Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
17
ila í gærkvöldi. ísland hafi mikla yfirburði
DV-mynd Brynjar Gauti
menn
Irun
í gærkvöldi
stiga forskoti en á lokakaflanum löguðu
Austurríksmenn aðeins stöðuna.
íslenska liðið var nokkuð jafnt í þess-
um leik en þó bar mest á Val Ingimund-
arsyni sem sýndi stundum sínar bestu
hliðar. Páll Kolbeinsson skapaði oft usla
með hraða sínum og tækni.
• Stig íslands: Valur Ingimundarson
17, Sigurður Ingimundarson 16, Falur
Harðarson 15, Guðni Guðnason 9, Krist-
inn Einarsson 7, Albert Óskarsson 7, Jón
Kr. Gíslason 6, Guðjón Skúlason 6,
Magnús Matthíasson 6, Páll Kolbeinsson
4, Axel Nikulásson 3.
• Jón Otti Ólafsson og Bergur Stein-
grímsson dæmdu leikinn og hafa oft
áður staðið sig betur.
• Gangur leiksins: 2-0,2-2,10-4,18-8,
22-16, 28-16,(51-36)71-40, 82-5297-72.
• Þriðji leikur þjóðanna verður í
Grindavík í kvöld og hefst viðureign-
in klukkan 20. -JKS
• Július Jónasson.
Sigurður til
Þýskalands
- leikur með Grosswaldstadt næstu tvö árin
„Ég er sáttur viö minn hlut í samn-
ingsuppkastinu. Þetta er spennandi
verkefni sem verður gaman að takast
á við,“ sagði Sigurður Bjarnason,
landsliðsmaður úr Stjömunni, í sam-
tali við DV í gærkvöldi. Sigurður
skrifar í vikunni undir tveggja ára
samning við þýska handknattleiks-
Uðið Grosswaldstadt og leika því
tveir íslendingar í þýsku úrvals-
deildinni næsta vetur en auk Sigurð-
ar leikur Héðinn Gilsson með
Dússeldorf sem vann sæti í úrvals-
deildinni fyrir skemmstu.
Sigurður sagði í samtali við DV að
HSÍ og þýska félagið ættu eftir að
semja um að sambandið fái mig
lausan í þau verkefni sem bíða lands-
liðsins á næsta vetri og væri B-
keppnin inni í því dæmi. Sigurðar
taldi öruggt að þetta myndi ekki
standa í veginum fyrir því að skrifað
yrði undir samning síðar í vikunni.
Sigurður ætlar að líta á aðstæður í
byrjun maí en fer síðan alfarinn út
í ágústbyrjun.
Menn frá Grosswaldstadt komu
hingaö til lands um helgina til samn-
ingsgerðar en þeir hafa um langt
skeið fylgst með Sigurði. Þýska liðið
átti erfitt uppdráttar í deildinni í vet-
ur en það hefur verið í hópi bestu
liðaÞýskalandsumárabil. -JKS
KA endanlega úr f allhættu
- eftir sigur á Selfyssingum 1 gærkvöldi, 25-18
KA tryggði sér endanlega áfram- haldandi sæti í 1. deildinni i hand- knattleik í gærkvöldi með því að sigra Selfyssinga, 25-18, á Akureyri. Selfoss var yfir í hálfleik, 10-12, en KA komst í 20-14 og þar með var sig- urinn í höfn. Selfyssingar em því enn í fallhættu en þeir eiga aðeins eftir að mæta ÍR á heimavehi á fóstudags- kvöldið. Mörk KA: Guðmundur Guðmunds- son 5, Sigurpáh Aðalsteinsson 5/1, Pétur Bjamason 4, Erhngur Kristj- ánsson 4, Hans Guðmundsson 4/1, Andrés Magnússon 3. Mörk Selfoss: Gústaf Bjamason 6/2, Sigurjón Bjarnason 4, Stefán HaU- dórsson 4, Einar Guðmundsson 4. Staðan í fallkeppninni er þessi: KA 9 5 1 3 222490 13 Selfoss 9 5 0 4 203-203 10 Grótta 8 4 1 3 190-195 10 Fram 8 4 2 2 174474 10 KR 8 1 1 6 172-192 7 ÍR 8 3 1 4 178-185 7 -GK/VS
Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu: Islendmgar i riðli i* teð
Skotum ísland leikur í riðli með Englandi og Skotlandi í Evrópukeppni og Engler „Rennum blint í sjóinn“ „Við rennum bhnt í sjóinn í þess- tdn Ekkihefu ingumviðS igum r verið gengið frá samn- igurð og Stein um hvort
kvenna í knattspyrnu en dregið var ari keppni og vitum mjög lítið um þeir stýri landshðinu í Evrópu-
í riðla fyrir keppnina í gær. Þetta er í annað sinn sem ísland tekur styrkleíka mótherjanna. Enska hð- ið ætti þó að vera mjög öflugt, Eng- keppninni. ræða þau n „Það er alveg eftir að íál, þau voru látin bíða
þátt í keppninni en áður var það árin 1982 1983. lendingar hafa komist í undanúr- slit í E\TÓpukeppni og ég hef heyrt 1,B is yrði um mótherjana í sagði Sigurður.
„Þetta verður erfitt en þó finnst að lið þeirra sé líkamlega mjög sterkt. Fyrsti landsleikur íslands Island hefur ekki leikið A-lands- leik kvenna í fjögur ár eða síðan
mér það skemmtilegra en aö lenda var gegn Skotlandi árið 1981 og leiknir von i tveir leikir við Vestur-
á móti liðum frá Skandinavíu,“ hann tapaðist naumlega, 3-2, og Þjóðverja y tra í september 1987.
sagði Sigurður Hannesson sem hef- ur þjálfað landshðsstúlkurnar ásamt Steini Helgasym. líklega eigum við meiri möguleika gegn skoska höinu en því enska,“ sagði Sigurður. -VS
Hlynur valinn í stað
Sigurðar fyrir Möltuf erðina
Bo Johansson, landsliðsþjálfari ís-
lands í knattspyrnu, valdi í gær 16
manna hóp fyrir landsleik gegn
Möltu í Valletta sem fram fer þann
7. maí. í honum eru níu leikmenn
sem spila gegn Englandi og Wales 27.
apríl og 1. maí en sjö öðrum er bætt
við.
Hópurinn er þannig skipaður:
Bjarni Sigurðsson, Val..........37
Ólafur Gottskálksson, KR........ 0
AtliEðvaldsson, KR..............64
Kristján Jónsson, Fram..........14
Guðni Bergsson, Tottenham.......35
Ólafur Kristjánsson, FH......... 1
Kristján Halldórsson, ÍR........ 0
EinarPállTómasson.Val........... 1
Rúnar Kristinsson, KR...........16
Hlynur Stefánsson, ÍBV.......... 0
Haraldurlngólfsson.ÍA........... 1
Þorvaldur Örlygsson, Nott. For..12
Ragnar Margeirsson, KR..........43
Grétar Einarsson, Víði.......... 0
Kjartan Einarsson, ÍBK.......... 2
Ríkharður Daðason, Fram..........0
Þeir sem fara til Bretlands en ekki
Möltu eru: Sævar Jónsson, Gunnar
Gíslason, Ólafur Þórðarson, Sigurð-
ur Grétarsson, Arnór Guðjohnsen,
Eyjólfur Sverrisson og Antony Karl
Gregory. í staö þeirra koma Ólafur
K., Kristján H., Einar Páll, Haraldur,
Grétar, Kjartan og Ríkharður.
Þeir Kristján Halldórsson, Grétar
Einarsson og Ríkharður Daðason
gætu allir leikið sína fyrstu lands-
leiki á Möltu. Ólafur Gottskálksson
og Hlynur Stefánsson gætu spilað
sinn fyrsta 'leik gegn Englandi eða
Wales. Hlynur var vahnn í þann hóp
í gær í stað Sigurðar Jónssonar sem
er meiddur.
Jafnar Atli
metið á Möltu?
Atli Eðvaldsson landshösfyrirliði
gæti jafnað landsleikjamet Marteins
Geirssonar þegar ísland mætir
Möltu. Marteinn lék 67 landsleiki en
Atli er kominn með 64 og jafnar
metið ef hann spilar alla þrjá leikina
sem framundan eru. - VS
ÍBR _______________________ KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
VÍKINGUR-KR
í kvöld kl. 20.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
íþróttir
Sport-
stúfar
Víðavangslúaup Hafn-
arfjarðar verður háð á
sumardaginn fyrsta,
25. apríl. Hlaupið hefst
klukkan 13 og verður í fyrsta
skiptið haldið í hjarta bæjarins.
Hlaupið verður frá Ráð'húsi
Hafnarfjarðar, nánar tiltekið á
Strandgötunni. Undanfarin ár
hafa mörg hundruð krakkar og
fuhorðnir tekið þátt í hlaupinu.
Farandbikarar eru veittir í öhum
fiokkum og er gefandi þeirra
Hafnarfjarðarkaupstaður.
Leifur Garðarsson
leikurmeðlK
Leifur Garðarsson úr
FH er genginn til liðs
við ÍK úr Kópavogi og
leikui' með félaginu í
3. deildinni í knattspyrnu í sum-
ar. Leifur er 22 ára gamall og
hefur leikið 21 leik í 1. deild með
FH og Þór. ÍK hefur einnig fengið
Helga Hilmarsson, markvörö úr
Fylki.
Meisfarakeppni KSÍ
Fram og Valur
Fram og Valur leika í meistara-
keppni KSÍ á gervigrasveUmum
í Laugardal annað kvöld kl. 19.
Þetta eru liðin sem urðu íslands-
og bikarmeistarar á síðasta
keppnistímabili. Að leik loknum
mun Eggert Magnússon, formað-
ur KSÍ, ávarpa hðin og afhenda
verðlaun.
Skotar án sterkra
sóknarmanna
Skotar leika gegn San Marino í
undankeppni Evrópukeppninnar
í knattspymu í Glasgow 1. maí.
Nú er orðið er ljóst að Skotar
verða án tveggja sterkra sóknar-
manna Ahy McCoist og Mo Jo-
hnston en þeir leika báðir með
Glasgow Rangers. Johnston hafði
fyrir nokkru gefiö kost á sér að
nýju í landshðið en eftir heims-
meistarakeppnina á Ítalíu sinn-
aðist honum við þjálfara lands-
liðsins.
Ármann vann Leikni
Ármann sigraði Leikni, 1-0, í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu í gærkvöldi, Þetta vom
fyrstu stig Ármenninga en staðan
í mótinu er þessi:
A-riðill:
KR.........3 2 0 1 10-3 6
Þróttur....3 2 1 0 9-4 6
Víkingur...2 110 4-2 3
Ármann.....3 1 0 2 442 2
Leiknit-...3 0 0 3 0-6 0
B-riðill:
Valur......3 3 0 0 5-0 7
ÍR.........2 10 13-2 3
Fram.......3 1 0 2 4-6 3
Fylkir.....2 0 0 2 04 0
Valsmenn hafa tryggt sér sæti í
undanúi-slitum og ÍR-ingar kom-
ast þangað þó þeir tapi með Fylki
með tveimur mörkum, annars fer
Fylkir áfram. KR, Þróttur og Vík-
ingur berjast um sætin tvö í A-
riðli.
HM í íshokkí
i Finnlandí
Heimsmeistarakeppnin í íshokkí
stendur nú yfir í Finnlandi. í gær
sigraði Kanada hð Þýskalands,
3-2, í Turku. Gestgjafarnir biðu
lægri hlut fyrir Sovétmönnum í
Helsinki, 3-0.
Grindavík og
varnarliðið unnu
Ægir Már Kárasort, DV, Suðumesjum:
Fyrstu leikirnir í
körfúknattleiksmóti
varnarhðsins á Kefla-
víkurflugvelh fóru
fram í gærkvöldi. Grindavík
vann Njarðvík, 90-87, og vamar-
liðið sigraði Val, 99-76. Auk þess-
ara hða keppa Kefiavík, Haukar,
KR og ÍR á mótinu, sem heldur
áfram í kvöld. Lið sem tapar
tveimur leikjumfeUur úr keppni.