Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1991, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR §. JÚ.NÍ 1991.
DV___________Sviðsljós
Nýr maður í
lífi Madonnu
- eða sviðsett fyrir pressuna?
Nýverið mætti Madonna í opin-
bert boð með nýjan herramann sér
viö hlið. Hugsanlegt er að þessi
maður, Nick Scotti, eigi eftir að
taka pláss Sean Penn í hjarta Ma-
donnu.
En enginn veit hvort á miili
þeirra er heit ást eða hvort þetta
er eitt af uppátækjum söngkonunn-
ar til að vekja eftirtekt: Nick þykir
ekki ósvipaður þeim mönnum sem
Madonna hefur áður falliö fyrir,
dökkur á brún og brá og suðrænn
í útliti.
Fyrir nokkrum vikum kom Ma-
donna á kvikmyndahátíðina í
Cannes en þá sást nýi vinurinn
ekki með henni. Nýlega lýsti hún
því svo yflr að hún væri ekki búin
að gleyma Sean Penn. Nick gæti
kannski hjálpað henni að gleyma.
Madonna og Nick Scotti hafa sést
saman nýverið og menn velta því
nú fyrir sér hvort hér sé komin
stóra ástin í lífi söngkonunnar.
Málaðu
tilveruna
með
LACOSTE
litum
LACOSTE
Voyager frá Chrysler er
óneitanlega mjög áberandi bíll;
sérstakur í útliti og glæsilegur á velli.
Voyager kom fyrstur á markaðinn af
svokölluðum „fjölnota fjölskyldu-
bílum“, sem náð hafa miklum vin-
sældum erlendis. Enn heldur
Voyager forustunni og er leiðandi
fyrir þá er eftir fylgdu. Notagildi
þessara bíla er mjög fjölbreytilegt og
aksturseiginleikar einstakir. Hvort
sem þú þarft að standa í flutningum,
ert á leið í ferðalag með stóran hóp
eða hvaðeina, þá er Voyager frábær
kostur sem framúrskarandi fjöl-
skyldubíll, óvenju rúmgóður og
þægilegur -með farþegarými f'yrir
allt að sjö rnanns og möguleika á
ótrúlega stóru farangursrými.
Voyager er engan veginn ein-
faldur bíll, heldur eins og amerískir
bílar gerast bestir, íburðarmikill og
traustur.
VOYAGER ER ÚTBÚINN MED:
• Framhjóladrifi
• Fjögurra þrepa sjálfskiptingu
• V6 3.3 lítra vél
• Rafdrifnum, upphituðum
útispeglum
• Rafdrifinun rúðum
• Veltistýri
• Rafdrifnum ökumannsstól
• Aksturstölvu o.m.fl.
VERÐ KR. 3.250.000,-
Nú einnig fáanlegur með sídrifi
VOYAGER ALL WHEEL DRIVE
auk sama útbúnaðar
VERD KR. 2.626.900,-
^CHRYSLER
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • S: 42600