Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992.
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verð-
ur haldinn mánudaginn 9. mars 1992 kl. 20.30 að
Hótel Sögu, Átthagasal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Til sölu eða leigu húseign í
Vestmannaeyjum
Kaup eða leigutilboð óskast í Kirkjuveg 22, Vestmannaeyjum
(Samkomuhús Vestmannaeyja). Stærð hússins er 9.275 m3.
Brunabótamat er kr. 102.404.000,-. Húsið verður til sýnis í sam-
ráði við Ingvar Sverrisson, fulltrúa bæjarfógeta Vestmannaeyjum,
sími 98-11066.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum aðila og á skrif-
stofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð, merkt „Útboð 3801 /2", skulu berast fyrir kl. 11.00 þann
20. mars 1992 þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra
bjóðenda.
ll\ll\IKAUPASTOFI\IUI\l RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7 I05 REYKJAVIK
KJARVALSSTOFA í PARÍS
Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska
listamenn. Reykjavíkurborg, menntamálaráðuneytið og Seðlabanki íslands
lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg með samn-
ingi við stofnun sem nefnist Cité Internationale des Arts og var samningurinn
gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame
dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu og gerir hún tillögu um
úthlutun dvalartíma þar til stjórnar Cité Internationale des Arts er tekur endan-
lega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir en lengst er heim-
ilt að veita listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár.
Þeir sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld er ákveðin eru af stjórn Cité
Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnað-
ar sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í Parísarborg. Dval-
argestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts
varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu og jafnframt skuldbinda þeir sig
til þess að dvöl lokinni að senda stjórn Kjarvalsstofu stutta greinargerð um
störf sín ef óskað er.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu en stjórnin mun á
fundi sínum í apríl fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst
1992 til 31. júlí 1993. Skal stíla umsóknir til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu.
Tekið er á móti umsóknum til stjórnarnefndarinnar i skjalasafni borgarskrifstof-
anna að Austurstræti 16 en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og
afrit af þeim reglum sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 30. mars næstkomandi.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
TCM
Rafmagns- og diesel lyftarar
Eigum til afgreiðslu 2,5 tonna rafmagns- og
diesel lyftara með eða án snúningsgöfflum.
Vélaverkstæði
Sigurjóns Jónssonar hf
SÍMI (91) 62 58 35
Matgæöingur vikurmar
Rjómaostsábætir
Margrét Pálsdóttir valdi að fara
tiltölulega ótroðnar slóðir sem
matgæðingur vikunnar. Hún býð-
ur lesendum upp á ítaiskættaðan
eftirrétt sem hún hefur sjálf stað-
fært. Sérstakur ostur og Utar kex-
kökur, sem notast er við í uppruna-
legu uppskriftinni, fæst ekki hér á
landi og því varð Margrét að stað-
færa uppskriftina. Þótt hún sé að-
eins öðruvísi gefur íslenska útgáf-
an þeirri upprunalegu lítið eftir.
Margrét hefur mjög gaman af að
matreiða, sérstaklega þegar eitt-
hvað óvenjuiegt er í bígerð. Þannig
hefur hún dálæti á að elda ítalska
og austurlenska rétti en er að sama
skapi lítið fyrir að elda hefðbundn-
ar steikur. Húsbóndinn er vel Uð-
tækur í eldÍJÚsinu, ekki síst þegar
tilraunastarfsemi er í gangi.
í rjómaostsábæti
Margrétarer
6 eggjarauður
125 g sykur og vaniUusykur (bland-
að eftir smekk)
400 g ijómaostur
1 peU þeytirjómi
1-1 'h svampbotn - riflnn í búta
kait, sterkt kaffi
ef viU: líkjör, t.d. Amaretto eða
Kahlúa
fat eða mót, t.d. soufflémót (kringl-
ótt og hátt)
Þannig er farið að
Þeytið eggjarauðumar ásamt sy-
krinum þar til blandan verður ljós
og létt. Bætið rjómaostinum út í og
síðan óþeyttum þeytirjómanum og
hrærið.
Setjið kremið og svampbotnsbút-
ana tíl skiptis í mótið (á svipaðan
Margrét Pálsdóttir.
hátt og þegar lasagna er matreitt).
Kremið er sett í mótið og síöan er
svampbotnsbútunum raðað ofan á
þannig að þeir þekji kremið nokk-
um vegmn. Þá er bleytt í þessu
með kaffinu (og Ukjör). Þetta er síö-
an endurtekið eins oft og þarf og
endað á kreminu.
Kakó er sigtað yfir og síðan
skreytt með súkkulaði, kokkteU-
beijum og þess háttar.
Ábætisrétturinn er settur í kæli
og látinn standa þar í að minnsta
kosti 3 klukkustundir. Ef hægt er
að koma því við er ekki verra að
láta réttinn standa í kæU yfir nótt.
Margrét skorar á Ingibjörgu
Bragadóttur húsmóður að vera
matgæðing næstu viku. „Hún kann
sitthvað fyrir sér og býr tU mjög
góðan mat.“
-hlh
Hmhliðin
Bifhjólaakstur
- er meðal áhugamála Úlfars Snæs
Ulfar Snær Amarson hefur skip-
að sér á bekk með þeim fáu karl-
mönnum sem hafa tekið að sér
starf dagskrárþular í Sjónvarpinu
en hann byijaði sem þulur í októb-
er síðastUðnum. Úlfari líkar vel við
starfið og segir það ekkert trufla
sig þótt hann sé inni á stofuteppi
hjá velflestum landsmönum. „Eg
segi vinum mínum bara að veifa tíl
mín.“ Þótt starfið leggist vel í Úlfar
á hann ekki von á að vera í þular-
stólnum til langframa.
DagskrárþuUmir sitja í smá-
kompu við að kynna dagskrána en
það vUja sjálfsagt margir vita hvað
þeir gera milU kynninga.
„Maður horfir oftast á sjónvarpið
eða les blöðin. Þá þarf stundum að
undirbúa næstu kynningu en við
skrifum kynningamar sjálf.“
Þaö er CÚfar Snær sem sýnir les-
endum DV á sér hina hUðina í dag.
FuUt nafn: Úlfar Snær Amarson.
Fæðingardagur og ár: 31. október
1966.
Maki: Gréta Guðmundsdóttir.
Böm Saga, 1 'A árs.
Bifreið: Lada Lux, árgerð 1984.
Starf: Nemi í íslensku við Háskól-
ann og þulur.
Laun: 40 þúsimd á mánuði.
Áhugamál: Bifhjólaakstur og
lúðrablástur.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i iottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Leika við dóttur mína.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Reikna út heimiUsfjármáUn.
Úlfar Snær Arnarson.
DV-mynd GVA
Uppáhaldsmatur: Skyr með rúsín-
um, púðursykri og rjóma.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Hjalti Úrsus.
Uppáhaldstímarit: Skímir.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Banda-
ríska leikkonan Rosanne Arquette
sem lék í Big Blue.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Ég hefði viljað hitta karl
dagskrárþular
heitinn, hann afa minn.
Uppáhaldsleikari: James Woods.
Uppáhaldsleikkona: Sigríður Haga-
Un.
Uppáhaldssöngvari: Prófessor
Höskuldur Þráinsson.
Uppáhaldsstjórnmáiamaður:
Steingrímur Hermannsson.
Uppáhaidsteiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
veður.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Andvíg-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Stein-
grímur Ólafsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Adolf
ErUngsson, sem sér um íþrótta-
spegiUnn, er ansi góður.
Uppáhaldsskemmtistaður: Casa-
blanca.
Uppáhaldsfélag i íþróttum: Valur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að hafa meiri tíma,
manni finnst aldrei vera nægur
tími þegar maður er að gera eitt-
hvað.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór meöal annars í Þórsmörk. Við
giftum okkur í sumar og þess vegna
er brúðkaupsferð í vændum. Við
höfum ekki ákveðið nákvæmlega
hvert við förum en það verður ein-
hver góður staður í Evrópu.
-hlh