Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991. 17 ar hans láta troöa á sér án þess að hreyfa hönd né fót. Þeir þora ekki að vera menn og standa á sínu því það er búið að bijóta þá niður. Flest- ir eiga í ýmiss konar tilfinningaleg- um vandamálum sem þeir sjá engan veginn út úr og sem þeir rísa ekki undir. Honum hefur verið innrætt réttlæti í lífinu og finnst að að það eigi að gilda hér líka. Fangaverðirnir bregðast lítt við þeim vandamálum sem koma upp í samskiptum fanga, hvort sem um er að ræða óhæfni þeirra eða áhugaleysi. Einn ungur piltur er sérstaklega undir skóhæl hinna fanganna sem niðurlægja hann og nýta sér vanmátt hans til þess að tryggja eigin stöðu í þessu óvægna samfélagi. Öllu alvarlegra er að sumir fangaverðir stunda sama leik við þennan fanga og fleiri. í stað þess að leiðbeina og reyna að hjálpa þessum 18 ára unglingi leggjast margir á eitt til að bijóta hann niður. Símtöl hleruð Eftir því sem tíminn líður lærir hann á siðvenjur staðarins. Til dæm- is að fangaverðir hlera símtöl fang- anna án þeirra vitneskju sem að vísu brýtur í bága við lög. Jafnvel kemur fyrir að þeir segja öðrum föngum frá því sem þeir verða áskynja. Þau per- sónulegu mál viðkomandi fanga verða síðan vinsælt umræðuefni sem þeir allra lítilsigldustu nýta sér sem svipu á samfanga sína. Algengt er að fangi, sem vill vera viss um að símtal hans sé ekki hlerað án hans vitneskju, biðji samfanga að gera sér upp erindi og ræða við fangavörðinn meðan á símtali stendur. Aðrir láta fanga fylgjast með vaktherberginu og gefa merki með því að berja á hurðina á símaherberginu ef hann sér fangavörð byrja að hlusta. Löngunin til að halda eins eðlilegu sambandi við eiginkonu sína og unnt er í gegnum síma verður þó smátt og smátt hömlunum yfirsterkari og hann lætur það eftir sér að verða einlægari og innilegri en fyrst. Eftir að það tekst eru það símatímamir sem hann vill síst af öllu missa til þess að halda tengslum við ástvinina og sér sjálfum í jafnvægi hér á þess- um stað. Að flestu leyti er hver dagur öðrum líkur. Vinna er einkum við að verka þorskshausa sem fluttir eru frá Grundarfirði. Fyrir þetta er greitt 200 króna tímakaup. Löngum er þó raunar alls ekkert að gera - og þá auðvitað ekkert kaup heldur. Verk- kennsla fyrir nýliða, verkstjórn og skipulag ásamt eftirliti með vinnu- brögðum er því miður afar takmark- að. Verkfæri og eftirlit með þeim er í algjöru lágmarki, sem að sjálfsögðu kemur niður á nýtingu hráefnis, að ekki sé nú minnst á vinnumóralinn. Óvinsælir fundir Eins og gefur að skilja koma ótelj- andi vandamál upp í samfélagi sem þessu. Mannaskipti eru alltíð og fangar í misjafnlega slæmu ástandi við komu. Fangelsisstjórinn er svo afskiptalítill að ýmsum blöskrar. Til dæmis hafði einn fanginn haldið í heila viku að fangelsisstjórinn væri aðstoðarmaður í eldhúsinu. Hvorki hann né fangaverðir sjá nokkurn tíma ástæðu til að kalla fanga saman til viðræðu um nein mál. Því taka nokkrir fangar sig saman og koma á umræðufundum fanga þar sem rætt er um ýmislegt seiri betur má fara. Meðal umræðuefna má nefna hrein- læti og góða umgengni, almenna til- litssemi hver við annan, mikilvægi vandaðra vinnubragða, hlýlegt við- mót við nýja fanga til að létta þeim komuna og yflrleitt þýðingu þess að vinna saman að því að gera vistina eins mannbætandi og bærilega og kostur er. Það spyrst hins vegar út, að fangelsisstjóri sé ákveðinn í að banna fundina. Fangar bíða spenntir eftir því að heyra hvérnig tilkynning- in um bannið komi til með að hljóða. Aldrei er þó geflð upp hvað í raun- inni eigi að banna eða hvers vegna. Nokkru síðar síast út að fangelsis- málastofnun hafl tjáð fangelsistjóra, að ekki væri stætt á að banna um- ræður fanga um innri mál fangelsis- ins. Kvíðir heimkomunni Konan má heimsækja hann um helgar en getur sjaldan komið því við. Langar ferðir kosta sitt og gisting er enn dýrari. Auk þess gæti hún engan veginn orkað að koma um hverja helgi. Hún þarf að leggja mik- ið að sér til að reka heimilið og standa við ailar skuldbindingar þeirra. Ekki er síður mikflvægt að viðhalda þeim vinatengslum sem þau áttu fyrir. Það er mikilvægur þáttur til að létta end- urkomu hans út í lífið aftur. Margoft hefur hann verið varaður við að mörgum reynist sú endurkoma erfið- asti hjallinn. Og hann er þegar farinn að kvíða honum. Hann þarf að leita að nýju starfi - og hver vill ráða þann sem er að sleppa út úr fangelsi? Þetta ásamt mörgu fleiru rís upp fyrir framan hann eins og illkleift bjarg. Það er ekki alltaf auðvelt að bægja erflöum hugsunum frá sér þegar lítið er að gera mikinn hluta sólarhrings- ins nema hugsa. Hann nýtir sér bókasafnið og velur einkum upp- byggilegar og fræðandi bækur. Hann er nefnilega harðákveðinn í að láta einskis ófreistaö til að byggja sjálfan sig upp og reyna að fara héðan ekki verri maður en þegar hann kom inn. Stundum sækir hann andlega og lík- amlega endurnæringu í litla kjallara- herbergið með líkamsræktartækjun- um. Hann vill ekki trúa þeirri út- breiddu skoðun meðal fanga að flest- ir komi verri menn út úr betrunar- vist en þeir voru fyrir. Hann er nefni- lega sannfærður um að með nógu sterkum vilja megi nýta tímann, jafnvel þótt í fangelsi sé, til að vinna gegn vondum venjum og skapgerð- argöllum. Hann styrkist í þessari trú sinni viö að fylgjast með einum ung- um vini sínum í fangelsinu sem hefur ákveðið að bjóða öllum erfiðleikum birginn og snúa frá braut eiturlyfja og afbrota. Hann óttast að sá geri sér, þrátt fyrir góöan ásetning, ekki grein fyrir hversu erfitt hlýtur að reynast að slíta sig út úr ofursterkum viðjum vanans og standast freisting- ar félaganna, sem enn eru á kafi í neyslu og munu taka honum tveim höndum með fullar hendur af hassi og sprautum, þegar hann losnar. Mikill skaði er að sérmenntað fólk kemur aðeins örsjaldan hingað að Kvíabryggju og hefur alltof nauman tíma í hvert sinn. Enda kemur það allt frá Reykjavík og fer samdægurs til baka. Hvar er meiri þörf fyrir sér- fræðilega ráðgjöf og andlega leiðsögn en einmitt í fangelsi? Og hvað er orð- ið af kirkjunni? Á dvalartíma hans er aldrei haldin kristileg samveru- stund í Kvíabryggjufangelsinu og fongum er synjað um leyfi til að sækja guðsþjónustu í Grundarflrði. Faðir kveður börn sín Eiginkonan hefur staðið sem klett- ur með honum í gegnum alla þessa erfiðleika. Alit í kringum sig sér hann sambönd slitna svo að opin sár eru eftir. Sambönd sem ekki þola slíkt margra ára áiag þegar eigin- maðurinn, unnustinn eða faðirinn - sem auk þess er fyrirvinna heimilis- ins - er hriflnn burt. Sárast finnst honum að horfa upp á föður í fang- elsi kveðja börn sín eftir heimsókn. Hvernig skyldi þeim líða þegar þau geta ekki komið sér undan að svara spurningum félaganna? Þau hafa gert sér vissa ímynd af föngum og fangelsum, ímynd mótaða af sjón- varps- og vídeómyndum. Ýmsir sem afplána refsingu í fyrsta sinn, hafa svipaðar skoðanir, enda eru upplýs- ingar fyrir afplánun engar, ekki einu sinni hvað þarf eða má taka með sér. Upplýsingar um réttindi og skyldur fanga hefur hann heldur engar feng- ið. Á bókasafni fanga er hvorki að finna lög né reglugerðir, og ekki er mikið upp úr fangavörðum aö hafa um það efni. Yfirleitt virðist honum „kerfið“ hafa afar lítinn áhuga á því að bæta hér úr, jafnvel þótt það áhugaleysi bitni ekki síst á aðstand- endum fanga. Það hefur verið honum ákaflega ópersónuiegt, jafnvel fjand- samlegt, og stundum hefur hann á tilfinningunni að ýmsir embættis- menn geri sér far um að vera lokaðir og fráhrindandi. Hann haföi heldur aldrei hugsað út í það, hversu marg- ir fangar eru illa læsir og skilja þar af leiðandi ekki bréf um réttarstöðu þeirra með tilvísunum í lagagreinar, sem ekki er að finna á staðnum. Margir, og þá ekki síst þeir yngstu, eru illa farnir af fikniefnaneyslu og afbrotin þá venjulega framin í eitur- vímu. Aldrei finnur hann það átakanleg- ar en eftir samtöl við þessa óham- ingjusömu ungu menn hversu mjög dómskerfið byggir á bókstaf og refsi- gleði en tekur lítið tillit til bakgrunns og aðstæðna þess sem á að fara að hegna. Heimilt er að veita föngum reynslulausn eftir helming eða tvo þriðju hluta afplánunar. Það á að vera hlutverk svokallaðrar fulln- ustunefndar að taka ákvörðun þar um. Menn telja að sú ákvörðun bygg- ist á hegðun viðkomandi fanga og mati á hvenær þeim er treyst að fara út á ný. Engum er hagur í að halda föngum lengur inni en nauðsyn ber til. Þaö er ótrúlegt en eldri fangar segja að við ákvörðun á reynslulausn sé hvorki farið eftir hegðun í fangels- inu né mati á hæfni til að samlagast þjóðfélaginu aftur, eingöngu eftir tegund afbrotsins. Þetta fær hann staðfest af fleiri en einum manni sem starfa að málefnum fanga. Tilgangurinn með þessum oröum, lesandi góður, er að reyna að gefa innsýn í líðan þeirra hundraða manna og kvenna sem sitja í íslensk- um fangelsum á ári hverju. Hún byggist að langmestu leyti á reynslu minni í fangelsinu á Kvíabryggju, sem almennt er talið langmannúð- legast af hérlendum fangelsum. Hvernig skyldi líðan Litla-Hrauns- fanga og þeirra aðstandenda vera? ORUGGUR & AFLMIKILL EINI BÍlilNN HÉRLENDIS MEÐ ÖRYGGISPÚÐA í ST/RINU V 'l > / Chevrolet Corsica LT fer saman styrkur, öryggi og hagstœtt verð, Þessi rúmgóði fjögurra dyra lúxusvagn sameinar kosti fjölskyldubíls og sportbíls. Hann er aflmikill, innrétting vönduð og farþegarýmið er sérsfaklega styrkf. ‘Nýskráning, skráningarmerki og ryðvörn eru ekki innifalin í verðinu. Auk þess er Chevrolet Corsica LT eini bíllinn á markaðnum sem er útbúinn með öryggispúða í stýrinu, sem blœs út við högg og veitir bílstjóranum vernd. Hann er sjálfskiptur, framhjóladrifinn, hljóðlátur og verðið er ótrúlega hag- stœtt fyrir alvöru amerískan fólksbíl. kr. 1.375.000 staðgr.* í HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 og 674300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.