Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
17
Iþróttir
Körfuknattleikur - úrvalsdeild:
Gíf urleg spenna
er framundan
- fallbaráttan í algleymingi þar sem fjögur lið berjast við falldrauginn
Geysíleg barátta er framundan í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik og hefur
spennan aldrei verið meiri. Það er ekki
einungis að hart sé barist um sæti í
úrslitakeppninni heldur er fallbarátt-
an hreint ótrúlega spennandi og þar
getur ýmislegt gerst. Fimm liö berjast
um íjögur sæti í úrslitakeppninni og
fiögur um fali í 1. deild. Neösta liðið í
úrvalsdeild þegar upp verður staðið
fellur beint í 1. deild en liöið í næstn-
eðsta sæti úrvalsdeildar leikur við liðiö
sem hafnar í öðru sæti í l. deild.
Hér verður á eftir spáð í spilin varð-
andi fallbaráttuna en við byrjum á að
líta á stöðu neðstu liðanna og þá leiki
sem liðin eiga eftir;
Valur.......24 7 17 1986-2118 14
(ÍBK úti og Grindavík heima)
Snæfell.....23 6 17 1794-2034 12
(KR úti-Njarövík heima-ÍR heima)
ÞÓr.........23 6 17 2079-2208 12
(ÍR úti-ÍBK úti-Tindastóll heima)
ÍR..........23 5 18 1878-2164 10
(Þór heima-Haukar úti-Snæfell úti)
• Eins og fram kemur hér að framan
má ljóst vera að ýmislegt getur gerst.
Staða Valsmanna er þó best og ÍR-inga
verst eins og stendur. Franc Booker
mun mjög líklega leika þrjá síðustu
leikina með ÍR og það hefur sitt að
segja svo ekki sé meira sagt. Ljóst er
að ekkert má út af bregða hjá liðunum
fjórum í þeim leikjum sem eftir eru.
„Úrslitinumfaliið
ráðast í Hólminum“
Við leituðum álits tveggja leikmanna
í úrvalsdeildinni sem lausir eru við
falldrauginn og berjast harðri baráttu
á toppi deildarinnar. Sá fyrri er Jón
Kr. Gislason, leikmaður og þjálfari
Keflvikinga. Hannsagði i gær: „Barátt-
an um fallið er ekki minna spennandi
en baráttan um sæti í úrslitakeppn-
inni. Það er mjog erfitt að spá fyrir um
þetta og næstu leikir verða ótrúlega
spennandi enda mætast þá oft liðin
innbyrðis sem beijast um tilverurétt
sinn í deildinni, En ég held að úrslita-
leikurinn um fallið verði í síðustu
umferðinni er Snæfell leikur gegn ÍR
í Stykkishólmi,“ sagði Jón Kr. Gísla-
son.
„Held að ÍR falli“
Pétur Guðmundsson, leikmaður
Tindastóls, sagði um fallbaráttuna við
DV í gær: „Það er mjög erfitt að segja
til um þetta. Þórsararnir eru búnir að
vera í því í vetur að gefa frá sér unna
leiki og þeir eru með óútreiknanlegt
lið. Ég var nokkuð öruggur um það
fyrr i vetur að ÍR myndi falla en síðan
fengu þeir Franc Booker og ÍR-ingar
eru seigir í dag. Samt held ég enn að
það verði ÍR sem fari niður," sagði
Pétur Guðmundsson.
Af Pétri er það annars að frétta að
hann er enn slæmur vegna meíðsla og
ekki víst hvort hann getur ieikið afar
þýðingarmikinn leik Tindastóls gegn
Grindavík i Grindavík næsta sunnu-
dag. Liðin berjast um fjórða sætið i
úrslitakeppninni og eiga þrjá leiki eftir
en Gríndvíkingar eru með tveimur
stigum meira en Stólarnir.
-SK
MarkakóngstitiIIinn 11. deild karla:
Valdimar hafði betur
í einvíginu við Hans
-16 leikmenn skoruðu yfir 100 mörk í deildinni
• Valdimar Grimsson úr Vai skoraði 181 mark
deildarkeppninni.
Valdimar Grímsson úr Val hafði
betur í einvíginu við Hans Guð-
mundsson úr KA í keppninni um
markakóngstitil 1. deildar karla í
handknattleik. Valdimar tryggði sér
titilinn á laugardaginn þegar hann
gerði 12 mörk gegn ÍR á meðan Hans
gerði „aðeins" 7 mörk gegn Gróttu.
Valdimar gerði því alls 181 mark í
deildinni en Hans kom næstur með
167.
Það voru samtals 16 leikmenn sem
skoruðu 100 mörk eða meira í 1.
deildar keppninni í vetur. Þeir urðu
eftirtaldir, mörk/vítaköst:
Valdimar Grímsson, Val......181/33
Hans Guðmundsson, KA........167/27
Konráð Olavsson, KR.........161/29
StefánKristjánsson.FH.......142/39
Gylfi Birgisson, ÍBV........140/39
Gústaf Bjarnason, Selfossi..139/15
Petr Baumruk, Haukum........135/34
Magnús Sigurðsson, Stjörnu..125/38
Karl Karlsson, Fram.........122/14
Páll Ólafsson, KR...........121/19
Guðjón Árnason, FH..........119/5
Birgir Sigurðsson, Vikingi..111/0
Stefán Amarson, Gróttu......105/23
Halldór Ingólfsson, Gróttu...103/23
Sigurður Sveinsson, KR.......101/2
Sigurður Bjarnason, Stjörnu 101/9
Þegar htið er á mörk úr einstökum
stöðum á vellinum kemur í ljós að
Valdimar og Hans eru að sjálfsögðu
einnig markahæstu menn í sínum
stöðum í deildinni, en auk þeirra
hafa Páll Ólafsson, Stefán Kristjáns-
son, Gústaf Bjarnason og Jakob Sig-
urðsson skorað mest, hver úr sinni
stöðu. Þá eru vítaköst ekki talin með.
Hornamenn vinstra megin
Jakob Sigurðsson, Val...........95
Sigurpáll Aðalsteinsson, KA.... 78
Frosti Guðlaugsson, ÍR......... 65
Páll Þórólfsson, Fram.......... 64
Axel Björnsson, Stjörnunni...... 59
Skyttur vinstra megin
Miðjumenn
Páll Ólafsson, KR.............102
Stefán Amarson, Gróttu........ 82
Sigurður Gunnarsson, ÍBV...... 77
Jón Kristjánsson, Val......... 77
SteinarBirgisson, Haukum...... 74
Skyttur hægra megin
Stefán Kristjánsson, FH.......103
Magnús Sigurðsson, Stjörnu.... 87
ErlingurKristjánsson.KA....... 85
Ólafur Gylfason, ÍR........... 72
Júlíus Gunnarsson, Val........ 69
Línumenn
Gústaf Bjarnason, Selfossi....124
Birgir Sigurðsson, Víkingi....111
Skúli Gunnsteinsson, Stjörnu.. 92
Jóhann Pétursson, ÍBV......... 74
Páll Bjömsson, Gróttu......... 72
Hornamenn hægra megin
Valdimar Grímsson, Val........148
nans Lruomunasson, ... .132 Bjarki Sigurðsson, Víkingi .. 65
Guöjón Ámason, FH 114 Sigurður Friðriksson, ÍBV ... 63
Karl Karlsson, KA 108 Sveinberg Gíslason, Haukum ... 55
Gylfi Birgisson, ÍBV 101 -vs
PetrBaumruk,Haukum ....*. 101
Diisseldorf í toppsætið
• Héðinn
Gilsson.
HHéðinn Gilsson og félagar hans í Tum Ðússeldorf em
komnir á toppinn í 2. deild þýska handboltans eftir sig-
ur á Rheinhausen, 23-18, á heimavehi sínum á sunnu-
daginn. A sama tima töpuöu aðalkeppinautar Dússel-
dorf, lið Hameln, fyrir Bayer Leverkusen á útivelli, 21-18.
Dússeldorf haíði mikia yfirburði gegn Rheinhausen og um tíma
var munurinn 10 mörk, 19-9. Undír lokin slakaði Dússeldorfliöið
á en öruggur sigur samt í höfn. Héðinn Gilsson skoraði 5 af mörk-
um síns liðs og var sprækur og nálgast óðum sitt gamla góða
form.
Dússledorf er í efsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan
Hamlen sem á þó ehm leik til góða og Hameln hefur mun betri
markatölu.
-GH
Southampton og Forest
skildu jöf n á The Dell
Southampton og Nottingham
Forest skildu jöfn í fimmtu umferð
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Southampton,
sem lék á heimavelli, fékk óska-
byrjun strax á 2. mínútu þegar
Neii Ruddock náði forystunni. Tíu
mínútum fyrir leikslok jafnaði
Steve Hodge fyrir Forest.
Liðin verða að eigast við að nýju
á mánudaginn kemur á City Gro-
und í Nottingham. Það lið sem sigr-
ar í þessari viðureign mætir Nor-
wich í átta liða úrslitum keppninn-
ar. 18.512 áhorfendur fylgdust með
leik liðanna á The Dell.
Þess má geta í leiðinni að varalið
Nottingham Forest og Shefíield
United leika á miðvikdagskvöldið.
Leikurinn er merkilegur fyrir þær
sakir að þá verða tveir íslendingar
í hvoru liði, annars vegar Þorvald-
ur Örlygsson hjá Forest og Hörður
Magnússon, sem dvelur við æfmg-
ar hjá Shefíield United um þessar
mundir. Eftir þann leik veröur lík-
lega ljóst hvort af samningi Harðar
verður við enska liöið.
-JKS
Enskir
stúfar
D
Mike Pejic er nú talinn
líklegur eftirmaður
Aian Ball hjá 3. deildar
liðinu Stoke City. Ball
sagði af sér framkvæmdastjóra-
stöðunni eftir ósigur Stoke um
síðustu helgi. Pejic er fyrrum
leikmaður Stoke City en hefur
undanfarið þjálfað hjá Port Vale.
Þjófur í heimsókn
hjá Dave Beasant
• Dave Beasant, markvörður
Chelsea, átti heldur ömurlega
daga um síðustu helgi. Fyrst var
brotist inn á heimili hans og
skartgripum stolið frá eiginkonu
hans. Síðan mátti leikmaðurinn
þola tap gegn Sheffleld Wednes-
day í fyrri undanúrslitaleik lið-
anna í deildarbikarnum. Sárabót-
in fyrir Beasant var sú að þjófur-
inn eða þjófarnir tóku ekki verð-
launagripi hans en í safni mark-
varðarins er m.a. að finna verö-
launapening fyrir sigur í bikar-
keppninni árið 1988.
Líklegt að Pearson
taki við hjá WBA
• WBA er nú talið líklegt til að
ráða Stuart Pearson, fyrrum leik-
mann Manchester United, sem
framkvæmdastjóra til loka
keppnistímabilsins. Pearson hef-
ur stuðning leikmanna WBA og
er það talið ráða úrslitum. For-
ráðamenn WBA hafa þó ekki gef-
iö upp alla von um að krækja í
„stórt“ nafn en láta það væntan-
lega bíða þar til í sumar.
Robson ræðir málin
áOld Trafford
• Bryan Robson á nú í viðræðum
við forráðamenn Manchester
United um nýjan samning. Ef
samkomulag næst er gert ráð fyr-
ir að Robson skrifl undir til
tveggja ára en að þeim tíma liðn-
um ætti að bíða hans öruggt starf
hjá félaginu við þjálfun af ein-
hverju tagi. Því má svo bæta við
að leikmenn Manchester United
eru sagðir hafa fengið um 300
þúsund íslenskar krónur fyrir að
koma félaginu í úrslitaleik deild-
arbikarsins á Wembley 21. apríl.
Hvað verður um
Darren Beckford?
• Afsögn Kenny Dalglish hjá
Liverpool gæti haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir Darren
Beckford, framherja Port Vale.
Dalglish er sagður hafa verið yfir
sig hrifinn af Beckford sem er
verðlagður á 850 þúsund pund en
samningur hans við Port Vale
rennur út í sumar. Ef Liverpool
hættir viö er gert ráð fyrir að
Coventry hlaupi í skarðið en
borgi sennilega um 100 þúsund
pundum minna heldur en ensku
meistararnir enda er heldur
minna í buddunni á Highfield
Road en Anfield Road.
Steve Coppell vill
kaupa Rod Wallace
• Steve Coppell, framkvæmda-
stjóri Crystal Palace, er tilbúinn
til að borga eina milljón punda
fyrir Rod Wallace, útherja Sout-
hampton. ítölsk lið hafa líka
áhuga á Rod og ef leikmaðurinn
kýs þann möguleika er Coppell
sagður ætla að krækja í Franz
Carr hjá Nottingham Forest. Á-
kefðin í Coppell er talin eiga ræt-
ur að rekja til þess að Palace á í
harðri toppbaráttu við Arsenal
og Liverpool og telur Coppell
nauðsynlegt að kaupa leikmann
til að veita risunum keppni um
titilinn.
Newcastle lánar leikmann
• David Robinson, framherji
Newcastle, hefur verið lánaður
til Peterborough. Lánstíminn er
einn mánuður og að honum lokn-
um gefur Peterboroguh svar um
hvort liðið hyggist kaupa leik-
manninn eða ekki.