Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991. Húsnæði fyrir héraðsdómstól Hafnarfjarðar óskast Öskaö er eftir til kaups eða leigu húsnæði i Hafnarfirði fyrir héraðs- dómstól Hafnarfjarðar. Um er að ræða 450-600 m2 skrifstofuhús- næði með greiðri aðkomu og aðgengi fyrir fatlaða. Til greina kem- ur húsnæði á byggingarstigi. Afhending skal miðast við að hús- næðið verði fullbúið um mitt næsta ár. Tilboði, ásamt nánari lýs- ingu og teikningu, sé skilað á skrifstofu vora að Borgartúni 7 eigi síðar en 25. júní nk. IIMNKAUPASTOFIMUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK í GIFTINGARHUGLEIÐINGUM? Fyrirtæki, sem er að undirbúa markaðsátak, óskar eftir að komast í samband við ungt par sem ætlar að stofna heimili og ganga í hjónaband í september 1 991. Þarf að vera fólk sem á eftir að verða sér úti um meginhluta búslóðar. Mjög góð laun eru í boði, eða 200 þúsund krónur. Þau sem hafa áhuga á að kynna sér þetta tilboð nánar og uppfylla framangreind skilyrði sendi bréf, merkt „Markaðsátak", til auglýsingadeildar DV fyrir 1. júli nk. Æskilegt að mynd fylgi. Til sölu áhaldahús Vegagerðar ríkisins, Blönduósi Kauptilboð óskast í áhaldahús Vegagerðar ríkisins að Efstubraut 5, Blönduósi, samtals 1152 m3 að stærð. Brunabótamat kr. 11.643.000,-. Húsið verður til sýnis í samráði við Þorvald Böðvars- son rekstrarstjóra, Hvammstanga (s. 95-12455). Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum aðila og á skrif- stofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð merkt: „Útboð nr. 3703/1" berist skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 25. júní nk. þar sem þau verða opnuð í viður- vist viðstaddra þjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK --------------------------------------------------------N Útboð Kollafjöröur 1991 y/jHT Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í styrkingu ’w/JEr 6,2 km kafla á Vestfjarðavegi um Kollafjörð. Helstu magntölur: Fyllingar 3.800 m3, neðra burðarlag 15.500 m3, bergskeringar 1.250 m3, malarslitlag 3.000 m3. Verki skal lokið 1. nóvember 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík, Borgartúni 5 (aðalgjald- kera), frá og með 11. þ. m. Skila skal tilþoðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 24. júní 1991. Vegamálastjóri £HS '* %is^h Tívolí- Hveraportið Glæsilegt markaðstorg alla sunnudaga í Hveraportinu. Góðar vörur á lágu verði. Pantanir á sölubásum í s. 91-676759 (Kristín) og 98-34673 (Tívolí). Tívolí er opið alla daga vikunnar. ____Til okkar er styttra en þú heldur. Tívolí, Hveragerði Leikarinn Fred Dryer hefur rifið þættina um Hunter lögregluforingja upp vinsældastigann. Ung gestaleikkona sem kemur til starfa með Hunter í júlímánuði en hann hefur verið iðinn við að skipta um samstarfskonur að undanförnu. Vinsæll lögguþáttur á Stöð 2: Hunter og löggukonumar Hunter þykir allmjög sérkennilegur i fatavali en hann klæðist jafnan gallabuxum og fínum jökkum með bindi. Þarna hefur hann hins vegar klætt sig upp á ásamt hinni nýju aðstoðarkonu og fá sjónvarpsáhorfend- ur væntanlega að sjá af hvaða tilefni í byrjun júlímánaðar. Lögreglumaðurinn Hunter á Stöð 2 hefilr fyrir löngu aflað sér tals- verðra vinsælda hér á landi. Hunt- er hefur þó ekki verið við eina fjöl- ina felldur í kvennamálum að und- anförnu og mörgum aðdáendum varð ekki um sel þegar dökkhærða snaggaralega lögreglukonan McCall var allt í einu hætt störfum og ung ljóska komin í staðinn. Hún á þó ekki eftir að endast lengi því að í byrjun júlí kemur ný lögreglu- kona til starfa með Hunter. Það er leikkonan Lauren Lane sem leikur Chris Novak. Það er leikarinn Fred Dryer sem leikur hinn snjalla lögreglumann Hunter. Þættirnir eru enn í fram- leiöslu en þeir þykja óvenjulegir á margan hátt og þaö er ekki síst að þakka Fred Dryer sem leikstýrir oftast sjálfur. Fred hefur talsverð- an metnað gagnvart þáttunum um Hunter og hikár ekki við að breyta handritinu ef honum finnst að það gæti verið betra. Og hann þykir kröfuharður í garð samleikara. Fred Dryer var atvinnumaður í fótbolta áður en hann sneri sér að leiklistinni. Hann segist vilja vera atvinnumaður í leiklistinni eins og í fótboltanum og því á allt að vera pottþétt. Þættirnir um Hunter voru fyrst geröir árið 1984 en í fyrstu voru þeir ekkert sérstaklega vinsælir og voru því sendir út á miður heppi- legum sjónvarpstíma. Dallas var þá ofarlega á vinsældarlista fólks um allan heim. En Fred Dryer var ákveðinn í að drífa þættina upp vinsældastigann og það hefur tek- ist. Líklegast má þakka það Fred Dryer sem nánast fékk því ráðið hvernig persóna lögregluforinginn Rick Hunter ætti að vera. Þann 2. júlí byijar Stöð tvö að sýna nýja þáttaröð um Hunter en þá kemur nýja leikkonan til sög- unnar. Reyndar eru tveir fyrstu þættirnir framhaldssaga. Lauren Lane, sú er fékk hlutverk lögreglu- konunnar, hafði aldrei séð einn einasta þátt af Hunter er henni bauðst hlutverkiö. í Hollywood segja þeir að saga hennar sé líkust ævintýrinu um Öskubusku því að áður hafði hún nánast aldrei stigið á svið né leikið í sjónvarpsþáttum. Reyndar hafði Lauren mestan áhuga á að læra fjölmiðlun en kennari hennar hvatti hana á leik- listarbraut eftir að hún hafði sýnt dágóða hæfileika í skólaleikritum. Hún fór í leiklistarháskóla í San Fransisco og gekk mjög vel. Hún var ein af tíu leiknemum sem kom- ust áfram í skólanum og fékk í framhaldi af því nokkur hlutverk í sambandi við skólann og leikhóp sem hún starfaði með. Þegar háskóli hennar kynnti nemendur fyrir leikstjórum og framleiðendum kom einn slíkur frá NBC sjónvarpsstöðinni auga á Lauren Lane og hún fékk hlutverk í Hunter þáttunum. Eins og áður sagði hafði leikkonan unga aldrei séð Hunter-þættina en það höíðu hins yegar foreldrar hennar og vin- ir gert og ráku allir upp stór augu þegar fréttist af henni sem Chris Novak, lögreglukonu í Hunter. Þannig geta ævintýrin ennþá gerst. Lane er ógift. Hún hefur áhuga á leikhúsferðum þangað sem hún fer oft með vinum sínum. Eins og Fred Dryer býr hún í Los Angeles. Og nú geta Hunter-aðdáendur beðið og dæmt sjálfir um leikhæfileika þessarar „nýju stjörnu".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.