Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1991, Blaðsíða 5
FíMMTUráGUR 24/OKTÓBER 1991:
5
Fréttir
Guðmundur J. Guðmundsson, fráfarandi formaður Verkamannasambands-
ins, litur yfir salinn. DV-mynd BG
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Jökuls:
Bölmóðurinn nær
ekki inn á þingið
„Það er hressilegur tónn í fólki á
þinginu. Það er enginn hér í vinnu-
veitendasambandsástandi. Bölmóð-
ur þeirra nær ekki inn á þingið. Mér
sýnist líka að þetta ætli að verða
gott vinnuþing. Grunntónninn í ræð-
um manna um kjaramál er sá að
halda verðbólgunni í skefjum en taka
það sem lofað var í síðustu kjara-
samningum sem var aukinn kaup-
máttur. Einnig er mikið rætt um
tekjujöfnun í þjóðfélaginu, meðal
annars í gegnum skattakerflð," sagði
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfn í
Homafirði, í samtali við DV í gær.
Hið eiginlega þingstarf á þingi
Verkamannasambandsins hófst í
gær. Áætlað er að þinginu ljúki síð-
degis á morgun.
Rétt til þingsetu hafa 149 fulltrúar
frá 53 aðildarfélögum. Það er einu
félagi færra en var á síðasta þingi
sambandsins. Ástæðan er sú a$ tvö
verkalýðsfélög hafa sameinast. f að-
ildarfélögum Verkamannasambands
íslands eru nú 27.500 félagar.
Eins og áður hefur komið fram
ætla þeir Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður sambandsins, og Karl
Steinar Guðnason, varaformaður
þess, ekki að gefa kost á sér áfram.
Einnig hefur Ragna Bergmann,
formaður Framsóknar í Reykjavík,
ákveðið að gefa ekki kost á sér í
stjórn sambandsins þar sem hún
hefur setið.
-S.dór
Sjávarafurðir sem áfram verða tollaðar á Evrópumarkaði:
12-18 prósent
tollur á rækju
- nokkrar aðrar tegundir með 8-16 prósent toll
Enda þótt mikill ávinningur sé af
samningnum um evrópska efnahags-
svæðið fyrir íslenskan sjávarútveg
eru samt nokkrar fisktegundir sem
tollar verða ekki felldir niður af né
lækkaðir. Fyrir ákveðin byggðarlög
í landinu skiptir þetta miklu máli,
eins og til að mynda rækjufram-
leiðsluna á Vestfjörðum og hörpu-
skelvinnsluna við Breiðafjörð.
Þegar EES-samningurinn tekur
gildi 1. janúar 1993 verða 6 tegundir
sjávarfangs, sem veiðast við Island,
áfram fulltollaðar. Af þeim tegund-
um skipta 5 okkur máh, það eru heil-
söltuð síld, humar, lax, rækja og
hörpuskel. Síðan er það makríll en
hann veiðum við ekki.
Tollur á þessum vörum er og verð-
ur áfram:
Heilsöltuð síld, 12% tollur
Ferskur lax, 8% tollur
Heill humar, 8% tollur
Humarhalar, 16% tollur
Rækja, 12% til 18% tollur eftir teg-
undum
Hörpuskel, 8% tollur
Að sögn fróðra manna skipta tollar
af heilsaltaðri síld á mörkuðum vest-
ur-Evrópu litlu máli. Megnið afþeirri síldarflökum miklu máli fyrir okk-
vöru fer á aðra markaði. Aftur á ur.
móti skiptir tollaafnám á söltuöum -S.dór
20-35%
AFSLÁTTUR
Á 40 NOTUÐUM BÍLUM SEM TEKNIR
HAFA VERIÐ UPP í NÝJA
ÞETTA EINSTAKA TILBOÐ STENDUR
AÐEINS í FÁA DAGA
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-17
B I L ASA L A
SÆVARHÖFÐA 2 ® 674848