Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 8. JUNÍ 1991. 5 dv Fréttir Hlynnt að „fóstur- börnunum“ um helgina „Markmiöiö er að stuðla að hugar- farsbreytingu hjá fólki og fá það til að bera meiri virðingu fyrir um- hverfmu. Við ætlum að gera uppeldi fósturbarnanna varanlegt, ekki bara sjá um að fæða þau tímabundið," sagði Guðrún Svéinsdóttir, verkefn- isstjóri umhverflsverkefnis sem nú er að heíjast á vegum Ungmennafé- lags íslands, UMFÍ. Verkefninu, sem er langstærsta umhverfisátakið til þessa, hefur ver- ið gefið nafnið „Fósturbörnin“ og miðar að því að fá hvert ungmenna- félag í landinu, 245 talsins, til að taka að sér fósturbarn úr náttúru landsins og sjá um það næstu þrjú árin. Þegar talað er um fósturbarn getur t.d. verið um reglulega hreinsun ákveðinnar fjöru að ræða, hreinsun meðfram vegarkafla, land til upp- græðslu, gróðursetningu í ákveðið landsvæði, heftingu foks eða annað sem kemur landinu til góöa. „Móttökur félaganna hafa farið langt fram úr björtustu vonum, það er a.m.k. 80% þátttaka,“ sagði Guð- rún. Hún sagði að sumstaðar yrði verk- efnið unnið í samráði við sveitar- stjóra á viðkomandi stað, en að það væri í höndum hvers félags að fylgja því eftir næstu þrjú árin. Fjölmörg félög og félagasamtök hafa lagt málinu lið. Hæst ber þar aö nefna Toyota-umboðið, P. Samú- elsson, sem er langstærsti styrktar- aðilinn, en einnig er Búnaðarbanki íslands stór styrktaraðili. UMFÍ fékk einnig Landgræðsluna, Náttúruverndarráð, Skógrækt ríkis- ins og Ferðamálaráð til að aðstoða sig, bæði hvað varðar fjármagn og fagmannlegar ráðleggingar. Landsvirkjun: Fimm prósent hækkun Gjaldskrá Landsvirkjunar gagn- vart almenningsveitum mun hækka um fimm prósent frá og með næstu mánaðamótum. Þessi ákvörðun var tekin á fundi stjórnar Landsvirkjun- ar í gær. Að teknu tilliti til þessarar hækk- unar gerir stjórnin ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrirtækisins í ár verði um 280 milljónir enda komi ekki til frekari hækkana síðar á ár- inu. Þá gerir stjórnin ráð fyrir greiðsluhalla upp á 680 milljónir og að arðgjöf af eigin fé verði 1,1 pró- sent. -kaa Davíð á tvöföldum launum Enginn ráðningarsamningur var gerður við Davíð Oddsson borgar- stjóra og fylgir hann því almennum reglum þriggja mánaða uppsagnar- frest. Þetta kom fram á fundi borgar- stjórnar á fimmtudaginn. Það er launamálanefnd borgarinn- ar sem ákvað laun borgarstjóra sem eru jafnhá forsætisráðherralaunun- um. Forsætisráöherra fær yfir 300.000 krónur á mánuði þannig að Davíð þiggur líklega nálægt 700.000 krónur um næstu mánaðamót. Tillögu Nýs vettvangs um skoðana- könnun um eftirmann borgarstjóra var vísað frá. -PÍ nnir T0P40 AMERICAN nióur fjörutíu vinsælustu hlustenda hevrir m þeear hann er fluttur samtímis á yfir 1000 65 þjóölöndum og nú pinn a laugarúogum , F' útvar] psstöövum í) •fir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.