Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991.
Sérstæð sákamál
DV
„Dreptu manninn
minn og ég er þín"
Fyrir nokkrum vikum fóru fram
i New Hampshire í Bandaríkjunum
réttarhöld í máli sem vakti slíka
athygh aö frá þeim var sjónvarpað,
ekki aðeins um sjálf Bandaríkin
heldur til annarra landa. Málið er
gjarnan kennt við Pamelu Smart
kennara sem tók sér fyrir elskhuga
einn af nemendum sínum. Nokkru
eftir að ástir tókust með þeim
fannst maður hennar skotinn til
bana á heimili þeirra hjóna. Þá
hófst rannsóknin, undanfari rétt-
arhaldanna sem áttu eftir að verða
svo mikið umíjöllunarefni.
í stíl kvikmyndar
Það var haustið 1989 sem Pamela
Smart, þá tuttugu og tveggja ára,
hitti Billy Flynn, þá fimmtán ára,
í fyrsta sinn. Billy gekk í Winnac-
unnetunglingaskólann í New
Hampshire en Pamela var náms-
ráðgjafi við skólann.
Starf Pamelu leiddi til þess að
kynni tókust með henni og Billy.
Pamela var gift og hét maður henn-
ar Geoffrey „Greg“ Smart. Hann
var tuttugu og fjögurra ára og
starfaði hjá tryggingafélagi. Höfðu
þau hjón ekki verið gift lengi, að-
eins í um hálft annað ár.
Kvöld eitt, þegar Geoífrey var á
ferðalagi, bauð Pamela Billy að
koma með sér heim. Þegar þangað
var komið tók hún fram kvikmynd-
ina Níu og hálf vika á myndbandi
og horfðu þau á hana saman.
Myndin vakti á sínum tíma veru-
lega athygli vegna djarfra atriða,
þar á meðal dansatriðis með Kim
Basinger. Þegar myndinni lauk bað
Pamela Billy að koma með sér upp
á efri hæðina. Þar sýndi hún hon-
um fatafelludans í líkingu við þann
sem Basinger sýndi í myndinni.
Síðan hauð hún Billy að koma upp
í rúm með sér. Þar með var sam-
band þeirra komið á nýtt stig.
/
Blindaður
afhrifningu
Það er ekki á hverjum degi sem
fimmtán ára gamall strákur fær að
heyra að eldri konu lítist vel á
hann. Billy fékk hins vegar að
heyra þetta frá Pamelu og það hafði
sín áhrif á hann.
Á næstu vikum skiptust þau
Pamela og Billy á eldheitum ástar-
bréfum í skólanum og í bíl hennar
áttu þau marga fundi.
Ekki leið hins vegar á löngu þar
til Pamela sagði við Billy að hún
yrði að biðja hann um að ráða
mann sinn af dögum. Sagði hún
hjónaband þeirra slæmt og mis-
þyrmdi hann henni líkamlega og
væri henni andleg þrúgun.
Þegar Billy leitaði svars við því
hvers vegna hún sækti ekki um
skilnað svaraði hún því til að gerði
hún það fengi Goeffrey húsið sem
þau byggju í, innbúið og hundinn,
Halen, sem var nefndur eftir rokk-
söngvara. En þungarokk var ein-
mitt eitt sameiginlegra áhugamála
Pamelu og Billys.
„Baraviðtvö..."
Þegar Billy sagði að sér litist ekki
á að myrða Geoffrey Smart sagði
Pamela að þaö yrði létt verk að
ráða hann af dögum ef Billy fengi
aðstoð einhverra skólabræðra
sinna. Á eftir gætu þau tvö, hún
og Billy, svo búið saman án þess
að aðrir færu að skipta sér af því.
Morðið mætti fremja þannig að það
Pamela og Geoffrey Smart.
Patrick Randall.
liti út fyrir að innbrotsþjófur hefði
verið á ferðinni.
Billy féllst á röksemdir Pamelu
og leitaði til tveggja skólabræðra
sinna, Patricks Randall, sautján
ára, og Raymonds Fowler, nítján
ára. Þegar hann hafði lýst áætlun-
inni fyrir þeim féllust þeir á hana.
Þegar Pamelu varð ljóst að hug-
mynd hennar um að ryðja Geoffrey
úr vegi yrði nú að veruleika tók
hún að skipuleggja morðið í ein-
stökum atriðum. Þannig sagöi hún
Billy að ekki mætti nota hníf til
verknaðarins því þá færi blóð í
húsgögnin. Sömuleiðis bað hún
hann um að sjá til þess að hundur-
inn yrði lokaður inni í kjallaranum
meðan morðiö væri framið þannig
að hann þyrfti ekki að horfa á „því
það gæti orðið skelfileg reynsla fyr-
ir hann.“
„Ekki taka
hringinn"
Aö kvöldi 1. maí 1990 komu Billy
og Patrick saman að húsi Pamelu.
Þeir höfðu búið sig vel undir það
Pamela á mynd sem Billy segir
að hún hafi gefið sér.
sem þeir ætluðu að gera. Þeir höfðu
vaflð límbandi um fingurna og
voru þar að auki með hanska til
þess að vera vissir um aö skilja
ekki eftir sig nein fingraför.
Þeir fóru inni í húsið um kjallara-
dyrnar en gengu síðan upp á hæð-
ina þar sem þeir settust og biðu
þess að Geoffrey kæmi heim. Þegar
klukkan var um níu heyrðist lykli
stungið í skrána og nokkrum
augnablikum síðar stóð Geoffrey
Smart í anddyrinu. Þá stukku pilt-
arnir tveir á hann. Patrick þreif í
hár hans, slengdi honum upp aö
vegg og neyddi hann síðan til að
leggjast á hnén. Síðan skipaði hann
honum að taka af sér hringinn sem
hann var með á einum fingranna.
Geoffrey neitaði hins vegar að
gera það. Hann sagði það vera gift-
ingarhringinn hans og tæki hann
hann af sér yrði kona hans honum
mjög reið.
Meðan umræðan um hringinn
fór fram tók Billy sér stööu með .38
hlaupvíddar skammbyssu fyrir aft-
an Goffrey. Hana hafði hann fengið
úr vopnasafni föður Vances Latt-
ime.
Pamela Smart.
í nokkur augnablik stóð hann
fyrir fyrir aftan Geoffrey. Svo sagði
hann stundarhátt: „Guð fyrirgefi
mér.“ Síðan tók hann í gikkinn.
Falið
segulbandstæki
Moröið var fréttaefni daginn eftir
og var til umræöu bæði í Winnac-
unnetskólanum og á heimilum í
nágrenninu. í fyrstu gaf rannsókn
þess ekki neina sérstaka vísbend-
ingu en þagnarheit þau sem ungu
mennirnir þrír höfðu gefið héldu
ekki. Þannig fékk faðir Vances
fljótlega að heyra að skammbyssa
úr safni hans væri morðvopnið.
Hann fór því með hana til lögregl-
unnar og jjegar gerður hafði verið
samanburður á kúlunni sem fannst
í líkinu og kúlu sem skotið var til
samanhurðar úr byssunni kom í
ljós að hún var morðvopnið.
Rannsóknarlögreglan íhugaöi nú
leiðir til að afla þeirra gagna sem
dygðu til sakfellingar fyrir rétti.
Hún komst að raun um að aðstoð-
arstúlka Pamelu, Cecilia Pierce,
sextán ára, vissi um þátt hennar.
Því var leitað til Ceciliu og hún
beðin að fela segulbandstæki innan
klæða en ræða síðan málið við
Pamelu.
í samtalinu sem fór síðan fram
tjáði Pamela sig um ýmis atriði
málsins og varð ljóst þegar hlustað
var á upptökuna að hún var ekki
sú syrgjandi ekkja sem hún lést
annars vera. Kom það reyndar ekki
á óvart.
Pamela viðurkenndi fyrir Ceciliu
að hafa skipulagt morðið og ræddi
einstök atriði þess og þegar Cecilia
spurði hana hvað hún ætlaði að
segja lögreglunni ef hún yði tekin
til yfirheyrslu svaraði hún því til
að hún yrði ekki í miklum vand-
ræðum með að gefa skýringar sem
dygðu.
Cecilia spurði hana þá hvað hún
myndi gera ef Vance Lattime viður-
kenndi aðild sína að morðinu. Þá
svaraði Pamela því til að auðvitað
fylgdi þessu öllu sú áhætta að hún
yrði handtekin en hafa yrði í huga
að hún væri kennslukona og yrði
henni því frekar trúað en nemanda.
Tilfinningalaus
Segulbandsupptakan varð til
þess að málið komst á nýtt stig.
Brátt lá fyrir játning þriggja af
ungu mönnunum sem tekið höfðu
þátt í að skipuleggja og fremja
morðið. í fyrstu vissi Pamela ekki
um það en auðvitað brá henni þeg-
ar hún var handtekin og henni.gef-
ið að sök að hafa átt hugmyndina
að verknaðinum og fengið skóla-
piltana þrjá til að framkvæma
hann.
Þegar réttarhöldin hófust var
ljóst að óvenjulegt mál var á ferð-
inni og dreif að blaða- og sjónvarps-
menn. Var daglega sjónvarpað úr
réttarsalnum.
Pamela virtist hafa talsvert sjálfs-
traust er réttarhöldin hófust. En
brátt fór að halla undan fæti fyrir
henni. Þegar hún var beðin að gefa
skýringar á samtali sínu við Cecil-
iu, því sem tekið.var upp á segul-
band, sagði hún það aðeins hafa
veriö lið í þeirri áætlun sinni að
hefja eigin rannsókn á moröi
manns síns.
Þá varð það ekki til að vekja
traust á Pamelu hjá kviðdómend-
um, dómara og öðrum þegar hún
lýsti því pr hún kom að líki manns
síns. Þótti það bera vitni um
óvenjulegt tilfinningaleysi hjá
henni.
Kviðdómendur voru í þrettán
stundir að komast að niðurstöðu.
Hún var á þá leið að Pamela væri
sek og í framhaldi af því fékk hún
ævilangan fangelsisdóm án mögu-
leika á náðun.
Þeir Billy Flynn og Patrick Rand-
all fengu hvor um sig tuttugu og
átta ára dóm með möguleika á náð-
un. Vance Lattime fékk átján ára
dóm og báru þremenningamir
vitni gegn félaga sínum Raymond
Fowler sem lýst hafði sig saklausan
af þátttöku í morðinu.
Eftir réttarhöldin ræddi talsmað-
ur rannsóknarlögreglunnar, sá
sem stjórnað hafði rannsókn máls-
ins, við fréttamenn. Þar lýsti hann
Pamelu Smart á þann veg að hún
væri „kaldlynd, slungin, eigingjörn
og beitti öðrum fyrir sig.“
Um dóminn yfir henni sagði
hann: „Ævilangur dómur án
möguleika á náðun er einmitt það
sem hæfir þessari ungu konu.“
En hvað sagði Pamela sjálf um
örlög sín? „Það er ótrúlegt að þetta
skyldi koma fyrir mig.“