Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991.
7
Fréttir
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra á fundum í Kaupmannahöfn:
Sagði þeim að við mynd
um hvergi gefa eftir
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- spænsks sjávarútvegs í skiptingu lagsins. Það sem spænski sjávarút- EFTA/EB samningana til að rétta meiri hlutdeild í heildarveiðiheim-
isráðherra segir að hann og norski aílaheimilda innan Evrópubanda- vegurinn vill gera er að nota sinn hlut í því til að tryggja Spáni ildum Evrópubandalagsins." -JGH
utanríkisráðherrann hafi á fundi
Atlantshafsbandalagsins í Kaup-
mannahöfn rætt við alla utanríkis-
ráðherra Evrópubandalagsins og
komið þeim í fullan skilning um að
íslendingar muni ekki gefa eftir á
lokasprettinum í viðræðunum um
evrópska efnahagssvæðið og leyfa
einhliða veiöiheimildir.
„Tilgangur þessara viðræðna okk-
ar var að koma í veg fyrir að eitt-
hvert slys yröi á ráðherrafundi
EFTA og Evrópubandalagsins í Lúx-
emborg 18. júní og taka af öll tví-
mæli við þessa menn um að samn-
ingsstaða EFTA og staða íslands sér-
staklega væri slík að þetta væri ekki
samningatækni heldur bláköld al-
vara.
Ég sagði að það þýddi ekki fyrir þá
að koma til þessa fundar á þeim
röngu forsendum að þar gætu menn
eins og venjulega sest að samninga-
borðinu á þeim grundvelli að við
myndum gefa eitthvað eftir.“
Jón segist hafa ítrekað að veiði-
heimildir samkvæmt stefnu Evrópu-
bandalagsins væru ekki á dagskrá
og ef þeim væri haldið til streitu
væru Island og Noregur út úr þess-
um samningum og þeir yrðu þá að
átta sig á hvað þaö þýddi.
- Eru utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins tilbúnir að taka tillit til
sérstöðu okkar íslendinga?
„Það er engum ofsögum sagt af því
að ísland nýtur mikillar velvildar í
þessum hópi. Það var jákvæð niður-
staða að því leyti að allir sögðust
þeir vilja leggja sig fram um að finna
lausn. Allir lýstu þeir yfir skilningi
á sérstöðu íslands og lýstu yfir þeirri
grundvallarafstöðu sinni að samn-
ingarnir mættu ekki stranda á þessu
efni.“
Helmingslíkur í Lúxemborg
þann 18. júní
- Ertu bjartsýnn á árangur á ráð-
herrafundinum í Lúxemborg?
„Ég lít á þetta sem fimmtíu:fimmtíu
möguleika. Ástæðan er sú að þrátt
fyrir þennan pólitíska velvilja, sem
er alveg ótvíræður, þá erum við í
samningum við framkvæmdastjórn
Evrópubandalagsins. Það er fram-
kvæmdastjórnin sem hefur samn-
ingsumboðið. Hún hlýtur að því er
varðar sjávarútvegsmálin að styðjast
við ráðgjöf svokallaðra sjávarútvegs-
og landbúnaðardeilda, BT-14. Sú
nefnd er að mestu mönnuð Spánveij-
um sem fyrst og fremst eru fulltrúar
sjávarútvegshagsmuna á Spáni. Það
sem ég sagði utanríkisráðherrum
Evrópubandalagsins hér á fundinum
í Kaupmannahöfn var að ef Spán-
verjarnir í nefndinni færu sínu fram,
án þess að pólitískt væri tekið í
taumana, þá færi þetta allt í vit-
leysu.“
Ekki deila íslendinga
og Spánverja
Jón segir að framkvæmdastjórnin
hafi við samningaborðið alltaf reynt
að stilla þessu máli upp sem deilu-
máli á milli Spánverja og íslendinga,
það er að segja að það séu Spánverj-
ar sem setji fram mjög harðar kröfur
um veiðheimildir við ísland.
„Þetta er rangt. Spánverjar eiga
ekki í neinum deilum við íslendinga.
Spánverjar eiga í höröum deilum við
framkvæmdastjórnina. Ástæðurnar
eru tvær. Þegar Spánveijar gengu í
Evrópubandalagið árið 1985 þá varð
þeim á fingurbijótur. Þeir náöu
vondum samningum um hlut
KASSETTUR FYRIR
BÖRNIN f BÍUNN
KRAKKARNIR LEIKA OG LESA ÖLL
SÍGILDU ÆVINTÝRIN Á EINNI KASSETTU
75 mínútur af sögum og léttum lögum
SOGUR: Rauðhetta • Nýju fötin keisarans • Prinsessan á bauninni
• StígvélaSi kötturinn • Búkolla • Mjallhvít og dvergarnir sjö
• Hans og Gréta.
LOG: Siggi var úti • Um landið bruna bifreiðar • Hjólin á strætó
snúast • Við setjum svissinn á • Upp á grænum hól • Það búa litlir
dvergar • Krummi krunkar úti • Ein stutt, ein löng.
NOKKRAR FLEIRI KASSETTUR SEM GÓÐAR ERU
FYRIR BÖRNIN f BÍLINN
Barnaleikir 1 8c 2; öll skemmtilegustu lögin sungin af krökkunum,
auk þess sem Eddi frændi rabbar við krakkana. Rokklingana þarf
ekki að kynna. Á þessum tveimur kassettum eru öll þau lög sem
Rokklingarnir eru þekktir fyrir.
KRAKKARNIR SYNGJA ÖLL
VINSÆLUSTU LEIKSKÓLALÖGIN
A milli laga spjallar Eddi frœndi við krakkana
LÓG: Einn lítill, tveir litlir, þrír litlir fingur • Ég langömmu á
• Krummi svaf í klettagjá • í Hlíðarendakoti • Bílarnir bruna yfir
brúna • Litla flugan • Gráðug kerling • Við erum söngvasveinar
• Pálína, Pálína • Fuglinn í fjörunni • Hver var að hlæja • Ein ég
sit og sauma • Gæsamamma gekk af stað • Ef væri ég söngvari
• Litirnir • Vorvindar glaðir • Lóan er komin • Guttavísur
• Krumminn í hlíðinni • Káti vegfarandinn • Sofðu unga ástin mín.
VERÐLAUNAGETRAUN
I kynningarbæklingi fyrir fyrr-
nefndar kassettur, sem liggur
frammi á öllum útsölustöðum, er
að finna verölaunagetraun.
I vinninga eru fjögur reiðhjól frá
versluninni Markið. Það eina sem
börnin þurfa að gera er að svara
þreniur laufléttum spurningum
og senda inn svarmiða.
ALLAR ÞESSAR KASSETTUR FÁST Á SÖLUSTÖÐUM UM LAND ALLT
BG ÚTGÁFAN
SKEIFUNNI 19, S: 689440