Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Side 27
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990. 35 LífsstOI TOMATAR +9% .. 3 *o HH § 8> I ■ 357 248 SVEPPIR +23% ■ . .■ '■ Meðalverö á vínberjum, papriku, kartöflum, blómkáli og gulrótum lækkar enn, aðra vikuna í röð. DV kannar grænmetismarkaðinn: Mikill verðmun- ur á kartöflum - kílóið frá 30 upp í 82 krónur Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð á grænmeti í eftirtöldum verslunum: Fjarðarkaupi í Hafnar- firði, Kjötstöðinni í Glæsibæ, Hag- kaupi á Eiðistorgi, Miklagarði við Sund og Bónusi í Faxafeni. Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti að mestu leyti í stykkjatali meðan hinar verslanirnar nota kílóverð. Til að fá samanburð þar á milli var grænmetið í Bónusi vigtað og um- reiknað yfir í kílóverð. Meðalverð á tómötum hækkar um 9% og er nú 281 króna. Ódýrastir voru þeir í Miklagarði þar sem verð- ið var 248 krónur. Þar á eftir kom svo Kjötstöðin með 249 krónur, Hagkaup með 269 krónur og Fjarðarkaup með 357 krónur. Þar voru hka seldir litlir tómatar á 249 krónur kílóið. Bónus var einungis með litlu tómatana. Munur á hæsta og lægsta verði á tómötum var 44%. Meðalverð á gúrkum hækkar um 8% og er nú 230 krónur. Þær voru ódýrastar í Bónusi, 187 krónur. Næst kom Fjarðarkaup með 198, Mikli- garður með 236, Hagkaup meö 239 og Kjötstöðin með 288 krónur kílóið. Munur á hæsta og lægsta verði var 54%. Meðalverð á sveppum hækkar um 23% og er nú 456 krónur. Þeir voru ódýrastir í Hagkaupi þar sem kílóiö kostaði 409 krónur. Næst kom svo Fjarðarkaup með 410 krónur og Kjöt- stöðin með 550 krónur kílóið. Ein- ungis voru til litlir sveppir til í Bón- usi og Miklagarði. Munur á hæsta og lægsta verði var 34%. Græn vínber lækka um 32% að meðalverði sem er nú 180 krónur. Ódýrustu vínberin voru í Bónusi þar sem kílóið.kostaði 124 krónur. Þar á eftir kom Kjötstöðin með 125, Mikli- garður með 148, Hagkaup með 249 krónur og þá Fjarðarkaup'með 253 krónur kílóið. Munur á hæsta og lægsta verði var 104%. Meðalverð á grænni papriku lækk- ar um 25% og er nú 231 króna kílóið. Ódýrust var hún i Bónusi þar sem hún kostaði 149 krónur kílóið. Þar á eftir kom Hagkaup með 245, Mikli- garður með.248 og Fjarðarkaup meö 282 krónur kílóið. Kjötstöðin átti papriku en hún var ekki tekin með vegna smæðar. Munur á haésta og lægsta verði var 89%. Meðalverð á kartöflum lækkar um 9% og er nú 55 krónur. Ódýrustu kartöflurnar fengust í Bónusi þar sem kílóið kostaði 30 krónur. Þar næst kom Kjötstöðin með 53, Fjarð- arkaup og Mikligarður með 55 krón- ur og loks Hagkaup með 82 krónur kílóið. Munur á hæsta og lægsta verði var 173%. Að venju kannaði neytendasíðan einnig verð á blómkáli, hvítkáli og gulrótum. Meðalverð á blómkáli lækkar um 30% og er nú 154 krónur kílóið. Það var ódýrast í Hagkaupi þar sem kíló- iö kostaði 139 krónur. Meðalverð á hvítkáli stendur í stað. Það er 73 krónur en ódýrast var hvít- kálið í Bónusi, 49 krónur kílóið. Meðalverð á gulrótum lækkar um 15% og er nú 189 krónur. Hagkaup seldi ódýrustu gulræturnar, kílóið kostaði 129 krónur. . -hge Sértilboð og afsláttur: Tilboðsveggur í Kjötstöðinni Meðal þess sem prýðir tilboðstorg Fjarðarkaups þessa vikuna eru Olof bruður (200 g) á 89 krónur, Club salt- kex (150 g) á 66 krónur, Nelsons marmelaði (454g) á 124 krónur og Sun-C appelsínusafi (lítri) á 82 krón- ur. Bónusbúðirnar bjóða nú tveggja lítra flöskur af Fanta á 85 krónur, Java kaffi (500g) á 174 krónur, kíló af strásykri á 61 krónu og stóra pitsu frá Veislumiðstöðinni á 298 krónur. í Hagkaupsbúðunum er tilboðs- verð á Botaniq þvottadufti (75 dl) á 389 krónur, tveggja lítra flöskum af (1,51) á 69 krónur og Prince Lu krem- kexi (200 g) á 136 krónur. Veturinn er kominn á almanakinu og ekki ósennilegt að hann fari að láta vita betur af sér. Þess vegna er Mikligarður með tilboðsverð á startköplum á aðeins 795 krónur. Einnig er tilboðsverð á þriggja klukkustunda Mark myndbands- spólum á 445 krónur, Blue basic gallabuxum á 1.795 krónur og fyrir 2.995 krónur má fá tvennar buxur. Þá býður Mikligarður dömu-velúr- galla á 4.995 krónur. Kjötstöðin í Glæsibæ hefur nú komið upp ánægjulegri nýjung hjá sér en það er tilboðsveggur þar sem ávallt verða uirt 20 vörutegimdir sem verða á sérstöku tilboðsverði. Meðal tilboða þar nú má nefna Bluetex þvottaduft (80 dl) á 299 krónur og tvær Galant eldhúsrúllur á 89 krón- ur. í kjötborðinu er folaldabuff á tii- boðsverði, 790 krónur kílóið og fol- aldagúllas á 750 krónur kílóið. Fyrir hálfum mánuði sögðum við frá geitakjötinu í Kjötstööinni en það seldist upp á skömmum tíma. Þá sem bíða getum við glatt með því að í dag er væntanleg ný sending af geita- kjöti. -hge ^Sgl Vínber w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.