Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
Fréttir
DV
Hart deilt á Qárstyrk ríkisins til aöstandenda meöferöarstöövarinnar aö Fitjum:
Þeir haf a sett fjölda fyrir-
tækja á hausinn síðustu ár
segir Gylfi Guömundsson sem segir konu sína hafa tapað hátt í tíu miiljónum á viðskiptum viö þá
rekstrarformið er og hveijir eru eig-
endur að því. Fyrr verður þessum
peningum ekki ráðstafað.“
Að sögn Páls' Péturssonar, for-
manns fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deOdar, sá nefndin ekki ástæðu
til að standa gegn heimildartillögu
fjármálaráðherra um styrk til Með-
ferðar hf., þegar nefndin fjallaði um
lánsfjárlögin. Hann segir nefndina
þó ekkert hafa farið ofan í saumana
á fyrirtækinu né kannaö forsögu
þess.
„Ég þekki ekkert til þessa fyrirtæk-
is né þeirra manna sem stjóma því.
Ég treysti því hins vegar að fjármála-
ráðherra nýti sér ekki þessa heimild
nema það sé tryggt að peningunum
verði vel varið. Þessum peningum
verður ekkert hent í eitthvert gjald-
þrot. En arinars er ég pínulítið tor-
trygginn á sumar svona hugsjónir
sem menn fá og stökkva út í að lítt
athuguðu máh í einhverjum köst-
um,“ segir Páll.
Grettir Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Meðferðar hf., kveðst
lítið sem ekkert þekkja til fjármála
Vonar hf., né tengsla þess við Von
Veritas og önnur skyld fyrirtæki. Á
þeim árum hafi hann fyrst og fremst
haft með starfsmannamál og sjúkl-
ingastreymi að gera. Hann kvað hins
vegar rétt að Meðferð hf. hefði tekið
við af Von hf. óg að fyrirtækjunum
stæðu sumpart sömu aðilarnir.
„Við erum að reyna að vinna okkur
út úr þessum málum sem sum hver
eiga rætur að rekja til upphafsár-
anna. Ég kannast ekki við að við
höfum lent í einhveijum útistöðum
við þennan Gylfa og veit ekki til þess
að ég haíi séð hann. Ég tek því lítið
mark á gagnrýni hans á okkur."
Grettir segir að húseignin að Fitj-
um sé í eigu sjálfstæðs hlutafélags
sem aftur leigi Meðferö hf. aðstöðu.
Eigendur þess fyrirtækis eru Birgir
„Það er forkastanlegt að ríkissjóð-
ur skuli veita almannafé til þessara
fjárglæframanna sem reka meðferð-
arstöðina að Fitjum á Kjalamesi. Á
undanfömum 6 árum hafa þeir sett
fjölda fyrirtækja á hausinn. Konan
mín, Guörún Skarphéðinsdóttir,
varð fyrir því óláni að selja þessum
mönnum húseign okkar að Bárugötu
11 fyrir nokkrum árum og tapaði
hátt í 10 milljónum á þeim viðskipt-
um. Ég er alveg gáttaöur á að fjár-
málaráðherra og forsætisráðherra
skuli ætla að færa þessum mönnum
20 milljónir af skattfé almennings á
silfurfati," segir Gylfi Guðmundsson.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
aflaði sér hjá Meðferð hf. var fyrir-
tækið stofnað af 8 einstaklingum í
ársbyrjun 1988, þeim Kristjáni Omari
Kristjánssyni, Bjarna Steingríms-
syni, Brynjólfi Haukssyni, Skúla
Thoroddsen, Gretti Gunnlaugssyni,
Bergi Guðnasyni, Grétari Haralds-
syni og Jóhannesi Jónssyni. Flestir
tengjast þeir öðrum fyrirtækjum á
sviði áfengismeðferðar sem farið
hafa á hausinn. Um er að ræða nokk-
ur fyrirtæki sem stofnuð voru til
hhðar við Von hf., sem varð gjald-
þrota fyrir þremur árum, svo sem
líknarfélagið Von, Sjúkrastöðina
Von, Von Veritas og Von behandling.
Gylfi segist hafa gert fiármálaráð-
herra grein fyrir viðskiptum sínum
við þá aöila sem reka meðferðarstöð-
ina fyrir tveimur árum þegar ríkið
var að hugleiða að kaupa Fitjar til
að reka unglingaheimili þar. Einnig
segist hann hafa rætt við flestalla þá
alþingismenn sem sitja í fiárhags- og
viðskiptanefndum efri og neðri deild-
ar vegna þess 20 milljóna króna
styrks sem lánsfiárlög heimila til
starfseminnar að Fitjum. Tilgangur-
inn hafi verið að vara stjómvöld við
þeim aðilum sem eiga og reka stöð-
ina.
Að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar
hefur enn engin ákvörðun verið tek-
in um hvort heimildin í lánsfiárlög-
um verði notuð. Hann segist hafa
fengið ábendingar frá Gylfa og fleir-
um um að sitthvað sé við rekstur
fyrirtækisins að athuga. „Ég mun því
láta kanna mjög rækilega hvemig
Áfengismeðferðarstöðin að Fitjum er rekin af Meðferð hf. sem aftur leigir
húsnæðið dýrum dómum af öðru fyrirtæki. Það fyrirtæki er í eigu sömu
aðila og eiga Meðferð. DV-mynd GVA
Gylfi Guðmundsson og Guðrún Skarphéðinsdóttir fyrir utan fyrrum húseign
sina að Bárugötu 11. Þau seldu húsið fyrir nokkrum árum til Vonar hf. en
töpuðu hátt í 10 milljónum á þeim viðskiptum eftir að fyrirtækið fór á haus-
inn. Eftir gjaldþrot Vonar stofnuðu sömu aðilar fyrirtækið Meðferð hf. sem
nýverið fékk vilyrði fyrir 20 milljón króna styrk úr ríkissjóði. DV-mynd GVA
Guðnason, Bjami Steingrímsson og
Skúii Thoroddsen. Aðspurður vildi
hann hins vegar ekki gefa upp leigu-
verðið. Sagði hann það ófrágengið
mál. Samkvæmt heimildum DV er
leigan hins vegar mjög há og á hvað
stærstan þátt í þeim rekstrarerfið-
leikum sem Meðferð hf. á í þessa
dagana.
-kaa
Bónorð Ingibjargar
Kvennalistinn á sér sérstæöan feril
í pólitíkinni. Safnaði liði fyrir
nokkrum ámm síðan og sló strax
í gegn. Hélt velli í næstu kosning-
um þar á eftir. Þær gengu hnar-
reistar um sah Alþingis og litu ekki
við körlunum. Neituðu stjómar-
þátttöku aftur og aftur og vom
stórar upp á sig. Hinar hagsýnu
húsmæður voru mættar til leiks í
stjómmálunum og létu ekki karl-
rembumar leika á sig. Litu ekki
við þeim og skiptu síðan fulltrúum
sínum og þingmönnum út eftir be-
hag á miðjum kjörtímabilum og
stunduðu eintal og vandlætingu
eins og þokkadísir í prímadonnu-
leik. Það vantaði að vísu stundum
nokkuð upp á aö þokkinn væri í
samræmi við framkomuna en
dijúgur skammtur af þótta bætti
það upp.
En svo fór að fiara undan þeim,
blessuðum. Kjósendum leiddist að
kjósá lista sem ekki hafði áhuga á
að taka þátt í ríkisstjómum. Kjós-
endur nenntu ekki að greiða
Kvennalistanum atkvæði sitt, þeg-
ar ekkert lá fyrir um það hvort
þingkonan sem var í framboði
mundi endast út kjörtímabilið. Það
gengur ekki til lengdar aö vera
stikkfrí í pólitíkinni. Það er eins á
þeim vettvangi eins og annars stað-
ar, aö daman sem aldrei segir já,
þegar henni er boðið upp, endar
með því að fara ein heim af ball-
inu. Menn hætta að bjóða henni
upp.
Kosningamar um helgina vom
áfall fyrir Kvennalistann. Fylgið
fór minnkandi og stemningin var
horfin. Þar mættu einar til dans-
leiksins og fiörið fiaraði út. Karl-
arnir hættir að líta við þeim. Þær
voru farnar að pipra úti í homi og
sáu fram á dapra daga og ein-
manalegt ævikvöld.
Nú voru góð ráð dýr og nú var
það kvenfólkið sem sneri við blað-
inu. Ingibjörg Sólrún mætti í sjón-
varpssal með öllum körlunum og
lagði fram bónorð. Bara si sona.
Hver er til í tuskið spurði hin hag-
sýna húsmóðir. Hver vill slá til?
Kvennahstinn er sem sagt hættur
að spila sóló og nennir ekki lengur
að halda sig viö þá gamaldags
stefnu að taka mið af stefnumálum
sínum. Nú er Kvennalistinn falur
fyrir hæstbjóðanda.
Þetta eru auövitaö meiri háttar
tíðindi enda var körlunum í hinum
flokkunum svo ilhlega bmgðið að
þeir urðu kjaftstopp af undrun.
Þama lá kvenmaöurinn flatur fyrir
fótum þeirra og gaf nánast allt upp
á bátinn, bara ef einhver þeirra
vildi vera svo góður að leyfa kven-
fólkinu að vera með. Hvað með ál-
verið, spurði Jón Baldvin. Álverið
skiptir ekki máli svaraði Ingibjörg
Sólrún að bragði. Kvennalistinn,
nennir ekki lengur að vera á móti
málum ef aðrir eru með þeim.
Kvennalistinn vill vera eins og hin-
ir stjómmálaflokkamir og leggur
stefnumáhn til hliðar þegar kosn-
ingum er lokið. Það hefur hvort
sem er aldrei tíðkast í íslenskri
pólitík að frambjóðendur standi
fast á kosningamálum sínum þegar
kosningum er lokið. Kosningamál
eru höfð til málamynda í kosning-
abaráttu en það gerir enginn neitt
með þau eftir kosningar. Hvers-
vegna ætti Kvennalistinn líka að
eltast við svoleiðis tittlingaskít,
þegar karlarnir bíða í röðum eftir
að bjóða þeim upp?
Þetta era auðvitað söguleg tíð-
indi, enda ekki á hverjum degi sem
kvenmenn leggja fram bónorð í
beinum útsendingum. Hin hagsýna
húsmóðir er mætt til leiks og_ ætlar
nú að tileinka sér vinnubrögð karl-
anna af meiri þrótti en karlamir
eru sjálfir færir um. Því verður
varla trúað að ahir þeir kvenna-
menn sem nú sifia í ríkisstjórninni
láti það spyrjast aö þeir hafni bón-
orði Ingibjargar og hinnar hagsýnu
húsmóður. Þar að auki verður ólíkt
skemmtilegra á ráðherrafundum
þegar Jóhanna Sigurðardóttir
verður ekki lengur ein um yndis-
þokkann.
Verst er þó með Davíð, að hann
skuli ekki fá að vera með. Hann
fékk ekkert bónorð, nema þá frá
Jóni Baldvin. En Jón Baldvin er
ekki hagsýn húsmóðir og þykist
enn vera að semja um stefnumál
og þar að auki sigraði Davíð í þess-
um kosningum og það tíðkast ekki
á íslandi að hampa sigurveguram.
Batnandi konum er best að lifa.
Hornkerling vil ég ekki vera, sagði
Bergþóra og piparkerhngar viljum
við ekki vera segia kvennalistakon-
ur og eru nú sem sagt lagstar flatar
til aö komast í sfiórn.
Dagfari