Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
Útlönd
Gíslumsleppt
Róttæk samtök Palestínumanna,
undir forystu hins alræmda
skæruliöa, Abus Nidai, tiikynntu í
gær aö fjórir breskir gíslar, sem
rænt var 1987, hefðu verið iátnir
lausir. Að sögn mannræningjanna,
sem tilheyra Byitingarráði Fatah,
var ákveðið að láta gíslana lausa
eftir að belgísk yfirvöld samþykktu
að sleppa Palestínumanninum
Nasser Said sem dæmdur var í lífs-
tíðarfangelsi vegna árásar á gyð-
ingabörn í Antwerpen 1980.
Belgiski utanríkisráðherrann,
Mark Eyskens. sagðist í gærkvöldi
vonast til að gíslamir kæmu fljótt
Hryðjuverkamaðurinn Abu Nidal. heim og bætti því viö að Gaddafi
Stmamynd Reuter Líbýuleiðtogi heföi átt þátt í að fá
gíslana látna iausa. Belgamir, sem
um ræðir, em hjón og tvö böm þeirra. Þau voru meðal átta manns sem
teknir voru á skútu á austanverðu Miðjarðarhafi 1987.
Segir Spies ekki til sölu
Bróöir Janni Spies Kjár og aðrir forystumenn innan Sþíes-ferðaskrifstof-
unnar hafa visaö á bug frétt danska blaðsins Börsen um að fyrirtækið sé
til sölu. Biaðið skrifaði i gær að erlent flugfélag hefði fengið boð um aö
taka við fyrirtækinu. Samkvæmt frétt blaðsins áttu ýmsar deilur að hafa
átt sér staö í fyrirtækinu og Janni sjálf átti ekki að hafa sést þar síöan í
nóvember.
Minnkandi straumur f lóttamanna
Albanskir flóttamenn i Grikklandl. Símamynd Reuter
Grísk yfirvöld sögðu í gær að færri Albanir streymdu nú til Grikklands
frá Albaníu. 1 gær voru fjörutíu flóttamenn sagðir hafa komið en undan-
farna tíu daga hafa yfir fiögur þúsund albanskir flóttamenn af grískum
uppruna streymt til Grikklands. Flestum flóttamannanna hefur verið
komið fyrir í skólum, opinbemm byggingum og tjöldum.
Constantine Mitsotakis, forsætisráðherra Grikkiands, er sagður ætla
að fara fram á það við Ramiz Alia, leiðtoga Albaníu, að tryggt verði að
þeir flóttamenn sem vilja snúa aftur heim verði ekki ofsóttir.
Talsmaður grísku stjómarinnar sagði aö hún hefði í hyggju að fiárfesta
i suðurhluta Albaníu i kjölfar tilraunanna þar til lýðræðisbrey tinga. Þann
10. febrúar verða haldnar fyrstu Qölflokkakosningarnar í landinu í fiöm-
tíu ár.
»
Morð á ástarbraut
Dularfullur byssumaöur í New York hefur ráðist á tvö pör á ástarbraut
og myrt einn karlmann. í báðum árásunum, sem áttu sér stað með tíu
mánaða millibili, nálgaðist byssumaðurinn bíl fómarlamba sinna og skaut
einu skoti að þeim sem sat í farþegasætinu, að þvi er lögreglan hefur
greint frá. Árásimar vom gerðar undir morgun á ástarbraut. í báðum
tilfellum tókst árásarmanninum að komast undan óséður.
Kohl reynir stjórnarmyndun
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands.
Tt-iknlng Lurie
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, hóf í gær á ný stjórnarmynd-
unarviðræður við frjálslynda
demókrata. Deilur um framtíöar-
stefnu og ráðherraembætti hafa
tafið myndun nýrrar stjórnar en
flokkur Kohls, kristilegir demó-
kratar, og frjálslyndir demókratar
unnu yfirburðasigur í kosningun-
um 2. desember síðasthðinn.
Áætlað hafði verið að endurkjör
Kohls í kanslaraembættið færi
fram 17.janúar en talið er að tafir
geti oröið á því ef sfiórnarmyndun-
arviðræðum verður ekki lokið fyrir
þann tíma.
Leiðtoga helstu sfiórnmálaflokk-
anna greinir á um hvernig fiár-
magna eigi sameiningu þýsku rikj-
anna. Leiðtogar frjálslyndra demó-
krata vilja að skattar verði iækkað-
ir í fyrrum Austur-Þýskalandi til
að hvetja til fiárfestingar. Kristi-
legu flokkarnir segja hættu á að
það kunni að leiða tii nýrrar mis-
mununar og misnotkunar.
Reuter og Kit/au
DV
Baker undirbýr
„síðasta“ fundinn
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, falast nú eftir stuðn-
ingi fleiri Evrópuríkja í dag áður en
hann heldur til fundar við utanríkis-
ráöherra íraks, Tareq Aziz, í Genf
sem fram fer á morgun. í farteskinu
er Baker með loforð um að ekki verði
ráðist á írak ef íraskir hermenn verði
kallaöir heim frá Kúvæt fyrir 15. jan-
úar. Að öðrum kosti megi þeir búast
við árás. Aziz kveðst munu hafa
meðferðis nýjar tillögur en ítrekar
jafnframt að írakar muni ekki fara
frá Kúvæt. Varar hann við löngu og
hræðilegu stríði sem ísrael muni
finna fyrir frá upphafi.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
greindi frá því í gær að sex íraskar
þyrlur heföu lent í Saudi-Arabíu í
gærkvöldi með nokkrum liðhlaup-
um. Yfirvöld í Bagdad vísuðu þessari
frétt á bug og sögðu hana óskhyggju.
Mikill skjálfti var á verðbréfa-
mörkuðum í Wall Street í gær vegna
ótta manna um stríð og olíuverð
hækkaði um nær þrjá dollara.
Baker, sem fengið hefur stuðnings-
yfirlýsingu frá Bretlandi, Spáni og
Lúxemborg, ráðgerir skyndiheim-
sóknir í dag til Frakklands, Þýska-
lands og Ítalíu.
Franski þingmaðurinn Michel
Vauzelle, sem er trúnaðarmaður Mit-
terrands Frakklandsforseta, hitti
Saddam Hussein íraksforseta um
helgina. Vauzelle sagði í gær að
Frakkar yrðu aö reyna eigin dipló-
matískar leiðir ef viöræðurnar í Genf
yrðu árangurslausar. Baker leggur
hins vegar áherslu á að ekki sé neinn
tími til fara eigin leiðir. „Eina vonin
um frið er sú að Saddam Hussein
skilji að okkur sé alvara,“ sagði Bak-
er í gær. Eftir að Saddam hét því í
gær að frelsa Jerúsalem og að árásir
yrðu gerðar um allan heim lýsti Bak-
er yfir svartsýni sinni á að boð hans
kæmust til skila.
írönsk yfirvöld, sem eru andvíg
bæði hernámi íraka í Kúvæt og nær-
veru fiölþjóðahersins við Persaflóa,
tilkynntu um viöamiklar hernaðar-
æfingar á Persaflóa í næstu viku.
Háttsettir íraskir sendimenn eru
væntanlegir til írans í dag til við-
ræðna um Persaflóadeiluna.
Reuter
Bandarískir hermenn á æfingu í Saudi-Arabíu. Símamynd Reuter
Sameiginleg tillaga Norðurlanda:
Friðargæslusveitir til Persaf lóa
Norðurlönd kynntu í gær tillögu
um aö friðar- og eftirlitssveitir á veg-
um Sameinuðu þjóðanna yrðu
sendar til Persaflóa þegar írakar
hafa kallað heim herlið sitt frá Kú-
væt. Auk þess eru utanríkisráðherr-
ar Norðurlandanna sammála um að
leggja fram tillögu fyrir fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
um pólitískan og efnahagslegan
stuðning við þróun nýs öryggiskerfis
á svæðinu. í tillögu Norðurlandanna
er ekki minnst á málefni Palestínu-
manna.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur verið tilkynnt
um tillöguna og eru Bandaríkjamenn
sagðir skilja tilganginn með henni,
það er að undirbúningur að slíkum
aðgerðum geti orðið til að forðast
megihörðátök. ntb
Frakkland:
Varnarmálaráðherrann and-
vígur hernaði gegn írak
Vamarmálaráðherra Frakklands,
Jean-Pierre Chevenement, er and-
vígur þátttöku Frakka í hernaöarað-
gerðum gegn írak. Um tíu þúsund
franskir hermenn eru í Saudi-Arabíu
en það er álit ráðherrans að aldrei
hefði átt að senda þá þangað.
Ágreiningurinn milli Chevene-
ment annars vegar og Francois Mitt-
errand Frakklandsforseta og ann-
arra í stjórninni hins vegar er svo
mikill aö kröfur hafa verið lagðar
fram um afsögn varnarmálaráðherr-
ans. Ekki er þó búist við að Mitter-
rand taki afstöðu til málsins nú þegar
aðeins fáeinir dagar eru þar til í ljós
kemur hvort stríð brýst út við Persa-
flóa. Stjómarkreppa nú þykir ekki
heppileg.
Orðrómur er hins vegar á kreiki í
París um aðra fyrirætlan Mitter-
rands. Hann er sagður hafa í huga
að kalla saman þing ef fundur Bak-
ers, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og Aziz, utanríkisráðherra ír-
aks, í Genf verður árangurslaus.
Samkvæmt orðrómnum ætlar Mit-
terrand þá að skýra þingheimi frá
stöðu mála og væntanlegum aðgerö-
um franskra yfirvalda til að breyta
stöðu mála. Mitterrand er jafnvel
sagður ætla að biðja þingið um form-
legtleyfitilaðlýsayfirstríði. tt