Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
Utlönd
Tyminski iðrast orða sinna
Saksóknarar í Póllandi stöðvuðu
málið gegn forsetaframbjóðandan-
um og milljónamæringnum Stan-
islaw Tyminski eftir að hann til-
kynnti í gær að hann væri reiðubú-
ínn að biöjast afsökunar fyrir að
hafa kallaö fyrrum forsætisráö-
herra Póliands svikara.
Tyminski olli uppþoti í kosninga-
baráttunni í Póllandi í nóvember
síðastliðnum þegar hann sakaði
keppinaut sinn, Tadeusz Mazowi-
ecki forsætisráðherra, um föður-
landssvik með því að hafa selt út-
lendingum fyrirtæki fy rir gj afverð.
Saksóknarinn sem yfirheyrði
Tyminski í gær sagði að málið yrði
látið falla niður þar sem Tyminski
hefði ráðist gegn Mazowiecki sem
keppinaut en ekki sem embætt-
ismanni. Auk þess væri Tyminski
reiðubúinn til að biöjast afsökunar.
Pólski milljónamærlngurinn Slan-
islaw Tyminski. Slmamynd Reuter
Njósnaði til að geta heimsótt móður sína
Vestur-þýskur borgarstarfsmaður í Dusseldorf sagði fyrir rétti í gær
að Austur-Þjóðverjar hefðu gert hann aö njósnara með því að hóta að
stöðva hpimsóknir hans til aldraðrar móður hans. Starfsmaðurinn, sem
Qutti frá Austur-Þýskaiandi til Vestur-Þýskalands árið 1957 sagði a-þýsku
öryggíslögregluna Stasi hafa haft samband við sig er hann var í heimsókn
í Austur-Þýskalandi áriö 1974.
Njósnarinn er sakaður um aö hafa lekið upplýsingum um félaga sína
og yfirmenn.
Bensínieysi í Búlgaríu
Frá bensinstðð í Sofíu.
Sfmamynd Reuter
Enn ríkir mikill skortur á ýmsum nauðsynjavörum í Búigaríu og er
þetta einn erfiðasti veturinn þar frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Yfirvöld bönnuðu í síðustu viku sölu á bensíni tíi almennings fram í
miðjan janúar og er þetta í annað sinn á tveimur mánuðum sem slíkt
bann er sett á.
Götur höfuðborgarinnar Sofiu, sem venjulega eru fuliar af bílum, voru
auðar um helgina að undanskildum bílum erlendra stjómarerindreka.
Þeir geta keypt bensín á sérstökum stöövum. Þreyttir fótgangendur eru
sagðir hafa horft gramir á bila sendiráðsstarfsmannanna.
Eldsneytísbirgðir minnkuðu í Búlgaríu þegar yfirvöld í Sovétríkjunum
ákváðu að minnka útflutning á ódýrri hráolíu til Austur-Evrópulanda til
þess að í staðinn selja hana á heimsmarkaðinum fyrir gjaldeyri. Birgðirn-
ar minnkuðu enn frekar í ágúst síðastliðnum þegar ínnflutningur frá
írak var stöðvaður.
Fréttaritarar kallaðir heim frá Moskvu
Ungverjar þykja hafa lýst yfir ótviræðum stuöningi viö skiptíngu Sovét-
ríkjanna í sjáífstæð lýðveldi. Þessi stuðningsyfirlýsing er sögö hafa veriö
gerö án þess að eftír væri tekið og þykir einkennantíi fyrir-Ungverja.
Hingað til hefur fréttastofa ungverska ríkisins haft fjóra fréttaritara í
Moskvu en vegna þróunarinnar síöastliðin tvö ár þykír nú ástæða til að
einn þessara fréttaritara verði fluttur til Tallinn, höfuðborgar Eistlands,
og annar til Kiev, höfuðborgar Úkrainu.
Fyrir ekki löngu hefðu slíkar breytingar leitt tíl ágreinings við Moskvu-
valdiö en nú þykir ekki lengur hætta á því.
Fjárhagur stjórnmálamavma undir smásjá
Ýmsar upplýsingar um norska
þingmenn som hingað til hafa heyrt
undir friðhclgi einkalifsíns verða
gerðar opinberar frá og með 20.
febrúar. Þá á liver scm er að geta
haft samband við skrifslofu á þing-
inu og fengið að lífa í skrána sem
þingmennirnir sjálfir hafa veitt
upplýsingar í. Ráögert er að svipaö
fyrirkomulag verði sett á laggimar
í sveitar- og bæjárstjórnum.
í fyrstu mætti tillagan um slxka
skra verulegri andspyrnu og fyrsl
og frcmst frá hægrisinnuðum þing-
mönnum. Margir sögðu að frið
. helgi einkalífsiris yrði rolin. En í
kjölfar ýmissa hneykslismála í
Ósló og á fleiri stöðum og ekki síst
uppljóstrana um brot Jans P. Syse,
fyrmm forsætisráðherra, á lögum
um hlutafélög, hefur afstaöa
norskra þingmanna breyst.
Eyrst og fremst verða veittar upp-
lýsingar um tekjur umfram þing-
störf og eignir.
Rcuter, Ritzau og NTB
Jan P. Syse, fyrrum (orsætisráð-
herra Noregs.
_____________________________________DV
Eftirleikur tilraunar til valdaráns á Haiti:
Stuðningsmenn
Lafontants myrtir
á götum úti
Þrátt fyrir aö tilraun Rogers La-
fontant til valdaráns á Haiti stæði
aðeins í níu klukkustundir i gær var
mikill órói í Port-au-Rrince, höfuö-
borg landsins, allt fram á nótt og tal-
ið að í það minnsta 40 menn hefðu
verið drepnir.
Kveikt var í víða í borginni, versl-
anir rændar og menn drepnir í upp-
gjöri andstæðra fylkinga. Það eru
einkum fylgismenn Jeans-Bertrand
Aristide, verðandi forseta, sem hafa
reynt að hafa hendur í hári manna
úr dauðasveitunum Tonton Maco-
ute. Lafontant er talinn foringi sveit-
anna og að hann hafi ætlað sér að
stjórna landinu í krafti þeirra.
Dauðasveitirnar urðu til í langri
valdatíð Duvalier-fjölskyldunnar.
Þær stóðu fyrir pólitískum ofsóknum
i landinu allt til þess að Jean-Claude
Duvalier eða „Baby Doc“ var hrak-
inn frá völdum árið 1986. Sveitirnar
hafa þó aldrei veriö leystar upp og
almenningur á Haiti óttast þær enn.
Liðsmenn Aristide vilja að hann
verði settur nú þegar í embætti for-
seta en nú sem stendur er Ertha Pas-
cal Trouillot starfandi forseti. Mikill
órói er í fylgismönnum Aristide og
hafa þeir krafist þess að Lafontant
verði afhentur. þeim svo dómstóll
götunnar geti kveðið yfir honum
þann dóm sem hann telur réttlátan.
í gær voru haföar uppi kröfur um
að Lanfontant yrði brenndur á báh.
Lafontant er í haldi hjá stjórnar-
hernum. Óvíst er hvaö verður um
hann en tahð er aö nokrir áhrifa-
menn innan hersins vilji sleppa hon-
um úr landi. Enn sem komið er bend-
ir þó flest tíl að Lafontant verði dreg-
inn fyrir dóm ákærður fyrir landráð.
Reuter
Roger Lafontant, uppreisnarforningi á Haiti og fyrrum innanríkisráðherra,
er nú í haldi hjá stjórnarhernum. Lafontant sést hér lengst til vinstri í hand-
járnum ásamt nánustu stuðningsmönnum sínum. Símamynd Reuter
Fiskveiðisamningur Grænlendinga og Sovétmanná:
Grænlenskir togarar
veiða í Barentshaf i
Grænlendingar og Sovétmenn hafa
gert með sér fiskveiðisamning sem
felur í sér skipti á veiðiheimildum.
Royal Greenland, útgerðarfélag
Grænlensku heimastjórnarinnar og
nokkurra einkaaðila, fær nú heimiid
til að senda togara til þorskveiða í
Barentshafi en sovéskir togarar
mega á mótí veiða vannýttar fiskteg-
undir við Grænland.
Grænlenska togaraútgerðin hefur
undanfarið átt í erfileikum vegna lít-
illar þorskgengdar á Grænlands-
miðum. Erfitt hefur reynst að fá
veiðiheimildir í lögsögum annarra
ríkja þar til samningar tókust nú viö
Sovétmenn.
Samingurinn þykir hagstæður
Grænlendingum, m.a. vegna þess að
sovésku togararnir munu leggja upp
á Grænlandi. Sovétmennirnir eru
einkum á höttunum eftír lúðu og
karfa á djúpmiðum en Grænlending-
ar hafa ekki stundað þær veiðar.
Danska utanríkisráðuneytið hefur
þegar samþykkt samninginn en þó
er enn eftir að ræða hann tíl fulln-
ustu í grænlensku heimastjórninni.
Ritzau
Farþegaþotu rænt 1 Perú:
Flugræningi féll í skotbardaga
- tveir farþegar særðust í árás lögreglunnar
Lögreglan í Lima í Perú gerði
skyndiárás á flugræningja sem hafði
farþegaþotu á valdi sínu á flugvellin-
um í Lima í gær. Flugræninginn féll
í árásinni og farþegar særðust.
Þotari er af gerðinni DC-8 og var í
innanlandsflugi. Flugræninginn var
vopnaður skammbyssu og tveimur
handsprengjum. Hann krafðist þess
að fá greidda 750 þúsund dollara í
lausnargjald fyrir farþegana og að fá
að fljúga áfram til óþekkts ákvörðun-
arstaðar.
Flúgi-áetíingiriri riiddi'st inh' í fhíg-
.11: t 1.1 1(0
stjórnarklefa vélarinnar skömmu
áður en hún átti aö lenda í Lima.
Eftir að lent var fengu konur og börn
að fara frá borði en lögreglan króaöi
vélina af og hóf umsátur sem stóð í
tvo klukkutíma.
Flugræninginn var skotinn í höf-
uðið um leið og fyrstu lögreglumenn-
irnir komust um borð. Hann lét þó
ekki lífið þegar í stað því að hann
náði að skjóta nokkrum skotum af
skammbyssunni. í skothríðinni
særðust farþegarnir.
‘ Lögreglan ' segir að flugránið eigi'
sér ekki pólitískar rætur. Flugræn-
inginn var einn þótt fyrstu fréttír
bentu til aö hann ættí sér vitorðs-
menn um borð í vélinni.
Bandaríkjastjórn gaf fyrir tveimur
vikum út viðvörun til ferðamanna,
sem leið eiga um flugvöllinn í Lima,
um að þar sé ýtrustu öryggisreglna
ekki gætt. Full ástæða sé því fyrir
ferðmenn að hugsa sig tvisvar um
áður en lagt er upp í ferðalag tíl Lima.
Reuter
iM «t» i 5.i . J »(p * * « i • ■*
15 111 tifiEid ( i I 1 I 1
Illítl