Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1991, Page 3
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1991.
3
Fréttir
Aðstandendur fegurðarsamkeppni Vestflarða:
Höfnuðu boði um ferða-
vinninga í verðlaun
- til að þurfa ekki að gefa umboðsmanni ferðaskrifstofunnar boðsmiða
Aðstandendur keppninnar um feg-
urðardrottningu Vestfjarða höfnuðu
boði Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar
um að gefa 3 ferðavinninga þegar
keppnin var haldin á ísafirði 16.
mars síðastliðinn. Ástæðan var sú
að þá hefði þurft að láta umboðs-
menn ferðaskrifstofunnar fá boðs-
miða á hátíðina en Veröld ætlaði að
vera með ferðakynningu í leiðinni.
Veröld ætlaði að gefa þeirri stúlku,
sem kosin yrði fegurðardrottning
Vestfjaröa, ferðavinning og einnig 2
ferðavinninga sem heppnir gestir
fengju. í staðinn ætlaði Veröld að
hafa ferðakynningu í húsinu og
starfsmenn ferðaskrifstofunnar í
Reykjavík ætluðu að koma til ísa-
fjarðar í þeim tilgangi. En þegar Gísli
R. Árnason, umboðsmaöur Veraldar,
nefndi þetta við umsjónarmenn
keppninnar vestra neituðu þeir að
láta starfsmenn Veraldar hafa boðs-
miða á hátíðina og þeir hefðu því
þurft að borga sig inn. Þetta vildu
þeir ekki sætta sig við og ekkert varð
því úr ferðavinningagjöfunum.
Dagný Björk Pjetursdóttir, fram-
kvæmdastjóri keppninnar, segir að
ekki hafi verið rætt við sig um ferða-
vinningana heldur stúlkur sem að-
stoðuðu hana við undirbúninginn.
„Síðan er húsið, þar sem keppnin
var haldin, svo lítið, tekur bara um
100 manns í sæti, að það hefði ekki
verið hægt að gefa boðsmiða. Ef allir
sem komu nálægt keppninni, þeir
sem gáfu gjafir, þjálfuðu stúlkurnar
og svo stúlkurnar sjálfar, hefðu feng-
ið boðsmiða hefðu þeir orðið um 60
talsins. Það var því ákveðið að gefa
enga boðsmiða," segir Dagný Björk.
-ns
Vorverk borgarstarfsmanna eru hafin þótt enn sé ekki nema aprílmánuð-
ur. Skiltin á götum Reykjavíkur þarf að hreinsa eins og annað og þessir
ungu menn voru í óðaönn að þvo og bóna í blíðviðrinu um daginn.
DV-mynd S
Óveðrið í febrúar:
Tjón nemur um 290
milljónum króna
- gróðurhúsabændur urðu verst úti
„Ails hafa borist tilkynningar um
eitthvað á milli 2200 og 2300 tjón yfir
allt landið frá því óveðrið geisaði í
febrúar og kostnaður tryggingafélag-
anna vegna þeirra nemur í kringum
290 milljónir króna,“ sagði Kristján
Guðmundsson, formaður sérstakrar
nefndar á vegum ríkisins sem skipuð
var til að kanna óveðurstiónin.
„Tjón utan trygginga, þ.e. þau tjón
sem menn hafa ekki tryggt sig fyrir,
eru álíka mörg,“ sagði Kristján.
Hann taldi ástæðuna vera þá aö
byggingareftirliti væri áfátt víða, þá
sérstaklega í dreifbýli. Oft hefði
slæmur frágangur á dyra- og hurða-
búnaði orðið til þess að óveðrið náði
inn og olli meiri skemmdum en ella.
Sú starfsstétt, sem varð einna verst
úti í óveðrinu, eru gróðurhúsabænd-
ur. Hjá nokkrum þeirra urðu
skemmdir upp á tvær milljónir
króna en alls greiða tryggingafélögin
68'milljónir vegna tjóns á fasteignum
þeirra og ræktun. Meðalupphæð
allra tjóna var í kringum 140 þúsund
kronur.
Tvö stærstu tryggingafélögin, Vá-
tryggingafélag íslands hf. og Sjóvá-
Almennar tryggingar hf„ bera mesta
kostnaðinn. Olafur Jón Ingólfsson,
deildarstjóri almenningstengsla hjá
Sjóvá-Almennum, sagði að þeim
hefðu borist 616 tilkynningar um tjón
sem næmu samtals um 86 milljónum
króna. Stærsti einstaki þátturinn var
kostnaður við þrjá byggingakrana
sem eyðilögðust í Reykjavík en þeir
kostuðu 20 milljónir.
Þórður Þórðarson, deildarstjóri í
eignatryggingum hjá VÍS, sagði að
VIS heföu borist 1580 tjónstilkynn-
ingar sem næmu 160 milljónum
króna. Þar af eru fjörutíu milljónir
vegna skemmda á gróður- og útihús-
um sem flest voru á Suðurlandi.
Tryggingafélögin eru þó almennt
tryggö með endurtryggingu hjá er-
lendum tryggingafélögum gagnvart
öllum stærri tjónum.
-ingo
Akureyri:
Frambjóðendur ræða um umhverf ismál
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Frambjóðendur þeirra stjórnmála-
flokka, sem þegar hafa tilkynnt
framboð í Norðurlandskjördæmi
eystra, munu ræða stefnu flokka
sinna í umhverfismálum á opnum
fundi á Akureyri í kvöld. Fundurinn
verður á Hótel KEA og hefst kl. 20.30.
Það er íslandsdeild Norræna um-
hverfisársins sem stendur að fundinj
um og þeir sem tala eru Sigbjörn
Gunnarsson, Alþýðuflokki, Stein-
grímur J. Sigfússon, Alþýðubanda-
lagi, Guðmundur Bjarnason, Fram-
sóknarflokki, Sigurborg Daðadóttir,
Kvennalista, Tómas Ingi Olrich,
Sjálfstæðisflokki, og Árni Steinar
Jóhannsson, Þjóðarflokki/Flokki
mannsins. - Að loknum framsöguer-
indum verða opnar umræður með
þátttöku áheyrenda.
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511
VIRÐISAU KASKATTU R
Gjalddagi
virðisaukaskatts er
5. þessa mánaðar
Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur,
og núllskýrslum má skila til banka,
sparisjóða eða pósthúsa. Einnig
má gera skil hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn
í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslu-
menn úti á landi og lögreglustjór-
inn á Keflavíkurflugvelli.
Bent skal á að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrsl-
um sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar
skýrsluna sjálfur eða breytir áritun
verður að gera skil hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs.
Inneignarskýrslum, þ.e. þegar
innskattur er hærri en útskattur,
skal skilað til viðkomandi skatt-
stjóra.
Til að komast hjá álagi þarf
greiðsla að hafa borist á gjald-
daga. Athygli skal vakin á því að
ekki er nægilegt að póstleggja
greiðslu á gjalddaga.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI