Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
Ræstingarstörf
Tveir starfskraftar óskast (helst hjón) til ræstingarstarfa.
Vinnutími eftir kl. 17.
Aðeins reglusamt og áreiðanlegt fólk kemur til greina.
Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild DV fyrir kl.
18 á miðvikudag, 24. april, merkt „Ræsting 8142".
í RAUTTyfaw RAUTT \
UOS 'T.'. l UOS/
l Urád )
Til sölu húseign og bifreiðageymsla
á Akranesi.
Kauptilboð óskast í Kirkjubraut 10, Akranesi.
Stærð húseignarinnar er 338 m3 og bifreiðageymslunnar 248 m3.
Eignirnar verða til sýnis í samráði við Svan Geirdal yfirlögreglu-
þjón, Akranesi (s. 93-11166).
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og á skrif-
stofu vorri. Tilboðum sé skilað til skrifstofu vorrar að Borgartúni
7, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 f.h. þann 29/4/91.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið
1. september 1991 til 31. ágúst 1992. Fræðimenn,
sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verk-
efnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af
ibúðinni, sem er í St. Paulsgade 70 (örskammt frá
Jónshúsi). Hún er þriggja herbergja (80 ferm.), en
auk þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jóns-
húsi. íbúðinni fylgir allur nauðsynlegasti heimilis-
búnaður og er hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalar-
tími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina
kemur skemmri tími eða lengri eftir atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu
Alþingis eigi síðar en 15. maí nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með
dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og
fyrri störfum. Enn fremur hvenær og hve lengi óskað
er eftir íbúðinni. Tekið skal fram að úthlutunarnefnd
ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn
að fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis
í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráðinu í Kaup-
mannahöfn.
Útlönd _________________________ðv
Harður jarðskjálfti skók Costa Rica og Panama 1 gærkvöldl:
Tugir manna
létust og hundr-
uð særðust
- sterkasti skjálftinn var 7,2 stig á Richter
Tugir manna létust og hundruö
særöust þegar öflugur jaröskjálfti
reið yfir Mið-Ameríkuríkin Costa
Rica og Panama um tíuleytið í gær-
kvöldi að íslenskum tíma. Skjálftinn
mældist um 7,2 stig á Richterkvarða.
Fljótlega bárust fréttir um að tæp-
lega þrjátíu manns hefðu látið lífið í
Costa Rica og um tuttugu manns í
norðurhéruðum Panama.
í Changuinola, bæ við landamæri
Costa Rica og Panama, féllu hús sam-
an eins og spilaborgir og um eitt
hundrað manns særðust. Bílar ultu
í skjálftanum og fjöldi húsa eyöilagð-
ist í miklum flóðum er fylgdu í kjöl-
farið. Svipaða sögu var að segja í
mörgum bæjum.
Hafnarborgin Limon í Costa Rica
varð illa úti í skjálftanum. Þar særð-
ust hundruð manna þar sem fjöldi
húsa og hótela hrundi til grunna. í
Matina, bæ skammt frá, sagði starfs-
maður Rauða krossins að afleiðingar
þessa skjálfta væru það hræðilegasta
sem hann hefði nokkum tíma séð.
Starfsmaðurinn sagði að sjúkrahús
hefðu verið yfirgefin vegna hættu á
hruni og sjúklingar fluttir til ná-
lægra bæja. Fjöldi brúa mun hafa
hrunið í sjálftanum.
Stærsta sjúkrahúsið í Limon var
yfirgefið og fréttir hermdu að læknar
þess hefðu framkvæmt skurðaðgerð-
ir á fórnarlömbum skjálftans úti
undir beru lofti. Eldur kom upp í
olíustöð við borgina en fljótlega tókst
að hemja hann.
Hjálp var farin að berast frá Nic-
aragua og Bandaríkjunum í nótt.
Fluttu þyrlur meðal annars særðar
manneskjur frá afskekktum svæðum
í Costa Rica.
Þessi öflugi jarðskjálfti mun hafa
átt upptök sín um 120 kílómetra suö-
austur af San Jose, höfuðborg Costa
Rica. Á því svæði búa margir indíán-
ar en snemma í morgun var ekki
vitað mn örlög þeirra.
í sjálfri höfuðborginni greip mikil
geöshræring um sig meðal íbúanna
þar sem rafmagn fór af og símasam-
band rofnaði. Skemmdimar urðu þó
mun minni en í skjálftanum í des-
ember síðasthðnum. Sá mældist 5,6
á Richterskvarða og olli miklum
skemmdum á byggingum í úthverfl
borgarinnar.
„Þetta er það versta sem ég hef
nokkru sinni upplífað," sagði einn
af björgunarmönnum Rauða kross-
ins í bænum Matina. Þótt skjótt hafi
verið brugðist við með hjálp er þó
engin leið enn að gerast sér grein
fyrir ástandinu á jarðskjálftasvæð-
inu. Yfirvöld segja að eins að veru-
legt tjón hafi orðið og að margir
menn hafi látiö lífið.
„Við höfum mestar áhyggjur af
fólkinu. Það verður hægt að bæta
tjón á mannvirkum síðar,“ sagði
Rafael Angel Calderon Foumier, for-
seti Costa Rica, í ávarpi til þjóðarinn-
ar skömmu eftir að jarðskjálftinn
reið yfir.
Jarðfræðingar segja að þessum
skjálfta svipi mjög til þess sem varð
í Los Angeles fyrir tveimur árum.
Þá hmndu háhýsi og vegir eyðilögð-
ust. Komin var nótt þegar þessi
skjálfti varð þannig að umferð var
ekki mikil. Þó er vitað um alvarleg
óhöpp á vegum, t.d. þegar eldur
kviknaði í olíuflutningabíl og þrír
menn brenndust.
Reuter
/McM/ufr Helgarferð 9.-13. maí '91
/ iaai Fráhær hnlnarfprrt til IWIAM flRHA á aápinc Ur 98 ílíin
Maí
mán þri
1991
fös lau
12 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31
1. Verkalýösdagurinn • 9. Uppsligningardagur -11. Lokadagur
14. Vinnuhjuaskildagi • 19. Hvitasunnudagur • 20. Annar í hvitasunnu
Frábær helgarferð til MALLORCA á aðeins kr. 28.000
á mann, 2 í stúdíói. HAFÐU SAMBAND STRAX.
Lagt upp frá Keflavík síðdegis 9. maí, uppstigningardag,
og komið til baka aðfaranótt 13. maí.
3 heilir dagar - frábær upplyfting
- einstakt tækifæri!
OTKXVTMt
Ferðaskrifstofa • Hallveigarstig 1 • Simar 28388 - 28580
Skel,tu
þér
m
eð
S0T