Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
23
Sviðsljós
Fimmta myndin um boxarann Rocky er nú komin fyrir augu bíógesta í
Ameríku og varla er þess langt að biða að íslenskir biógestir sitji við
sama borð. Á frumsýningu myndarinnar í Los Angeles mætti auðvitað
Sylvester sjálfur Stallone og sonur hans, Sage, sem leikur Rocky yngri
'í myndinni sem er sögð sú síðasta í röðinni. Fyrrverandi eiginkona
Stallones'bg barnsmóðir, Sasha, var einnig mætt á staðinn og ekki var
annað að sjá en að vel færi á með þeim öllum.
Christian Brando (t.h.), sem hér sést ásamt verjanda sínum, er nú í vondum málum og gæti þurft að gista í stein-
inum næstu sextán árin fyrir bráðræði sitt.
Böm Marlons Brando:
Sonurinn í fangelsi
og dóttirin
á geðsjúkrahúsi
Það er ekki hægt að segja að
ástandið sé gott í fjölskyldunni hjá
leikaranum Marlon Brando um þess-
ar mundir. Sonur hans hefur verið
ákærður fyrir að myrða elskhuga
systur sinnar og situr nú innan fang-
elsisveggjanna og bíður þess að dóm-
ur verði upp kveðinn. Systirin er á
leið til Parísar til að gangast undir
frekari skoðanir og mun gista á geð-
sjúkrahúsi þar í borg.
Forsaga málsins er sú að sonurinn,
Christian, fór að skipta sér af deilum
systur sinnar við elskhugann og þau
afskipti enduðu með skelfmgu. Elsk-
huginn lá dauður eftir og nú blasir
allt að sextán ára fangelsi við Christ-
ian. Cheyenne, en svo heitir dóttir
Brando og þ.a.l. systur Christians,
var ólétt um þær mundir og átti í
miklu og erfiðu sálarástandi í kjölfar
þess. Hún reyndi í tvígang að stytta
sér aldur með því að taka inn mikið
magn lyfla en henni var bjargað í
bæði skiptin og hún fæddi barnið
sem hún er nú ófær um að annast.
Brando er skelkaður yfir þessu
ástandi, eins og við er að búast, og
hefur lagt öll plön um kvikmyndaleik
á hilluna, í bih a.m.k. Kvikmyndaá-
hugamenn fógnuðu því mjög þegar
Brando birtist á hvíta tjaldinu eftir
nokkurt hlé í myndinni The Fresh-
man en ekki er hægt að búast við því
að hann fylgi þeirri frammistöðu eft-
ir. A.m.k. ekki eins og málum er nú
háttað. Þar er skarð fyrir skildi, enda
er Brando snjall leikari og hefur tví-
vegis fengið óskarsverðlaunin.
Breyttir tímar í Sovétríkjunum:
Michael Douglas og Melanie Griffith komu saman til mannfagnaðar um
daginn og auðvitað voru þau klædd i sitt besta skart. Ekki veit Sviðsljós
hvar makar þeirra voru á þessari stundu en engar heimildir eru um
að Douglas og Griffith séu farin að stinga saman nefjum.
Starfsmenn KGB í Sovétríkjunum
hafa nú heldur betur breytt um stíl.
Reyndar er ein og ein frásögn sem
greinir frá hrottaskap þessara
manna en í tilraun sinni til að bre'yta
ímyndinni hefur verið ákveðið að
velja ungfrú öryggi (Miss Security)
hjá KGB á hverju ári í framtíðinni.
Fyrsta útnefningin hefur þegar átt
sér stað og fyrir valinu varð ungfrú
Ekaterina Matorova sem í daglegu
tali er kölluð Katya. Það er ekki nóg
að geta brosað bhtt til að heilla þá
hjá KGB því stúlkurnar þurftu að
leysa ýmis verkefni af hendi.
Áður en Katya gat hrósað sigri
þurfti hún m.a. að hleypa af skamm-
byssu, glíma við vopnaða menn og
að aka á ofsahraða á strætum
Moskvuborgar. Þessu til viðbótar
varö hún að sanna hæfni sína í eld-
húsinu og á dansgólfinu en ekki var
þess krafíst að keppendur sprönguðu
um á sundbolum eins og títt er í vest-
rænum fegurðarsamkeppnum.
Eftlr að ljóst varð að Katya hafði
borið sigur úr býtum bauð hún vin-
um sínum í heimsókn svo hægt væri
að halda ærlega upp á þessi gleðilegu
tíðindi. Þar var öhð drukkið stíft en
í nánustu framtíð ætlar ungfrú ör-
yggi að leita sér aö heppilegum maka
enda segir hún að þrátt fyrir titilinn
þurfi hún samt sem áður á karl-
manni að halda.
L
LANDSVIRKJUN
Útboð á vélum og rafbúnaði fyrir
Fljótdalsvirkjun
Landsvirkjun auglýsir eftir tilboðum í framleiðslu,
afhendingu og uppsetningu á vélum og rafbúnaði
fyrir 210 MW virkjun í Jökulsá í Fljótsdal samkvæmt
útboðsgögnum FDV-21.
Verkið felur í sér hönnun, framleiðslu, afhendingu
og uppsetningu á tveim 105 MW Pelton hverflum
ásamt rafölum og tilheyrandi búnaði.
Útboðsgögn verða fáanleg á skrifstofu Landsvirkjun-
ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með
miðvikudeginum 9. janúar 1991 gegn óafturkræfri
greiðslu að fjárhæð 9.000 fyrir fyrsta eintak en kr.
4.000 fyrir hvert viðbótareintak.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 12.00, mið-
vikudaginn 20. mars 1991. Tilboðin verða opnuð kl.
14.00 sama dag í stjórnstöðvarhúsi Landsvirkjunar,
Bústaðarvegi 7 í Reykjavík.
Reykjavík 4. janúar 1991
Landsvirkjun
___i_i_i__U__!____i__i______________________—
£S Jt í tia t . cc.U . taÆigsi i U111II■ II111IIIII19 IIII119■ I>!