. á Nesjavöllum, Guð-
mundssonar, ættfóður Nesjavalla-
ættarinnar. Móðir Einars var
Kristrún Þórðardóttir b. í Hlíð í
Helga Lilja Þórðardóttir.
Gnúpverjahreppi, Guðmundssonar.
Móðir Þórður var Kristrún Eiríks-
dóttir, b. í Gröf, Jónssonar og kona
hans Oddný Guðmundsdóttur, b. á
Kópavatni, Þorsteinssonar, ætt-
fóður Kópsvatnsættarinnar.
Móðir Ástu var Guðrún Jónsdótt-
ir, kaupmanns í Rvík, Helgasonar.
Móðir Jóns var Hólmfríður Magn-
úsdóttir, b. á Hrauni í Ölfusi, Magn-
ússonar, b. í Þorlákshöfn, Beinteins-
sonar, lögréttumanns á Breiðaból-
stað í Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í
Hólum, Bergssonar, b. og hrepp-
stjóra í Brattsholti, Sturlaugssonar,
ættföður Bergsættarinnar. Helga er
að heiman á afmælisdaginn.
Bjöm Ólafsson
Björn Ólafsson, Vogatungu 10,
Kópavogi varð sextugur í gær.
Björn er fæddur í Múlakoti á Síðu
ogólst þarupp.
Starfsferill
Björn lauk stúdentsprófi í MR
1952 og fyrrihlutaprófi í verkfræði
í HÍ1955. Hann lauk diploma-prófi
í verkfræði í háskólanum í Aachen
í V-Þýskalandi 1962 og var verk-
fræðingur hjá Vegagerð ríkisins
1962-1966. Hann var verkfræðingur
hjá framkvæmdanefnd bygginga-
áætlana 1966-1970 og hefur veriö
sjálfstætt starfandi verkfræðingur
frá 1970. Björn var í stúdentaráði
HÍ1953-1954 og var varaborgarfull-
trúi í Reykjavík 1966-1967. Hann
var bæjarfulltrúi í Kópavogi 1974-
1986, í stjórn Alþýðubandalagsfé-
lags Kópavogs, formaður 1976-1977.
Fjölskylda
Björn kvæntist 17. júní 1954,
Huldu Sigurbjörgu Guðmundsdótt-
ur, f. 3. september 1930, banka-
starfsmanni. Foreldrar Huldu eru:
Guðmundur Ágúst Jóhannsson,
vélstjóri í Kópavogi og kona hans
Þuríður Sigurðardóttir. Börn
Björns og Huldu eru: Guðmundur
Þór, f. 28. október 1954, tæknifræð-
ingur í Kópavogi, kvæntur Sigríði
Rafnsdóttur, kennara; Brynjar, f.
27. október 1958, verkamaður hjá
Jöfri í Jíópavogi, kvæntur Lindu
Björk Ólafsdóttur, fóstru; Hildur
Elfa, f. 25. apríl 1960, fóstra í Djúpa-
vogi, gift Helga Hafsteinssyni, raf-
virkja og Ólafur Vignir, f. 24. febrú-
ar 1965, tæknifræðingur, við nám í
Gautaborg, kvæntur Berglindi
Hrafnsdóttur, nema í félagsfræði.
Systkini Björns eru: Bjarni,
Til hamingju með afmælið 2. nóvember
85 ára 50 ára
Oddný Þorbergsdóttir, Goðheimum 6, Reykjavík. Rútur Þorsteinsson, Byggðavegi 148, Akureyri. Þorbjörg Jóhannesdóttir, Aðalstræti 47, Patreksfirði. Halldóra Gunnarsdóttir, Gnoðarvogi 26, Reykjavík. Fjóla Guömundsdóttir, Digranesvegi 108, Kópavogi. Þórhildur Guðnadóttir, Háaleitisbraut 46, Reykjavík.
75 ára 40 ára
Bjarki Kárason, Hallbjamarstöðum 2, Tjörnes- hreppi. Gunnlaugur Gunnlaugsson, Heiðarseli, Tunguhreppi. Dagbjört Björnsdóttir, Efstasundi 44, Reykjavík. Sigtryggur Guðlaugsson, Áshlíö4,Akureyri. Birgir Pétursson, _ Faxatúni 26, Garðabæ.
70ára Bryndís Guðgeirsdóttir, Skriðuvöllum 7, Skaftárhreppi.
Ingigerður Helgadóttir, Garðbraut49, Garði. SigurðurM. Valdimarsson, Faxabraut 39A, Keflavík. Valdimar Pólsson, Einibergi27, Hafnarfirði. Haraldur Jóhann Jóhannsson, Víðivangi 3, Hafnarfirði. Guðrún Skúladóttir,
60 ára Arnartanga 57, Mosfeílsbæ. Herdis Pétursdóttir,
Petra Fanney Þórlindsdóttir, Álftamýri30, Reykjavik. •Ásgeir Gunnarsson, Birkiteigi 20, Keflavík. Akurholti 15, Mosfellsbæ. Elisabet Kristjánsdóttir, Melseli 16, Reykjavík. . SigurðurEmilEinarsson, Stífluseli 14, Reykjavík.
fyrrv. blikksmiður í Rvík; Matthí-
as, fyrrv. b. á Breiðabólstað á Síðu;
Jóhanna, gift Indriða Bogasyni, ví-
óluleikara í Sinfóníuhljómsveit-
inni; Sigríður, saumakona í Rvík,
gift Sigurði Ottóssyni, blikksmiði;
Ásta Þórunn, gift Öddi Skúlasyni,
b. í Mörtungu, d. 1989; Guðríður,
d. 1980, starfsstúlka á Kópavogs-
hæli; Lilja, gift Birni Þ. Þórðar-
syni, lækni í Rvík; Helga, starfar
hjá Happadrætti HÍ, gift Andrési
Ottóssyni, blikksmiði; Svava, gift
Andrési Einarssyni, b. áBreiðaból-
stað á Síðu; Snorri, blikksmiður í
Rvík og Ingibjörg, gift Þorvaldi
Þorvaldssyni, endurskoðanda.
Foreldrar Bjöms eru: Ólafur
Bjarnason, b. í Múlakoti á Síðu og
kona hans Sigríður Tómasdóttir.
Föðursystir Björns var Helga móð-
ir Helga Þorlákssonar, fyrrv. skóla-
stjóra í Rvík. Ólafur var sonur
Bjarna, b. og hreppstjóra í Hörgs-
dal á Síðu, Bjarnasonar, b. og
hreppstjóra á Keldunúpi á Síðu,
Bjarnasonar, b. á Keldunúpi, Ólafs-
sonar. Móðir Bjarna í Hörgsdal var
Rannveig Ölafsdóttir, b. í Seglbúð-
um í Landbroti, Þórarinssonar.
Móðir Bjarna, hreppstjóra á Keld-
unúpi, var Vilborg, systir Þor-
steins, afa Jóhannesar Kjarvals.
Vilborg var dóttir Sverris, b. í Segl-
búðum, Eiríkssonar, b. og hrepp-
stjóra í Hörgsdal, Bjarnasonar.
Móðir Vilborgar var Ólöf Jóns-
dóttir, b. á Núþstað, Bjarnasonar,
bróður Eiríks. Móðir Helgu var
Helga Pálsdóttir, prófasts í Hörgs-
dal, Pálssonar og konu hans Guð-
ríðar, Jónsdóttur, b. og hreppstjóra
á Kirkjubæjarklaustri, Magnús-
sonar, langafa Jóhannesar Kjarv-
als.
Móðurbróðir Björns er Tómas,
faðir Hauks jarðfræöings í Rvík.
Sigríður er dóttir Tómasar, b. á
Saurum í Staöarsveit, bróðir
Margrétar, langömmu prófesso-
ranna Sigmundar og Þórðar Eydal
Magnússona. SystirTómasar var
Hólmfríður, móðir Friöjóns Sig-
urðssonar fyrrv. skrifstofustjóra
Alþingis. Annar bróðir Tómasar
var Jón, langafi Ingimars Ingi-
marssonar, þingfréttaritara hjá
RÚV. Önnur systir Tómasar var
Valgerður, amma Sigrúnar Sigurð-
ardóttur, fréttamanns RÚV, og
langamma Sigurlaugar Jónasdótt-
ur dagskrárgerðarmanns. Tómas
var sonur Jóns, b. í Skammadal í
Mýrdal, Tómassonar, bróður Þórð-
ar, afa Þórðar Tómassonar, fræði-
manns í Skógum og langafa Ólafs
Laufdals og Stefáns Harðar Gríms-
sonar skálds. Jón var bróðir Sigríð-
ar, langömmu Jóns Þórs Þórhalls-
sonar, forstjóra Skýrsluvéla ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar og Er-
lendar Einarssonar, fyrrv. for-
Björn Olafsson.
stjóra SÍS.
Móðir Sigríðar Tómasdóttur var
Margrét, systir Sigríðar, ömmu
Bjarna Braga Jónssonar, aðstoðar-
bankastjóra Seðlabankans. Margr-
ét var dóttir Jóns, b. í Breiðuhlíð í
Mýrdal, Jónssonar. Móöir Margr-
étar var Ingibjörg Einarsdóttir, b.
í Fjósum í Mýrdal, Þorsteinssonar,
b. á Hunkubökkum, Salómonsson-
ar, bróður Sigríðar, langömmu Jó-
hannesar Kjarvals. Móðir Ingi-
bjargar var Guðlaug, systir Magn-
úsar, langafa Helga, fóður Jóns
ráðherra. Guðlaug var dóttir Jóns,
b. og hreppstjóra á Kirkjubæjar-
klaustri, Magnússonar, og konu
hans Guðrúnar Oddsdóttur, systur
Sigurðar, langafa Guðbrandar, föð-
ur Ingólfs söngstjóra og Þorfinns,
afa Ómars Ragnarssonar. Björn er
erlendis á afmælisdaginn.
Guðfinna
Jensdóttir
Guöfinna Jensdóttir húsmóðir,
Bauganesi 37, Reykjavík, er sextug
ídag.
Guðfinna fæddist í Vogi í Skerja-
firöi og ólst þar upp í foreldrahús-
um.
Eiginmaður hennar er Hjalti
Ágústsson vörubílstjóri og eiga þau
fimm börn.
Þau hjónin taka á móti gestum að
heimili sínu í kvöld eftir klukkan
20.00.
Guðfinna Jensdóttir.
HUGSUM FRAM A VEGINN