Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1991, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 22. MARS 1991.
9
dv Útlönd
Douglas Hurd, utanríkisráðherra Breta, hefur verið á ferð um Sovétríkin. Honum líst ekki á ástand þar.
Simamynd Reuter
Douglas Hurd efins um umbætur í Sovétríkjunum:
Engin merki um
umbótastefnu
- sagði Hurd eftir að hafa rætt við ráðamenn í Moskvu
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Breta, segir að vart komi til greina
að veita Sovétmönnum efnahagsað-
stoð meðan þeir hafi engar skýrar
áætlanir um umbætur í landinu.
Hurd er nú í Sovétríkjunum og ræð-
ir þar við ráðamenn. Hann hóf för
sína í Kænugarði í Úkraínu en hélt
síðan til Moskvu.
Hurd sagði einnig að fyrirtæki á
Vesturlöndum hikuðu við að fjár-
festa í Sovétríkjunum meðan þar
ríkti upplausnarástand. Enginn vissi
hver réði og alltaf mætti búast við
að KGB gripi í taumana.
„Ég hef ekki til þessa orðið var við
að nokkur efnahagsáætlun væri við
lýði í Sovétríkjunum. Án hennar er
ekki hægt að réttlæta aöstoð frá Vest-
urlöndum," sagði Hurd á fundi með
fréttamönnum eftir aö hann hafði
rætt við ráðamenn í Moskvu.
Hurd sagði að aðstoð Evrópu-
bandalagsins við Sovétmenn beindist
að einstökum þáttum þjóðlífsins en
ekki aö því að styrkja hagkerfið í
heild því enginn vissi hvert Sovét-
menn stefndu. Ríki Evrópubanda-
lagsins ákváðu í desember á síðasta
ári að verja verulegum íjárhæðum
til aðstoðar við Sovétríkin.
Þegar ráðist var gegn sjálfstæðis-
sinnum í Eystrasaltsríkjunum eftir
áramótin var ákveðið að slá áætlun-
inni á frest um óákveðinn tíma. Fyrr
í þessum mánuði var þó ákveðið að
snúa aftur að upphaflegum hung-
myndum um aðstoö.
Mikail Gorbatsjov Sovétforseti
sagði í síðustu viku að allar áætlanir
um uppbyggingu efnahagslífsins
væru enn í fullu gildi. Þar á meðal
er að markaðsvæða atvinnulífið.
Enginn veit þó með vissu hvernig
forsetinn hyggst koma því i kring eða
hvort hann hefur í raun hug á því.
Reuter
Nefskatturinn úr sögunni
Stjórn íhaldsmanna í Bretlandi
hefur endanlega ákveðið að hætta
við hinn umdeilda nefskatt. í staðinn
verður tekinn upp hhðstæður skatt-
ur þar sem þó er tekið tillit til efna-
hags fólks.
Margrét Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra, barðist hart fyrir að
koma skattinum á. Það tókst henni
við miklar og vaxandi óvinsældir en
nú hefur John Major, eftirmaður
hennar, ákveðið að kúvenda og koma
til móts við vilja meirihluta lands-
manna.
Nefskatturinn átti að leggjast af
jöfnum þunga á öll heimili í landinu
og renna til sveitarfélaganna. Nýi
skatturinn á að skila þeim svipuöum
tekjum en við álagningu hans verður
tekið tillit til fjölskyldustærðar auk
tekna.
Allt frá því John Major myndaði
stjórn hefur legið í loftinu að nef-
skatturinn yrði afnuminn. Michael
Heseltine umhverfisráðherra var fa-
lið aö endurskoða skattlagninguna
en hann var alla tíð andstæðingur
nefskattsins.
í nýju fjárlagafrumvarpi var braut-
in rudd fyrir stefnubreytinguna og
í gær tilkynnti Heseltine við mikinn
fögnuð í breska þinginu að skattur-
inn væri úr sögunni. Reuter
Spákaupmennska á hrávörumörkuðum:
Kaff iverð stórhækkar
- eftir að stjóm Brasilíu bannaði útflutning í morgun
Allur útflutningur á brasilísku
kaffi var stöðvaður í morgun og
stjóm Brasilíu tilkynnti að hún ætl-
aöi að leita eftir alþjóðlegri samstöðu
um að draga úr framboði á kaffi. Til-
gangurinn er að knýja fram hærra
verð eftir stöðuga verðlækkun síð-
ustu vikur.
Kaffikaupmenn segja að þetta geti
orðið til að kaffi verði mun dýrara í
sumar en verið hefur. Ákvörðun
stjórnarinnar kom mjög á óvart og
er orsakanna að leita í stöðugt hnign-
andi efnahag í Brasilíu.
Edgard Pereira, efnahagsmálaráð-
herra Brasilíu, segir að þessi ákvörð-
un sé hluti af viðleitni stjórnarinnar
til að auka tekjur ríkisins. Áður hafði
hann tilkynnt að ekki stæði til að
sækja fjármagn í ríkiskassann með
þessum hætti.
Þótt enginn skortur verði á kaffi á
heimsmarkaði í bráð þá varð þess
þegar vart á hrávörumörkuðum í
Lundúnum í morgun að kaffikaup-
menn höfðu hug á að hamstra sér
kaffi. Hvergi í heiminum er framleitt
meira af kaffi en í Brasilíu og hefur
framboð þaðan úrslitaáhrif á verðið
um allan heim.
Búist er við að bann við útflutningi
á kaffi frá Brasilíu geti staðið í marga
mánuði því óvíst er að önnur ríki,
sem eiga mikið undir kaffisölu, fallist
á að takmarka framboðið. En þótt
ekkert samkomulag komist á hækk-
ar verið örugglega meðan útflutn-
ingsbannið frá Brasilíu stendur.
Fram til ársins 1989 var í gildi sam-
komulag milli kaffiframleiðenda og
kaupmanna um kvóta fyrir hvert
ríki. Það samkomulag fór út um þúf-
ur þegar framleiðendur urðu ósáttir
um hvernig ætti að skipta kvótunum.
í kjölfarið fylgdi stóraukið framboð
á kaffi og verð lækkaði. Brasilíu-
menn höfðu áður um 30% af kaffi-
kvótanum en á þá var gengið að deila
einhverju af honum með minni fram-
leiðsluríkjum. Því var neitað og þá
rofnaði samstaða framleiðenda.
Útflutningstekjur Brasilíumanna
hafa rýrnað töluvert eftir aö frjáls
samkeppni komst á. Nú vilja þeir
rétta við fjárhaginn með því að
hækka verðið og draga úr framboði.
Reuter
3 góðar
fermingar-
gjafir
tilbúið beint inn í herbergi með fjarstýringu
og inniloftneti. Mjög skörp myndgæði.
Verð aðeins 26.990 kr. stgr.
ajlllHJÍlak. draumasæng og koddar.
Ajungilak sængin er fyllt með mjúkri Quallofil fyllingu,
sem andar vel og má þvo við 60° C. 5 ára ábyrgð segir
allt um gæðin. Gegn framvísun Ajungilak tilboðsins í
Tilboðstíðindum færðu Ajungilak Quallofil
draumasæng á aðeins 9-320 kr.
HEIMILISKAU P H F
• HEIMIUSTÆKJtDEILD FALKANS •
Suðurlondsbraut 8 - sími 84670
Umboðsmenn um land allt.