Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992.
Fréttir
Blaðagrein Halls Magnússonar um séra Þóri Stephensen, staðarhaldara 1 Viðey:
Ummælin dæmd ómerk
- Hæstiréttur telur mannréttindasáttmálann ekki girða fyrir íslensk lög
Hæstiréttur hefur dæmt Hall
Magnússon, fyrrverandi blaðamann
hjá Tímanum, til að greiða séra Þóri
Stephensen, staðarhaldara í Viðey
og fyrrum dómkirkjupresti, 150 þús-
und krónur í miskabætur vegna
skrifa hans um prestinn og störf hans
í blaðagrein í Tímanum árið 1988.
Halli er einnig gert að greiöa 60 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna
meiðandi ummæla gagnvart hinum
opinbera starfsmanni. Blaðamann-
inum er auk þess gert að greiða tæp-
ar 400 þúsund krónur í málskostnað
fyrir héraði og Hæstarétti. Ummæh
Hahs í greininni voru dæmd ómerk.
Hæstiréttur staðfesti að nær öllu
leyti dóm Jónasar Jóhannssonar sem
dæmdi í máhnu í héraði.
Fyrir dómi kom fram að tildrög
skrifa Hahs voru frétt í DV 12. júh
1988. Þar kom m.a. fram í viðtali við
sonarson Gunnars heitins Gunnars-
sonar rithöfundar að dráttarvél hefði
verið notuð til að slétta yfir leiöi í
kirkjugarðinum í Viðey - það hefði
verið gert án vitundar ættingja
þeirra sem þar voru grafnir. í sömu
frétt var hins vegar haft eftir séra
Þóri að fariö hefði verið að lögum
við lagfæringu kirkjugarðsins enda
hefðu framkvæmdimar verið aug-
lýstar áður í útvarpi og fundur hald-
inn með aðstandendum sem gáfu sig
fram. Fyrir dómi kom síðan fram að
séra Þórir bar ekki ábyrgð á um-
ræddum framkvæmdum.
Tveimur dögum eftir frétt DV skrif-
aði Hahur um málið í Tímanum,
undir fuhu nafni, þar sem áht hans
kom fram. Þar var meðal annars sagt
að séra Þórir hefði sjálfur skipað sig
staðarhaldara í Viðey, athæfi hans
væri ekki kristilegt, póhtískar „skoð-
anir hans og ráðríki ætíð komið á
undan kristhegum náungakærleik",
það hefði „ekki hvarflað" að prestin-
um að hafa samband við ættingja og
að Þórir hefði verið duglegur við að
„troða íhaldsskoðunum sínum og
sinna kollega" í Sjálfstæðisflokknum
inn í stólræður. Undir lokin segir
eftirfarandi: „Greinarkomið er ritað
í heilagri reiði, reiði yfir ófyrirgefan-
legu skemmdarverki á hehögum staö
sem skinheilagur maður ber ábyrgð
á“.
í vörn lögmanns Hahs fyrir dómi
var bent á 1. málsgrein 10. greinar
Mannréttindasáttmála Evrópu þar
sem segir m.a. að „hver maður eigi
rétt th að láta í ljós áht sitt og fehst
í því frelsi th að ráða skoðunum sín-
um og fá að miðla vitneskju og hug-
myndum án afskipta stjórnvalda."
Verjandi blaðamannsins taldi sam-
kvæmt þessu ákvæði að Hahi yröi
ekki refsað fyrir skoðanir sínar í
blaðagreininm þótt deila hefði mátt
um réttmæti þeirra. Héraðsdómur
féllst ekki á þessi sjónarmið þar sem
Hallur hefði vegið alvarlega að æru
prestslærðs manns sem dómkirkju-
prests og opinberu starfi hans á veg-
um Reykjavíkurborgar. Dómurinn
taldi mannréttindasáttmálann ekki
girða fyrir að refsað yrði fyrir um-
mæh Halls um Þóri og thgreinir í því
sambandi 2. málsgrein 10. greinar-
innar - þar segi að hægt sé að setja
tjáningarfrelsinu þau skhyrði og tak-
markanir sem mælt er fyrir 1 lögum
enda séu þær nauðsynlegar í lýð-
fijálsu þjóðfélagi, m.a. til að vemda
mannorð allra. Áht héraðsdómsins
var að slík nauðsyn sé fyrir hendi í
þessu máh og tálmi sáttmáhnn því
ekki að íslenskum lögum verði beitt
við dómsniðurstöðu. Þetta staðfesti
Hæstiréttur. -ÓTT
Maöur fær það á tilfinninguna að þjóðfélagið hafni manni, að það sé eng-
in þörf fyrir mann lengur i þjóðfélaginu," segir Kjartan Auðunsson verka-
maður sem hefur verið atvinnulaus i tvö ár. DV-mynd GVA
Plaggið sem hengt var upp á vinnustað íslenskra aðalverktaka á Keflavíkur-
flugvelli.
Kjartan Auðunsson, atvinnulaus verkamaður:
Það er eins og þjóð-
félagið haf ni manni
- éghefaldreiupplifaðþessareynslufyrr
„Hún er vond tilfinningin sem fylg-
ir því að verða atvinnulaus þegar
maður er fullfrískur og vhl vinna.
Og það er jafnvel enn verri tilfmning
að fara um og leita eftir vinnu og fá
ahtaf nei. Maður fær það á tilfinning-
una að þjóðfélagið hafni manni, að
þaö sé engin þörf fyrir mann lengur
í þjóðfélaginu," sagði Kjartan Auð-
unsson verkamaður sem hefur verið
atvinnulaus í tvö ár.
Atvinnuleysi er nú farið að knýja
fast á hjá mörgum og sérstaklega
hafa verkamenn og verslunarmenn
í Reykjavík orðið fyrir barðinu á at-
vinnuleysinu í vetur. Kjartan sagðist
þó fara betur út úr þessu en margur
annar. Hann væri orðinn 68 ára gam-
ah en við hestaheilsu og heíði því
elhhfeyri.
„Ég nýt hka góös af því að ég hef
alla tíð verið nokkuð laghentur. Ég
hef því verið að reyna að drýgja tekj-
umar með því að búa til smámuni
eins og th að mýnda svonefnda hesta-
platta. Þótt það gefi ekki mikið af sér
hefur maður þó eitthvað til að dunda
við og drepa tímann. Ég hef líka svo-
htið fengist við að mála vatnshta-
myndir en kann of lítið th þess. Mig
hefur langað til að komast á nám-
skeið til að læra svohtið. Það er bara
svo dýrt aö ég hef ekki efni á því.“
- Hefuröu áður orðiö atvinnulaus
um dagana?
„Nei, þetta er alveg ný reynsla fyr-
ir mig. Maður hefur að vísu lent í
verkfóhum og svoleiðis löguðu en
mér hefur aldrei verið sagt upp at-
vinnu fyrr. Ég vann hjá Hagkaupi
en var sagt þar upp. Þá fékk ég vinnu
um tíma hjá BP en var látinn hætta
þar líka. Nú hef ég verið atvinnulaus
í um þaö bh tvö ár og' mikið reynt
til að fá mér atvinnu. Svo þegar mað-
ur leitar eftir henni og fær neitun
þá er gjaman látið fylgja að ég skuli
nú bara láta mér ellhaunin nægja.
En ég verð að segja eins og er að
þótt ég hafi úr um 60 þúsund krónum
á mánuði að spila og búi einn þá
þarf ég að velta hverri krónu fyrir
mér. Nei, atvinnuleysi er hræðhegt.
Ég vil engum manni svo hlt að þurfa
að upplifa það að fá hvergi at-
vinnu," sagði Kjartan Auðunsson.
-S.dór
Atlantsflug:
Árssamningur við Vietnam Airlines
Gert er ráð fyrir að Boeing 727-200
flugvéi Atlantsflugs fari th Ho Chi
Minh-borgar í Víetnam þann 9. þessa
mánaðar og félagiö hefji þá samstarf
við ríkisflugfélagið í Víetnam, Viet-
nam Airhnes, samkvæmt árssamn-
ingi sem félögin hafa gert með sér.
Enn er þó beðiö eftir formlegu sam-
þykki þarlendra stjórnvalda fyrir
komu flugvélarinnar en shkt er að-
eins dagaspursmál, að sögn Hahdórs
Sigurðssonar, forstjóra Atlantsflugs.
„Þessi samningur helst í hendur
við að Víetnamar hafa verið að reyna
aö byggja upp ferðamennsku hjá sér.
Þetta er ársverkefni sem gefur okkur
ágæta undirstöðu og við erum þá
ekki eins háöir árstíðabundnu sveifl-
unum hér heima,“ segir Hahdór.
Atlantsflug mun verða með tvær
áhafnir á véhnni sem fljúga henni á
áætlunarleiðum Vietnam Airlines
frá Ho Chi Minh til Bangkok, Singa-
pore, Hanoi, Hong Kong og Ástralíu.
í stað vélarinnar, sem verður í Ví-
etnam, héfur Atlantsflug leigt Boeing
737-300 vél th flugs fyrir þýskar ferða-
skrifstofur og th sólarlandaflugs fyr-
ir Samvinnuferðir og Flugferðir-
Sólarflug. -VD
Óvenjuleg tilkynning 1 húsnæði íslenskra aðalverktaka:
Þurf i starfsmenn að hægja
sér til baks eða kviðar
- er þeim bent á að nota salemin
„Það kom tilkynning frá eftirhts-
manninum um að kvörtun hefði bor-
ist þess efnis að starfsmennnimir
væru að pissa þama úti á vinnu-
svæðinu. Hann baö mig um að koma
upp auglýsingu," sagði Ólafur Þ.
Gunnarsson, fuhtrúi í öryggisnefnd
hjá íslenskum aðalverktökum.
Óvenjuleg tilkynning, sem fest
hafði verið upp á vegg, blasti við
sjónum starfsmanna fyrirtækisins á
Keflavíkurflugvelh í fyrradag. Hún
flutti eftirfarandi boðskap:
„Að gefnu thefni skal starfsmönn-
um á þessum vinnustað sérstaklega
bent á, að ef þeir þurfa aö hafa hægö-
ir, hvort sem er th baks eða kviðar,
þá er th þess ætlast að þeir noti þar
th gerð húsnæði, svoköhuð salemi.
Vinsamlegast takið tilht th þeirra er
búa í næsta nágrenni við vinnustað-
inn.“
Fyrir hönd öryggisnefndar skrifaði
Ólaifur Þ. Gunnarsson undir tilkynn-
inguna.
Vinnusvæðið, sem um er aö ræða,
er byggingarsvæði í Keflavík þar sem
íslenskir aðalverktakar em að reisa
fjölbýhshús. Ólafur kvaðst eklú vita
hver hefði kvartað. Það hefði verið
effirlitsmaðurinn sem hefði komið
kvörtuninni áleiðis til sín.
„Tilkynningin er á kjamyrtri ís-
lensku og þarna sést best hvað maö-
ur getur náö langt með því að orða
hlutina rétt,“ sagði Ólafur. „Ég veit
ekki hversu umfangsmikið þetta var.
En maður tekur á þessu nákvæmlega
eins og það er meint, með góðlátlegu
yfirbragði." -JSS