Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Side 32
i*
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórms - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1991.
Hafnarf]örður:
Minni lykt
imorgun
' „Það er áætlað að efnafræðingar
Vinnueftirlitsins muni taka frekari
sýnf með morgninum. Hvort hægt
verður að greina þau hér á lándi er
óvíst. Það kom ekkert sérstakt út úr
rannsókninni í gærkvöldi nema að ,
það kom litur fram sem leiddi í ljós
að þarna voru einhver kolefnissam-
bönd. Það staðfestu starfsmenn Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar. Þarna er
því ekki um metangas að ræða. Þetta
getur verið tjörueyðir eða white spir-
it. Mér finnst ótrúlegt að þarna sé
bensín," sagði Ólafur Hauksson hjá
Vinnueftirliti ríkisins í samtali við
DV aðspurður um rannókn vegna
olíufnyks sem lagt hefur upp úr hol-
ræsum við Lækjargötu og Strand-
götu í Hafnarfirði.
,,Það þarf að skoða þetta vel sem
lýtur að olíustöövunum. Ég reikna
með að efnafræðingar Vinnueftirlits-
ins fari í það í dag. Við munum reyna
að finna út hver upptökin eru,“ sagði
Guðmundur Einarsson.
„Þó svo að fólk hafi kvartað í gær
undan sárindum i hálsi og.augum
eru allir mættir hér núna. Lyktin er
. mun minni í dag en í gær en hún er
þó ekki horfm,“ sagði Gunnar Ein-
arsson, stöðvarstjóri Pósts og síma,
í samtali við DV í morgun. -ÓTT
Helgi vann
Helgi Ólafsson vann Kosten frá
Bretlandi í 9. umferð skákmótsins í
Hastings. Skákin varð 67 leikir og fór
tvívegis í bið. Helgi er með 4,5 vinn-
inga og er í fjórða til fimmta sæti.
Efstur er Bareev frá Sovétríkjunum
með 6 vinninga. -JGH
Áifundir 1 London:
Framhald
orkuviðræðna
„Viðræöum um orkuverð lýkur
ekki á þessu fundum og var ekki
ætlað að gera það. Við munum ein-
faldlega halda áfram þaðan sem frá
var horfið," sagði Jóhannes Nordal,
formaður stjórnar Landsvirkjunar,
viö DV í morgun.
Fundir viðræðunefndar Lands-
virkjunar og fulltrúa Atlantsálfyrir-
tækjanna um orkuverð til nýs álvers
verða í London í dag og á morgun.
Eftir fundina í desember kom fram
að töluverð vinna væri eftir, ekki
síst af hálfu álfyrirtækjanna. Vonast.
menn þó til ,að ljúka þessum viðræð-
um i mánuðinum. Fundir álviðræðu-
nefndarinnar og Atlantsálfyrirtækj-
anna um álsamningana almennt
verða síðan í New York seinna í jan-
úar. -hlh
LOKI
Flýja gaflarar
Gasasvæöiö?
Guðmundur G. Þórarinsson:
Þrýst á um framboð
í öllum kjördæmum
hugmynd uppi um að Steingrímur fari fram 1 Reykjavík og Guðmundur G. í Reykjanesi
„Það verður haldinn fundur í
fulltruaráði framsóknarfélaganna
í Reykjavík 15. janúar. Þar verður
ósk mín um að fá listabókstafma
BB afgreidd. Verði hún felld fæ ég
annan listabókstaf og þá er komin
upp gerbreytt staöa,“ sagði Gúð-
mundur G. Þórarinsson alþingis-
maður í samtali við DV. Hann var
spurður hvort það væri rétt að
framboð á hans vegum í öllum
kjördæmum, jafnvel flokksstofh-
un, sé inni i myndinni fái hann
•ekki bókstafma BB?
„Þaö er rétt að á mig er þrýst
með þetta. Eg hef hins vegar enga
afstöðu tekið til þess máls. Ég bíð
eftir afgreiðslu fulltrúaráðsins
þann 15. janúar með allar frekari
ákvarðanir,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að það yrði líka að
bíða með að nefna nofn á listanum
í Reykjavík fram yftr fuOtrúaráðs-
fundinn því það væri allt önnur
staða uppi ef hann fengi lisíabók-
stafina BB.
Þá hefur DV fyrir því öruggar
heimildir að sú hugmynd hefur
komið fram meðal framsóknar-
manna, til að Ieysa þetta mál, aö
Steingrímur Hermannsson, for-
maður flokksins, fari í fyrsta sætið
i Reykjavík en Guðmundur G. Þór-
arinsson í fyrsta sæti í Reykjanesi.
Samkvæmt sömu heimildum eru
framsóknarmenn í Reykjanesi
þessu ekki andvígir.
Framsóknarmenn sem DV hefur
rætt við óttast að ef Guðmundur fer
fram með lista, semekkihefur bók-
stafina BB, muni hvorki hann né
Finnur Ingólfsson ná inn á þing.
Þeir óttast jafnframt að svo geti
farið að 2. maður á listanum í
Reykjanesi nái ekki inn á þing. Það
myndi þýða að á öllu þéttbýlis-
svæðinu á suðvesturhorninu ætti
Framsóknarflokkurinn aðeins
einn þingmann, efsta mann á
Reykjanesi.
Talið er að bjóði Guðmundur
fram sér lista í Reykjavík þurfi
hann fast að fimm þúsund atkvæði
til að ná kjöri. Það sama þarf Finn-
ur og B-listinn að fá. Þetta eru um
10 þúsund atkvæði en Framsóknar-
flokkurinn fékk ekki nema tæp sjö
þúsund atkvæði f síðustu alþingis-
kosningum.
-S.dór
Sj ómannasamningar:
Samþykktir
eða felldir á
togurunum?
Lögreglumennirnir Guðbrandur Sigurðsson og Ásmundur Kr. Ásmundsson klippa af óskoðuðum bíl i morgun.
DV-mynd GVA
Margir komu að númerslausum bíl
Fjölmargir íbúar í vesturbænum i
Reykjavík og víðar komu að númers-
lausum bifreiðum sínum þegar hald-
ið var til vinnu í morgun. Lögreglan
í Reykjavík klippti skráningarnúmer
af 51 bíl í gærkvöldi og nótt.
Hér er um að ræða bíla sem átti
að færa til aðalskoðunar í síðasta
lagi 1. desember. Suma bílana átti
reyndar að færa í skoðun í síðasta
lagi árið 1989. Lögreglan vann verkið
í samræmi við lista Bifreiðaskoðunar
íslands. Þessum aðgerðum verður
haldið áfram á næstu dögum.
-ÓTT
„Það eru aðrar leiðir til en fara í
verkfall. Við munum því leita eftir
nýjum samningum við útvegsmenn
fyrir undirmenn á togurnum, segir
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands.
Sjómannasamband ísland og
Landssamband íslenskra útvegs-
manna greinir nú á um hvort samn-
ingar undirmanna á stóru togurnum
sjö hafi verið samþykktir eða felidir.
En ekki er ágreiningur um að samn-
ingarnir hafi verið samþykktir á
minni bátunum.
Sjómannasambandsmenn telja að
skoða eigi þessa samninga sem tvo
aðskilda og því hafi þeir verið sam-
þykktir með 360 atkvæðum gegn 234
á minni bátunum en felldir með 24
atkvæðum gegn 7 á togurunum. LÍÚ
vill hins vegar túlka þetta sem einn
samning sem samþykktur hafi verið
með 367 atkvæðum gegn 258.
-J.Mar
Veðriöámorgun:
Snjó-
koma
eðaél
Á mörgun verður austan- og
norðaustanátt, víða 5-7 vindstig.
Snjókoma verður eða éljagangur
víðast hvar á landinu. Frost verð-
ur á bilinu 0-7 stig.
/8M,V
£ C 7ZI77 \
SMIÐJUKAFFI
SÍHD0M FRtU HFtM
OPNUM KL.18 VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
* A R A
111 ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ
LÁGMÚLA 5 • REYKJAVÍK • S. 681644
f
f
4
4
\4
4
4
4
Í4
4
4
4