Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991.
AfmæH
Helgi Jóhannsson
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
Kleifarseli 49, Reykjavík, er fertug-
urídag.
Starfsferill
Helgi fæddist í Keflavík og ólst þar
upp í foreldrahúsum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH1971 og prófi
í viðskiptafræði við HÍ1977.
Á námsárunum stundaði Helgi
sumarstörf hjá Flugfélagi íslands og
síðan Flugleiðum við afgreiðslu á
Keflavíkurflugvelli. Að loknu stúd-
entsprófi kenndi hann einn vetur
við Gagnfræðaskóla Keflavíkur en
að háskólanáminu loknu var hann
deildarstjóri viðskiptabrautar Fjöl-
brautaskóla Suðumesja í tvo vetur
auk þess sem hann starfaði við
skipulagningu viðskiptabrauta í
framhaldsskólum á vegum mennta-
málaráðuneytisins.
Helgi hóf störf hjá Samvinnuferð-
um 1979 og var þá deildarstjóri fyrir
innanlandsferðir. Hann varð jafn-
framt sölustjóri 1982 en hefur verið
framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá
1984.
Helgi hefur setið í stjóm Félags
íslenskra ferðaskrifstofa um árabil
og er nú formaður þess. Hann æfði
íþróttir af miklu kappi á unglingsár-
unum, keppti í knattspyrnu og
handbolta með Keflvíkingum í öll-
um aldursflokkum og meistara-
flokki. Hann er mikill áhugamaður
um bridge, hefur tvisvar orðið ís-
landsmeistari í sveitakeppni með
liöi sínu hjá Samvinnuferðum-
Landsýn og er forseti Bridgesam-
bandsins frá 1990. Þá hefur hann
starfað mikið með Átthagafélaginu.
Fjölskylda
Kona Helga er Hjördís Margrét
Bjarnason, f. 31.5.1952, meinatækn-
ir, dóttir Nicolai Bjarnason skrif-
stofumanns ogÁstu Gissurardóttur
húsmóður.
' Helgi og Hjördís eiga þrjá syni.
Þeir em Gunnar Fjalar, f. 28.3.1971;
Óttar Öm, f. 17.6.1978, og Hallur
Már, f. 9.6.1980.
Systkini Helga eru Pétur, f. 23.5.
1948, framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, kvæntur Sigrúnu Jónatans-
dóttur; Guðrún Rósalind, f. 11.3.
1950, verkakona í Keflavík; Sóley, f.
5.9.1956, eigandi Dansstúdíós Sól-
eyjar, og Jóhann, f. 30.9.1969, (kjör-
bróðir).
Foreldrar Helga: Jóhann Péturs-
son, f. 28.4.1921, símstjóri á Kefla-
víkurflugvelli, og kona hans, Kristr-
ún Helgadóttir, f. 14.9.1923, verslun-
armaður.
Ætt
Meðal systkina Jóhanns er Ingólf-
ur, hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Jó-
hann er sonur Péturs Vilhelm, um-
sjónarmanns frá Áreyjum, Jó-
hannssonar, b. í Áreyjum, Péturs-
sonar. Móðir Péturs Vilhelms var
Jóhanna Indriöadóttir, hreppsstjóra
á Reyðarfirði, Ásmundssonar, b. á
Hallbjarnarstöðum í Skriðdal, Ind-
riðasonar, bróður Ólafs, prófasts á
Kolfreyjustað, fóður Páls skálds og
Jóns ritstjóra. Móðir Jóhanns sím-
stjóra var Sóley Sölvadóttir, bóksala
í Reykjavik, Jónssonar.
Kristrún er systir Áma Helgason-
ar, fyrrv. stöðvarstjóra í Stykkis-
hólmi. Kristrún er dóttir Helga,
kaupmanns á Eskifirði, bróður Elín-
borgar, móður Helga Seljan og
ömmu Davíðs Baldurssonar, prests
á Eskifirði. Helgi var einnig bróðir
Guðrúnar, ömmu Harðar Zophan-
íassonar, skólastjóra í Hafnarfirði.
Helgi var sonur Þorláks, b. á Kára-
stöðum í Austur-Húnavatnssýslu,
Oddssonar, b. í Oddskoti í Reykja-
vík, Oddssonar. Móðir Helga var
Ingigerður Helgadóttir, b. á Svína-
vatni, Benediktssonar, og konu
hans, Jóhönnu ljósmóður Stein-
grímsdóttur, b. á Brúsastöðum,
bróður Steinunnar, ömmu Bjarna,
afa Ólafs Ólafssonar landlæknis og
Jónasar Rafnar, fyrrv. bankastjóra.
Steingrímur var sonur Páls, prests
Helgi Jóhannsson.
á Undirfelli, Bjarnasonar. Móðir
Páls var Steinunn Pálsdóttir, systir
Bjarna landlæknis.
Móðir Kristrúnar var Vilborg,
systir Friðriks, fóður Helga Seljan.
Vilborg var dóttir Árna, útgerðar-
manns á Eskifiröi, Halldórssonar,
b. á Högnastöðum í Helgustaða-
hreppi, Ámasonar. Móðir Vilborgar
var Guðný Sigurðardóttir, b. á
Tunguhaga á Völlum, Péturssonar.
Helgi tekur á móti gestum í ASÍ-
salnum á morgun milli klukkan 18
og 21.00.
Rannveig Hulda Ólafsdóttir
Rannveig Hulda Ólafsdóttir.
Rannveig Hulda Ólafsdóttir bók-
sali, Hólavegi 3, Reykjadal, er sextug
ídag.
Starfsferill
Rannveig fæddist á Patreksfirði
og ólst þar upp. Hún var við nám í
Héraðsskólanum á Laugum 1947-
1948 og í Húsmæðraskólanum á
Laugum 1950-1951.
Rannveig hefur rekið bókaverslun
á Laugum frá árinu 1964 og verið
umboðsmaður bæði happdrættis
Háskóla íslands og happdrættis
SÍBS.
Einnig hefur Rannveig um árabil
verið umboðsmaður Brunabótafé-
lagsIslandsogDV.
Hún hefur starfað aö ýmsum fé-
lagsmálum, er t.d. félagi í Ung-
mennafélaginu Eflingu og Kvenfé-
lagi Reykdæla, og verið í stjóm
þeirra um árabil. Einnig hefur hún
veriö í stjóm hlutafélagsins Iðn-
bæjar frá stofnun þess árið 1979.
Fjölskylda
Rannveig giftist 4.5.1952 Arngrími
Konráðssyni, f. 21.8.1929, húsgagna-
smið. Hann er sonur Konráðs Er-
lendssonar, f. 11.1.1885, kennara við
Laugaskóla, og Helgu Arngríms-
dóttur, f. 22.11.1890, húsmóður.
Rannveig og Arngrímur eiga tvö
böm, þau eru: Helga, f. 14.7.1953,
nemi í rekstrarhagfræði við Sam-
vinnuháskólann á Bifröst, gift Frið-
bimi Níelssyni, rekstrarfræðinema
á sama stað, frá Siglufirði. Böm
þeirra eru Rannveig Björk, f. 11.10.
1976, og Níels, f. 18.1.1984; og Ólaf-
ur, f. 10.5.1957, skólastjóri Litlu-
Laugaskóla í Reykjadal, kvæntur
Torfhildi Sigurðardóttur, kennara
við sama skóla, frá Seyðisfirði. Dæt-
ur þeirra eru Rannveig Hulda, f. 4.9.
1978, og Jónína, f. 14.8.1984.
Rannveig átti tvær systur, önnur
þeirra er nú látin. Þær em: Þór-
ama, f. 26.12.1934, skrifstofumaður
í Tálknafirði, gift Pétri Þorsteins-
syni, f. 28.11.1929, framkvæmda-
stjóra. Þeirra börn eru Lára Björk,
Þorsteinn, Kolbeinn, Konráð og
Sara; og Björk, f. 11.10.1936 d. 3.12.
1940.
Foreldrar Rannveigar vora Ólafur
J. Jónsson, f. 17.7.1906 d. 3.6.1971,
sjómaður, fæddur á Eyrarhúsum i
Tálknafirði, og kona hans, Lára G.
Guðmundsdóttir, f. 8.1.1909 d. 6.6.
1973, húsmóðir fædd á Hellissandi á
Snæfellsnesi. Þau bjuggu lengst af á
Patreksfirði.
Rannveig verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Til hamingju með
daginn 23. apríl
85 ára
Bryndís Nikufásdóttir,
Miðhúsum, Hvolsvelli.
80 ára
Berta Björnsdóttir,
Karfavogi 11, Reykjavík.
Vigdís Guðjónsdóttir,
Stórholti28, Reykjavík.
Jón Þorkelsson,
Miövangí 22, Egilsstöðum.
75 ára
Grímur Eiríksson,
Drápuhlíð42, Reykjavik.
60 ára
Kristján Jóhannesson,
Móaflöt 22, Garðabæ.
Ingvi Böðvarsson,
Heiðargerði 17, Akranesi.
Baldur Sveinsson,
Teigaseli 1, Reykjavík.
50ára
Grétar J. Guðmundsson,
Strandgötu 19, Patreksfirði.
Guðmundur Guðjónsson,
Harastöðum, Fellsstrandarhreppi.
40 ára
Helgi Jóhannsson,
Kleifarseli 49, Reykjavík.
Gunnar Þór Sveinsson,
Eskihlíð 1, Sauðárkróki.
Helgi Þórsson,
Neðstaleiti 6, Reykiavik.
Margrét Sigmundsdóttir,
Þinghólsbraut 41, Kópavogi.
Margrét Hvannberg,
Hjarðarhaga 19, Reykjavik.
Geirþrúður Eiisdóttir,
Litlu-HIíð, Akureyri.
Grétar Jón Guðmundsson
Grétar Jón Guðmundsson verka-
maður, Strandgötu 19, Patreksfirði,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Grétar fæddist í Litlu-Hlíð á
Barðaströnd en ólst upp á Brekku-
völlum í sömu sveit. Eins og títt var
með unglinga á þeim árum byijaði
hann snemma aö taka til hendinni
á heimili foreldra sinna. Eftir að
hann fór að heiman stundaði hann
einkum störf sem tengdust sjávarút-
vegi.
Grétar Jón hefur verið í hluta-
starfi í lögreglunni frá 1986 en hann
hefur búið á Patreksfiröi frá 1972.
Fjölskylda
Grétar Jón kvæntist 10.6.1972
Önnu Jónu Árnadóttur, f. 31.1.1947,
húsmóður en hún er dóttir Áma
Þorkelssonar er lést 27.10.1950, og
Ástu Guöjónsdóttur er lést 25.2.
1972, húsmóður. Fósturfaðir Önnu
Jónu er Hólmsteinn Jóhannsson,
búsettur í Reykjavík.
Stjúpsonur Grétars Jóns er Stein-
ar Kjartansson, f. 22.10.1966. Synir
Grétars Jóns og Önnu Jónu eru
Ástráöur Brynjar Grétarsson, f.
10.3.1972, Sigurbjörn Sævar Grét-
arsson, f. 29.3.1973 og Grímur Barði
Grétarsson, f. 15.4.1977.
Systkini Grétars Jóns eru Sverrir
Guðmundsson, f. 13.5.1939, d. 15.11.
1977; Brynhildur Nanna Guð-
mundsdóttir, f. 29.6.1944; Guöríöur
Guðmundsdóttir, f. 11.9.1946; Sig-
fríður María Guðmundsdóttir, f. 6.8.
1949; Bjarghildur Fanney Guö-
mundsdóttir, f. 23.1.1955, og Arney
Huld Guðmundsdóttir, f. 16.6.1961.
Foreldrar Grétars Jóns: Guð-
Grétar Jón Guðmundsson.
mundur Helgi Sigurðsson, f. 24.5.
1916, verkamaöur á Patreksfirði, og
Ólafía Sigurrós Einarsdóttir, f. 29.8.
1919, verkakona.
Pálmi Pálmason
HVÍTUR STAFUR
TÁKN BLINDRA
é-
UMFERÐ
FATLAÐRA'
VIÐ EIGUM
SAMLEIÐ
Pálmi Pálmason sölustjóri, Jóruseli
6, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Pálmi fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Akranesi. Hann lauk verslun-
arprófi frá framhaldsdeildum skól-
anna á Akranesi árið 1971.
Pálmi hefur starfað hjá Málning-
arþjónustunni hf. á Akranesi, hjá
Bfivangi hf„ Samvinnubanka ís-
lands/Samvinnutryggingum, Feröa-
skrifstofunni Útsýn og verslunar-
deild Sambandsins í Holtagörðum.
Frá árslokum 1986 hefur hann
starfað sem markaðs- og sölustjóri
hjá Íslensk-Ameríska hf. sem er eitt
af stærri innflutnings- og heildsölu-
fyrirtækjum landsins.
Fjölskylda
Pálmi kvæntist 21.4.1973 Helgu
Ólöfu Oliversdóttur, f. 18.3.1954,
sjúkraliða. Helga er dóttir Olivers
Kristóferssonar bókara og Ingu
Söru Jónsdóttur sem nú er látin.
Oliver er búsettur á Akranesi.
Pálmi og Helga eiga þrjú börn, þau
eru: Oliver, f. 1.2.1971, málari; Pálmi
Sveinn, f. 26.10.1976, og Matthildur
Vala,f. 3.12.1980.
Foreldrar Pálma eru Pálmi Sveinn
Sveinsson, f. 28.9.1914, skipstjóri,
og Matthildur Árnadóttir, f. 24.11.
1921, húsmóðir. Þau bjuggu lengst-
af á ísafirði en eru nú búsett á Akra-
nesi.
Pálmi tekur á móti gestum á heim-
Pálmi Pálmason.
ili sínu að Jóruseli 6 miðvikudaginn
24. apríl á milh kl. 19 og 21.