Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991. 15 Ég sat uppi á Grilli eitt sólskins- kvöldiö um daginn. Haföi útsýni yfir Háskólalóðina og niður í Hljómskálagarö og Suöurgatan var ekkert nema sól og vor. Þetta var sannarlega fagurt vorkvöld í vest- urbænum og reyndar víöar um landið og maður gleymir rigning- arsuddanum og vindrassinum undir slíkum kringumstæöum og fyrirgefur norðanáttina af ein- skærri gleði yfir því að fá að vera til í svona góðu veðri. Ég var nýbúinn að panta mér matinn: kjúklingalifur með rifs- berjum í forrétt og saga gratin í aðalrétt sem þeir segja á matseðlin- um að hafi verið matreitt í sautján ár á Grillinu við miklar vinsældir. Maðurinn á móti mér hafði pantað sér reyktan og innbakaöan lax og lambakótelettur á eftir og svo var boðið upp á dýrindis hvítvín með þessum réttum og veislan var rétt að heíjast. Matsalurinn var þéttset- inn, mestmegnis af útlendingum í boði landa minna, og það er senni- lega lygi sem sagt er um ferða- mennina að þeir færi okkur gjald- eyristekjur. Islendingar eru ennþá að sanna gestrisni sína gagnvart útlendingum og halda uppi risnu sinni á dýrustu matstöðunum eins og höfðingjum sæmir og á meöan éta útlendingarnir ókeypis á Grill- inu og skemmta sér vel. Ekki það að hér væri á ferðinni hjálp til hungraðra eða söfnun fyr- ir sveltandi heim því ekki sá ég betur en flestir væru þarna vel haldnir til holdsins og maðurinn við næsta borð iðaði allur af hundr- aö og tuttugu kílóa spiki og við langborðið fyrir miðju sátu prúð- búnir businessmenn í boði ónafn- greindra íslenskra höfðingja undir svignandi veisluborði og struku á sér vömbina þegar meltingarfærin höfðú ekki undan. Aukakíló að yfirlögðu ráði Hinum megin í salnum sá ég til- sýndar þekktan mann úr þjóðlíf- inu, sem hafði eytt ævi sinni við fundarborð og ábyrgðarstörf, og það var ekki sjón að sjá manninn, sjónvarpið til að ná ellefufréttum fyrir háttinn. Ég var orðinn full- komlega sáttur við þetta kvöld og þurfti þar að auki ekki að hafa áhyggjur af vigtinni, sem haíði ver- ið biluð í langan tíma, og kcdóríurn- ar úr Grillinu fengu að vera í friði fyrir mér og ég í friði fyrir þeim. í haust Sem ég sit í mestu makindum fyrir framan sjónvarpið eftir frétt- irnar og á mér einskis ills von birt- ist allt í einu á skjánum Sigrún þessi Stefánsdóttir sem stöðugt hef- ur verið að angra mann með heilsurækt hvers konar og er nú farin af stað með þáttaröð um trimm og líkamsrækt. Dembir síð- an yfir alþjóð og mig, blásaklausan, kynstrunum öllum af upplýsingum um holla lífshætti, skipulegt mat- aræði og reglusemi í hreyfingu. Þama komu fram læknar og íþróttaþjálfarar og röktu fyrir manni skaösemi offitu og gagnsemi íþrótta og ég fékk aftur ógleði af veislumatnum í maga mínum. Eins og maður vissi þetta ekki! Er hvergi friður fyrir þessum dé- skota? hugsaði ég og fékk mér bjór til að svala þorstanum og dagur var að kveldi kominn og dagurinn var hvort sem er eyðilagður fyrir manni: góð veisla, gott kvöld, með sífelldum áminningum um heilsu- samlegt líferni. Var ég ekki búinn að ákveða að byija á skokkinu eftir helgi? Aö minnsta kosti ekki seinna en um næstu mánaðamót. Ég veit vel hvað er hollt og heilsusamlegt líferni og algjör óþarfi og átroðn- ingur að velta manni upp úr því í tíma og ótima og auk þess er ég forystumaður í íþróttahreyfing- unni og hef lagt mitt af mörkum til heilbrigðrar æsku. Hvaða læti eru þetta eiginlega? Er eftir nokkru að bíða? Svo mundi ég eftir því að það var fundur hjá íþróttafélaginu í upp- siglingu og kokkteill hjá breska sendiherranum og við ætluðum að grilla á fostudagskvöld með kunn-, Hristu af þér slenið þreytulegan og gamlan fyrir aldur fram. Hafði greinilega ekki mátt vera að því um sína daga að sinna sjálfum sér vegna annríkis við að sinna öðrum, án þess að ég myndi eftir því í augnablikinu hvað hann hafði látið gott af sér leiða. Það var slen yfir þessum manni og hann var ekki líklegur til að hrista af sér það slen þar sem hann sat þarna með áhyggjur annarra á herðunum. Við borðið fyrir aftan mig sátu íjórar maddömur og töluðu amer- ísku og höfðu augsýnilega gefist upp í miðri steikinni, sem lá þarna á diskum þeirra óhreyfð og óétin, af því forrétturinn hafði reynst þeim ofviða. Eru þó Ameríkanar ýmsu vanir, hugsaði ég og minntist ferðar minnar til Bandaríkjanna þegar ég þyngdist um ein sjö kíló vegna ofáts á matarskömmtum þar í landi vegna þess að ég er alinn upp við það að klára matinn minn. Bandaríkjamenn kunna sér ekki hóf í matargerð, enda þekki ég enga þjóð sem safnar jafnmörgum auka- kílóum að yfirlögðu ráði. Þessar amerísku konur á Grillinu höfðu greinilega fengið annað upp- eldi en ég og depluðu ekki einu sinni auga af samviskubiti þegar næstum því óhreyfðar nautasteik- umar voru bornar fram í eldhús aftur og beint ofan í ruslafötumar. Mér varð hugsað til þeirrar land- búnaðarstefnu hér á landi og ann- ars staöar þar sem bróðurpartur- inn af offramleiðslunni er borinn á haugana af því fólk hefur ekki einu sinni lyst á því að fá hann fram- reiddan. Hvað þá sér til munns. Löngu dauður Jæja, þarna sat ég í Grillinu og rétt byrjaður á kjúklingalifrinni þegar ég tók eftir konu í íþrótta- búningi hlaupa eftir Suðurgötunni og brátt sá ég annan trimmara og svo enn annan og ég taldi um það bil þrjátíu manns á skokki næsta klukkutímann. Niðri við Háskóla voru strákar í boltaleik beggja megin á skólalóðinni, niðri á bíla- plani var þriðji hópurinn og jafnvel í Hljómskálagarðinum voru aðrir þrír eða fjórar hópar að leik. Ná- grennið iðaði allt-af sporti og hreyf- ingu og ég horfði hugfanginn á þessa líkamsrækt og leikgleði og kjúklingakæfan stóð í mér. Það væri nú aldeilis nær að vera með í leiknum í stað þess að kýla vömb- ina og sulla í sig hvítvíninu. Það væri aldeilis nær að taka sér tak og hugsa um heilsuna og hreystina í stað þess að troða í sig mat pg víni meira en góðu hófi gegnir. Ég hafði hálfgerða skömm á sjálfum mér og kyngdi sektartilfinningunni með lifrinni. Svo kom saga gratin, kúffullur diskur af blönduðum sjávarréttum, og trimmaramir héldu áfram að streyma fram hjá eftir Suöurgöt- unni og þeir skoruðu hvert markið á fætur öðru á skólalóðinni og á endanum missti ég lystina og leifði eins og þær amerísku. Þetta er áreiðanlega í fyrsta og eina skipti sem ég gefst upp við matinn minn af mórölskum ástæðum! Það er hins vegar af útlendingn- um að segja, sem var með mér við borðið, að hann át sinn reykta lax Laugardags- pistOI Ellert B. Schram og feitar kóteletturnar af þeirri áfergju sem sæmir sveltandi heimi og hafði ekki minnstu samvisku af því að storka heilsufræðinni. Það veröur líka að virða honum það til vorkunnar að hér var sjötíu og sjö ára gamall maður í heimsókn og í okkar boði og hann væri sennilega löngu dauður ef hann hefði ekki lifað allar þessar máltíðir afl Auk þess var hann gestur þetta kvöld og ég hef tekið eftir því að gestir borða yfirleitt meira heldur en gestgjafar og á það ekki síst við um mig sjálfan. Ég hef alltaf betri lyst á mat þegar ég þarf ekki að borga hann sjálfur og ef ekki hefði verið íyrir þetta bannsetta útsýni á Grillinu hefði ég sjálfsagt tæmt diskinn og beðið um meira. Eftir helgi Svo kom eftirrétturinn með millj- ón kalóríum og kaffi og koníak og vindill og áður en yfir lauk hafði ég losnað við meinlætasemina og samviskubitið og tók því sem að höndum bar í lystisemdunum. Enda var orðið áliðið kvölds og trimmararnir hættir að ónáða mig fyrir utan gluggann. Auk þess varð ekki aftur snúið þetta kvöld og best að njóta þess sem á boðstólum var. Það er líka alltaf hægt að taka sér tak daginn eftir og ég var staðráð- inn í því að byrja á trimminu á morgun og hrista af mér slenið. Æ, á morgun varð ég að mæta á fundi og var búinn að lofa mér í mat aftur, mundi ég um leið og ég ákvað að byrja eftir helgi. Það er jú það sem Islendingar gera jafnan þegar mikið liggur við: fresta hlut- unum fram yfir helgi, hvernig sem á þeim þjóðarkæk stendur. Allir dagar eru jú eins og jafnlangir og næsta vika er eins og þessi vika og ekkert sem bendir til að dagarnir eftir íielgina verði öðruvísi en aðrir dagar. En það er nú önnur saga og það kom sér vel fyrir mig að byija að trimma eftir helgina og meðan gat ég sinnt bæði súkkulaðikök- unni og koníakinu. Hvað munaði um eitt koníaksglas í viðbót? Mað- ur verður jú að vera samstiga gest- um sínum og það er ekki hægt að láta þá drekka eina! Ég rúllaði heim um ellefuleytið, pakksaddur og hálfskýjaður, og var fyrir löngu búinn aö jafna mig á þessu menningarsjokki útsýnisins og velti mér upp í sófa fyrir framan ingjafólki með fordrykk og tilheyr- andi og svo var ráðstefna um helg- ina og ég þarf að fara utan í næstu viku og í næsta mánuði liggur fyrir verkefni sem ég þarf að ljúka. Það verða langir vinnudagar í júní. Svo þarf að fara með bílinn í viðgerð og gera við lekann á þakinu og svo var aftur kokkteill og matur þegar frændfólk mitt frá útlöndum kem- ur í heimsókn. Þessu þarf öllu að sinna: skylduverkin kalla, bíllinn, húsið, frændfólkið, og svo þarf maður einhvem tímann að komast í frí og ég sá ekki fram á að mér tækist að hrista af mér slenið fyrr en einhvern tímann seinna í sum- ar. Það verður ekki fyrr en í haust sem ég kemst af stað í heilsurækt- inni. Ég háttaði mig og gekk inn á bað- herbergið. Sá afleiðingarnar af át- veislunni í allri sinni nekt. Lagðist í rúmið og sundlaði á koddanum. Maður var ekki til mikils brúks það kvöldið! Hraut það sem eftir var nætur. Trimmið fyrir utan gluggann í Grillinu sat enn fast í huga mér þegar ég vaknaði. Kalóríurnar voru ennþá utan á mér. Timbur- mennirnir í höfðinu á mér. Fund- imir vom fram undan. Eftir hverju var eiginlega að bíða? Er nokkur endir á fundahöldum og kokkteil- boöum? Er nauðsynlegra að við- halda bílnum og húsinu heldur en eigin heilsu? Hristir maður nokk- um tíma af sér sleniö meðan slenið hefur forgang? Er eftir nokkm að bíða? Ég fer í Krabbameinshlaupið í dag. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.