Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Blaðsíða 29
t LAUGARDAGUR 7. MARS 1992. Helgarpopp Híjómsveidn Stranglers á sér marga aðdáendur á fslandi. Þeir geta nú glaðst því í burðarliönum er útgáfa á mörgu af elsta efni hljómsveitarinnar frá 1974-1975 og sumt af þ\n hefur ekki veríð gefið út áður. Níu af lögunum á þessum tvöfalda safndiski voru hljóörituð á tónleikum Stranglers i Ilammersmitli Odeon árið 1976 en þá var hljómsveitin uppliitun- i amúmer fyrir Patti Smith. Sex lög eru demo frá þeim tíma þegar hfjómsveitin var að gera samning við United Artists og eru söguleg- ar i því samhengi. Dexys Midnight Runners sem vaknaði af löngum dvala fyrir þrcmur mánuðum eru nú að hamast við að koma saman nýrri breiöskífu sem þá verður sú fjóröa á löngum ferli hljómsveit- arinnar. Dexys er fræg í bransan- um sem sérlega afkastalítii hljómsveit og því er ný plata enn meira fagnaðarefni en ella. Hljómsveitin Cocteau Twins hefur endurútgefið i kassa allar smáskífur hljómsveitarinnar en þar 1 hópi eru einhverjar stærstu perlur indie-geirans á síðustu árum. íslenskir tónlistarfíklar Mjóta að bera þá von í brjósti að kassínn verði til sölu i íslenskum plötuverslunum fljótlega. HJjómsveitarin Madness, sem dó drottni sínum fyrh' nokkrum árum, hefur gefið út 22 laga safn með öllum vinsælustu lögum sveitarinnar. Sendhigin virðist hafa hitt i mark þvi að platan fór inn á topp 5 á breiöskífulistanum á Englandi strax í fyrstu ýiku. Flestum er í fereku minni mál unglingsstúlku á írlandi sem sett var í farbann af yfirvöldum vegna þess að hún ætiaði í fóstureyð- ingu á Englandi. Stúlkan var barnshaíandi eftir nauðgun, en það var faðir bestu vinkonu hennar sem hafðí nauðgað stúlk- unni. Þetta mál vakti heimsat- hygh fyrir nokkrum dögum en færrí vita að það var irska rokk- stjarnan Sinead O’Connor sem átti stóran þátt í að máliö komst í heimsfréttimar. Söngkonan, sem hefur sjálf tvisvar gengið i gegnum fóstureyðmgu og segist ekki sjá eftir því, varð ævareiö þegar hún heyröi af stúlkunni og máli hennar. Hún sté upp í næstu ílugvél og flaug til Dublinar þar sem hún setti stefnuna á þinghús- iö. Hún ruddist framhjá þing- vörðum með látum og heimtaði viðtal við forsætisráðherrann Al- bert Reynolds. Sinead fékk sínu forsætisráðherrann og gerði hoh- um grem fyrir þeirri skoðun sinni, að ómanneskjuiegt væri að neita fórnarlambi nauðgara um fóstureyðingu, sérstaklega þegar um þam væri að ræða. Eftir fundbm byrsti Sinead O’Connor sig í í hskum fiölmiölum og hvatti fólk til að mótmæla á götum úti. Kalli söngkonunnar var svaraö og mótmæltu tugþúsundir fra af- stööu stjórnvalda. Þannig átti söngkonan stóran þátt í aö vekja athygli á málinu en lyktir þess uröu þær aö farbanni var létt af stúlkunm og fóstmreyömgarlög á írlandi ku vera í endurskoðun. Molar af Molum í kvöld hefst tónleikaferð Sykur- molanna um nokkur Evrópulönd en áður en Mjómsveitin hélt utan tróð hún upp á tvennum tónleikum hér á landi, í Reykjavík í lok febrúar og á Akureyri sl. þriðjudagskvöld. Sykur- molarmr hefia ferð sína í London og Umsjón Snorri Már Skúlason þar verður konsert í kvöld. Fram í næstu viku verður Mjómsveitin í Englandi og Skotlandi en eftir það verður stefnan sett á meginlandið og halda Molamir tónleika í Hamborg, Bmssel, Amsterdam, Dússeldorf, Múnchen, Frankfurt og París áður en haldið verður heim á leið, seiimi Mutann í mars. Eins og fram hefur komið hér á síðunni fór breiöskífan Stick Around for Joy í 16. sæti vinsældalistans í Bretlandi fyrir hálfum mánuði og hún staldraði stutt við því að í þess- ari viku datt hún út af topp 40 hstan- um. Það er því útséð um frekari sigra Sykurmolanna á bresku vinsælda- hstum í bili og ekki annaö að gera en bíða þess að smáskífa með laginu Walkabout verði gefin út en hún er væntanleg á markað í næstu viku. Velgengni í Bandaríkjunum Útgáfa á Hit í Bandaríkjunum var heldur seinna á ferðinm en í Evrópu og það er því fyrst núna sem lagið er farið að gera rósir í vestrinu. Hit fór í efsta sæti Modern Rock-listans í Bilboard í síðustu viku og lagiö hélt þeirri stöðu þessa vikuna. Mod- ern Rock-listinn er samansettur af spilun á öllum háskólaútvarpsstöðv- um í Bandaríkjunum en þar hefur gróskan í bandarísku tónlistarlífi þótt mikil. Á R&R New Rocks listan- um er Hit í öðru sæti eins og í síð- ustu viku. Á MTV sjónvarpsrásinm er Hit í svokallaðri „Buzz Bin“ keyrslu sem þýðir að lagið er í flokki Sykurmolarnir aldrei vinsælli í Bandaríkjunum. með mest spiluðu lögunum. Vel- gengrn Hit á þeim vígstöðvum sem hér hafa verið nefndar hafa komið laginu í topp 5 spilun hjá átta af stóru „national“-útvarpsstöðvunum en þær hafa dreifingu um nánast öll Bandaríkin. Platan Stick Around for Joy fór inn á Bilboard listann í vikunrn og fór þá í 137. sæti en á þessum lista ger- ast Mutirmr hægt þanrng ef að vel gengur má búast við að platan hafi hækkað sig vel inn á topp 100 seinni Mutann í mars. U2 í Ameríku Upp úr miðjum febrúar sl. flugu meðlimir U2 til Flórída í Bandaríkj- unum þar sem þeir hófu sviðsæf- ingar vegna heimstónleikaferðar Mjómsveitarinnar sem hófst fyrir nokkrum dögum. Þeir sem hafa upplifað tónleika með U2 gleyma þeirri lífsreynslu ekki meöan þeir tóra héma megin móðunnar, enda Hijomsveitin uz. U2 oft verið kölluð besta tónleika- sveit rokksins. Sviðið sem þeir fé- lagar ætla notast við á yfirstand- andi tónleikaferð er flóknara og íburðarmeira en Mjómsveitin hef- ur áður notast við. Á tónleikunum verður bryddað upp á þeirri nýjung að spyrða sam- an U2 rokki og súrrealísku sjónar- spili sem Brian Eno hefur útbúið sérstaklega fyrir tónleikaferðina. Sem kunnugt er hefur Brian Eno skapað sér nafn sem myndiistar- maður og einhverju sinni stóð til að hann héldi sýrnngu á Kjarvals- stööum. Á tónleikum U2 opinberar listamaðurinn Mns vegar afrakst- ur af kynnum sínum af videotækn- inní. Á tónleikum U2 í Bandaríkjunum mun Bostonsveitin Pixies Mta upp fyrir írana. Það orsakar seinkun á nýrri plötu Mjómsveitarinnar The Breeders en í þeirri sveit fer hassa- kvendið Kim Deal með stórt hlut- verk, en hún er eins og flestir vita bassaleikari Pixies. Þriðja smáskífulag U2 af plötunm Achtimg Baby er ballaðan One, en meðlimir Mjómsveitarinnar hafa ákveðið að allur ágóði af sölu plöt- unnar renrn til eyðmsjúkra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.