Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1991. 33 Afmæli Elísabet Jónsdóttir 5.9.1958, d. 6.9.1958; Bjarni, f. 1.7. Elísabet Jónsdóttir framkvæmda- stjóri, Melabraut 35, Seltjarnamesi, erfimmtugídag. Starfsferill Elísabet er fædd í Reykjavík og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún gekk í Mýrarhúsaskóla og síðar í Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar. Elísabet stundaði seinna nám við Öldunga- deild Menntaskólans viö Hamrahlíð og lauk þar stúdentsprófi 1981. Hún hefur ennfremur sótt ótal námskeið um margvísleg efni. Elísabet hefur búið á Seltjarnar- nesi, í Reykjavík og Kópavogi og í Kaupmannahöfn en á fyrsttalda staðnum hefur hún verið búsett sl. 20 ár. Hún hefur starfað við skrif- stofustörf hér heima og í Danmörku en verið framkvæmdastjóri Tóniku hf. frá 1984. Elísabet hefur tekið virkan þátt í félagsstarfi. Hún var formaður Kvenfélagsins Seltjarnar 1974-76, forseti í Dale Carnegie klúbb 75, for- maður Öldungaráðs við MH1977-80, endurskoðandi í íþróttafélagi fatl- aðra 1974-85 og einn af stofnendum þess félags sem og Kynfræðifélgs Islands og SIVÍ (smáfyrirtæki innan Verslunarráðs íslands). Elísabet var formaður Migrensamtakanna 1988, ritari SIVÍ1988-90 og hefur gegnt þar formennsku frá síðasttalda ár- inu, starfaöi sem málfreyja 1982-85 og átti sæti í nefndum á vegum Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra, 1976-84. Elísabet hélt nám- skeið um fotlun og kynlíf 1983 og 1984. Fjölskylda Elísabet giftist 15.6.1960 Sigurði R. Bjarnasyni, f. 20.9.1940, apótek- ara. Þau skildu. Foreldrar Sigurðar: Bjarni Ólafsson, blikksmiður í Reykjavík, og Þrúður Sigurðardótt- ir. Elísabet giftist öðrum manni sín- um 26.10.1969, Magnúsi Sveinssyni, f. 28.7.1939, rafvirkja, þau skildu. Elísabet giftist þriðja manni sínum 7.1.1973, Theódóri A. Jónssyni, f. 28.6.1939, d. 7.5.1989, formanni Sjálfsbjargar. Foreldrar Theódórs: Jón Sæmundsson, verslunarmaður frá Aratungu í Staðardal í Stranda- sýslu, seinna verslunarm. á Hólma- vík, og Helga Elín Tómasdóttir frá Ytri-Grund í Blönduhlíð í Skaga- firði, en þau bjuggu í Reykjavík síð- ustu árin. Unnusti Elísabetar, Geir Ágústsson frá Akureyri, lést 13.6. 1990. Elísabet og Sigurður eignuðust þrjú börn. Þau eru: stúlkubarn, f. 1964, háskólanemi; Kristín, f. 25.6. 1968, háskólanemi. Systkini Elísabetar: Guðjón, f. 12.5.1945, atvinnurekandi, maki Sigrún Á. Bjarnadóttir, þau eiga þrjú börn, Jón Vilberg lögfræðing, Sigrúnu háskólanema og Gyðu, nema; Hafdís, f. 21.8.1952, skrif- stofumaður, maki Björgúlfur Andr- ésson forstöðumaður, Hafdís átti áður Gyðu Margréti nema. Foreldrar Elísabetar: Jón V. Guð- jónsson, f. 15.11.1922, framkvæmda- stjóri, og Gyða Valdimarsdóttir, f. 31.10.1922. Þau búa í Reykjavík en voru lengstum búsett á Seltjarnar- nesi. Þau eru skilin. Ætt Foreldrar Jóns V. Guðjónssonar: Guðjón Jónsson frá Hlíð í Grafn- Elisabet Jónsdóttir. ingi, trésmiður í Reykjavík, og Jón- ína Vilborg Ólafsdóttir, en faðir hennar var járnsmiður í Reykjavík. Foreldrar Gyðu Valdimarsdóttur: Valdimar Þorvaldssonar frá Stokks- eyri og Elísabet Jónsdóttir, en hún var dóttir Jóns Sigurðssonar óg Gyðríðar Steinsdóttur, Steins, skipasmiðs á Eyrarbakka. Elísabet dvelur á Hótel Örk í Hveragerði á afmælisdaginn. Hafsteinn Orm ar Hannesson Hafsteinn Ormar Hannesson, fyrrv. útibússtjóri Landsbanka íslands í Grindavík, Grandavegi 47, Reykja- vík, er sjötugur í dag. Starfsferill Hafsteinn er fæddur á ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands 1941 oghóf störf hjá Landsbanka íslands á ísafirði sumarið sama ár en Haf- steinn var starfsmaður bankans all- an sinn starfsferil. Hafsteinn tók við stöðu útibússtjóra Landsbankans á Eskifiröi í byrjun árs 1972 og síðan viö hliðstæðu starfi hjá sama fyrir- tæki í Grindavík í ársbyrjun 1978 og gegndi því starfi til haustsins 1989 er hann lét af störfum af heilsufarsástæðum. Hafsteinn tók virkan þátt í félags- störfum á ísafirði og var m.a. félags- foringi í skátafélaginu Einherjum í 13 ár. Hann var einn af hvatamönn- um að stofnun Hjálparsveitar skáta á ísafirði og sat auk þess í ýmsum nefndum og stjórnum félaga þar í bæ. Fjölskylda Hafsteinn kvæntist 25.8.1944 Kristínu Bárðardóttur, f. 10.7.1922, húsmóður. Foreldrar hennar: Bárö- ur Guðmundsson, bókbindari á ísafirði, ogHólmfríður Guðmunds- dóttir. Börn Hafsteins og Kristínar: Bárð- ur, f. 11.7.1945, skipaverkfræðingur og framkvæmdastjóri Skipatækni hf. í Reykjavík, maki Edda Gunn- arsdóttir forstöðukona, þau eiga þrjá syni; Guðrún Kristjana, f. 29.4. 1950, húsmóðir og iðjuþjálfi í Reykjavík, maki Einar Pétursson, verktaki í Reykjavík, þau eiga fiögur börn; Hannes, f. 17.9.1951, dr. og matvælafræðingur hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, maki Ólafía Sofíía Jóhannsdóttir húsmóðir, þau eigafimmbörn. Foreldrar Hafsteins: Hannes Hall- dórsson, f. 20.11.1892, d. 10.8.1962, framkvæmdastjóri á ísafirði, og Guðrún J. Kristjánsdóttir, f. 3.6. 1893, d. 19.8.1971, húsmóðir. Hafsteinn Ormar Hannesson. Ætt Hannes var fæddur á Melum í Árneshreppi í Strandasýslu, sonur Halldórs Jónssonar, f. 13.9.1834, d. 23.6.1904, bónda á Melum, og síðari konu hans, Guðbjargar Óladóttur frá Reykjarfirði, f. 1855, d. 5.5.1894. Hannes ólst upp hjá Guðrúnu, elstu systur sinni. Halldór var sonur Jóns Guð- mundssonar og Steinunnar Ólafs- dóttur en Guðbjörg var dóttir Óla Viborg. Hafsteinn tekur á móti gestum á afmæhsdaginn að Grandavegi 47, Reykjavík, samkomusal, 10. hæð, kl. 16-19. afmælið31.o 100 ára Þrúður Bjarnadóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Þórey Einarsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. María Samúelsdóttir, Hraunbæ 182, Reykjavík. Jón K. Guðmundsson, Þórunnarstræti 120, Akureyri. Laufey Valdimarsdóttir, Dalbraut21, Reykjavík. Ásta Sveinbjörnsdóttir, Norðurgötu 6, SeyðisfirðL 75 ára Hersteinn Pálsson, Vallarbraut 13, Seltjarnamesi. 70ára Hjördís Fjóla Ketilsdóttir, Mánagötu 22, Reykjavík. Sigurður Haligrimsson, Víkurbraut 19, Mýrdalshreppi. Hann tekur á móti gestum í Bryde- búð nk. laugardag kl. 14-18. Björn Helgi Jónsson, Laugarbrekku 22, Húsavík. 60 ára Jón Haukur Torfason, Vatnsnesvegi 25, Keflavík. Anna Ólína Annelsdóttir, Djúpavogi 10, Höfiium. Hún verður að heiman. Marta Ingvarsdóttir, Hafnarstræti 43, Flateyri. 50 ára Geirþrúður Sigurðardóttir, Norðurgötu 46, AkurejTi. Jónína Þorgrímsdóttir, Miðstræti 10, Neskaupstað. 40 ára Bryndis Eiríksdóttir, Þverási 27, Reykjavík. Rannveig Hjörtþórsdóttir, Suðurhólum 30, Reykjavík. Júlíus S. Ólafsson, Efstahjalla 19, Kópavogi. ÞórðurEliasson, Jörundarholti 194, Akranesi. Ragnheiður Gunnarsdóttir, Presthúsabraut31, Akranesi. Jóna Ástriður Jóhannsdóttir, Lækjarkinn 2, Hafnarfirði. Guðbjörg Guðj ónsdóttir, Furugrund 62, Kópavogi. Guðjón Hauksson, Nökkvavogi 38, Reykjavík, Katrin Ragnarsdóttir, Vanabyggð 6e, Akureyri. Jón Þór Þórólfsson, Friöheimum, Biskupstungna- hreppi. 85ára 80ára Margrét Svein- bjömsdóttir Margrét Sveinbjörnsdóttir húsmóð- ir, Langholtsvegi 176, Reykjavík, er fertugídag. Fjölskylda Margrét er fædd í Noregi en ólst uppálsafirði. Maöur Margrétar er Páll Ingi Árnason, f. 26.8.1957, trésmiður. Foreldrar hans eru Árni Jónsson og Sveinsína Hjartardóttir, en þau eru búsett í Skipholti 47 í Reykjavík. Böm Margrétar og Páls: Þórarinn Ágúst, f. 3.3.1983, og Helga Guðný, f. 18.2.1985. Margrét átti áður Guð- mund Þór Jóhannsson, f. 22.8.1972, unnusta hans er Lilja Siguijónsdótt- ir. Foreldrar Margrétar: Guðmundur J. Guðmundsson, f. 22.11.1923, d. Margrét Sveinbjörnsdóttir. 14.10.1981, verkamaður, og Þómnn Benjamínsdóttir, f 28.1.1915, d. 26.4. 1981. Þau bjuggu á ísafirði en Guð- mundur J. var stjúpfaðir Margrétar. Brúðkaup á næstunni Margrét Baldursdóttir og Vil- hjálmur Guðmundsson, til heimihs að Hhðarhjaha 41, Kópavogi, veröa gefin saman í Kópa vogskirki u fóstu- daginn 1.11. kl. 17 af sr. Torfa Hjalta- línStefánssyni. Margrét er dóttir Þórunnar The- ódórsdóttur og Baldurs Jónssonar. Vilhjálmur er sonur Ragnhildar A. Vilhjálmsdóttur og Guðmundar Þ. Pálssonar. Aðalbjörg Ólafsdóttir og Pétur Bryde, til heimihs að Smyrilshólum 6, Reykjavík, verða gefin saman í Lágafellskirkju laugardaginn 2.11. kl. 14afsr. Jóni Þorsteinssyni. Aðalbjörg er dóttir Hjördísar S veinsdóttur og Ingimars Jóhanns- sonar. Pétur er sonm- Helgu Bjarna- dóttur og Bents Bryde. Þórdís Sveinsdóttir og Valmundur Sigurðsson, til heimihs að Sigtúni 53 (kjahara), Reykjavík, verða gefm saman íLaugarneskirkju laugar- daginn 2.11. kl. 17 af sr. Jóni Dalbú Hróbjartssýni. Þórdís er dóttir Guðrúnar Gests- dóttur og Sveins Finnssonar. Val- mundur er sonur Rannveigar Val- mundsdóttur og Sigurðar Jónsson- ar.semerlátinn. Ættfræðinámskeið Hin vinsælu ættfræðinámskeið hefjast bráðlega og standa í 7 vik- ur (ein mæting á viku) til miðs desember. Þátttakendur fá kennslu og þjálfun í ættrakningu og úrvinnslu heimilda, þ. á m. leiðbein- ingar um tölvuvinnslu á ættartölum og niðjatölum og afnot af alhliða heimildasafni. Leiðbeinandi: Jón Valur Jensson. Upplýs- ingar og innritun i síma 27101 og 22275. Ættfræðiþjónustan tekur saman niðjatöl og ættartölur fyrir ein- staklinga og fjölskyidur. Mikið úrval ættfræðibóka til sölu. ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN, SÓLVALLAGÖTU 32A, SÍMI 27101

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.