Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
Iþróttir
Sundfélagið Ægir heimsótt:
„Richard er
frábær
þjálfari“
SÁ dögunum fór fram í
Sundhöll Reykjavlkur hiö
árlega unglingasundmót
Ægis. Mótiö var mjög fjöl-
mennt því þátttakendur voru hátt í
200. Góöur árangur náðist í flestum
greinum.
Það sem vakti þó mesta athygli á
þessu sundmóti var frammistaða
krakkanna úr Sundfélaginu Ægir.
Félagið tefldi einnig fram langflest-
um þátttakendum og sigruðu Ægi-
skrakkarnir svo til í öllum sund-
greinunum. Sama varð reyndar upp
á teningnum á Arena unglingasund-
móti KR-inga á dögunum.
Ljóst er að eitthvað er að gerast hjá
Ægir, varöandi þjálfun og uppbygg-
ingu, sem vert væri að fræðast um.
DV brá sér því á æfingu hjá Ægir í
Laugardalslaug sl. miðvikudág, til
Umsjón:
Halldór Halldórsson
að kynna sér ástæðuna fyrir hinni
miklu velgengni yngra sundfólks fé-
lagsins að undanfómu.
„Ánægður með árangurinn“
Áðalþjálfari hjá Ægi er Þjóðveijinn
Richard Kursch. Hann kom hingað
til lands 1989 og þjálfar einnig A-
landslið íslands.
„Mig langaði til að reyna eitthvað
nýtt og fór því og leit á auglýsingar
hjá þýska sundsambandinu. Þannig
atvikaðist það að ég kom til íslands.
Ég er mjög ánægður með hinn mikla
áhuga og góða árangur sem sundfólk
Ægis hefur náð síðan ég kom. Ég
starfa eftir æfingakerfi sem ég hef
komið mér upp og byggist þaö á því,
í grundvallaratriðum, að kenna þeim
yngstu en þjálfa þá eldri.“
Níu Islandsmet
„Krakkamir hafa að mínum dómi
tekið miklum framfómm. Því til
sönnunar má geta þess að þau hafa
sett alls 9 íslandsmet, bæði í unglinga
og eldra flokki. Flestum krökkunum
líkar vel æfmgamar hjá mér - en ég
hef það alltaf fyrir sið að setja aldrei
pressu á þau í sambandi við árangur
eða æfingasókn. Það er algerlega á
þeirra valdi hvort þau mæta eða
ekki. Ég kvarta ekki því fjöldi þeirra
sem æfa hjá Ægi er 140 manns, frá
3ja ára til 21 árs. Tvær stúlkur hafa
til dæmis sett íslandsmet, þær Arna
Sveinbjörnsdóttir, 16 ára, í 100 m
flugsundi, 1,06.65 og 200 m flugsundi.
2.23.00 mín. og Ingibjörg Amardóttir,
18 ára í 400 og 800 m skriðsundi,
2.23.00 og 9.01.00.
Samningur minn við Ægir og
Sundsamband íslands rennur út eftir
ólympíuleikana í Barcelona 1992.
Mér hkar dvölin hér á íslandi mjög
vel og gæti vel hugsað mér að starfa
hér sem sundþjálfari eitthvað leng-
ur,“ sagði Richi að lokum.
„Æfum 7 sinnum í viku“
Sara Björg Sigurðardóttir er 14 ára
og hefur æft sl. 5 ár hjá Ægir.
„Mér fmnst mjög gaman að synda
og æfum við 7 sinnum í viku - tvi-
svar á laugardögum. Ég ætla mér að
ná langt í íþróttinni og legg mig því
alla fram. Uppáhaldsgreinar mínar
núna eru skriðsund og baksund.
Annars eru allar sundgreinamar
Mjög skemmtilegar. Þjálfarinn okk-
ar, hann Richi er alveg frábær og em
æfmgarnar hjá honum mjög
skemmtilegar og um leið uppbyggj-
andi.
Þaö eina sem vantar hjá okkur,
þessa stundina, er 50 metra inni-
sundlaug, með 8-10 brautum. Hún
verður að koma til þess að viö getum
• Richard Kursch, þjálfari Ægis leggur hinu unga sundfólki reglurnar fyrir æfinguna. Þetta er bara lítill hluti af
þeim mikla fjölda sem voru á æfingunni. DV-mynd Hson
tekið enn meiri framfórum - og að
mögulegt sé að halda hér alþjóðleg
mót.
Ég stunda ekki aðrar.íþróttir en
sund, fer þó svolítið á skíði á vet-
urna. Annars tekur sundið og skól-
inn allan tíman," sagöi hin áhugas-
ama Sara Björg. Sara sagði einnig
að hinar tíðu æflngar og hinn mikli
tími sem sundið tæki truflaði ekkert
hennar skólagöngu, þvert á móti yki
það námsþrekið.
„Richi erfrábær"
Svavar Svavarsson er 13 ára og hefur
æft sund hjá Ægi í mörg ár.
„Mér finnst mjög gaman að keppa.
En keppnin er bara einn þátturinn
af mörgum í þessu sambandi, það er
til að mynda einnig mikilvægt að
vera reglusamur, mæta vel á æfingar
og að einbeitingin sé í lagi. Þetta er
nú það helsta.
Mestur timi fer eðlilega í æfmgarn-
ar og hefur Richi tekist að gera þær
mjög líflegar. Hann er með skemmti-
legar, en erfiðar æfingar - og til að
mynda fitjar hann oft upp á góðum
bröndurum inn á milh æfinga. Allt
þó innan hæfilegra marka. Þetta lífg-
ar mjög upp á æfmgatímana.
Uppáhaldsgrein mín er 100 metra
bringusund ásamt fjórsundi. Ég hef
þegar náð einu af mínum takmörk-
um, en það er íslandsmet í 100 metra
bringusundi sveina, 1.21.87 mín., sem
ég setti núna rétt fyrir jóhn. Ég legg
áherslu á margar sundgreinar og er
meiningin að reyna að bæta sig í sem
flestum greinum. Sundiö á eiginlega
allar mínar frístundir - og svo nátt-
úrlega skólinn.
Ef ég ætti að gefa öðrum krökkum
ráðleggingu þá yrði hún á þann veg
að þau reyndu að finna sér einhverja
íþróttagrein sem þeim finnst
skemmtileg og leggja stund á hana
af eijusemi, því það gefur svo mikið.
Það er mun viturlegra en aö gera
ekki neitt í frístundunum, - því þá
verður maður svo slappur.
Uppáhaldssundmaðurinn minn?
Þaö er hiklaust Eðvarö Þór Eðvarðs-
son.
Og svona í lokin er það minn
draumur og reyndar okkar allra sem
stundum sund sem keppnisíþrótt, að
hér rísi upp 50 metra innisundlaug.
Það ætti að hafa algjöran forgang,"
sagði Svavar. -Hson
• Lára, Anna Birna, Björn, Ragnar, Halldóra og Louisa, - öll úr Ægir,
undirbúa hér 10x50 metra boðsund táta. DV-mynd S
• Þaö kom sér vel að hafa sundfit
í iengri sundgreinunum. DV-mynd S
• Frá vinstri Sara Björg Sigurðardóttir, 14 ára og Svavar Svavarsson. Það
kemur fram í viðtalinu - að þau hafa sett takmarkið hátt. DV-mynd Hson
200 m fjórsund telpna: ÓmarS. Friðriksson,SH........39,44 100 m baksund drengja:
Ingibjörg Isaksen, Æ.......2.40,46 Kristinn Pálmason, Æ.........41,31 Bjarni Hafsteinsson, Æ.....1.17,86
ElínR.Sveinbjörnsd.,Æ.......2.52,72 50 m bringusund hnáta: óskarÞórðarson.Þór ........1.18,33
KristinHjartard.,Æ.........3.03,85 Lára Bjargardóttir, Æ........45,72 Þorleifur Leósson, UBK.....1.18,70
200 m íjórsund drengja: HalldóraÞorgeirsd., Æ.........46,83 400 m skriðs. meyja m/froskal.:
JóhannesÆgisson,Æ...........2.32,53 Iris R. Ægisdóttir, Æ.........53,68 Karen Guðlaugsd.,Æ...........4.59,64
BjarniHafsteinsson, Æ......2.39,94 50 m bríngUSUnd hnokka: Ama L. Þorgeirsd., Æ.........4.59,66
Svavar Svavarsson, Æ.......2.44,52 örn Amarson,SH...............54,89 Katrín Björnsdóttir, Æ.....5.00,29
50 m baksund meyja: Eyjólfur Alexanderss., SFS____55,95 400 m skriðs. sveina m/froskal.:
Erla Kristinsdóttir, Æ.......39,51 Aðalstelnn BLrgisson, KR.....56,08 GrétarM. Axeisson,Æ........4.43,88
Araa Þorgeirsdóttir, Æ.......40,46 100 m baksund telpna: Kristinn Pálmason, Æ.......5.14,60
Karen S. Guðlaugsd., Æ.......40,92 Ingibjörg ísaksen, Æ.......1.17,86 Ómar S. Friðriksson, SH...,...5.20,83
50 m baksund sveina: MargrétBjaraad.,Æ..........1.17,62 200 m skriðs. hnáta m/froskal.:
Grétar Már Axelsson, Æ.......38,86 EIínSveinbjörasd.,Æ........1.21,69 Lára H. Bjargard., Æ.......2.26,79
Halldóra Þorgeirsd., Æ....2.48,13
Anna B. Guðiaugsd., Æ.....2.56,67
200 m skriðs. hn. m/froskal.:
öra Arnarson, SH..........2.41,95
Kristján Guðnason, SH.....3.07,05
Hörður Harðarson, KR......3.14,85
Björn Ragnarsson, Æ.......3.16,57
100 m skriðsund telpna:
Ingibjörgísaksen.Æ......,,1.05,39
SaraGuðbrandsd.,Æ.........1.07,40
Eva D. Þorgeirsd., Æ......1.08,89
100 m skriðsund drengja:
Bjarni Þ. Hafsteinss., Æ..1.03,84
Kristbjörn Björnsson, Æ...1.04,72
Óskar Þórðarson, Þór......1.04,98
100 m bringusund meyja:
Karen S, Guðiaugsd., Æ....1.31,44
Arna L. Þorgeirsd., Æ.....1.32,57
Katrín E. Björnsd., Æ......1.34,09
100 m bringusund sveina:
GrétarM. Axelss.,Æ.........1.30,27
EiríkurEinarsson, Stjörnu ...1.39,15
EgiJl Gunnarsson, UMFA.....1.39,40
10x50 m ftjáls, hná/hno:
Hnátu- og hnokkasveitir tóku bara
þátt en báðar sveitir gerðu sundiö
ógilt.
10x50 m frjáls, meyjar/sveinar:
1. A-sveitÆgis...........5.53,97
2. Sveit KR,.............6.46,80
3. Sveit SH..............6.47,68
10x50 m frjáls, telp/dreng:
1. A-sveit Ægis..........5.11,58
2. SveitSH...............6.03,46
3-SveitKR..................6.17,90