Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
5
Fréttir
Mánaðarkortið hækkar um 16 prósent hjá líkamsræktarstöð verkalýðsfélaga:
Er að verða allsherjarrugl
- segir Leifur Guðjónsson hjá verðlagseftirhti verkalýðsfélaganna
Þeim brá sumum í brún sem hugð-
ust kaupa mánaðarkort hjá forvarn-
ar- og endurhæfingarstöðinni Mætt-
inum í síðustu viku því þar var þeim
gert að greiða um 16% hærra verð
fyrir kortið en fyrir áramót. Þetta
vakti einkum -furðu manna vegna
þess að fyrirtækið er að stærstum
hluta í eigu ýmissa verkalýðsfélaga
á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal
Dagsbrúnar, sem mjög hafa barist
gegn verðhækkunum að undan-
förnu.
„Þetta kjaftæði um þjóðarsátt er
að verða eitt allsherjarrugl. Það er
svo sannarlega farið að hrikta í
henni. Nú dynja yflr okkur hækkan-
ir og við hér á skrifstofunni höfum
ekki undan því að svara kvörtunum.
Jafnvel þeir aðilar, sem stóðu að
þessari sátt, svo sem Reykjavíkur-
borg og ríkið, virðast vera hvað ákaf-
astir í hækkanir. Ég held að menn
ættu að fara að athuga sinn gang en
Sjónvarpsleysi:
Mynd-
bandaæði á
Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
„Ég man varla eftir annarri eins
örtröð eins og í fyrrakvöld," sagði
eigandi myndbandaleigu á Akureyri
sem DV ræddi við.
Stöð 2 hefur ekki sést í sjónvarps-
viðtækjum Akureyringa undanfarna
daga frekar en hjá öðrum á Norður-
landi og á laugardag datt hljóðið út
úr sendingum ríkissjónvarpsins
vegna ísingar á endurvarpsstöð á
Öxnadalsheiði. Með það sama troð-
fylltust allar myndbandaleigur á
Akureyri og má segja að slegist hafi
verið um allar myndir sem til voru
og myndir sem alla jafnan hreyfast
lítið i hillunum ruku út eins og heit-
ar lummur.
Eigandi einnar myndbandale'igu á
Akureyri, sem DV ræddi við á
sunnudag, sagði að hans vegna mætti
ástandið vera svona eitthvað áfram
en ekki er víst að margir taki undir
það.
Pylsuvagniim:
Kassinn
tæmdurfyrir
framan
starfsmenn
Fingralangur búðaþjófur gerði sér
lítið fyrir og rændi kvöldsölunni úr
Pylsuvagninum í Austurstræti um
fjögurleytið aðfaranótt laugardags-
ins nánast fyrir augum eigenda og
starfsmanna. Þrír menn voru í
pylsuvagninum en enginn þeirra sá
þegar hirt var úr kassanum. Tveir
mannanna voru að afgreiða síðustu
viðskiptavinina en pylsuvagninn
lokar klukkan fjögur. Eigendur sáu
strax hvað orðið var en sáu engan
nálægan. Ekki er vitað hvað upp-
hæðin var há þar sem ekki var búið
að telja úr kassanum. Málið er í
höndum lögreglu. -ELA
Góö ráó eru til ad
fara eftirþeim!
Eftireinn
-ei aki neinn
hætta ella þessu kjaftæði um sátt
þjóðarinnar," segir Leifur Guðjóns-
son, starfsmaður verkalýðsfélag-
anna í verðlagsmálum.
Hilmar Björnsson, framkvæmda-
stjóri Máttar, segir verkalýðsfélögin
hafa greitt niöur mánaðarkort fé-
lagsmanna sinna en þar sem þau
hafi enn ekki ákveðið að auka niður-
greiðslurnar til samræmis við hækk-
un gjaldskrárinnar hafl einstaka við-
skiptavinur nú þurft að greiða tæp-
lega 16% hærra verð en í fyrra. Þetta
verði hins vegar leiðrétt þegar félög-
in hafi-tekið ákvörðun um upphæð
niðurgreiðslna. í raun hafi mánaðar-
kortin einungis hækkað um 10% og
að meðaltali hafi gjaldskrá fyrirtæk-
isins hækkað um 4%.
„Ég get í sjálfu sér samsinnt því
að 10% hækkunin sé mikil nú á tím-
um þjóðarsáttar en við erum ekki að
brjóta á henni. Um nokkurt skeið
höfum við verið gagnrýnd af öðrum
líkamsræktarstöðvum fyrir að halda
markaðsverðinu niðri. Þrátt fyrir
þessa hækkun erum við eftir sem
áður með lægsta verðið. Breytingin
á verðskránni er einungis nauðsyn-
leg leiðrétting þar sem sumt lækkar
og annað hækkar.“
Að sögn Leifs Guðjónssonar er það
hins vegar tómt rugl hjá forsvars-
mönnum Máttar að halda því fram
að verkalýðsfélögin þurfi að sam-
þykkja að hækka niðurgreiðslurnar.
Hann segir að félögin hafi samþykkt
í upphafi að greiða niður þriðjung
verðsins og sú samþykkt myndi gilda
þótthækkaniryrðu. -kaa
Jaz.2-sk ó I i fyrír born
Innritun hafin á alla
staðina í símum
687701 - 687801
BYRJUM 10. JANUAR
Skóli fyrir stelpur og stráka, 2ja-12 ára.
Djassdans er skemmtileg og þroskandi hreyfing
fyrir hugann og líkamann; tími sem byggist
á upphitun, dangi og leikrænni tjáningu.
Við höfum fengið Ástu Ólafsdóttur til að sjá um yngstu börnin, á
aldrinum 2ja ára til 9 ára.
Sóley og Jón Egill sjá um kennsluna fyrir börnin á aldrinum 5-12 ára.
HAFNARFJÖRÐUR - KÓPAVOGUR
Sömu kennslu bjóöum við upp á í Hafnarfirði og Kópavogi. Barnadjass
fyrir stelpur og stráka á aldrinum 5 til 12 ára og unglingum 13 ára og
eldri, kennum við djass og funk. Kennari verður Bryndís Einarsdóttir
sem kennt hefur í Dansstúdíói Sóleyjar síðustu 5 ár.
Nemendasýning verður haldin í maí fyrir alla nemendurna.
Vetrardagskrá Danstúdíós Sóleyjar árið 1991
DJASS
- NÚTÍMABALLETT - BALLETT
Dansstúdíó Sóleyjar hefur frá stofnun lagt áherslu á að veita nemendum
á öllum aldri fullkomna fagkennslu.
Markmiðið hefur ávallt verið að bjóða það nýjasta sem er að gerast í dansheiminum
hverju sinni. Spor í þá átt er að fá hingað erlenda danskennara frá viðurkenndum skólum.
Gestakennarinn í vetur verður Shirlene Blake, sem var að ljúka við mastersgráöuna
í dansi og er þetta í þriðja skiptið sem hún heimsækir okkur í Dansstúdíói Sóleyjar.
DJASSDANS
v Djassdans er góð og nauðsynleg líkamsþjálfun fyrir börn og fullorðna. Við
erum með byrjenda- og framhaldshópa fyrir stelpur og stráka á öllum aldri.
, \ Kennarar: Shirlene Blake, Bryndís Einarsdóttir, Jón Egill Bragason
\v og Sóley Jóhannsdóttir.
NUTIMABALLETT
Fyrir 16 ára og eldri. Bland af djassi og klass-
ískum ballett sem tengir hug og hreyfingu.
Kennari: Shirlene Blake.
BALLETT
Ballettkennsla fyrir 10 ára og eldri. Byrjendur og framhald.
Kennari: Shirlene Blake.
NAMSKEIÐ
4 mánaða önn
hefst 10. janúar.
Engjateigi 1 • Reykjavík • Símar 687801 & 687701