Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 5. FÉRRÚAR 1991 3 Fréttir í leit að meiri peningum: íslendingar mestu lukkuf íklar í Evrópu Islendingar eru mestu lukkufí- klarnir í Evrópu ef marka má útttekt hins virta alþjóðlega endurskoðun- arfyrirtækis Coopers og Lybrand. Á síðasta ári tók fyrirtækið saman skýrslu fyrir árið 1989 og kemur fram í henni hve miklu þjóðir Evrópu spandera í veðreiðar, spilavíti og alls konar happdrætti sem eiga það öll sameiginlegt að borga vinninga út í beinhörðum peningum. Ejögur form happdrætta eru al- gengust í álfunni og raunar úti um allan heim; það eru skafmiðar, happ- drætti, getraunir og lottó. Samkvæmt niðurstöðu Coopers og Lybrant nam heildarveltan á happ- drættismarkaðnum í Evrópu rúm- lega 800 milljörðum króna árið 1989. Fyrirtækið hefur ekki viljað gefa upp hvernig þær upphæðir skiptast á milli hinna einstöku þátta, það er hversu miklu hver þjóð eyðir í happ- drætti, skafmiða og svo framvegis. Norðurlandaþjóðirnar virðast skera sig nokkuð úr því þær eyða mun meira í að reyna áð hagnast á hinum ýmsu peningahappdrættum en aðrar þjóðir. íslendingar tróna efstir á blaði, Norðmenn fylgia fast á hæla íslendinga og Finnar eru ekki langt undan. Svíar eyða og umtals- verðum peningum í að reyna að höndla meiri auðæfi en Danir virðast ekki mjög spilasjúkir. Þeir sem eyddu hins vegar minnst- um peningum í að reyna að græða meiri peninga eru Lúxemborgarar. Á meðan hver íbúi í hertogadæminu eyddi á árinu 1989 sem svarar 21 krónu í að höndla hamingjuna eyddi hver íslendingur 10.365 krónum í leitinni að meiri peningum. -J.Mar Magnea Albertsdóttir og Einar Guð- brandsson spá í vinningslíkur. Þeir eru margir sem spila I ýmiss konar happdrættum í von um að fá þann stóra. Maður skefur í veikri von um að fá vinning, segir Sigurlaug Bjarnadóttir. DV-myndir GVA Skaíið í von um að fá vinning: ISLAND 2.565 ilP;36Sl SVlÞJOÖ 47.44|; 5.665 iDANMORK 33.874 2.169 IRIANO UHI TIAND 11 648 3312 'SKALANI AUSTURRlKI 31.838 79.186 4.488 40 521 4 092 IJALAI FRAKKLAND 173.003 BÚLgAgj; |l 3 357 I: 1.474^1! JÚGÓSLA' strALisi PORTÚGAL SPANN ÍÍÁND 2í;sss: !Hl! 19.021 H!!;, 'land:: 11 648 3312 Heilfi irsjla 1989 I milljorðum kr IfppÍtstsó á einstakliiui i kr. SOVÉTRlKIN 62.143 214 TÉKKÓSLÓVAKÍA Það fylgir þessu smáspenningur „Það fylgir því smáspenningur að kaupa sér skafmiða. Maður skefur samt í veikri von um að fá vinning en hefur hins vegar í huga að maður er að styrkja gott málefni sem er Happdrætti Háskóla íslands," segir SigurTaug Bjarnadóttir, fyrrverandi alþingismaður, frá Vigur. Islendingar eyða miklum íjármun- um í ýmiss konar happdrætti. Þær Guðrún Brynjólfsdóttir og Sigrún Halldórsdóttir, afgreiðslustúlkur í Happahúsinu í Kringlunni, sögðu að það væri afar misjafnt hversu háum fjárhæðum fólk eyddi í lukkuna. En það mætti kannski segja að að meðal- tali keypti hver einstaklingur lottó- seðil fyrir 350 krónur og í leiðinni væru keyptir skafmiðar fyrir 500 krónur. Það virðist vera nokkurs konar regla að þeir sem fá litla vinninga á skafmiðana sína koma og fá nýja skafmiða upp í vinninginn. Þegar upp er staðið hefur fólk eytt öllu því sem það græddi og stundum meira til. Það var og nokkuð athyglisvert að fæstir þeirra er DV ræddi við vissu hversu miklum fjárhæðum þeir eyddu í lukkuna á mánuði eða höfðu mjög óljósar hugmyndir um það. Valgarður Jóhannesson sjómaður var einn þeirra sem voru að skafa fyrir framan Happahúsið. „Ég kaupi mér stöku sinnum skafmiða og svo kaupir íjölskyldan þrjá lottóseðla fyrir helgar. Hins vegar spilum við ekki í happdrættum, þetta dugar.“ Magnea Albertsdóttir og kunningi hennar, Einar Guðbrandsson, voru að skafa. „Ef við fáum milljón skipt- um við henni á milli okkar,“ sagði Einar. Það var hins vegar enginn vinningur á miðanum og þá var að skafa af þeim næsta. „Þegar maður er auralaus tekur maður sjensinn að kaupa sér skafmiða í von um að maður fái aura," segir Magnea. „Ég spila svo í happdrætti Háskóla ís- lands og hef gert í mörg ár. Ég hef einu sinni fengið stóran vinning þar, það var fyrir nokkrum árum. Þá fékk ég 10.000 krónur sem voru þriggja mánaða laun mín þá. Þetta er allt gert upp á gróðavonina að spila í happdrættum. Það er bara þegar ég kaupi miða af skátunum sem ég er ekki að hugsa um að fá vinning. Þá er ég einungis að styrkja gott mál- efni.“ -J.Mar Heffengiðeinstakl- ingtilmeðferðar vegna spilaf íknar - segir Pétur Tyrfingsson „Ég hef fengið einn einstakling til meðferðar sem átti ekki við áfengis- vandamál að stríða heldur var hann sólginn í að spila í alls konar happ- drættum og peningaspilum. Það var fyrir um það bil ári. Sá maður var búinn að spila sjálfum sér til óbóta og gat ekki lengur sinnt vinnu eða öðrum skyldum sínum. Hann var ekki lagður inn á Vog heldur fór hann í meðferð á göngudeild,“ segir Pétur Tyrfingsson, ráðgjafí hjá SÁÁ. „Ég vildi ekki leggja manninn inn á meðferðarstofnun strax heldur láta hann koma á göngudeild. Ef það hefði ekki skilað árangri hefði ég lagt hann inn. Ég setti upp nákvæmlega sama prógramm fyrir þennan mann og ég set upp fyrir einstakling sem er að koma úr heföbundinni áfengis- meðferð og hefur lágt streituþol. Það virtist skila árangri en ég veit ekki hver urðu afdrif þessa manns. Áður en ég tók þá ákvörðun að láta hann koma á göngudeild leitaði ég fyrir mér hvort það væru einhverjir læknar eða sálfræðingar sem hefðu sérhæft sig í þessu vandamáli sem er töluvert útbreitt. Það eru til að mynda margir alkóhólistar, sem eru búnir að vera í meðferð, sem detta í eitthvað annað á eftir til að fylla upp í tómarúmið sem skapast við að hætta að drekka." -J.Mar Hfc. A ^ i B i œu g m B m /Sffi É V flf i rfeg Í4 ' ; /• .V g • m B J 1 g jfii it 1 » 1 : * ■ 1 Jt I wm g j II J j-m kj M 1 f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.