Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991. FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER'1991. 25 Iþróttir Japisdeildin í körfuknattleik: Ekkert lið öruggt með sigur hérna - sagði Hreinn Þorkelsson, þjálfari Snæfells, eftir sigur sinna manna Snæfell (45)93 UMFG ' (37) 90 10-9, 28-24, 34-30, (45-37), 49-45, 51-60. 73-73, 82-87, 86-89, 91-89, 91-90, 93-90. Stig Snæfells: Báröur Eyþórsson 27, Tim Harvey 26, Karl Guölaugs- son 15, Rúnar Guðjónsson 8, Alex- ander Helgason 6, Hjörleifur Hjör- leifsson 4, Hreinn Þorkelsson 2. Stig UMFG: Dan Krebbs 33, Guð- mundur Bragason 22, Pálmar Sig- urðsson 13, Marel Guðlaugsson 10, Rúnar Árnason 8, Hjálmar Hall- grímsson 2, Bergur Hinriksson 2. 3ja stiga körfur: Snæfell 5, UMFG 5. Vamarfráköst: Snæfell 20, UMFG 15. Sóknarfráköst: Snæfell 8, UMFG 8. Vítahittni: Snæfell 23/20, UMFG 22/18. Villur: Snæfell 20, UMFG 17. Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn Óskarsson, góðir. Áhorfendur: 360. A-riðill: KR . 6 5 1 600-517 10 Njarðvík.... . 5 4 1 432-393 8 Tindastóll.. . 6 2 4 532-552 4 Snæfell . 6 2 4 446-536 4 Skallagr . 5 0 5 374-456 0 B-riðill: Keflavík . 6 6 0 611-474 12 Grindavík.. . 6 4 2 492-471 8 Haukar . 5 3 2 451^173 6 Valur . 6 2 4 536-553 4 Þór . 5 0 5 393-447 0 Kristján Sigurðsson, DV, Stykkishólmi: „Ég setti upp þá taktík fyrir leikinn að taka Pálmar úr umferð og Bárður og Alexander leystu það vel. Liðið sýndi góðan karakter með að rífa sig upp í síðari hálfleik. Ég er mjög ánægður með strákana og ekkert lið er öruggt með sigur gegn okkur á heimavelli," sagði Hreinn Þorkels- son, þjálfari og leikmaður Snæfells, eftir að Snæfell hafði borið sigurorð af Grindavík, 93-90, í æsispennandi leik í Japisdeildinni í körfuknattleik í Stykkishólmi í gær. Harvey og Bárður skoruðu grimmt Leikurinn var í jafnvægi mestallan fyrri hálfleikinn en undir lok hálf- leiksins náðu heimamenn 8 stiga for- skoti. Þeir Bárður Eyþórsson og Tim Harvey voru Grindvíkingum erfiðir í fyrri hálfleik, Bárður skoraði 14 stig og Harvey 15. Dan Krebbs hélt Grindvíkingum nánast á floti, skor- aði 15 stig í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik byrjuðu leikmenn Snæfells illa og skoruðu aðeins 6 stig á fyrstu 8 mínútunum. Þetta nýttu Grindvíkingar sér vel, þeir náðu undirtökunum og náðu mest 9 stiga forskoti. Guðmundur Bragason var í miklum ham á þessum mínútum og skoraði 12 stig í röð. Æsispennandi lokamínútur Þegar ein og hálf mínúta vai eftir höfðu Grindvíkingar 5 stiga forskot og allt virtist stefna í sigur liðsins. Lokamínútan var magnþrungin. Þegar 18 sekúndur voru eftir jafnaði Karl Guðlaugsson metin með ævin- týralegri 3 stiga körfu og fékk að auki tvö vítaskot sem hann nýtti og allt í einu var Snæfell komiö með tveggja stiga forskot. í næstu sókn sinni fengu Grindvíkingar vítaskot. Dan Krebbs skoraði aðeins úr fyrra vítinu, Guðmundur Bragason náði frákastinu en skot hans geigaði og Snæfellingar náðu knettinum. Það var síðan Bárður Eyþórsson sem tryggði Snæfelli sigurinn með því að skora úr tveimur vítaskotum á loka- sekúndunum. Bárður Eyþórsson, Tim Harvey og Karl Guðlaugsson áttu allir mjög góðan leik í hði Snæfells og þá var þáttur Rúnars Guðjónssonar og Alexanders Helgasonar stór. Rúnar átti stórleik í vörninni og hélt Guð- mundi Bragasyni í skefjum og Alex- ander skoraði 6 stig í röð í síðari hálfleik. Hann kom heimamönnum inn í leikinn að nýju og þá gætti hann Pálmars vel í vörninni. Dan Krebbs var yfirburðamaður í liði Grindvíkinga og besti leikmaður- inn á vellinum, mjög fjölhæfur leik- maður. Guðmundar Bragasonar var vel gætt en hann gerði góða hluti á meðan Rúnar, leikmaður Snæfells, var utan vallar. Pálmar var í strangri gæslu og náði sér ekki á strik. „Þetta var erfitt. Leikmenn Snæ- fells mættu til leiks grimmir sem ljón og við fengum aldrei frið. Sigurinn hefði þó getað lent okkar megin," sagði Pálmar Sigurðsson við DV eftir leikinn. Bikarkeppni HSÍ í gærkvöldi: Ellef u mörk Sigga dugðu ekki til - Selfoss tapaði fyrir Stjömunni í Garðabæ, 22-17 Nokkrir leikir fóru fram í bikar- keppni HSÍ í gær. Aðalleikur kvölds- ins var viöureign 1. deildar liða Stjörnunnar og Selfoss en leikurinn fór fram í Garðabæ. Leikurinn var mjög jafn og spennandi og það var ekki fyrr en á síðustu tveimur mínút- unum sem Garðbæingar náðu að hrista Selfyssinga af sér. Marka- hæstir í liði Stjörnunnar voru Magn- ús Sigurðsson með 6, Einar Einars- son 5 og þeir Axel Björnsson, Haf- steinn Bragason, Patrekur Jóhann- esson skoruðu 3 mörk hver. Hjá Sel- fyssingum var Sigurður Sveinsson í aöalhlutverki, skoraöi 11 mörk og Einar Guðmundsson kom næstur með 4. Markahæstir í liði ÍH í leiknum gegn HK voru Jón Þórðarson 9 og Ólafur Magnússon 5 og hjá HK Gunnar Már Gíslason 7, Rúnar Ein- arsson 7, Óskar Elvar Óskarsson 6. Víkingar góðir í fyrri hálfleik Víkingar gerðu út um leikinn gegn HKN í fyrri hálíleik og í leikhléi var staðan 10-18. í síöari hálfleik léku heimamenn mjög vel og þegar upp var staðið var munurinn aðeins 5 mörk. Gísli H. Jóhannsson skoraði 10 mörk og Romas Pavolonis 4 fyrir HKN en fyrir Víkinga var Birgir Sig- urðsson með 8, Bjarki Sigurðsson 7 og Guðmundur Guðmundsson 6. Leik Vals-b og Ármanns þurfti að þríframlengja og þegar það dugði ekki til var gripið til bráðabana og þar tryggði Theodór Guðfinnsson Valsmönnum sigurinn. Einar Birgis- son skoraði 10 mörk fyrir Val en Ásgeir Sveinsson var atkvæðamest- ur hjá Ármanni, skoraði 8 mörk. Knútur Sigurösson skoraði 15 mörk fyrir b-lið FH í sigri á Ögra en Jóhann Ágústsson kom skammt á eftir með 14 mörk fyrir Ögra. Úrslit leikja í bikarkeppni HSÍ í handbolta í gær urðu þannig: ÍH-b-Afturelding...........26-30 ÍH-HK......................21-33 HKN-Víkingur...............24-29 Stjarnan-Selfoss...........27-22 Valur-b-Ármann...........32-31 FH-b-Ögri................32-22 Leik ÍBV og Gróttu var frestað og fer leikurinn fram í Eyjum í kvöld. Aðrir leikir í kvöld: Ármann-b-KR-b, Fjölnir-ÍR, Fram-KR, Víkingur-b- Haukar. -GH/ÆMK Einar Einarsson skoraði 5 mörk í sigri Stjörnunnar á Selfyssingum i gær. Knattspymuúrslit: Grikkir sigruðu Tveir leikir fóru fram í Evrópu- keppni landsliða í knattspymu í gær. í 6. riðh sigruðu Grikkir lið Finna á heimavelli, 2-0. Dimitris Saravakos og Stephanos Borbok- is skoruðu mörk Grikkja sem eiga raunhæfa möguleika á sigri í riðlinum. Staðan i riöhnum er þannig: Hohand.......7 5 1 1 15-2 11 Portúgal.J...7 4 1 2 10-5 9 Grikkland....5 3 1 1 10-5 7 Finnland.,...8 1 4 3 5-8 6 Malta........7 0 1 6 1-22 1 í 3. riðli skildu Ungvetjar og Norðmenn jafnir, 0-0. Þessi leik- ur skipti litlu um gang mála í riðl- inum. Sovétmenn eru meö pálm- ann í höndunum, eru í efsta sæti og eiga eftir leik gegn Kýpurbú- um. Staðan í 3. riðli er þannig: Sovétríkin...7 4 3 0 10-2 11 Noregur......7 3 2 2 '8-4 8 Ungverjaland .8 2 4 2 10-9 8 Ítalía.......6 2 3 1 9-4 7 Kýpur.....6 0 0 6 2-20 0 Jafnt hjá PSV Úrslit leikja í hollensku 1. deild- inni í knattspyrnu í gær: Ajax - Willem ....3-0 Vitesse - Utrecht.... ....1-0 PSV - Maastricht ....1-1 Volendam - Waalwijk ....0-3 Stuttgart tapaði í Þýskalandi fóru fram tveir leik- ir í fjórðungsúrslitum bikar- keppninnar. Stuttgart tapaði í framlengdum leik fyrir Bayer Leverkusen á útivehi, 1-0, og hð Hannover vann sigur á Karlsru- he, 1-0. Mílanóliðin í vandræðum Úrsht leikja í ítölsku bikarkeppn- inrú urðu þannig: Atalanta - Juventus. Inter Milan - Como... Parma - Florentina.. 0-0 2-2 0-0 Sampdoria - Bari 1-1 Torino - Lazio 2-0 Verona-ACMilan... 2-2 -GH Hreinn Þorkelsson og félagar hans i Snæfelli unnu góðan sigur á Grindavik i gær. Ungum Valsmanni boðið til Ekeren - verður hjá belgíska liðinu í 3 vikur Kristján Bemburg, DV, Belgiu: Ungur knattspyrnumaður í Val, Guð- mundur Brynjólfsson, er á fórum til belg- íska 1. deildar liðsins Ekeren og mun hann dvelja þar í þrjár vikur í boði félagsins. Guðmundur, sem leikið hefur með landsliði íslands sem skipað er leikmönn- um 16 ára og yngri, tók þátt í knattspymu- skóla KB í Belgíu nýverið. Þar komu forr- áðamenn Ekeren auga á hann og það varð úr að þeir buðu honum til félagsins. Guðmundur Benediktsson til sjúkraþjálfara Lokeren Guðmundur Benediktsson er farinn að hlaupa á æfingum með Ekeren en hann er sem kunnugt er að jafna sig eftir erfið langvarandi meiðsli á hné. Á dögunum tognaöi Guðmundur á lærvöðva en hefur náð sér af þeim meiðslum. Þjálfari Ekeren hefur.ekki verið ánægður með framgöngu sjúkraþjálfara Ekeren enda vill hann fá Guðmund sem fyrst í lið sitt. Hefur þjálfar- inn nú brugðið á það ráð að senda Guð- mund th sjúkraþjálfara Lokeren en sá er tahnn einn besti sjúkraþjálfari Belgíu í dag. Leikmönnum Ekeren hefur ekki gengiö vel að skora mörk það sem af er keppnis- tímabilinu í Belgíu. Leikmenn liðsins í fremstu víglínu hefur gengið aíleitlega að nýta aragrúa marktækifæra sem liðið hef- ur fengið. Gunther Hofmann er mesti markaskor- ari Ekeren og skoraði hann 18 mörk á síð- asta tímabili og varð í 2. sæti yfir marka- hæstu leikmenn Belgiu. Hofmann varð hins vegar fyrir sams konar meiðslum og Guömundur en þremur vikum seinna. Það er því ekki skrítið að þjálfari Ekeren bíði þess óþreyjufullur að Guðmundur Benediktsson nái sér af meiðslunum og verði fær um að leika með liðinu. íþróttir Óvissa ríkir um þátttöku Júgóslava á ólympíuleikunum: Útiloka ekki þátttöku okkar - segir Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ Vegna skálmaldar, sem ríkt hef- ur í Júgóslavíu á undanfornum misserum, hefur sú umræða óneit- anlega skotið upp kolhnum hvort júgóslavenskir íþróttamenn muni keppa undir fána Júgóslavíu á ólympíuleikunum í Barcelona á næsta ári. í dag hafa fimm af sex þjóðarbrotum Júgóslavíu lýst yfir sjálfstæði sínu og tvö af þeim, Kró- atía og Slóvenía, hafa þegar komið á stofn ólympíunefndum og hand- knattleikssamböndum innan sinna ríkjasambanda. í dag ríkir algjör óvissa um hvort þaö sem áður var Júgóslavía muni senda landslið sitt í handknattleik á ólympíuleikana. Af þessum sök- um er alveg óljóst hvort IHF muni heimila það. Ef það verður niður- staðan er ljóst að ísland, sem er fyrsta varaþjóð, mun taka sæti það sem Júgóslavía hafða í handknatt- leikskeppni ólympíuleikanna. í lögum alþjóða handknattleiks- sambandsins (IHF) númer 2.2 segir orðrétt: Alþjóða handknattleiks- sambandið leyfir ekki nokkra útskúfun vegna stjórnmála, kyn- þátta eða trúarlegra ástæðna í mót- um á þess vegum. Ef lögin eru skoðuð enn frekar kemur þetta fram. í lögum IHF númer 1.3 segir að aðeins eitt handknattleikssamband í hverju landi sé viðurkennt sem aðili að IHF. „IHFtekurmálið fyrir á næstunni" „Alþjóða handknattleikssamband- ið hefur ekki enn sem komið er gefið út neina yfirlýsingu um þetta mál sem nú ríkir í Júgóslavíu en hefur þó sagt að allir íþróttamenn verði að hafa sama rétt og tækifæri til keppa í alþjóðlegum mótum á vegum IHF svo og ólympíuleikum. IHF mun ræða þetta mál mjög al- varlega á næstunni og eins verður máliö tekiö upp á stofnfundi hand- knattleikssambands Evrópu sem verður í Berlín um miðjan nóvem- ber. Þar hafa fulltrúar hinna ný- stofnuðu handknattleikssam- banda, Krótaíu og Slóveníu, boðað komu sína og óskað eftir að fá að gera grein fyrir málstað sínum svo og inngöngu í hið nýja Evrópusam- band,“ sagði Jón Hjaltalín Magnús- son, formaður HSÍ, í samtali við DV í gær. „Útiloka ekki þátttöku okkar“ „Eins og máhn líta út í dag sé ég ekki Júgóslavíu fyrir mér á næstu ólympíuleikum. Af þeirri ástæðu er ekki hægt að útiloka þann mögu- leika að við sem fyrsta varaþjóð tökum sæti þeirra á næstu ólymp- íuleikum. Þetta eru fyrst og fremst hugleiðingar en þó alveg ljóst mið- að við þá hörmulegu þróun sem orðið hefur í Júgóslavíu aö IHF getur ekki viöurkennt að Serbía yfirtaki áunninn rétt þeirrar þjóðar sem áður hét Júgóslavía í hand- knattleikskeppni ólympíuleikanna hvað þá að hin þjóðarbrotin fimm muni samþykkja það. Þó er sá möguleiki fyrir hendi að friður náist á skaganum fyrir ólympíuleikana og að þjóðarbrotin sameinist að keppa undir ólymp- íufánanum í Barcelona 1992, sem við skulum vona, en að sögn tals- manna hins nýstofnaða handknatt- leikssambands Króatíu þá telja þeir þaö útilokað að íþróttamenn þess- ara þjóðarbrota geti aftur keppt saman í sama landsliöi," sagði Jón Hjaltalín Magnússon. Þess má að lokum geta að í síð- ustu heimsmeistarakeppni lands- liða skipuðum leikmönnum 21 árs og yngri, sem fram fór í Grikklandi fyrir skömmu, voru eingöngu Serb- ar í júgóslavenska liðinu. -JKS England-deildarbikarkeppmn: Meistararnir slegmr ut - töpuöu fyrir Coventry - United vann Úrslit leikja í 3. umferð ensku deildarbikarkeppninnar í knatt- spyrnu í gær urðu þannig: Coventry-Arsenal............1-0 Everton-Wolves..............4-1 Man. Utd-Portsmouth.........3-1 Norwich-Brentford...........4-1 Nott. Forest-Bristol Rovers..2-0 Sheff. Wed.-Southampton.....1-1 Þaö var Kevin Gallacher sem tryggði Coventry sigurinn gegn Arsenal meö marki í fyrri hálíleik. Sigur Coventry hefði geta orðið mun stærri miðað við gang leiks- ins. Deiidarbikarmeistararnir frá því Bryan Robson skoraöi eitt af mörk- um Man, Utd í sigrinum á Ports- mouth i gær. í fyrra, hð Sheffieild Wednesday, náði ekki nema jafntefli, 1-1, gegn Southampton. David Hirst skoraði mark Wednesday en Alan Shearer jafnaði fyrir Southampton 8 mínút- um fyrir leikslok. Robins með tvö fyrir United Eftir tvo tapleiki i röð vann Manc- hester United sigur á 2. deildar liö- inu Portsmouth á heimavelh sín- um, 3-1. Mark Robins skoraði fyrsta mark United en mínútu síðar jafnaði bakvörðurinn John Beres- ford metin. Bryan Robson kom United yfir og Robins var aftur á ferðinni fáeinum mínútum fyrir leikslok þeagr hann skoraði sitt annað mark. Robins hefur lítiö sem ekkert leikið með aðalhði United á þessu tímabili en fyrir tveimur árum skoraði hann grimmt i bikar- leikjum liðins. Peter Beagrie skoraði 2, Peter Beardsley og Tony Cottee skoruöu mörk Everton 1 sigri á Wolves, 4-1. Steve Bull skoraði mark Úlfanna og jafhaði reyndar leikinn, 1-1. í 2. deild voru þrír leikin, Brig- hton-Leicester 1-2, Charlton- Ipswich 1-1, Southend-Oxford2-3. Aberdeení efsta sæti Aberdeen er konúð i efsta sæti eftir leiki skosku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Úrlslit urðu þessi: Aberdeen-Motherwell........3-1 Celtic-St. Johnstone.......4-0 Hearts-St. Mirren..........0-0 -GH Handbolti á Spáni: Geir með f imm gegn Barcelona íslendingarnir tveir í spænska handboltanum, Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson, stóðu í ströngu með liðum sínum í gærkvöldi. Júlíus og félagar í Bidasoa gerðu jafntefli gegn Granollers, 22-22, og Avidesa sótti Barcelona heima og tapaði, 23-22. Bidasoa var lengstum með 2-3 marka forystu gegn Granollers á heimavelli en Granollers tókst að jafna metin úr vítakasti þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Júlíus skoraði eitt mark fyrir Bidasoa. „Það voru mikil mistök að missa leikinn niður í jafntefh. Við höfðu leikinn í hendi okkar og því eru úr- slitin nánast grátleg," sagði Júlíus Jónasson viö DV í gærkvöldi en hann sagðist ekki hafa verið sáttur við frammistöðu sína í leiknum. Geir Sveinsson og félagar hans í Alzira Avidesa máttu bíða ósigur gegn Barcelona á útivelli. Avidesa var tveimur mörkum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir en Barcelona gerði þrjú síðustu mörkin. Geir átti góðan leik og skoraði fimm mörk. Barcelona heldur efsta sætinu í deildinni, hefur 13 stig, Granollers er í öðru sæti með 12 stig og Avidesa og Bidasoa er jöfn í þriðja til fjórða sæti með 11 stig. Ekkert er leikið í spænsku deildinni um næstu helgi vegna þátttöku félagsliðanna á Evr- ópumótunum í handknattleik. -JKS Geir Sveinsson átti góðan leik í gær i Barcelona og skoraði 5 mörk af línu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.