Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991. Sviðsljós 13 V Ólyginn sagði... Steffi Graf StefS Graf, tennisstjarnan fræga frá Þýskalandi, er ekki hrifin af frægöinni sem fylgt hefur góöum árangri í íþróttinni. Hún segist gjarnan vilja varpa af sér oki frægðarinnar, en það sé sífellt erfiöar aö fá að vera í friði. Stefii segist hafa ígrundað vel þann möguleika að flytja aðsetur sitt til Bandaríkjanna og koma aðeins til Þýskalands til þess að taka þátt í mótum. Hún segist ætla að gera alvöru úr þessu ef fjölmiðlar í Þýskalandi láta hana ekki í friði. DV-myndir S Gym80 - ný heilsuræktarstöð Þeir Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maður heims, og Jóhann Möller tannlæknir hafa opnað nýja líkams- ræktarstöð að Suðurlandsbraut 6. Nefnist fyrirtækið Gym 80. Starfsem- in fer fram á tveimur hæðum húss- ins. Þama er um að ræða einhvern full- komnasta tækjasal landsins en auk þess er salur fyrir leikfimi eða aðrar þær æfingar sem tengjast hreyfingu. Að sjálfsögðu fylgir svo gufubað og ljósabekkir og annaö þaö sem til- heyrir nútíma líkamsræktarstöðv- um. Mikill áhugi virðist vera á líkams- rækt á íslandi um þessar mundir ef marka má fjölda þeirra líkamsrækt- arstöðva sem í rekstri eru vítt og breitt um landið og þá ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. -S.dór John Cleese John Cleese, leikarinn frægi, sem allir muna eftir úr myndinni „A Fish Called Wanda“, er nú á leið- inni í þriðja hjónaband sitt. Cleese, sem er nú 51 árs gamall, ætlar aö leiöa Alyce Faye Eich- elberger upp að altarinu síðar á þessu ári. Cleese á tvö hjónabönd að baki, en hann skildi við síðari konu sína, Barböru Trentham, i maí á síðasta ári. Árið 1983 skrif- aði John Cleese bók í samvinnu við sálfræðing sinn sem ber heitið „Fjölskyldur og hvernig á að við- halda þeim“. Eitthvað virðist Cleese sjálfum hafa gengið illa að halda forskriftinni úr þeirri bók. David Bowie Söngvarinn frægi David Bowie er nýtekinn saman við þeldökka stúlku sem er ein af frægari fyrir- sætum heims. Hún heitir Iman og er borin og barnfædd í Kenýa. Bowie, sem er 41 árs gamall, hafði undanfarin 3 ár búið með ballett- dansaranum Melissu Hurley sem er aðeins 25 ára gömul, en upp úr því sambandi slitnaði í ágúst á síðasta ári. Iman er tíu árum eldri en Melissa. David Bowie hefur nóg að gera um þessar mundir því hann er að leika í kvikmyndinni „The Linguini In- cident" með Rosönnu Arquette, Marlee Matlin og Shelley Wint- ers. Jón Páll i hinum fullkomna tækjasal Gym 80. Hveragerði: Michelsen verslar á ný Sigriður Gunnarsdóttir, DV, Hverageröi: Margir eldri Hvergerðingar ráku upp stór augu þegar þeir fréttu að Frank Michelsen væri kominn til Hveragerðis ásamt fjölskyldu sinni á ný og farinn að versla. Frank er Hvergerðingur í húð og hár og rak “ blómaverslun Michelsens með fóður sínum hér lengi á árum áður. Blóma- verslunin var seld fyrir 11 árum, nú Blómaborg, og Frank flutti með fjöl- skyldu á höfuðborgarsvæðið. Frank Michelsen hefur tekiö við rekstri Olís - matvörumarkaðarins - keypti reyndar reksturinn af Óla Kr. Sigurðssyni, forstjóra Olís, hinn 18. janúar sl. og byijaði að höndla. Mat- vörumarkaðurinn varð gjaldþrota og var lokað 31. desember síðastliðinn. ÓU Kr. tók þá sjálfur við rekstrinum og rak verslunina þar til Frank keypti hana á dögunum, Hvergerö- ingum til mikillar ánægju. Frank Michelsen á miðri mynd, sonurinn Steinþór honum á vinstri hönd ásamt viðskiptavinum. DV-mynd Sigríður Jón Páll og Jóhann Möller, eigendur Gym 80 líkamsræktarstöðvarinnar að Suðurlandsbraut 6. Sjúkrahús Akraness: Góðar gjafir Iionessa Sigríður Snævarr kvödd Jóhanna S. Sigþóxsdóttir, DV, Þýskalandi: Fjölmenni var samankomið í ís- lenska sendiráðinu í Bonn um dag- inn og væri það ekki í frásögur fær- andi ef ekki hefði verið um sérstakt tilefni að ræða. Það var sem sé verið að kveöja Sigríði Snævarr sendifull- trúa sem látið hefur af störfum í Þýskalandi. Sigríður hefur sem kunnugt er tek- ið við starfi sendiherra í íslenska sendiráðinu í Stokkhólmi og er fyrsta íslenska konan sem gegnir slíku starfi í utanríkisþjónustunni. í kveöjuhófmu, sem sendiherra- hjónin í Bonn, þau Hjálmar W. Hann- esson og Anna Birgis héldu Sigríði, var margt gesta, bæði íslenskra og þýskra. Sendiherrann flutti kveðju- ávarp þar sem hann þakkaði Sigríði meöal annars fyrir ánægjulega sam- veru og vel unnin störf. Hann óskaði henni velfarnaðar á nýjum starfs- vettvangi og kvaðst raunar viss um að hún mundi una sér vel á hinum nýja stað. Þar hefði hann sjálfur starfað um skeið og vissi því að Stokkhólmur væri skemmtileg borg. Sigríður sagði meðal annars í ræöu Hjálmar W. Hannesson, sendiherra í Bonn, þakkaöi Sigriði Snævarr, fyrrverandi sendifulltrúa, fyrir vel unnin störf og óskaði henni velfarn- aðar í nýju starfi í Stokkhólmi. sinni að dvölin í Bonn hefði verið mjög reynslurík. Henni hefði gefist kostur á að fylgjast með þeim miklu breytingum sem urðu í þýsku þjóð- lífi og stjórnmálum er náðu hámarki við sameiningu þýsku ríkjanna. Einnig hefði henni gefist kostur á að vinna aö móttöku forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, og heföi koma forsetans verið sögulegt atvik á starfsferli sínum í Bonn. pokasölu Lionessa. Tækin, sem eru af Sanyo-gerð og voru valin í samráði viö Blindrafé- lagið, eru ætluð til notkunar fyrir sjúklinga, þannig að þeir geti t.d. hlustað á sögur, leikrit og fleira, sem boðið er upp á á hljóðsnældum. Frá afhendingu tækjanna. Á myndinni eru Sigurður Ólafsson, forstöðumað- ur Sjúkrahúss Akraness, Ásta Björg Gisladóttir, formaður Lionessuklúbbs jk Akraness, og þær Sigríður Árnadóttir og Margrét Guðbrandsdóttir úr liknar- nefnd Lionessa. DV-mynd Árni S. Árnason Sigurður Sverrisson, DV, Akranesú Lionessuklúbbur Akraness afhenti fyrir skömmu Sjúkrahúsi Akraness að gjöf sex útvarps- og snældutæki með heymartækjum. Tækin voru keypt fyrir ágóða af árlegri plast-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.