Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1991, Page 28
28
ÞKlÐJtJDAGUR 23! APRIL 1991.
Merming
Bíóborgin - Græna kortið ★★ y2
Pappírshjónaband
Peter Weir er þekktur fyrir aUt annað en gamansam-
ar og rómantískar kvikmyndir. Þessi virtasti leikstjóri
Ástrala á að baki margar úrvalsmyndir þar sem gam-
anið er víðs fjarri. í bestu myndum sínum eins og The
Picnic at Hanging Rock, Gallipolli, The Year of Living
Dangerously, Witness og Dead Poets Society fæst hann
við alvarlega og dramatiska hluti og yfir myndum
hans er ávallt einhver dulúð sem áhorfandinn skynjar
vel og eykur það oftar en ekki áhrifin.
í Græna kortinu (Green Cards) kémur Weir aðdáend-
um sínum verulega á óvart með liprum og gamansöm-
um söguþráð sem hann hefur sjálfur skrifað. Og eins
og við mátti búast af jafnfærum kvikmyndagerðar-
manni tekst honum að skapa virkilega skemmtilega
stemningu þar sem kvikmyndavélin leikur stórt hlut-
verk.
Græna kortið minnir á aðra vel heppnaða gaman-
mynd, Prétty Woman. Báðar þessar myndir búa yfir
sjarma og léttleika sem rennur ljúflega i gegn án þess
þó að skilja nokkuð eftir sig nema ef vera skyldi eftir-
minnilegan leik. í Pretty Woman var það Julia Ro-
berts sem heillaöi bíógesti, en i Græna kortinu er það
franska stórstirnið Gerard Depardieu sem slær eftir-
minnilega í gegn.
Það var engin snögg ákvörðun hjá Peter Weir að
gera Græna kortið. Eru liðin fáein ár frá því hann
skrifaði handritið og þá með Depardieu í huga. Þegar
Depardieu gat ekki tekið að sér að leika í myndinni á
þeim tíma þegar Weir vildi fá hann, þá frestaði Weir
Gerard Depardieu leikur franskan innflytjanda i New
York sem giftist til að geta fengið atvinnuleyfi.
framkvæmdum og þessi frestur á allan rétt á sér. Dep-
ardieu nær frábærum tökum á hlutverkinu þótt greini-
lega heyrist að enskan er honum ekki tamt tungu-
mál. Hann aftur á-móti nær að túlka tilfinningar með
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson.
hreyfingum líkamans og andlitinu með slíkum ágæt-
um að stirður talandi hans gleymist fljótt.
Depardieu leikur franskan innflytjenda George
Faure sem ekki hefur atvinnuleyfi í Bandaríkjunum.
Til að svo geti orðið verður hann að gifta sig og það
verður einnig Bronte Parish að gera, en ekki vegna
þess að henni vantar atvinnuleyfi, heldur vegna þess
að hún fær ekki að leigja íbúð sem hún hefur hug á
nema hún sé í hjónabandi.
Þau losna samt ekki eins fljótt úr hnappheldunni
eins og til var ætlast. Innflytjendaeftirlitið fær grun
um að ekki sé allt með felldu með hjónabandið og set-
ur þeim stólinn fyrir dyrnar nema þau geti sannfært
tortryggna fulltrúa um aö þau búi saman. Þetta reyn-
ist þeim hið mesta vandamál í fyrstu, enda varla hægt
að hugsa sér ólíkari persónur...
Græna kortið verður aldrei sett við hlið bestu mynda
Peter Weir, til þess skortir dýpt í söguþráðinn og
kannski einna helst, kunnugleg handbrögð meistarans
sem sjá má í öðrum mynda hans. Á móti kemur að
Græna kortið er virkilega skemmtilegt þótt grunnt sé
á raunsæinu og vel yfir meðallagi sem gamanmynd.
Minni kvikmyndagerðarmenn hefðu sjálfsagt átt auð-
velt með að klúðra þessu hárfína sambandi sem mynd-
ast milli aðalpersónanna en Weir forðast allar hættur
af miklu öryggi.
Andie MacDowell er kannski ekki mikil leikkona,
en hún er ákaflega sjarmerandi og hefur sýnt það
áður að fái hún réttu hlutverkin skilar hún þeim með
prýði. Hún glímir samt við ofurefli þar sem Depardie
er. Er slæmt til þess að vita að Bandaríkjamenn skuli
vera búnir að hrekja hann í burtu vegna gamalla synda
sem rifjaðar voru upp. Þarna er kominn leikari sem
hefði getað lífgað upp á fleiri bandarískar kvikmyndir
í framtíðinni.
Ekki get ég ímyndað mér að Græna kortið tákni
nokkra stefnubreytingu hjá Peter Weir. Tel ég aðeins
að um vel heppnað hliðarspor sé að ræða og vona að
hann snúi sér aftur að metnaðarfyllri verkefnum sem
fyrst.
GRÆNA KORTIÐ (GREEN CARDS)
Leikstjóri og handritshöfundur: Peter Weir.
Kvikmyndataka: Geoffrey Simpson.
Tónlist: Hans Zimmer.
Aðalhlutverk: Gerard Depardieu, Andir MacDowell, Robert
Prosky, Gregg Edelman og Bebe Neuwirth.
Kirkjulistavika á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Kirkjulistavika stendur yfir á
Akureyri og rekur hver viðburður-
inn annan fram á næsta sunnudag
er henni lýkur.
í dag kl. 17 verða hringborðsum-
ræður í safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju þar sem rædd verða
tengsl hinna ýmsu greina lista við
kirkju og guðfræði. í umræðunni
taka þátt Jón Hlöðver Áskelsson
tónskáld, Signý Pálsdóttir leik-
hússtjóri, Eiríkur Þorláksson list-
fræðingur, Anna G. Torfadóttir
myndlistarkona og sr. Þórhallur
Höskuldsson. Sr. Kristján Valur
Ingólfsson flytur fyrirlestur en
fundarstjóri verður Tryggvi Gísla-
son, skólameistari MA.
Annað kvöld kl. 21 frumsýnir
Leikfélag Akureyrar leikritið
„Skrúösbóndann" eftir Björgvin
Guðmundsson í tiléfni 100 ára af-
mælis hans. Leikgerð og leiksfjóm
annast Jón St. Kristjánsson en kór
Akureyrarkirkju tekur einnig þátt
í sýningunni og tónlistarstjóri er
Bjöm Steinar Sólbergsson. Sýning-
ar verða einnig á fimmtudag og
fóstudag.
Af öðmm liðum má nefna hádeg-
istónleika á morgun og föstudag,
fyrirbænaguðsþjónustu kl. 17.15 á
fimmtudag, ljóðatónleika kl. 17 á
laugardag en kl. 14 á sunnudag lýk-
ur kirkjulistavikunni með hátíðar-
messu í Akureyrarkirkju þar sem
hr. Sigurbjöm Einarsson biskup
prédikar.
Andlát
Þorsteinn Einarsson bifvélavirki, frá
Bjarmalandi, Hamrahlíð 25, andaðist
í Landspítalanum 21. apríl.
Auður Helga Óskarsdóttir, Skúla-
götu 40 a, andaðist 22. aprfl á Land-
spítalanum.
Hólmfriður Margrét Jóhannsdóttir,
Asparfelli 12, Reykjavík, andaðist í
Borgarspítalanum aðfaranótt
sunnudagsins 21. aprfl.
Kristólína Guðmundsdóttir, Bald-
ursgötu 26, Reykjavík, andaðist á
Landspítalanum 21. aprfl.
Magnús H. Jónsson frá Bolungavík,
síðast á Hrafnistu í Reykjavík, and-
aðist í Borgarspítalanum 20. apríl.
Valgerður Guðmundsdóttir, Afla-
granda 40, áður Reynimel 65, Reykja-
vík, lést í Borgarspítalanum 21. aprfl.
Sigurður Hj. Sigurðsson, Hlíf 2,
ísafirði, lést í Landspítalanum 20.
aprfl.
Kjartan Ólafsson, langholtsvegi 18,
lést laugardaginn 20. aprfl.
Jarðarfarir
Utfor Harðar Jens Haraldssonar,
Laugamesvegi 112, Reykjavik, fer
fram frá Áskirkju miðvikudaginn 24.
aprfl kl. 15.
Gunnar A. Pálsson hæstaréttarlög-
maður, Blómvallagötu 13, andaðist í
Landspítalanum í Reykjavík 15. apríl
sl. Jarðarfor hans verður gerö frá
Dómkirkjunni í Reykjavík fóstudag-
inn 26. apríl kl. 10.30.
Kristjón Guðni Guðmundsson frá
Hellissandi, lést á Hrafnistu 17. apríl.
Minningarathöfn fer fram í Fella- og
Hólakirkju, Asparfelli 8, miðviku-
daginn 24. apríl kl. 15. Jarðsett verð-
ur frá Ingjaldshóli laugardaginn 27.
aprfl kl. 14. Rútuferð verður frá Hóp-
ferðarmiðstöðinni, Bíldshöfða, kl. 8
sama dag.
Bjarni Loftsson frá Hörgslandi á Síöu
verður jarðsettur frá Fossvogskap-
ellu fostudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Ragnar Svafar Jónsson, fyrrverandi
baðvörður, Hofteigi 4, Reykjavík,
andaðist á heimili sínu að kvöldi
fóstudagsins 19. apríl. Jarðarfórin fer
fram frá Laugameskirkju þriðjudag-
inn 30. apríl kl. 13.30.
William Gerald Downey JR. lést á
heimili sínu í McLean, Virginiu, hinn
19. apríl sl. Útfór hans fer fram mið-
vikudaginn 24. aprfl nk. í Ft. Meyer
kapellunni í Ft. Meyer Virginu kl.
10.45.
Tapað fundið
Mótorhjólahanski fannst
Svartur mótorhjólahanski fannst nálægt
Gerðubergi. Upplýsingar í síma 74265.
Myndgáta
OJ2
<AA>
■E'IÞOFK-
Myndagátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausngátunr. 11:
Húðskammar.
Fundir
sumardaginn fyrsta. Skemmtidagskráin
hefst kl. 15. Kafiveitingar og matur um
kvöldið. Dansleikur hefst kl. 20.30.
Heilbrigðisdagur
Ijósvakamiðlanna
Fræðslufundur vegna heilbrigðisdags
Ijósvakamiðlanna (7. maí) verður hald-
inn í „Saumastofunni", Útvarpshúsinu
við Efstaleiti 1, í dag, 23. apríl, kl. 12-14.30.
Léttur hádegisverður verður borinn fram
kl. 12. Framsöguerindin hefjast kl. 12.30
og standa í klukkutíma. Að lokum verða
umræður og fyrirspumum svarað.
TiJkyimingar
Kvenfélag Kópavogs
Spilað verður í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30
í Félagsheimili Kópavogs. Allir velkomn-
ir.
t
Hugleiðslunámskeið
Þriggja vikna námskeið í hugleiðslu,
slökun og jógaæfmgum fyrir konur verð-
ur haldið á Þorragötu 1, Skeijafirði
(Sælukoti) dagana 24. apríl, 2. og 7. maí,
kl. 20. Didi Ananda Sukrti Ac. hugleiðslu-
kennari heldur hugleiðslunámskeiðið.
Upplýsingar í síma 27050.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag frá kl. 13. Kl. 15
mun Björn Th. Bjömsson (jalla um lista-
manninn Ásmund Sveinsson. Farið verð-
ur í Ásmundarsafn. Kl. 17 er leikfimi,
einnig hittast Snúður og Snælda kl. 17.
Munið félagsfundinn í kvöld kl. 20.30 í
Risinu. Dagskrá: 1. Kosning fúlltrúa á
aðalfund Landssamtaka aldraðra, 2.
Önnur mál. Munið vorgleðina í Risinu
Kvöldvaka Ferðafélagsins
Ferðafélagið heldur kvöldvöku um ís-
lenska hraunhella í kvöld, 23. apríl, í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Kvöldvak-
an hefst stundvislega kl. 20.30. Bjöm Hró-
arsson jarðfræðingur segir frá og sýnir
myndir af íslenskum hellum. Hann er
manna fróðastur um þessi náttúrufyrir-
bæri á íslandi og hefur kannað marga
áður óþekkta hella sem koma á óvart.
Áhugavert mynd- og rannsóknarefni,
sem enginn ætti að missa af, em hraun-
hellar Islands. Kaffiveitingar í hléi. Að-
gangur kr. 500. Kaffi og meðlæti innifalið.
Athugasemd
í DV sl. fostudag birtist frétt um
vígslubiskupskjör í Hólastifti frá
fréttaritara blaðsins á Sauðárkróki.
Þar er undirritaður sagður einn af
þremur sem „berjast um hituna“.
Þetta er ekki rétt. Ég er einn af þeim
mörgu sem er kjörgengur því að það
eru allir guðfræðingar sem hafa rétt
til prestsembættis í þjóðkirkjunni.
En ég hef ekki leitað eftir stuðningi
nokkurs manns persónulega í þessu
kjöri, hvaö þá „barist“ fyrir því. Og
þá er ég hvorki nú né hefi verið sókn-
arprestur í Glerárprestakalli.
Áðrar rangfærslur í umræddri
„frétt“ hirði ég ekki um að leiðrétta.
Virðingarfyllst,
Þórhallur Höskuldsson
Jieikhús
STÚDENTALEIKHÚSIÐ
crwi hn i sýnir í Tjamabæ
i u/ l MENNMENNMENN
sýnir: Dalur hinna blindu í Lindarbæ Leikgerð úr sögu eftir H.G. Wells þrjá leikþaetti eftir Melkorku Teklu Olafsdóttur, Sindra Freysson og Bergljótu Arnalds. Leikstjóri: Ásgeir Sigurvaldason. Þriðjud. 23.4. Fimmtud. 25.4. Föstud. 26.4. Siðasta sýning. Takmarkaður sýningafjöldi. Sýningarnar hefjast kl. 20.00. Símsvari 11322 allan sólarhring- inn.
Fimmtud. 25.4. kl. 20.00. Laugard. 27 4 kl 20.00. Sunnud. 28.4 kl. 20.00. Mánud. 29.4, kl. 20.00. Sýningum fer fækkandi
Simsvari allan sólarhringinn. Midasala og pantanir i sima 21971.