Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
Fréttir
DV
Margvísleg fundahöld vegna stj órnarmyndunar stóöu í allan gærdag:
„Viljum ekki fá f imm
Hjörleifa til viðbótar“
- sagði einn þingmaöur Alþýöuflokksins um þátttöku Kvennalistans í ríkisstjóm
Þingmenn Alþýöuflokksins voru kátir á fyrsta fundi sinum eftir kosningarnar. Þar var samþykkt að ríkisstjórn Stein-
grims Hermannssonar ætti aö segja af sér. DV-mynd BG
„Stjórnarsamstarf getur aldrei
grundvallast á afstöðu Hjörleifs
Guttormssonar hveiju sinni. Ekki
bætir úr skák að fá Kvennalistann
með í stjórn þar sem þá sitjum við
uppi með fimm Hjörleifa til viðbót-
ar,“ sagði einn þingmanna Alþýðu-
flokksins í samtali við DV í gær-
kvöldi. Sá taldi afar ólíklegt að fram-
hald gæti orðið á núverandi stjórnar-
samstarfi.
Fundahöld vegna myndunar nýrr-
ar ríkisstjórnar stóöu yfir á ýmsum
vígstöðvum í allan gærdag. Fyrir
hádegi ræddust þeir Ólafur Ragnar
Grímsson og Steingrímur Her-
mannsson við og þá mun Davíð
Oddsson hafa átt orðaskipti við bæði
Jón Baldvin Hannibalsson og Jón
Sigurðsson.
Fundir þingflokkanna
Upp úr hádegi settist þingflokkur
Alþýðuflokksins aö fundi og síðar
um daginn þingflokkur Sjálfstæöis-
flokks. Þingflokkur Kvennalistans
hittist um miðjan dag og almennur
félagsfundur var haldinn undir
kvöld. Á tíunda tímanum í gærkvöldi
áttu þingmenn Alþýðubandalagsins
með sér símafund. Auk þessa var
mikiö um óformleg fundahöld. Frétt-
ist meðal annars af þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins á fundi seint í gær-
kvöldi.
Auk funda innan flokkanna fóru
formenn þeirra á fund Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands, þar sem
þeir gerðu forseta grein fyrir hvernig
þeir mátu ástandið varðandi stjóm
armyndun og hvaða skref þeir teldu
réttast að stíga á næstu dögum.
Fundir ílokksforingjanna með for-
setanum eru algert trúnaðarmál en
Steingrímur Hermannsson og Ólafur
Ragnar Grímsson hafa báðir lýst því
yfir að þeir vilji áframhaldandi sam-
starf núverandi stjórnarflokka. Þá
hefur Kvennalistinn ítrekað lýst því
yfir að hann er viljugur til þátttöku
í ríkisstjórn með Alþýðuflokki,
Framsókn og Alþýðubandalagi. Dav-
íð Oddsson hefur lýst því yfir aö sér
finnist eðlilegt að stjórnin segi af sér
og forseti veiti formlegt umboð til
stjórnarmyndunar, annaðhvort
Steingrími, sé stjórnarflokkunum
tryggður öruggur meirihluti, eða sér
sem formanni þess flokks sem kom
stærstur út úr kosningunum.
Kratar vilja afsögn
Fundur Jóns Baldvins með forseta
fór fram strax að afloknum þing-
flokksfundi Alþýðuflokksins. Sá
fundur vakti hvað mesta athygli þar
sem sjálfstæðismenn hafa lýst yfir
vilja sínum til að ræða við krata um
stjómarmyndun og sterkur vilji er
hjá mörgum krötum fyrir því að
mæta sjálfstæðisflokknum í slíkum
viðræðum. Þannig er Jón Baldvin
með hinn margfræga bolta í hinni
pólitísku stöðu. Andstöðu við við-
reisnarhugmynd er einkum að finna
meðal nýrra fylgismanna flokksins.
Jón Baldvin vildi ekki tjá DV hvað
fram hefði farið á fundi með forset-
anum en samkvæmt heimildum
blaðsins mun hann hafa skýrt forseta
frá að hann teldi eðlilegt að Stein-
grímur Hermannsson segði af sér þar
sem núverandi stjórnarflokkar
hefðu ekki öruggan meirihluta á
þingi og óljóst væri hvort Alþýðu-
flokkur væri þess fýsandi að halda
núverandi stjórnarsamstarfi áfram.
Einnig mun hann hafa viðrað þá
skoðun sína að rétt væri að fela eng-
um formlegt stjórnarmyndunarum-
boð næstu daga, að spilað yrði frítt
eins og gert var í stjómarmyndunar-
viðræðunum 1978.
Gagnvart hugmyndinni um nýja
vinstristjórn gerir Alþýðuflokkur
kröfu um breytta verkaskiptingu frá
því sem nú er og að nýr stjórnarsátt-
máli verði gerður. í viðtölum við al-
þýðuflokks- og alþýðubandalags-
menn kom fram aö þeir eru ekki til-
búnir aö gleypa skjóta afstöðubreyt-
ingu Kvennalistans, sérstaklega til
álvers og evrópsks efnahagssvæðis.
Eru þessir flokkar fullir efasemda
um samstarfshæfni Kvennalistans
sem að þeirra mati getur berlega
skipt um skoðun og afstöðu til veiga-
mikflla mála á dagsparti.
-hlh/kaa
Húsið „nötraði“ hjá Kolbeini Gunnarssyni:
Víkingasveit-
armenn inn í
eldhús til mín
- skólastjóri varð að ganga eftir flörunni
„Lögreglan hringdi hingað og Alexander Valdimarsson,
sagði aö maöurinn í næsta húsi kennari í grunnskólanum, sagði
væri meö byssu. Síðan vissi mað- við DV að kennsla hefði raskast
ur ekkert fyrr en víkingasveitar- töluvert á meöan lögregla um-
menn komu hingað inn. Þeir fóru kringdi húsið og lokaöi aðalgöt-
inn i eldhúsiö hjá mér og út að unni;
glugga til að fýlgjast með næsta „Krakkarnir náöu flestir að
húsi. Þeir fóru þó fljótlega út og koma hingað niöur eftir. Eg var
upp að húsinu. að labba í skólann rétt fyrir
Svo byrjaði hasarinn. Þeir klukkan átta og rétt slapp. Síðan
skutu á gluggana og voru með var öll umferö stoppuð. Skóla-
táragassprengjur. Fljótlega eftir stjórinn var á eftir mér á bíl. Hún
það heyrðist ægilegur hávaöi - fékk ekki að keyra framhjá og
það nötraði allt húsið. Ég veit þurftí aö labba niður í fjöru til
ekki hvað þetta var. Þeir voru að komast,“ sagði Alexander.
eitthvað aö hræða manninn. Þeg- Ohug sló á íbúa þessa rólega
ar verið var að skjóta þorði ég sjávarþorps á Vestflörðum vegna
ekki einu sinni að vera við glugg- atburða gærdagsins. Ofangreind-
ann. Það má segja að allar rúður ar sprengingar heyrðust greini-
séu úr húsinu þama hinum meg- lega um allt þorpið. Starfsfólk í
inn. Það er allt brotiö," sagði fiskvinnslufyrirtækjum náöi að
Kolbeinn Gunnarsson, sem býr fara í vinnu áður en götum var
að Dalbraut 34, í næsta húsi við lokað en nokkrir aðrir urðu þó
verbúöina þar sem vopnaöur aö bíða þar til umsátursástand-
maður var yfirbugaður f gær- inulauk.
morgun. -ÓTT
Umsátursástand á Bíldudal þegar lögreglan umkringdi verbúð:
„Var eins og í
Rambómynd“
- rúöur brotnar og kúlnagöt á húsinu, sagöi Rúnar Gunnarsson, einn áhorfenda
„Ég varð fyrst var við ástandið um
klukkan átta þegar ég var að fara í
vinnuna. Þá var lögreglan að vísa
öllum í burtu. Skömmu síðar kom
víkingasveitin og fór að raöa sér í
kringum húsið. Lögreglumennirnir
kölluðu á manninn í gegnum gjallar-
hom - báöu hann um að leggja vopn-
in frá sér og koma út en án árang-
urs. Það var svo klukkan hálfellefu
sem hlutirnir fóm að gerast og lætin
byrjuðu,“ sagöi Rúnar Gunnarsson,
verslunarmaður í Edinborg í Bíldu-
dal, í samtali við DV í gær.
Rúnar fylgdist með umsáturs-
ástandinu þegar sérsveit lögreglunn-
ar í Reykjavík reyndi að fá 26 ára
karlmann frá höfuðborgarsvæðinu
til að leggja frá sér haglabyssu og
riffil sem hann hafði undir höndum
í verbúð að Dalbraut 32 í Bíldudal í
gærmorgun.
Maðurinn, sem hafði verið í fisk-
vinnu í Bíldudal í um einn mánuð,
átti ekki vopnin. Þau voru í eigu
annars manns sem ekki var í húsinu,
að sögn heimamanna.
Maðurinn var fluttur til Reykjavík-
ur og er nú í haldi hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Óvíst var í morgun
hvort hann yrði settur í gæsluvarö-
hald og látinn sæta geðrannsókn.
Hleypti ekki af skotum
Sjónarvottar sem DV ræddi við
í gær telja að maðurinn hafi hleypt
af skotum. Lögreglan á Patreksfirði
segir hins vegar aö það sé misskiln-
ingur enda hafi það komið í ljós
þegar vopnin voru skoðuð á eftir.
Þau voru þó hlaðin og var þeim á
tímabili beint aö lögreglumönnum
fyrir utan. Lögreglan ræddi við
manninn meira og minna í fjórar
klukkustundir í síma á meðan vík-
ingasveitarmenn voru á leið vestur
og þegar þeir voru búnir að stilla sér
upp fyrir utan verbúðina við Dal-
braut 32.
„Víkingasveitarmenn voru við
húsgaflinn. Síðan heyrðist hljóð eins
og í haglabyssu og þaö heyrðist líka
riffilhljóð," sagði Rúnar. „Það var
bíómyndarstæll á þessu. Maðurinn
var inni með einhleypu og átján
skota riffil. Víkingasveitarmennirnir
reyndu aö skjóta inn táragas-
sprengju og rúður brotnuðu í húsinu.
Fyrst tókst það þó ekki hjá þeim.
Þeir hittu ekki á gluggann, sprengjan
lenti fyrir utan og mikill reykur
blossaði upp,“ sagði Rúnar.
Skutu upp að glugganum
„Okkur sýndist maðurinn skjóta
út í gegnum glerið. Þetta var orðið
virkilega spennandi og stóð yfir í
nokkrar mínútur. Það voru tveir vík-
ingasveitarmenn alveg viö húsgafl-
inn en maðurinn var í glugganum
fyrir ofan þá. Þegar skotið kom tóku
víkingasveitarmennimir viö sér og
hlupu niður fyrir húsið. Við sáum
þá beina byssunum upp. Síðan skutu
þeir upp að gluggunum. Eftir smá-
tíma kom svakaleg sprenging fyrir
utan húsið og mikill blossi - það var
svo mikill hávaði að það bergmálaði
á milli fjallanna. Eftir þetta ruddust
víkingasveitarmennimir inn. Þeir
fóru upp tröppur á annarri hæðinni
með gasgrímur á sér og með skjöld
fyrir framan sig. Þetta var eins og í
Rambómynd. Svo komu þeir með
manninn út. Þetta voru mikil læti,"
sagði Rúnar.
Hann sagði jafnframt að nánast all-
ar rúður væm að einhveiju leyti
brotnar í húsinu, kúlnagöt vom í
gluggum, körmum og á útihurð. -ÓTT