Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Síða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
Andlát
Jakob Thorarensen Jónsson frá
Gjögri, Holtsgötu 32, er látinn. Útför
fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 11. janúar kl. 10.30.
Karólína Friðriksdóttir, Bólstaðar-
hlíð 37, lést á öldrunardeild Borgar-
spítalans að kvöldi 6. janúar.
Stefanía Björnsdóttir frá Hvoli í
Vesturhópi andaðist á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli fóstudaginn 4. jan-
úar.
Vilhjálmur Ásmundsson múrara-
meistari, Ljósalandi 9, Reykjavík,
andaðist á Landakotsspítala 5. jan-
úar.
Ólafur Jón Hávarðarson, Efri-Fljót-
úm 2, Meðallandi, lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands, Selfossi 3. janúar.
Jóhann Hjartarson andaðist á Vífils-
staðaspítala 5. janúar.
Jarðarfarir
Pálína Eydal, erlést 1. janúar, verður
jarösungin frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 10. janúar kl. 13.30.
Árni Mathiesen Jónsson lögfræðing-
ur, Álftamýri 48, er lést 25. desemb-
er, verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í dag, þriðjudaginn 8. janúar,
kl. 13.30.
Kristín Jakobína Sigurðardóttir, frá
Snæbjarnarstöðum, Furugeröi 1,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 10.
janúar kl. 15.00.
Aðalheiður Ólafsdóttir frá Vest-
mannaeyjum verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju 9. janúar kl. 15.00.
Útfor Olgu Helenu Ásgeirsdóttur,
Karlagötu 3, fer fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 10. janúar kl.
13.30.
Laufey Tryggvadóttir, Bugðulæk 18,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Tilkyrmingar
Félag eldri borgara
Opið hús í dag, þriðjudag, í Risinu, Hverf-
isgötu 105, frá kl. 14.00. Danskennsla
verður á sama stað á laugardag og hefst
kennslan kl. 14.00.
Fundir
ITC deildin Harpa
heldur reglulegan deildarfund sinn í
kvöld kl. 20.00 að Brautarholti 30. Allir
velkomnir. Nánari uppl. gefa: Ágústa
71673 og Guðrún s. 71249.
JC Reykjavik
heldur félagsfund 8. janúar á Holiday Inn
og hefst fundurinn kl. 20.00.
ITC deildin Seijur
á Selfossi heldur fund í Hótel Selfossi
í kvöld kl. 20.10. Gestur fundarins verður
Elísa Elísdóttir og kynnir hún vöðvapróf-
un og ilmolíunudd. Stef fundarins: Bjart-
sýni er smitandi og skortur á henni einn-
ig. Allir velkomnir.
Tapað fundið
Gullkvenúr
með gylltri ól tapaðist sl. laugardag á
svæðinu Sund/Ránargata/Mikligarður
við Hringbraut. Finnandi vinsamlegast
hafi samband við Sigurlaugu í s. 33855.
Flugleiðir ráða flugmenn:
Eru Arnarflugs-
mennóhæfir?
- fyrrverandiflugmennArnarflugsóánægðir
Nokkrir flugmenn, sem störfuðu
hjá Arnarflugi, sóttu um störf hjá
Flugleiðum sem ráðið var í í gær.
Enginn þeirra fékk starf. Mikillar
óánægju gætir nú hjá þeim, ekki síst
vegna orða Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, en hann
sagði að við ráðningarnar hefði verið
beitt faglegum vinnubrögðum og ein-
ungis hefðu verið ráðnir menn sem
uppfylltu reglur Flugleiða og að
reynt hefði verið að velja bestu flug-
mennina fyrir farþega Flugleiða.
Þá eru flugmennirhir óánægðir
með ráðningarnar vegna þess að þeg-
ar Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra veitti Flugleiöum
leyfi á flugleiðir Arnarflugs, bað
hann forráöamenn Flugleiða að veita
starfsfólki Arnarflugs forgang við
ráðningar í störf.
Samkvæmt heimildum DV hyggi-
ast flugmennirnir, sem störfuðu hjá
Arnarflugi, funda um málið í dag.
-ns
Birting situr hjá
Á fundi í félaginu Birtingu, sem er
í Alþýðubandalaginu, v.ar ákveðiö að
félagið sem slíkt tæki ekki þátt í for-
vali Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
Eftirtaldar fasteignir
verða boðnar upp og seldar á
nauðungaruppboði sem fram fer
á eignunum sjálfum
miðvikudaginn 9. janúar 1991
á neðangreindum tíma:
Kl. 16.00. Fasteignir á Stórólfsvallabú-
inu í Hvolhreppi (land undanþegið),
þingl. eigandi Landnám ríkisins. Upp-
boðsbeiðendur eru Stofnlánad.,
landb., Ingimundur Einarsson hdl., f.h.
Hvolhrepps, Innheimtumaður ríkis-
sjóðs, Rangárþingi.
Kl. 16.30. Húseignin Norðurgarður 16,
Hvolsvelli, þingl. eigendur Guðmund-
ur Ágústsson og Þórunn Sigurðard.
Uppþoðsbeiðendur eru Skúh Pálma-
son hrl., Kristinn Hallgrímsson hdl.,
Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Ingi-
mundur Einarsson hdl., f.h. Hvol-
hrepps.
UPPBOÐSHALDARINN í
RANGÁRVALLASÝSLU
síðar í þessum mánuði. Aftur á móti
geta félagar í Birtingu sem einstakl-
ingar tekið þátt í forvalinu.
Staðan innan félagsins er dálítið
skrítin um þessar mundir. Félagið
er í Alþýðubandalaginu, en í stjórn
Birtingar sitja tveir flokksbundnir
alþýðuflokksmenn. Á fundinum var
skipuð nefnd til að endurskoöa lög
félagsins með það fyrir augum að
opna möguleika fyrir fólk úr öllum
stjórnmálaflokkum að ganga í Birt-
ingu. Þar með yrði félagið venjulegt
málfundafélag.
-S.dór
Kapp-
akstursmenn
á ofsahraða
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði tvo
ökumenn á ofsahraða á mótum Sæ-
brautar og Skeiðarvogs um klukkan
ellefu í fyrrakvöld. Mennimir eru
um tvítugt. Annar ók Pontiac-bifreið
en hinn var á Mitshubishi Galant.
í radar mældust bílar ungu mann-
anna á 147 og 141 Jtílómetra hraða á
klukkustund. Þegar lögreglan ræddi
við ökuþórana sögðust þeir hafa ver-
iö í kappakstri. Þeir voru sviptir öku-
réttindum til bráðabirgða. Mál þeirra
verður sent Sakadómi Reykjavíkur
til meðferðar. -ÓTT
Meraiing
Þrír ungir
einleikarar
Tónleikar voru haldnir í Gerðubergi í gærkvöldi á
vegum tónlistarhátíðar ungra norrænna einleikara.
Þarna komu fram þrír ungir einleikarar, þau Hólm-
fríður Þóroddsdóttir óbóleikari, Gunnar Guðbjömsson
tenórsöngvari og Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.
Þetta var tónlistarsamkeppni um það hver verður full-
trúi íslands á hinni glæsilegu tónlistarhátið sem hald-
in verður í Tampere í Finnlandi í október næstkom-
andi.
Virðuleg dómnefnd var á staðnum og er það hennar
hlutverk að velja fulltrúa íslands. Þar sem hugsast
getur að dómnefndarmenn lesi tónhstargagnrýni DV
þykir tilhlýðilegt í nafni hlutleysis að tónlistargagn-
rýnandi haldi aftur af skoðunum sínum um ágæti
keppenda, a.m.k. þar til dómur hefur verið upp kveð-
inn. Það er þó óhætt að geta þess að allir þessir þrír
einstaklingar stóðu sig með mikilli prýöi á tónleikun-
um og hver þeirra væri vel til þess fallinn að koma
fram fyrir íslands hönd. Breiddin meðal íslensks tón-
listarfólks eykst stöðugt og jafnvel þótt við verðum
öðru hverju að sjá á bak nokkrum til útlanda virðist
vera nóg af fólki til að fylla skörðin og meira en það.
Gerðuberg var fullt út úr dyrum og er í raun og
veru of lítið húsnæði til viðburða af þessu tagi. Efnis-
skráin á tónleikunum var fjölbreytt, en hver flytjandi
valdi sjálfur sín verk til flutnings. Mátti sjá að þar var
á ferðinni vandlega vahn blanda.
Margir hafa uppi efasemdir um ágæti tónlistarsam
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
keppna og óttast að listin lúti þar í lægra haldi fyrir
íþróttinni. Þetta er nú einu sinni sú aðferð sem hinn
alþjóðlegi tónlistarmarkaöur hefur kosið sér til að
velja stjörnurnar sínar og ungt tónhstarfólk, sem vill
leit'a fyrir sér á þeim markaði, getur ekki leitt sam-
keppnir hjá sér. Það verður að segjast um tónleikana
í Gerðubergi að þeir voru í engu frábrugðnir öðrum
tónleikum og tónlistin naut sín fyllilega.
Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor (lengst t.h.) ásamt konu sinni, Margréti Þorvaldsdóttur, og Guðbjarti Hann-
essyni skólastjóra, sem ræddi við þau í „Útvarpi Akranes." DV-mynd Árni S. Árnason
Eilffur barlómur dregur
kjark úr heimamönnum
- segir háskólarektor í Útvarpi Akranes
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Sigmundur Guðbjarnason há-
skólarektor sagði í viðtali við „Út-
varp Akranes", sem starfrækt var
eina helgi nýlega til fjáröflunar fyrir
Sundfélag Akraness, að eilífur bar-
lómur sveitarstjórnarmanna um
land allt drægi kjark úr heimamönn-
um.
Háskólarektor sagði m.a. um stöðu
landsbyggðarinnar: „Hluti vandans
er sá að menn hafa e.t.v. óafvitandi
skapað þá ímynd að staða lands-
byggðarinnar sé vonlaus. Þar eiga
ekki síst hlut að máh sveitarstjórnar-
menn sjálfir. Ehífur barlómur og
úrtölur draga kjark úr heimamönn-
um og fæla aðra frá því að koma th
svæðisins. Þetta er ekki leiðin til
þess að laða að fólk. Menn fara ekki
á sökkvandi skip.“
Er Sigmundur var inntur eftir
stöðu atvinnumála á landinu sagði
hann m.a.:
„Það hefur ríkt ákaflega mikil
deyíð í atvinnumálum. Mistökin í
loðdýrarækt og fiskeldi hafa dregið
úr frumkvæði og framtakssemi
manna. Fólk er að missa móðinn.
Þetta er alvarlegur hlutur. Það er
engin ástæða til þessarar svartsýni.
Tækifærin eru um allt land. En menn
geta ekki beðið. Þeir verða að taka
th hendinni sjálfir. Okkur skortir
skhgreiningu markmiða og að leita
eftir tækifærunum."
Met í Vestmannaeyjaf lugi
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Lendingar á flugvellinum hér í
Vestmannaeyjum voru 5313 á síðasta
ári og um vöhinn fóru 71.934 farþegar
meö farþega- og leiguflugi. Að sögn
Jóhanns Guömundssonar flugvallar-
. stjóra er um metár að ræða. Aldrei
hafa fleiri farið um völhnn. Árið 1989
fóru 61.101 farþegi um völlinn og er
aukningin því tæplega 11 þúsund.
Amarflug hóf áætlunarflug th Eyja
í byrjun síðasta árs og flutti 8.538
farþega á árinu og kemur því inn sem
hrein viðbót. Flugleiðir héldu sínum
hlut að mestu. A árinu 1989 fluttu
Flugleiðir 44.968 farþega en 44.549 á
síðasta ári. Fækkun því 419 en lend-
ingar hjá Flugleiðum voru 1027.
Aukning hefur orðið í leiguflugi.
Árið 1989 nýttu 15.956 farþegar sér
leiguflugið en 18.847 í fyrra, 1990, og
hefur því fjölgað um tæp þrjú þús-
.uod.................... ... ...