Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991. Fréttir Akureyringar á faraldsfæti: Uppselt í fjórar helgarferðir til Dubl- in og Edinborgar Gylfi Kristjánason, DV, Akureyri: Akureyringar flykkjast þessa dag- ana í helgarferðir til Dublin og Edin- borgar. Að öflum líkindum má rekja þexman áhuga til þess að boðið er upp á beint flug frá Akureyri og helgar- ferðir með gistingu og öllum sköttum kosta ekki nema rétt rúmlega það sem kostar að fljúga fram og til baka milli Akureyrar og Reykjavíkur. Gísli Jónsson hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar segir að uppselt sé í tvær helgarferðir fyrirtækisins til Edin- borgar og fara alls 320 manns í þess- ar ferðir sem kosta 23.500 krónur. Farið er á fostudagsmorgni og komið til Akureyrar á sunnudagskvöld. Hjá Samvinnuferðum-Landsýn sagði Ásdís Árnadóttir að þegar væri búið að fara í eina helgarferð til Dublin og önnur ferð verður farin nú um helgina. Uppselt var í báðar ferðirnar. Farið á föstudagsmorgni og komið aftur á sunnudagskvöldi, og kostar ferðin 24.010 krónur. Alls fara 346 farþegar í þessar ferðir. Alls fara því tæplega 700 manns í þessar helgarferðir. Ásdís og Gísli voru á einu máli um það að hægt hefði verið að selja miklu fleiri sæti í þessar helgarferðir en flugvélakost- ur er ekki til fyrir fleiri ferðir. Hins vegar bjóða báðar ferðaskrifstofurn- ar upp á dagsferðir í næsta mánuði, Samvinnuferðir-Landsýn til Dublin mánudaginn 11. nóvember fyrir 14.300 krónur og Ferðaskrifstofa Ak- ureyrar til Glasgow laugardaginn 9. nóvember fyrir 18.500 krónur. Sala í þessar ferðir stendur yfir, aösókn er talsverð, en ferðirnar verða ekki farnar nema næg þátttaka fáist. Verslunarferðimar: Vildum gjarnan fá þessar 80 milljónir - segir formaður samtaka kaupmanna á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við getum í sjálfu sér ekki verið að lýsa yfir neinni óánægju með þessar ferðir, þetta er allt saman frjálst. Ég neita því hins vegar ekki að við vildum gjarnan fá þessar 80 milljónir hingað í bæinn,“ segir Ragnar Sverrisson, formaður sam- taka kaupmanna á Akureyri, um verslunarferðir Akureyringa til út- landa sem nú standa sem hæst. „Ég tel að það sé alveg hægt að gefa sér að í þessum ferðum sé versl- að fyrir 80 milljónir. Það er farið í fimm ferðir héðan frá Akureyri í beinu flugi, tvær til Dublin, tvær til Edinborgar og eina til Glasgow, og það fara um 800 manns í þessar ferð- ir. Ef við gefum okkur að hver þess- ara farþega versli fyrir 100 þúsund krónur, sem er örugglega ekki langt frá lagi, þá gera þetta 80 milljónir. Miðaö við að verslað væri hér heima fyrir þessa upphæö þá fengi ríkið um 20 milljónir í virðisauka- skatt. Flestar af þessum vörum, sem fólk kaupir í þessum ferðum, eru framleiddar í Kóreu, Tævan og á því svæði og það þýðir 20% toll hingað til landsins. Ekki fær ríkið það, svo að ríkiö er að tapa þarna á fjórða tug milljóna króna. En við kaupmenn getum lítið sagt, enda er þetta allt frjálst. Þetta er gangurinn en við erum langt frá því að vera ánægðir með þetta samt sem áður,“ sagði Ragnar. Seðlabankinn gef ur í skyn að „leiðrétta eigi gengið“ - áöur en krónan verði tengd ECU Seðlabankinn gefur í skyn í skýrslu um tengingu krónunnar við ECU, að byrja þurfi á því að „leiðrétta gengið", áður en það verði fest, sem sé bundið viö Evrópumyntina ECU. Menn túlka þetta svo, að verið sé að segja, að gengisfelling þurfl að koma til. Líklegt er, að krónan verði tengd ECU eftir rúmt ár. „Allt á fulla ferð“ Töluvert er rætt um þá hættu, að gengisfelling verði talin koma til greina í vetur til að mæta yfir- standandi erfiðleikum í efnahagn- um. Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasam- bandsins, sagði í DV í fyrradag: „Ég er helzt að reyna að snúa ofan af þeirri kenningu, að það eigi aldrei að draga úr neinni neyzlu. Þegar tekjurnar minnka, þá eigi bara að eyða meiru. Frá þessu verður að hverfa á samdráttartímum. Gamla leiðin til að ná þessu fram var að fella gengið. Nú erum við búin að verðtryggja krónuna, og verði hún felld, fer allt á fulla ferð.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, gerði hugsanlega geng- isfellingu einnig að umræðuefni fyrir nokkrum dögum og taldi hana afleitan kost. Margt í efnahagnum nú hefði fyr- ir nokkrum árum kallað á gengis- fellingu, sem kemur vafalaust til greina nú. Tímaritið Vísbending gerir að umræðuefni, að Seðla- bankinn gefur gengisfellingu í skyn, áður en tengt verði við ECU, og segir um það: „Með þessu fengju atvinnuvegirnir svigrúm til þess að þola um skeið meiri kostnaðar- hækkanir en gerast erlendis. En sennilega munu margir líta svo á, að með þessu sé aðeins verið að lengja frestinn, þar til næst sé þörf á gengisfellingu. Hæpið er, að það auki trú á fast gengi að byrja á því að fella það. Og víst er, að slíkar Verðbólga og gengisbreyting krónunnar 1970-1991 — prósentubreytingar á milli ára — 80% 60% 40% 20% 0% '70 '75 '80 '85 '90 Dregið hefur úr gengisbreytingum og verðbólgu Sjónarhom Haukur Helgason bollaleggingar auka ekki traust til krónunnar núna.“ Breytt vog um áramótin Strax er verið að undirbúa jaröveg- inn fyrir fulla tengingu krónunnar viðECU. Gengi krónunnar hefur nú í næst- um tvö ár verið stöðugt miðað við svonefnda viðskiptavog. í þessari vog er myntunum, sem þar eru haföar, geflð vægi, sem fer eftir hlut viðkomandi lands í innflutningi og útflutningi okkar. Þessi vog verður einfölduð um næstu áramót, og verða í henni eftir það aðeins Bandaríkjadollar, japanska jenið og margnefnd Evrópumynt, ECU. Stjórnvöld hér vinna að því, að krónan verði tengd ECU í ársbyrj- un 1993. Þetta yrði gert með ein- hliða yfirlýsingu. Þá leið hafa Norðmenn, Svíar og Finnar valið. Gert er ráð fyrir, að leyfð verði sex prósent sveiflumörk á gengi krónunnar í hvora átt frá viðmið- unargenginu eftir þessa tengingu. Tengingin við ECU mun meðal annars þýða, að vextir hér á landi lækka. Það hefur verið reynsla Svía, Norðmanna og Finna, að vextir lækka og fara að líkjast hin- um lágu vöxtum í Evrópubanda- laginu. Viðskipti okkar við EB-löndin munu vafalaust halda áfram að vaxa eftir ECU-tenginguna. 73 pró- sent innflutnings okkar voru í fyrra frá Evrópulöndum og 80 pró- sent útflutningsins fóru þangað. í dag mælir Dagfari____________ Handboltahöllin Tvísýnt er um heimsmeistara- keppnina í handbolta. Það stafar af því að Kópavogur og ríkissjóður eru að renna á rassinn með aö byggja höll undir keppnina. í gamla daga léku menn handbolta utan húss en nú mun það ekki þykja nógu fínt og þess vegna þarf að byggja höll. Nú er þess að geta að margar handboltahallir eru til í landinu og hver annarrri veglegri, en þær voru því miður byggðar fyrir íslenska handboltamenn en ekki útlenska. Útlenskir hand- boltamenn þurfa stórar og glæsi- legar hallir til að taka þátt í heims- meistarakeppni og þess vegna lof- uðu íslendingar að byggja stóra, stóra höll fyrir útlendingana. Um tíma var ekki vitað hver gæti byggt þessa höll sem íslendingar þurftu að lofa til að geta haldið heimsmeistarakeppni og ríkissjóð- ur sagði nei og Reykjavíkurborg sagði nei. En þá kom stórbærinn Kópavogur og sagði: Við skulum byggja höll. Okkur munar ekkert um að byggja höll og ríkið lofaði þá að styrkja Kópavog til að hann gætu staðið við loforðið og Hand- boltasambandið gæti staðið við lo- forðið. Það lofuðu sem sagt allir hver öðrum og málið virtist í höfn. En svo kom babb í bátinn þegar Kópavogur þurfti aö efna loforðið. Þeir eiga nefnilega ekki fyrir henni og þó að ríkisstjórnin vilji standa við sitt þá dugar það ekki til að byggja voða stóra höll og nú er orð- iö afar tvísýnt um aö íslendingarn- ir geti staðið við loforðið sem þeir gáfu hver öðrum og gáfu hand- boltasambandinu sem hefur lofað Alþj óðahandknattleikssamband- inu að byggja höll. Kópavogur segir að ríkið hafi lofað hærri upphæð en ríkið ætlar að greiða. Ríkið seg- ist ekki borga meira en það lofaði í upphafi og Handboltasambandið segir aö ríkisstjórnin hafi lofaö að halda keppnina og skilur ekki hvers vegna ríkið ætlar ekki að standa við það loforð. Ekki er þó handboltasambandið á því að gefast upp þótt menn séu farnir að heykjast á því að standa við loforð sín. Eitt af því sem mönn- um hefur döttið í hug er að notfæra sér flugvélarskemmuna sem nú á að fara að byggja á Keflavíkurflug- velli. Hún mun taka fjóra fullstóra handboltavelli og fara létt með. Vandinn er hins vegar sá, að í þess- ari skemmu á að geyma flugvélar en auðvitað er hægt að breyta því og aka flugvélunum út á meðan heimsmeistarakeppnin fer fram. Enda er heimsmeistarakeppni og handbolti miklu mikilvægara fyrir þjóðina heldur en nokkur stykki af flugvélum sem þar að auki eru ekki lengur til neins brúks og allra síst meðan þær standa inni í skemmum. Dagfara dettur líka í hug að Kópavogur byggi höllina fyrir þá peninga sem Kópavogur hefur efni á að leggja fram en það munu vera um þxjú hundruð milljónir króna. Ríkið ætlar að standa við sitt og leggja fram sínar þxjú hundruð milljónir og þetta fé mun áreiðan- lega duga fyrir að minnsta kosti hálfri höll. Því þá ekki að ráðast í bygginguna og láta slag standa? Þegar peningarnir eru búnir er að minnsta kosti annar helmingur vallarins í lagi og þá geta þeir í handboltanum spilað á annað markið eða skipt liði þannig að færri séu inn á hverju sinni til að heimsmeistarakeppnin fari fram. Það mundi verða gífurlegt áfall fyrir ferðamannaiðnaðinn ef heimsmeistarakeppnin fer ekki fram á tilskildum tíma og talið er að útlendingar hætti að leggja leið sína til íslands í móðgunarskyni eða vegna þess að þeir leggja ekki lengur trúnað á að íslendingar standi við loforð sín um hús sem þeir hafa lofað að byggja undir þá útlendinga sem hingað koma. Heið- ur okkar er að veði og hiö evrópska efnahagsssvæði verður til lítils ef heimsmeistarakeppnin fellur nið- ur. Dagfara finnst að Kópavogskaup- staður verði að standa við loforð sitt. Annað getur beðið á meðan í þessu bæjarfélagi, enda hafa Kópa- vogsbúar ekki annað betra við út- svarspeninga sína að gera en að byggja höll fyrir heimsmeistara- mót í handbolta. Jafnvel þótt þáð verði ekki nema hálf höll. Hálfur skaði er betri en allur. Göturnar og dagheimilin og dagvistarstofn- anir aldraðra hljóta að geta beðið á meðan. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.