Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 32
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. FeðgarhjáÁTVRá Lindargötu kærðir f yrir fjárdrátt Ríkisendurskoöun og Rannsóknar- lögregla ríkisins hafa nú til rann- sóknar meintan fjárdrátt hjá áfengis- útsölunni við Lindargötu í Reykjavík til skoðunar. Hér er um að ræða verslunarstjóra og aðstoðarverslun- arstjóra sem eru feðgar. Þeim hefur verið gert að hætta störfum a.m.k. á meðan rannsókn fer fram. Grunur leikur á að mennirnir hafi dregið sér margar milljónir króna. „Við fengum þetta mál í hendur í gær. Þetta er fyrst og fremst beiðni um rannsókn á rýrnun sem hefur komið fram við talningu eftirlits- manna hjá ÁTVR. Forstjórinn hefur skýrt frá að menn sem bera ábyrgð á þessum stað hafi veriö settir af um tíma. Það er þeirra mál en okkar er að finna út hvers vegna ekki ber sam- an vörum og bókhaldi," sagði Arnar Guðmundsson hjá RLR í morgun. Aðspurður sagði Arnar að hinir grunuðu hefðu ekki verið yfirheyrðir. „Það á eftir að bera sakarefnið upp og kanna viðhorf þeirra sem geta gef- ið einhverjar skýringar - þeirra sem þarnastarfa,“sagöiArnar. -ÓTT Freyja seld Byggðastofnun gekk síðdegis í gær frá sölu á 97 milljón króna hlut sínum í Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri til Norðurtangans á ísafirði og Frosta á Súðavík. Söluverðið var 12,5 milljón- ir en að auki skuldbinda nýju eigend- urnir sig til að setja 50 milljónir inn í reksturinn á næstu mánuðum og tryggja að 2500 tonna aíla verði land- að á Suðureyri. Meö í kaupunum fylgdi togarinn Elín Þorbjarnardóttir sem nú verður seldur kvótalaus. Fyrr um daginn féll Baldur Jóns- son, framkvæmdastjóri Freyju, frá forkaupsrétti sínum þar sem honum tókst ekki að afla nægra íjármuna til kaupanna. Hluthafafundur er boöað- ur 11. nóvember og taka nýju eigend- - urnir þá við rekstri fyrirtækisins. -kaa Davíö Oddsson í Noregi: EkkiíEB Davíð Oddsson forsætisráðherra og eiginkona hans, Ástríður Thorarens- en, héldu í gær til Noregs í opinberd heimsókn í boði Gro Harlem Brun'dt- land, forsætisráðherra Noregs. Davíð sagði við fréttamenn í Noregi að það væri enginn þrýstingur á ís- lendinga að ganga í EB, Evrópu- bandalagið, jafnvel þótt öll önnur EFTA-ríkin gerðu slíkt. Hann sagði að nýgerður samningur EFTA og EB um evrógskt efnahags- svæði tryggði stöðu íslands í við- skiptum við Evrópuríkin. Svo yrði áfram þótt önnur EFTÁ-ríki gengju ÍEB. -JGH Maður sem játaði sölu á fíkniefhum fyrir á aðra milljón „Forfallinn neytandi“ í 16 mánaða fangelsi - annai’ bíður dóms fyrir 2,5 kiló af hassi og 280 grömm af amfetamíni Sakadómur í ávana- og fikniefna- málum hefur dæmt 29 ára Reykvík- ing í 16 mánaða fangelsi fyrir kaup og dreifingu á 200 grömmum af amfetamíni og 200 grömmum af hassi í maí og júní 1988. Annar maður, 27 ára, var vegna sama máis dæmdur í 50 daga fangelsi sem hegningarauka við þrjá aðra refsidóma upp á samtals 40 mánaða fangelsi. Fjölmargir aðrir tengdust málinu. Þar af voru tveir ákærðir. Mál þeirra eru enn í meðferð hjá sama dómi. Hér er um að ræða svokallað Grundarstígsmál. Eldri maðurinn var úrskurðaöur í gæsluvarðhald 22. júní 1988. Hann viðurkenndi að hafa keypt 200 grömm af amfetamíni og 200 grömm af hassi hjá ákveðnum manni. Sá aðili hefur viðurkennt hjá lögreglu að hafa dreift 2,5 kíló- um af hassi og 280 grönimum af amfetamíni. Hans mál er í dóms- meðferð. Sá sem nu hefur verið dæmdur keypti amfetamíngramm- ið af söluaöilanum á 4.000 krónur en seldi aftur aftur ýmsum öðrum á 5.000 krónur grammið. Hassið keypti hann á 850 krónur hvert gramm en seldi megnið af því öðr- urn á 1.000 krónur. Veltan af söl- unni var því á aðra milljón króna. 1 vörn mannsins fyrir dómi kom fram að hann hefði veríð „forfáll- inn fíkniefnaneytandi" og brotið „í þeim tilgangi aö fjármagna eigin neyslu". Sakborningurinn sagðist hafa fengið 4-10 grömm af amfetamíni í hvert skipti. í lok maí 1988 hafði hann fengið samtals 100 grömm og selt þau öðrum á hærra verði. A þeim tíma ætlaði maðurinn að gera upp við söluaðilann. Söiumaðurinn spurði þá hvort maðurinn vildi fá allt sem hann ætti eftir af amfetam- íni. Maðurinn samþykkti Jpð og fékk um 100 grömm í viðbót. % Fyrir brot sín var maðurinn dSimdur í 16 mánaða fangelsi. Refs- ingiR var öll óskilorðsbundin þar sem hann hefur framið 5 sannanleg flkniefnabrot frá þeim tima sem hann varð uppvís að ofangreindu máli árið 1988. Hann var einnig dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur i sekt til rikissjóðs. Verðí hún ekki greidd innan 4 vikna kem- ur 28 daga fangelsisrefsing í stað- inn. Með dóminum var 28 þúsund króna afrakst.ur af fíkniefnasölu, sem fannst hjá manninum, gerður upptækur. Yngri maðurinn var dæmdur fyr- ir að hafa keypt 80 grömm af am- fetamíni af þeim eldri, selt megnið af því öðrum en notað hluta til eig- in neyslu. Sá maður er í fangelsis- afþlánun - 40 mánaða fangelsisr- efsingu fyrir önnur brot, m.a. fyrir þjófnaði, skjalafals og nytjastuld. Þetta mál var því dæmt sem hegn- ingarauki, 50 daga viðbót við áður dæmdar refsingar. Viðurlög þessa manns hefðu verið mun þyngri ef málið heiði verið dæmt sjálfstætt. Bjarni Stefánsson dómarafulltrúi kvað upp dóminn. -ÓTT Endurnar á Tjörninni kunna alitaf jafnvei að meta það þegar ungviðið kemur niður að Tjörn með fulla vasa af brauði til að gæða þeim á. DV-mynd BG Ölvaður stal bíl og ók á skilti og steinvegg Ölvaður maður, sem var á ferð fyr- ir utan Fógetann í Aðalstræti, eftir miðnætti stal bíl, ók honum um hundrað metra vegalengd, keyrði á vegskilti og endaði á steinvegg. Áður en maðurinn tók bílinn traustataki hafði hann reynt að komast inn í aðra bíla. Um klukkan eitt í nótt kom maöur á bíl sem átti erindi inn í veitingahús- ið Fógetann. Hann fór inn í húsið en skildi bílinn eftir ólæstan og í gangi. Ölvaði maðurinn sá sér þar leik á borði. Hann settist undir stýri, setti í gír og ók af stað suður Aðalstræti og beygði í átt að Suðurgötu við hús Hjálpræðishersins. Ekki tókst „beygjan" betur en svo að bíllinn fór á vegskilti og endaði síðan á stein- vegg. Ökuþórinn skall með andlitið í framrúðu og fékk blóðnasir. Bílinn var óökufær og tekinn í burtu með kranabíl. Skiltið skemmdist einnig en veggurinn ekki. Maðurinn fór á lögreglustöðina og blóðprufa var tek- in. Hann á yflr höfði sér málsókn vegna nytjastulds og ölvunarakst- urs. -ÓTT LOKI Fæst þetta íslandsmet í hundrað metrum staðfest? Veðriðámorgun: Hæg norðanátt Á morgun verður fremur hæg norðanátt, smáslydduél á annesj- um norðanlands en annars staðar að mestu úrkomulaust. Hitinn verður 1-6 stig meðfram strönd- inni en smávægilegt frost inn til landsins. ÖRUGGIR-ALVÖRU PENINGASKAPAR VARI - ÖRYGGISVÖRUR VARI ® 91-29399 Allan sólarhringinn Oryggisþjónusta síðan 1 969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.