Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 52
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. ■ ■ ■ - : ' '■ :: ■■■ ■ ■"■" ■■■ "'■ . - ■ Ný reglugerð: Stórhækkun lyfjakostnað- ar sjúklinga Heilbrigðisráðuneytið kynnti lyfja- fræðingum í gær nýja reglugerð um greiðslu almannatrygginga á lyfjum. Reglugerðin á að spara ríkinu hundr- uð milljóna árlega. Ráðherra verður væntanlega búinn að undirrita hana þegar þetta birtist. í 5. grein reglugerðarinnar segir: „Tryggingastofnun tekur EKKI þátt í kostnaði við eftirtalin lyf.“ Þar eru m.a. talin upp hægðalyf, neflyf, bólu- efni, hálslyf, hósta- og kveílyf, öll sýklalyf, t.d. penslín, róandi lyf og svefnlyf og öll lyf sem fáanleg eru í lausasölu. Þessi breyting mun hafa mikinn kostnaðarauka í for með sér fyrir sjúklinga. Það skal þó bent á að í 4. grein seg- ir: „í alveg sérstökum tilfellum er Tryggingastofnun heimilt að greiða að fullu lyf, sem sjúkratryggðum er nauðsynlegt aö nota að staðaldri.“ Til þess þarf þó að fara í gegnum langt ferli þar sem þarf vottorð lækn- is, læknir að senda það inn til Trygg- ingastofnunar og hún að gefa út sérs- takt lyfjaskírteini fyrir- viðkomandi. Lyf, sem áður voru greidd að fullu vegna astma, berkla, skjaldkirtils- sjúkdóma og sumra hjartasjúkdóma, verða nú aðeins greidd ef sjúklingi er brýn nauðsyn að nota þau að stað- aldri. Þá verður að fá sérstakt lyfja- skírteini og það fá aðeins þeir sem hafa haft sjúkdóminn í 6 mánuði eða lengur. Ungbarn með astma fellur t.d. ekki undir þessa skilgreiningu. Kostnaður við afgreiöslu breytist til hækkunar á dýrari lyfjum og lækkunar á ódýrari lyfjum. Hins veg- ar miðast nú hver afgreiðsla við 60 daga en ekki 100 daga eins og áður var. Þetta þýðir 67% kostnaöarauka fyrir þá sem nota lyf að staðaldri, nema allir verði settir á undanþágur með lyfjaskírteinum. -pj Hámark á lán til skólagjalda Ólafur G. Einarsson menntamála- ráðherra hefur staðfest tillögur stjórnar Lánasjóðs íslenskra náms- manna um nýjar úthlutunarreglur sem miða að því spara 650 milljóna króna á þessu ári. Flöt 16,7 prósent skerðing kemur á öll námslán. Framfærslustuðull námsmanna, sem búa í foreldrahús- um, hækkar úr 50 prósent af fram- færslu einstaklings í leiguhúsnæði í 75 prósent. Tekjutillit lána á að lækka úr 75 prósentum í 50 prósent. Sett var hámark á námslán til greiðslu skólagjalda, 27.000 dollarar. Hámarkslánstími til fyrrihlutaprófs verðurfimmárístað7. J.Mar Það átti að f á sam- þfkki Alþingis - segir Jón Magnússon lögmaöur um ákvæöi í lögum um síldarverksmiðjurnar „Lagagreinin er markleysa ef Gunnlaugur Claessen ríkislög- Seyðisfirði. Við töldum þá að vegna framkvæmdanna? ekki hefði átt að leggja fram- maðurvildiekkitjásigummálið. stjórnin yrði að ákveða það, enda „Það er allavega Ijóst að jrar yrði kvæmdir Síldarverksmiðja ríkisins „Ég held að það sé erfitt að halda kosin af Alþingi, og hún yrði þá að um deilumál að ræða og trúlega fyrir Alþingi og fá samþykki þess. þvi fram að endurbyggingarfram- meta það sjálf hvernig að málinu dómstólamál og menn yrðu þá að Eg sé ekki annaö en í venjulegum kvæmdir SR hafi verið ólöglegar. yrðí staðið. gera það upp við sig hvort rétt ríkjum, þar sem menn virða ákveð- Stjórn Síldarverksmiðja rikisins er Hítt er svo annað mál að SR eiga væri fyrir rikisvaldið að standa í in prinsipp og lög, myndi ráðherra kosin af Alþingi og stjórnin kýs sér miklar eignir og það er svo með slíkum málaferlum jafnvel árum teljast hafa bakað sér ábyrgð fyrir sjálfformann.Þegai’loðnubrestur- eignir sem þessar að erfitt er aö saman.Þaðtelégmjögvarasamt.“ þetta. Samþykki hans myndi vænt- ' inn varð fyrir rúmum tveimur meta þær því verðmæti þeirra Matthías Bjarnason, alþingis- anlega fría þá sem stjórna fyrir- árum leist okkur i sjávarútvegs- ræðst af tekjmnöguleikum í fram- maður og formaður sjávarútvegs- tækinu. Eg tel ekkert vafamál að ráðuneytinu þunglega á að verk- tíðinni. Ég er þeirrar skoðunar að nefndar, vildi litið tjá sig um málið ráðherra hafi borið að leggja málið smiöjurnar réðust í miklar fjárfest- iatvinnugreinsemþessarieigifiár- en sagði þegar hann var spurður fyrir Alþingi," segir Jón Magnús- ingar,“ sagði Halldór Ásgrímsson, festingar að fara fram fyrir hvort ekki hefði verið eðlilegra að son lögmaður er hann var spurður alþingismaður og fyrrverandi sjáv- áhættufé. Það sé illmögulegt að leggja málið fyrir þingið: „Jú, það hvort brotin hefðu verið lög um SR arútvegsráðherra. fara út í miklar framkvæmdir er alltaf eðlilegra að gera slikt “ en í þeim kemur fram aö verksmið- „Stjóm SR var þá ritað bréf þar nema hafa til þess hlutafé." -j.Mar justjórn er óheimilt að leggja út í sem þessar skoðanir komu fram en - Gæti ríkið skotið sér undan miklar framkvæmdir án þess að hún varáöðrumáliogtaldiaðþað ábyrgð í þessu máli þar sem ekki _ ció einnig bls 2 leita samþykkis Alþingis. væri rétt að fara í framkvæmdir á var leitað eftir samþykkt Alþingis Margir hafa lagt leið sína niður í fjöru undanfarna daga til að njóta sólarlagsins og upplifa kvöldstemningu þar sem blóðrauð sólin, fjöll í bláma, kyrr hafflöturinn og einstaka fley leika saman á strengi tilfinninganna. Hjá ófáum blossar rómantikin í bílsætunum meðan aðrir horfa sem dáleiddir á þessa angurværu hlið sköpunarverksins og dásama tilveruna með hástemmdum lýsingarorðum. DV-mynd Brynjar Gauti Heilsuhælið: Ný rekstrar- stjórn skipuð Ný rekstrarstjórn hefur tekið við á heilsuhælinu í Hveragerði. í henni sitja Pétur Jónsson, framkvæmda- stjóri stjórnunarsviðs Ríkisspítal- anna, Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir og Gunnlaugur Kr. Jónsson, varaformaður fyrrverandi rekstrarstjórnar. þessi ákvörðun var tekin á fundi deiluaðila í gær. Hallgrímur Guðmundsson, bæjar- stjóri í Hveragerði, sem hefur átt frumkvæði að sáttafundum deiluað- ila, segir að með skipan nýju stjórn- arinnar sé deiían komin á nýtt stig og nú verði hægt að fara í viðræður um framtíðarstöðu hælisins, innra skipulag þess og athugasemdir Ríkis- endurskoðunar. „Málið er því komið í vissan far- veg. Þessi nýja rekstrarstjórn nýtur trausts allra deiluaðila og viðræður hennar og heilbrigðisráðuneytisins fara væntanlega af stað sem fyrst. Meðal þeirra atriða, sem þarft er að ræða, eru málefni læknanna á hæl- inu í tengslum við Læknafélag ís- lands. Nýja rekstrarstjórnin mun reka smiðshöggið á þær viðræður," segirHallgrímur. -ns LOKI Sannkallað blóðrauttsólarlag! Veðrið á sunnudag ogmánudag: Kólnar í veðrium allt land Á sunnudag og mánudag eru lík- ur á norðaustlægri átt. Rigning verður suðaustan- og austanlands og víöa við norðurströndina, víðast þurrt vestanlands. Fremur kalt verður í veðri, hlýjast þó suðvest- anlands. ÞRDSTUR 68-50-60 r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.