Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Side 16
16 LAUGARDAGUR 8. JÚNl 1991. fiórum árum síðar Ungur maöur situr í bíl fyrir utan Skólavörðustíg 9, klukkan er hálf- tólf. Nú er komið að kveðjustund með hans nánasta ástvini því að hann er að fara að sitja af sér nokkurra mán- aða dóm. Hann braut af sér fyrir fjórum árum og nú er loksins komið að því. Fyrr um kvöldiö hafði verið haldin kveðjustund með fjölskyldunni þar sem nánustu ættingjar hans voru saman komnir. Hann kvaddi fólkið, síðast móöur sína. Á tímanum síðan hann braut af sér hefur honum tekist að gjörbreyta lífi sínu til batnaðar. Hann hefur tekið sig á og hvorki gerst brotlegur né orðið fyrir neinum skakkafollum. Hann hefur stofnað fjölskyldu og keypt sér hús og lifir nú aö öllu leyti sem fyrirmyndar þjóðfélagsþegn. Verst er að það er ekki hann einn sem nú á að taka út refsingu heldur einn- ig fjölskylda hans, einkum eiginkon- an sem hann kynntist fyrir tveimur árum. Síðan þá hafði þessi dómur hangið yfir þeim. Allt þeirra framtíð- arskipulag, draumar, vonir og þrár höfðu strandaö á sömu áleitnu spurningunni, sem enginn hafði get- að svaraö: Hvenær skyldi hann verða kallaður inn? Þessi eilífa, nagandi óvissa hefur í raun jafngilt margfaldri lengingu á dómnum. Þau höföu bæði reynt að reka á eftir því að málið yrði tekið fyrir en lítið uppskorið nema leið- indi, vonbrigði og beiskju út í dóms- kerfið. Lokaður inni Ungi maðurinn tekur ferðatöskuna og kveður eiginkonu sína. Skilnaður- inn er enn sárari en hann hafði búist viö. Niðurlútur gengur hann á vit hins óþekkta, hringir bjöllunni og er hleypt inn. Á móti honum tekur ein- kennisklæddur fangavöröur. Hann er læstur inni í tómlegu herbergi með rimlum fyrir gluggum. í því er naglfast borð og trébekkur. Honum er tjáö að hann þurfi aö gista Síðumúlafangelsið í 3-4 nætur. Hann gerir enga athugasemd við það, þekkir þá stofnun aðeins úr fréttum. Honum er boðinn kaffibolli meðan hann bíður. Hálftíma seinna koma fjórir lög- regluþjónar og fylgja honum út í lög- reglubíl. í Síöumúlanum er tekið á móti honum, hann er látinn fara í bað og síðan fylgt inn í klefa. Þung jámhurðin skellur í lás. Fangaverð- irnir eru ópersónúlegir og virðast lít- ið gera til að létta komu hans. Hann er einn í klefa sem líklega er þrír fjórir fermetrar að stærð. í klef- anum er rúmbálkur með kodda og þunnu teppi. Það eru sængurfötin. Honum gengur illa að sofna og hugur hans er á fullri ferð um öll þau mál- efni sem hann hefur nú þurft að fara frá fyrir utan. Um níuleytið er hann vakinn með tveim brauðsneiðum og kaffibolla. Hann fær að fara fram til að þvo sér og bursta tennumar í fylgd fanga- varðar, verður síöan aö fara beint inn í klefann aftur. Ekki sér hann neitt til annarra fanga enda á Síðu- múlafangelsið ekki að vera fyrir af- plánunarfanga heldur gæsluvarð- haldsfanga, og allar reglur em mið- aöar við þá. Litlu síðar er honum til- kynnt að hann verði fluttur í hegn- ingarhúsið um hádegið. Honum finnst einangrunin í þröngum og loft- litlum klefanum yfirþyrmandi. -bréf frá fanga sem dvaldist á Kvíabryggju Ungur maður var tekinn ölvaður við akstur þrisvar sinnum í sömu vikunni árið 1987. Fjórum árum síðar var honum gert að sæta refsingu dómsins. Maðurinn sat inni frá 1. febrúar 1991 til 17. maí sl. Á þeim tíma frá því brot- ið var framið og þar til dómur var kveðinn upp breytti þessi maður lífsstíl sínum og hérna lýsir hann viðbrögðum sínum og reynslu þá þrjá mánuði sem hann sat inni. Af eðlilegum ástæðum er nafn mannsins ekki birt en hann taldi það best vegna aðstandenda sinna. ÞaA getur veriö erfitt að sætta sig við að vera settur bak við lás og slá þegar mikil umskipti hafa orðiö í lifinu. Svo var þaö með þann fanga sem hér segir frá en hann kvæntist tveimur árum eftir að brotið var framiö og lifði al- gjörlega eölilegu lífi - þegar kallið kom. Milli fangelsa Klukkan hálftvö er hann sóttur og honum ekið niður á Skólavörðustig í fylgd þriggja einkennisbúinna lög- regluþjóna. Fangavörður tilkynnir honum að strákarnir, þ.e. fangamir, komi honum inn í kerfið þarna inni. Hann vísar honum inn og læsir hurð- inni. Á móti honum leggur þykkan sígarettureyk. Innilokað óloftið er eins og veggur sem hann gengur á, út úr klefunum leggur háværa tónl- ist og mannamál, enda eru illa grá- málaðar hurðirnar í hálfa gátt. Það er nefnilega ekki hægt að loka þeim á daginn. Einn fangi situr á eina borðinu sem er á þröngum gangin- um. Forvitnin verður hræðslunni yfirsterkari, og hann fer að svipast um í þessum húsakynnum sem hann á eftir að dveljast í á næstunni. Hversu löng sú dvöl verður hefur hann ekki hugmynd um. Þannig gengur þetta næstu þijá dagana. Það er enginn klefi laus svo aö hann þvælist um og hangir á gang- inum þar sem ekki er einu sinni stóll til að tylla sér á. Á kvöldin er hann fluttur upp í Síðumúla til að sofa. Loks þegar hann fær úthlutað helmingnum af tveggja manna klefa hefur hann þó að minnsta kosti af- drep þar sem hann getur sest eða lagst niður án þess að spyija um leyfi. Hann kynnist fóngunum smátt og smátt og reynir að sjá út þá sem hann heldur að séu hvorki á kafi í fikniefnum né virkir í afbrotum. í þessu þrönga, þrúgandi geymslu- húsnæði fyrir fanga er öllum bland- að saman i einn lítinn pott, varð- haldsfóngum innan um afplánunar- fanga, geðsjúkum innan um heil- brigða. Þarna eru menn með dóma fyrir manndráp, ölvunarakstur, lík- amsárásir, skjalafals, kynferðis- glæpi, fíkniefnasölu og íjármálamis- ferli. Þarna eru útigangsmenn og eit- urlyfjaneytendur og maöur sem rétt- arkerfið hefur dæmt til geðmeðferð- ar eftir morðtilraun. Allar tegundir í einum graut. Smám saman tekst honum að setja sig inn í tilbeytingarlaust lífið í inni- lokuninni. Hann fer að sætta sig ögn skár við einangrunina, óloftið og ólystugan matinn. Hann fær að tala við konuna sína símleiðis þrisvar í viku, tíu mínútur í senn. Alltaf verða þau að gera ráð fyrir að síminn sé hleraður af fangavörðum, svo að um eðlileg og innileg tjáskipti er ekki að ræða. Hann reynir að láta tímann líða, les mikið og skrifar. Hann heyrir hörð- ustu síbrotamennina kenna 17 ára unglingi hvernig eigi að fara að því að fremja innbrot án þess að upp komist, hinn fullkomna glæp. Ungl- ingurinn situr hjá með opinn munn- inn og harmar klaufaskap sinn og fákænsku sem olli því að hann var tekinn. Líklega gleymir hann því að lærimeistari hans er sjálfur í fang- elsi. Ást í klefa Konan fær að heimsækja hann sunnudaginn eftir aö hann kemur inn. Hann hefði frekar viljað að hún sæi hann ekki í þessu umhverfi og á þessum stað. Auðvitað þráir hann aö hitta hana en á bágt með að ímynda sér fundi þeirra við þessar aðstæður. Fangavörður læsir klefa- hurðinni á eftir gestinum. Þau ræða saman um ýmislegt sem þeim brenn- ur í huga. Konan er yfirspennt og síhrædd um að einhver komi inn. Þau reyna aö njóta ásta, en varla er hægt að hugsa sér stað sem verr hentar til innilegra samskipta. Á eft- ir eru bæði vonsvikin. Hann hefur enga trú á að þaö eigi eftir að breyt- ast meðan hann dvelst á þessum stað. Að lokinni þriggja tíma samveru verður hún að fara. Eftir situr níst- ingssár tómatilfinning. Honum finnst hann vera að bregðast henni svo hrapallega. Það er hún sem nú verður aö takast á við lífið úti, skuld- irnar og einveruna. Það er hún sem þarf að mæta öllum auglitunum sem ýmist lýsa vorkunn, fyrirlitningu eða vandræðaleika. Álsaklaus hefur einnig hún verið dæmd til afplánun- ar en á annan hátt. Tíminn líður ofur hægt. Hann dvelst í hegningarhúsinu í nokkurn tíma, óratíma að því er honum finnst en stuttan miöaö við það sem algengt er. Ferö vestur Hálfum mánuði síðar er hann flutt- ur vestur á Kvíabryggju, í fangelsið þar. Honum hafði verið sagt af sam- fongum sínum að þar sé best að vera, bæði vinna, góður aðbúnaður og ríf- legt svæði til útivistar. Tveir fylgdarmenn úr svokallaðri boðunardeild gæta þeirra fanga sem fara vestur þennan dag. Gert er ráð fyrir að tekið verði á móti þeim við Vegamót. Þegar bíllinn nemur staðar sjá þeir jeppa meö tveim mönnum, sem auðsjáanlega eiga að flytja þá síðasta spöhnn. Annar mannanna heilsar með handabandi og kynnir sig. Hinn gef- ur sig ekki að þeim. Síðar kemst hann aö því að sá sem ekki kynnti sig er sjálfur Fangelsisstjórinn, hinn fangavörður. Það er ekkert rætt við fangana á leiðinni. Þegar fangarnir koma í fangelsiö er þeim visað á her- bergin. Þetta eru eins manns her- bergi og miðað við Skólavörðustíg- inn eins og í fínasta hóteli. Samt eru þau tómleg, og það leynir sér ekki að þau hafa hvorki verið máluð né þrifin nýlega. Veggirnir eru skreyttir sprungum og gulum tóbakstaumum. Fangavörðurinn, sem tekur á móti þeim, skrifar hjá sér nafn og aörar upplýsingar. Hann segir að strákam- ir setji þá inn í reglurnar í fangels- inu. Einhvern tíma seinna finna þeir inni í vaktherbergi fangavaröa guln- að blað með fangelsisreglum. Þær eru greinilega komnar til ára sinna því þar er vísað til sjónvarpslausu fimmtudagskvöldanna og annað blaö hefur verið sett yfir reglurnar. Sum- ir fangarnir koma og kynna sig og bjóða nýliðana velkomna. Þeir segja frá helstu reglum og gera grein fyrir daglegu lífi í fangelsinu. Einmana tekur hann upp úr töskunum og rað- ar fótunum sinum inn í skáp. Bjalla hringir og honum er sagt að þetta sé matarbjallan. Hann gengur inn í matsalinn. Flestir em sestir og byij- aðir að moka á diskana. Honum er bent á hvar hann eigi að sitja, því að hér hefur hver sitt sæti. Ekki dans á rósum Þeir nýkomnu halda saman um kvöldið og finna í því nokkurt öryggi í þessu ókunna umhverfi. Einn og einn fangi kemur inn í herbergið til þeirra og þeir heyra smátt og smátt meira um lífið í fangelsinu. Um kvöldið sofnar hann allnokkm sátt- ari við sitt hlutskipti en hann hafði verið áður. Dagarnir líða. Hann kemst að raun um að vistin hér er ekki alltaf dans á rósum. Það er togstreita milli fanga og fangavarða. Fangaverðir em mis- jafnir. Hann áttar sig á því að til að halda friðinn verður aö sigla á milli skers og bára í samskiptum við þá sem era hér inni. Hann getur ekki betur séð en að hér gildi ekki sömu reglur fyrir alla fanga. Sumir leggja sig niður við það alla daga aö upp- hefja sjálfa sig á kostnað samfanga sinna við fangaveröi sem með einni undantekningu virðast ekki nægileg- ir mannþekkjarar til að sjá hveijar hvatir búa þarna aö baki. Sjálfur fær hann að kenna á því hver áhrif bak- tal eins einasta fanga getur haft á yfirmann stofnunar. Hann hefur ekki dvalist lengi á þessum staö er hann sér hvernig lagst er á þá sem á einhvern hátt mega sín lítils. Stundum finnur hann sárt til þess hvernig'sumir samfang-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.