Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
9
Utlönd
Ástand ótryggt 1 Norður-írak þrátt fyrir nærveru herliðs bandamanna:
Irakar f ara vopnaðir
um byqgðir Kúrda
- James Baker reynlr í dag að fá Sýrlendinga á friðarráðstefnu
Hermenn íraka og Bandaríkjamanna hafa hist i Norður-írak siðustu daga. írakar hafa heitið þvi að kalla alla
hermenn sína af svæðinu þar sem Bandarikjamenn ætla Kúrdum að hafast við. Kúrdar óttast þó enn að írakar láti
til SÍn taka. Simamynd Reuter
Mikill uggur er í Kúrdum á svæð-
inu þar sem bandamenn hafa komið
upp griðlandi fyrir þá vegna þess að
hermenn stjórnarinnar í Bagdad fara
enn vopnaðir um svæðið. Samningar
höfðu tekist milli Bandaríkjamanna
og hershöfðingja íraka um að írakar
kölluðu alla hermenn sína frá hyggð-
um Kúrda til að tryggja öryggi á
svæðinu.
Til dæmis hefur sést til hermann-
anna í bænum Zakho þar sem Kúrd-
ar voru fjölmcnnir áður en þar hafa
allir íbúarnir flúið af ótta við endur-
tekin hryðjuverk hersins. Þrátt fyrir
að leiðtogar Kúrda reyni að ná samn-
ingum við Saddam Hussein í Bagdad
þá er tortryggni mikil og af langri
reynslu treysta Kúrdar írökum ekki
til að standa við gerða samninga.
Yfirmaður Bandaríkjahers í Norð-
ur-írak segir að tvær herdeildir íraka
haíi yfirgefið svæðið. Á sama tíma
bættust herdeildir frá Bandaríkjaher
í hóp þeirra sem fyrir voru við bygg-
ingu flóttamannahúða fyrir Kúrda
innan landamæra íraks.
í Bagdad hafa fengist þær skýring-
ar á nærveru írösku hermannanna
að þeir séu lögreglumenn frá borg-
inni Mosul nokkru fyrir sunnan grið-
landið. Kúrdar trúa þó ekki þessum
orðum og segja að hermennirnir séu
úr sérsveitum írakshers og sé ætlað
að halda uppi njósnum meðal Kúrda.
Leiðtogar sex ríkja við Persaflóa
hafa komið sér saman um að mynda
sjóð til að stuðla að öryggi í löndum
araba. Sjóðnum, sem í er mikið fé,
er ætlað að gera ríkjunum kleift að
bregðast skjótt við ef neyðarástand
skapast í Mið-Austurlöndum. Hvergi
er þó nefnt að fé úr sjónum megi
nota til styðja þjóðir eins og Kúrda
ef neyðarástnd skapast.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gerir sér enn vonir
um að koma á friðarráðstefnu fyrir
Mið-Austurlönd þar sem tekið verði
á helstu ágreiningsmálum þar. Hann
verður í Sýrlandi í dag þar sem hann
ræðir við Assad forseta.
Sýrlendingar hafa verið mótfallnir
hugmyndum Bakers um svæðis-
bundna ráðstefnu og vilja helst að
hún verði haldin á vegum Samein-
uðu þjóðanna. ísraelsmenn geta ekki
fallist á hugmyndir Sýrlendinga þótt
þeir segist nú tilbúnir að ræða við
fulltrúa Palestínumanna. Takist
Baker ekki að sætta þessi sjónarmið
er borin von að nokkur árangur
verði af friðarumleitunum hans allt
frá því Persaflóastríðinu lauk.
Reuter
Pavlov, forsætisráðherra Sovétrikjanna:
Hótar að láta her 09 lög-
reglu skakka leikinn
Nixon heim-
sækirBush
Richard Nixon, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, tók hús á George
Bush, núverandi forseta, i gær.
Nixon sneri aftur til fyrri heim-
kynna til aö ræða nýafstaðna ferð
sína til Sovétríkjanna þar sem
hann hitti meðal annars Mikael
Gorbatsjov að máh.
Nixon ræðir stjórnmál af og til
við George Bush í síma en nú
mætti hann í Hvíta húsið í eigin
persónu og ræddi máhn i félags-
skap Bush og nánustu samstarfs-
manna hans.
Nixon er eini forseti Bandaríkj-
anna sem hefur neyðst til að segja
af sér embætti, 1974. Hann hefur
hins vegar oftsinnis komið í Hvita
húsið síðan, þar á meðal 1989 þeg-
ar hann ræddi þá nýafstaðna ferð
sína til Kína.
Stórfé lagt í
nýjaherþotu
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur ákveðið að leggja
stórfé til kaupa á nýrri gerð af
herþotum sem leysi nýverandi
þotur af hólmi. Þegar er búið að
hann tvær shkar þotur en eftir
að skera úr um hvor þeirra verð-
ur fyrir valinu.
Kout<;r
Valentin Pavlov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, hótar verkfallsmönn-
um í landinu hörðu ef þeir taka ekki
upp vinnu á nýjan leik. Verkfollin,
sem hófust í námubæjum í Úralfjöll-
um fyrir nærri tveimur mánuðum,
breiðast ört út og nú hggur fyrir að
verkamenn í Hvíta-Rússlandi ætla
að leggja niður vinnu.
Mikhail Gorbatsjov forseti hefur
lagt fram neyðaráætlun til að koma
í veg fyrir að allt atvinnuhf í landinu
lamist vegna verkfallanna. Þegar er
skortur á kolum orðinn tilfmnanleg-
ur og bætist við vöruskortinn sem
hrjáð hefur íbúa Sovétríkjanna í all-
an vetur.
Pavlov hvatti í gær félaga í Æðsta
ráðinu til að styðja áætlun forsetans
og sagði að hún væri síðasta vonin
til að komast hjá algeru öngþveiti í
landinu. Þá sagði hann að tómt mál
væri að tala um markaðsbúskap ef
allt hagkerflð væri lamað í verkfoll-
um.
Meðal þess sem gert er ráð fyrir
að stjórnin grípi til er að afmarka
sérstök neyðarsvæði þar sem ástand-
ið er verst. Þar ætlar stjórnin sér að
beita her og lögreglu til að brjóta á
bak aftur andstöðu verkfallsmanna.
Pavlov talaði sérstaklega um að
láta sveitir frá innanríkisráðuneyt-
inu sjá um að halda samgönguleiðum
opnum. Þessar sömu sveitir voru
notaðar til að berja niður andstöðu
i Eystrasaltsríkjunum fyrr í vetur.
Reuter
Sovéskum þungaiðnaði er nú þannig lýst að hann sé kominn í fullkomnar
ógöngur. Teikning Lurie
01
MEÐAL EFNIS:
íslensk hjón
lýsa viðureign
sinni við
ÆRSLA-
DRAUG
Ef þú hyggur ó
háskólanóm
skaltu lesa
nýjustu Vikuna
VIKAN Á SLÓÐUM
SIOUX-INDÍÁNA
- þar sem myndin
Dansar við úlfa
á sér stað
STEPHEN KING
sem nefndur hefur verið
meistari hroilvekjunnar er
höfundur framhaldssögu
Vikunnar, Dead Zone.
FEGURÐAR-
SAMKEPPNIN
Lokakynning Vikunnar
á þátttakendunum, sem
nú birtast á sundbolum.
ATHUGID:
Þau leiðu mistök áttu
sér stað að myndir víxluðust af
þeim Selmu Unnsteinsdóttur og
Selmu Stefánsdóttur.
ÁSKRIFTARSÍMI
83122