Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 20
2P Kvikmyndir Daddy Nostalgie: Tavemier og Bogarde Bertrand Tavernier er einn fárra franskra leikstjóra sem eiga vísa dreifingu á myndum sínum utan heimalands síns. Þrátt fyrir mikla og góða kvikmyndagerð eru Frakkar mun einangraðri nú en þeir voru þegar „nýbylgjan" var upp á sitt besta með Jean-Luc Godard, Franco- is TrufTaut. Alain Resnais og Claude Chabrol í fremstu víglínu. Þetta voru leikstjórar sem voru jafnmikið í umræðum kvikmyndhúsagesta þá og Martin Scorsese, Steven Spielberg og Stanley Kubrick eru nú. í dag er það hending að franskar kvikmyndir rati í íslensk kvikmyndahús á almennar sýningar og er Bertrand Tavernier engin undantekning þótt úti í hinum Bandaríkjamarkaöur einangrast enn meir og er nú svo komið að á þessu ári er aöeins talið að um það bil tutt- ugu kvikmyndir, sem ekki eru með ensku tali, fái almenna dreifmgu í Bandaríkjunum sem er smánarlega lítið þegar miðað er viö hvað mark- aðurinn er stór. Ein þeirra er Daddy Nostalgie í leikstjórn Bertrant Ta- verniers. Hún var frumsýnd vestan- hafs fyrir stuttu og fékk mjög góða dóma. Tavernier er ekki frekar en aðrir franskir leikstjórar af yngri kynslóð- inni þekktur hér á landi. Myndir hans hafa af og til slæðst inn á franskar kvikmyndavikur eða lista- hátíð, en aðeins ein mynd hefur ver- þar nefna Joseph Losey, John Schlesinger, George Cukor, John Frankenheimer, Alain Resnais, Luc- hino Visconti, Richard Attenboro- ugh, Rainer Werner Fassbinder og Liliana Cavani. Bogarde, sem hefur fengist við að skrifa skáldsögur með góðum ár- angri undanfarin ár, sagði um endur- komu sína í kvikmyndir að bæði hefði sig langað til að byrja aftur og handritið að Daddy Nostalgie hefði Kvikmyndir Hilmar Karlsson venjulegu millistéttar fjölskyldulífi. Hin dóttirin, Caroline, er aftur á móti er mikill bóhem, fráskilin og einstæð móðir. Þegar Miche, sem tel- ur eiginmann sinn sjúkan, vill fá báðar dætur sínar til að vera heima er það aðeins Caroline sem svarar kallinu og ílýtir sér heim. Caroline kynnist nú fyrst fyrir alvöru þeirri veröld sem foreldrar hennar hafa lif- að og hrærst í þar sem ávallt er sneitt hjá alvörunni meö því að henda gaman að hlutunum. Fljótlega verður hún á milli í togstreitu for- eldranna í að ná athygli hennar. Hún dregst samt meir og meir að föður sínum og reynir að endurvekja tengslin við hann í æsku án árang- urs. Dirk Bogarde og Jane Birkin sýna góðan samleik í hlutverki föður og dóttur. stóra heimi þykir alls staðar fengur að myndum hans. Evrópsk kvikmyndagerð er í vörn ið tekin til sýningar á almennum sýningum, er það djassmyndin frá- bæra Round Midnight þar sem hann sagði sögu bandarisks djassleikara sem bjó í Frakklandi. Saxófónleikar- inn Dexter Gordon lék aðalhlutverk- ið og var tilnefndur til óskarsverð- launa fyrir. Annar leikstjóri byrjaði á myndinni Handritið að Daddy Nostalgie er skrifað af Colo O’Hagan sem áður hefur starfað með Tavernier og er handritið að miklum hluta byggt á hennar eigin lífi. Fyrir tveimur árum var allt tilbúið til að byrja á mynd- inni og þá var leikstjóri Francis Mankiewicz, en alls konar vandræði urðu til þess að hætt var við myndina og ekki byrjað aftur fyrr en Taverni- er lýsti áhuga sínum á að leikstýra. Fékk hann O’Hagan til að endur- skrifa handritið. Það vakti undrun margra að Ta- verhier skyldi kvikmynda Daddy Nostalgie með breiðtjaldslinsu, ekki gefur handritið tilefni til mikilla til- þrifa tæknilega séð. Hann svaraði því til að hann vildi sýna á áhrifamikinn hátt þrjár „venjulegar" persónur sem lifðu eðlilegu lífi, búa í Útlu húsi, í mynd á stóru tjaldi. Og það hefur honum tekist. Persónurnar eru skýrt markaðar og áhorfandinn fær strax mikinn áhuga á þeim og þegar per- sónur eru svo lifandi á breiðtjaldi er ekki laust við að áhorfandann langi að snerta þær. í myndinni deyr Daddy snöggt í lokin og örlögin höguðu því þannig að um sama leyti og verið var að Caroline ásamt móður sinni sem leikin er af Odette Laure. Eftir að bandarískar kvikmyndir hafa unnið Gullpálmann í Cannes þrjú ár i röð er engum blöðum um það að iletta að þróunin í kvik- myndagerð er mest í Bandaríkjunum þótt lágkúran sé einnig mest þar. Um leið er evrópsk kvikmyndagerð í mikilli vörn gagnvart bandarískum kvikmyndum. Þetta eiga evrópskir kvikmyndagerðarmenn erfitt með að sætta sig við og því voru það mikil vonbrigði fyrir evrópskan kvik- myndaiðnað þegar kvikmynd þeirra Cohenbræðra, Barton Fink, fékk gullpálmann í Cannes fyrir stuttu. Þetta gerir það líka að verkum að Dirk Bogarde hefur enn aðdráttarafl Miðað við þá litlu umíjöllun sem evrópskar kvikmyndir fá í banda- rísku pressunni var mikið íjallað um Daddy Nostalgie og þá sérstaklega vegna þess aö aðalhlutverkið leikur Dirk Bogarde sem ekki hefur leikið í kvikmynd í rúm tuttugu ár. Bog- arde var áður einn af virtustu leikur- um í evrópskri kvikmyndagerð og eftirsóttur beggja vegna Atlantshafs- ins. Hann lék undir stjóm margra stórmenna í kvikmyndalistinni, má verið virkilega vel skrifað. Einnig sagðist hann hafa mikið álit á Ta- vernier. Ástæðan fyrir því að hann hætti að leika í kvikmyndum var lé- leg handrit og slæm reynsla sem hann hefði haföi af síðustu kvik- myndunum sem hann lék í. Daddy Nostalgie fjallar um virðu- legan enskan herramann sem kallað- ur er Daddy. Hann hefur eytt flestum ámm lífs síns í ferðalög og kvöld- verðarboð. Daddy á franska eigin- konu, Miche, sem eitt sinn var mjög falleg. Þau eiga tvær dætur sem eru gjörólíkar. Önnur hefur aldrei verið þeim til vandræða og hefur aðlagast ljúka tökum á myndinni dó faðir Taverniers, Rene Tavernier. Þannig getur raunveruleikinn komið í stað- inn fyrir skáldskapinn. Daddy Nostalgie hefur fengiö al- deilis frábæra dóma og styrkt stöðu Taverniers í franskri og um leið evr- ópskri kvikmyndagerð. Þá er mynd- inn ekki síður sigur fyrir Dirk Bog- arde sem sýnir stórfenglegan leik í titilhlutverkinu. Aðrir leikarar í stórum hlutverkum, sem einnig eru mjög góðir, em Jane Birkin, sem leikur dótturina Caroline, og Odette Laure sem leikur móður hennar. -HK LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991. Handritfyrir metupphæð Joe Esterhas er nokkuö snjall handritshöfundur, þaö sýndi hann meðal annars með handriti sínu að Jagged Edge. Hann er þó sjálfsagt þekktari fyrir að hafa farið í blöðin með deilur sínar við umboðskónginn í Hollywood Michael Ovitz, en hann er af mörgum talinn valdamesti mað- urinn þar í borg. Þetta var stríð Daviðs við Golíat og vakti Ester- haz aðdáun margra og sjálfsagt er það ein ástæðan að Esterhas er hæst launaði handritshöfund- ur í dag eftir aö hann fékk greidd- ar þijár milijónir dollara fyrir handrit að Basic Instict sem fmmsýnd veröur síðar á árinu. í myndinni leikur Michael Dou- glas lögreglumann sem er að rannsaka seriumorð. Það er eitt að kaupa handrit fyrir metupp- hæð en að ráða strax annan handritshöfund til að endur- skrifa það getur aðeins skeð í Hollywood. Þegar Tri Star fékk handritið í hendur var það fyrsta verkið að ráöa Gary Goldman til að endurskrifa þaö. Er þaö nema von að menn hristi hausinn yfir sumum ákvörðunum í glingur- borginni. WarrenBeatty leikur BugsySiegel Bugsy Siegel var mafiuforingi sem var mikiö í fréttum á fimmta áratugnum og var á hátindi ferils síns drepínn af félögum sínum. Siegel haföi mikið saman að sælda við fólk í kvikmyndabrans- anum og sást oft í fylgd með þekktum leikkonum. Siegel átti einnig mikinn þátt í að gera Las Vegas aö þeirri glamur- og spOa- vítisborg sem hún er í dag. Nú er verið að gera kvikmynd eftir ævi hans sem heitir einfaldlega Bugsy Siegel. Það er Warren Be- atty sem leikur Siegel, en leik- stjóri er Barry Levenson, sem leikstýrði Rain Man og Avalon sem sýnd er í Stjörnubíói um þessar mundir. SeanPenn leikstýrir Sean Penn hefur nú farið að fordæmi margra félaga sinna í leikarastéttinni og sest að baki kvikmyndavélarinnar. Er hann þessa dagana að leikstýra The Indian Runner sem fjallar um tvo bræður sem ekki líta sömu aug- um á hlutina og eiga í erfiðleikum meö að sætta sig viö ákvaröanir hvor annars. Penn leikur sjálfur ekki 1 myndinni. Bræöurnar tvo leika David Morse og Viggo Mort- enson. í öðrum hlutverkum eru mun þekktari leikarar, má nefna Dennis Hopper, Charles Bronson, Sandy Dennis, Cathy Moriarty og Valeria Golino. Gert er ráð fyrir ,aö( The Indian Runner verði frumsýnd í desember. \ GlennCloseleikur -Kirisyngur Meeting Venus heitir nýjasta kvikmynd Istvan Szbo sem er í vinnslu. í henni leikur Glenn Close fræga óperustjömu. Þetta er gamansöm mynd um vonlaust verkefni ópemstjómanda við að reyna að koma upp sýningu á ópem í París þar sem hver hönd- in er uppi á móti annarri. Ekki hefur söngrödd Close heyrst mik- ið hingað til enda kemur hún ekki til með að syngja heldur aö- eins hreyfa varimar. 'Þaö er hin fræga óperusöngkona Kiri Te Kanawa sem syngur fyrir Close þar sem það á Við. Meöal annarra er leika í Meeting Venus er sænski leikarinn Erland Josep- son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.